Morgunblaðið - 14.03.1996, Side 1

Morgunblaðið - 14.03.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn Rögnvald og Stefán dæma ekki í Atlanta RÖGNVALD Erlingsson og Stefán ArnaJdsson munu ekki dæma í handknattleikskeppni Ólymp- íuleikanna í Atlanta í sumar, eins og þeir höfðu vonast til. Þeir féiagar hafa fengið injög góða dóma og einkunnir hjá eftirlitsmönnum uudanfar- in ár, en þurftu engu að síður að fai-a á úrtökumót í Tyrklandi í febrúar. Nýlega fengu þeir síðan þær fréttir að þeir yrðu ekki meðal dómara á Ólympíu- leikunum, en þess í stað voru tekin pör frá Lithá- en, Hollandi, RúmenSu, Frakklandi og Króatíu. „Auðvitað er maður hundsvekktur yfir þessu en það þýðir ekkert að gráta Björn bónda, við verðum að taka þessu eins og menn,“ sagði Rögn- vaid í samtali við Morgunblaðið í gær. „Eg var búinn að segja að Ólympíuieikarnir yrðu mitt síð- asta verkefni á alþjóðavettvangi og fyrst við kom- ust ekki þangað þá er ekkert annað að gera en skUa skírteininu og dómaranefnd HSÍ hefur verið beðin um að koma þessum skilaboðum rétta boð- leið. Ég er búinn að dæma í 11 ár í alþjóðlegum handknattleik og búinn að prófa allt sem hægt er að prófa, nema fara á Ólympíuleika. Við vitum að við fáum ekki úrslitaleiki í Evrópukeppninni og fyrst við komust ekki á ÓL núna er yóst að við erum komnir eins langt og við komumst. Ég ætlaði aldrei að verða fimmtugur í þessu og nú er rétti tíminn til að standa upp og leyfa öðrum að komast að,“ sagði Rögnvald. Hann sagði að þetta hefði verið skemmtilegur timi, en síðari ár hafi farið full mikiil tími í þetta. „Ætli láti ekki nærri að það hafi farið um tveir mánuðir á ári i að dæma erlendis siðustu árin og það er of mikið fyrir menn í fullri vinnu og með fjöiskyldu. Á meðan ég hef gaman af að dæma þá mun ég halda áfram hér heima,“ sagði Rögn- vald. Abdul-Rauf sett- ur í keppnisbann BAKVÖRÐURINN suöggi þjá Denver Nuggets í NBA-deildinni, Mohmoud Abdul-Rauf, hefur verið settur í bann í ótilgreindau tima og heldur ekki Iaununt sinum á meðan. Ástæðan er sú að hann neitar að standa þegar bandariski, eða kanadíski, þjóðsöngurinn er spiiaður fyrir leiki og situr sem fastast á varamannabekknum. Abdul-Rauf tók múhameðstrú árið 1991 og segist seija trúna ofar þjóðernislegum táknum þrátt fyrir kröfu NBA- deildarinnar um að allir sem koma nærri leiknum skuii standa þegar þjóðsöngurinn er leikinn. Hann segist ekki trúa því að Bandaríkin standi fyrir allt illt í heiminum, en þar séu blökkumenn kúgað- ir en hann er sjálfur þeldökkur. Þegar hann var spurður hvort bandariski fáninn væri ekki tákn frelsis svaraði hann: „Hann er einnigtákn um kúgun og ofríki. Ætii þetta fari ekki bara eftir því hvernig menn horfa á fánann." Rauf er 27 ára. Hann fæddist í Mississippi og var skírður Chris Jackson. „Ég gagnrýni ekki þá sem standa þegar þjóðsöngurinn er leikinn og því finnst mér ekki rétt að ég sé gagnrýndur fyrir að sfyja. Þetta er trú mín og ég sem ekki um hana,“ sagði hann. Valgarð á flugi VALGARÐ Thorodsen, horna- maður í iiði Vals, flýgur hér inn úr horninu gegn Gróttu á Sel- tjarnarnesi. Hann gerði tvö mörk í ieiknum en náði reyndar ekki að koma knettinum í netið að þessu sinni. Sigtryggur Alberts- son, sem var mjög góður í marki Gróttu, varði frá hornamannin- um en Jón Örvar Kristinsson (5) braut á Valgarð áður en hann skaut þannig að vítakast var dæmt. Dagur Sigurðsson skoraði úr því og þegar upp var staðið fögnuðu Valsmenn sigri og eru þeir einu sem þegar hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum íslands- mótsins. Valsmenn áfram Afturelding og Selfoss eiga enn möguleika á að komast í undanúr- slit — sigruðu Stjörnuna og KA VALSMENN eru komnir í fjögurra liða úrslit 1. deildar karla í hand- knattleik, eftir sigur á Gróttu 25:21 á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Þar með hafa þeir sigrað Gróttu tvívegis og Seltirningar eru úr leik. í hinum leikjum gærkvöldsins urðu úrslit þannig að bæði Selfoss og Afturelding tryggðu sér þriðja leik í viðureignunum gegn KA og Stjörnunni. Selfyssingar sigruðu KA 25:24 og liðin mætast því þriðja sinni á Akureyri annað kvöld og þá mæt- ast einnig Stjarnan og Afturelding því Mosfellingar sigruðu Garðbæing- ana 24:22 í gærkvöldi á heimavelli. „Þetta var erfið fæðing," sagði Dagur Sigurðsson fyrirliði Vals eftir sigurinn á Gróttu og það má til sanns vegar færa. Gróttumenn lögðu sig alla fram með Júrí Sadovskí og Sig- trygg Albertsson sem bestu menn en það dugði ekki til og keppnistíma- bilinu er því lokið hjá þeim. Viggó Sigurðsson þjálfari Stjörn- unnar var ekki ánægður eftir tapið í Mosfellsbæ og gagnrýndi dómar- ana, Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson, harðlega: „Að þetta skuli vera besta dómarapar landsins! Þeir eru hlutdrægir. Það er mjög slæmt að fá þá Stefán og Rögnvald hérna í Mosfellsbæ og þetta er ekki fyrsti leikurinn sem við töpum hérna af þeirra völdum,“ sagði Viggó. Valdi- mar Grímsson og lærisveinar hans voru ánægðir eftir að hafa sigrað KA, sem Valdimar lék einmitt með síðustu árin. „Loks kom röðin að okkur. Við höfum fjórum sinnum tapað fyrir þeim í vetur í jöfnum leikjum og því var svo sannarlega kominn tími til að sigra. Nú er úr- slitaleikur framundan í KA heimil- inu. Þar líður mér alltaf vel og við munum mæta þangað staðráðnir í að sigra,“ sagði Valdimar eftir eins marks sigurinn í gærkvöldi. ■ Leikirnir / D4 KVENNAUÐ KEFLAVÍKUR OG KR UNNU FYRSTU UNDANÚRSLITALEIKINA / D8 ►

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.