Alþýðublaðið - 06.12.1920, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 06.12.1920, Qupperneq 1
G eíið út al Alþýduflokknum. 1920 Mánudaginn 6. desember. 286 tölubl. Við láum þeim það ekki! Einn þáttur hins margfalda mis- skilnings, er kemur fram hjá auð- valdsblöðunum, gagnvart jafnaðar- ^tefnunni, er það, að jafnaðar- »>enn lái atvinnurekendunum það, að þeir skuli reyna að græða peninga. En þetta er hinn mesti misskiln- ingur. Það er langt frá þvf að við !áum hinum einstaka atvinnurek- anda það, þó hann reyni að græða. Við láum honum það ekki, svo framarlega sem sú gróðavon hans skki rekur hann til þess, að nota sér gefið tækifæri til að sprengja «pp lífsnauðsynjar almennings, eða til að skrúfa niður kaup verka- fýðsins, eða til að stofna mannsiíf- um í voða með því að sökkva “skipum. En alt þetta þrent eru þjóðfélagsplæpir, sem lítill munur er gerandi á, því af þeim öllum getur hlotist heilsuleysi og líftjón, þó þessar aðferðir séu misjafnlega bráðverkandi, og þó þær varði sumpart alls ekki, en sumpart mjög misjafnlega mikið, við lög þau er nú gilda. í sambandi við missilning þenn- an, að við láum atvinnurekendum að þeir vilja græða, er sá mis- skilningur, að við jafnaðarmenn séum að berjast á móti einstökum atvinnurekendum. Siíkt er vitan- lega hin mesta fjarstæða. Við berjumst ekki á raóti þeim, nema þegar þeir sem einstaklingar koma 'fram sem talsmenn auðvaldsins, «ða sem endróðursmenn jafnaðar- stefnunnar og verklýðshreyfingar- innar. En þá er það heldur ekki á móti þeim sem atvinnurekndum að við berjumst. Það sem við berjumst á móti ®r sjálft þjóðfélagsfyrirkomulagið — auðvaldsfyrirkomulagið — sem gefur mönnum kost á því, að nota vinnuafl annara fyrir sig. Við vilj- nm að þjóðin eigi sjálf atvinnu- fyrirtækin og að þeir, sem nota vinnuafl annara — stjórnendur fyrirtækjanna — noti þetta vinnu- afl til hagsmuna fyrir þjóðina, fgrir heildina, en ekki fyrir sjálf- an sig. Það er ofur einfalt mál, að ef þjóðin ætti sjálf framieiðslutækin, en ekki einstakir auðmenn, þá mundi gróðinn af rekstrinum ganga til almennings, en ekki, eins og nú, til þessara einstöku fáu auð- manna. Þeir skilja það vel, auð- mennirnir, að það er úti um hinn mikla arð þeirra, ef þjóðin eignast framleiðslutækin. Þeir skilja að gróðinn mundi þá sumpart renna beint til verklýðsins, sem aukin verkalaun, en sumpart óbeint, sem endurbætur, er hið opinbera mundi láta gera: byggja nægar hollar íbúðir, barnaheimili fyrir munaðar- leysingja, gamalmennahæli o. s. frv. Og af því þeir skilja þetta, eru þeir á móti jafnaðarstefnunni. En þeir vita að það þýðir ekk- ert fyrir þá að berjast á móti jafnaðarstefnunni á þeim grund- velli að þeir tapi á því að hún komist í framkvæmd. Ef þeir gerðu það, mundi almenningur strax sjá, að hann grœddi á þvi. Þess vegna láta þeir blöðin sem þeir gefa út til þess að berjast á móti jafnað- arstefnunni og verklýðshreyfing- unni, halda fram þeirri hlægilegu viðbáru, að almenningur mundi tapa á framgangi jafnaðarstefn- unnar, að almenningur mundi fá enn minna í kaup en hann fær nú, ef ekki væru auðmennirnir til þess að hirða gróðann af fyrir- tækjunum fyrir sjálfa sig. Þetta er hlægileg viðbára, en hlægilegra en að koma með hana er þó það, að ennþá skuli vera fjöldi verka- fólks, sem trúir þessu. Trúir því að það mundi enga vinnu fá, ef ekki væru auðmennirnir til þess að „veita" vinnuna, og skilja ekki að auðurinn, sem atvinnurekend- urnir hafa keypt framleiðslutækin íyrir, er mestmegnis beinlinis eign n;;,HSKÍPArJet i E.s. Gullfoss fer héðan á miðvikudag 8. desember kl. 5 síðd. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að fóstiurdóttir okk- ar eiskuieg, Sigriður G. M. Guð- jónsdóttir, andaðist 3. des. Jarðarförin ákveðin siðar. óðinsgötu 32. Sigríður Kristjánsdóttir. Simon Simonarson. þjóðarinnar, þar eð það mest- megnis er lánsfé sem atvinnurek- endurnir nota: fé sem almenning- ur Iánar bönkunum (sparisjóðsfé) en þeir aftur atvinnurekendum, opinberir sjóðir, sem standa i bönkunum, og seðlar, sem bank- arnir gefa út, sem er lán tekicf hjá þjóðinni. En þó við láum ekki atvinnu- rekendum það, að þeir vilji gæða, þá láum við þeim hluta af verk- Iýðnum, sem ennþá er svo skiln- ingsdaufur að hann hefst ekki handa, til þess að breyta þjóðfélaginu þann- ig að það verði þjóðin, sem hafi á- góðan af viti sínu og striti, en ekki einstakir, fáir auðmenn. Og við Iáum öllum þeim milll- stéttarmönnum, sem hnýtir sér aftan í auðmannaklíkuna til þess að dansa þar pólitískan halarófu- tústepp eftir málpípublæstri auð- valdsins, sjálfum sér til skammar, en til athlægis fyrir auðvaldið. Við láum þeim að þeir skuli ekki sjá sinn eigin hag. Sjá að hann er að vera verklýðsins megin. Að hagur þeirra og þjóðarinnar fer saman, en ekki hagur þeirra og: auðmannanna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.