Morgunblaðið - 15.03.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.03.1996, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • JUtfrgittiMgiMfr Prentsmiðja Morgunblaðsins Föstudagur 15. marz 1996 ■ ilÍlÍpSiif Biað D Markaðurinn í dreifbýli ÞEGAR húsnæðiskostnaður er metinn, er nauðsynlegt að taka með í dæmið erfiðleika á að selja íbúðir á almennum mark- aði, einkum í dreifbýlinu, segir Grétar J. Guðmundsson í þætt- inum Markaðurinn. Það hefur ekki alltaf verið gert. / 2 ► llr m 'i £Sij MgpgpjH ■ f ' ílSir* I / í t í raj yuuii I Gamlir heimilismunir ÞAÐ þykir fallegt að hafa gamla muni með nýjum hús- gögnum, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan, þar sem hann fjallar um viðgerð á göml- um munum. Gamalt ferða- koffort er bæði gott til þess að sitja á og til að geyma í. /10 ► Fræðslurit Húseigenda- ,félagsins Igær kom út sérstakt fræðslurit á vegum Húseig- endafélagsins, sem er sér- staklega helgað fjöleignarhús- um og löggjöf um slík liús. Fræðsluritið er mjög efnis- mikið og vandað, enda hefur það að geyma margvíslegan fróðleik eftir marga sérfróða höfunda. Það er gefíð út í 17.000 eintökum og verður dreift ókeypis i hús. Útgef- andi er Þórhallur Jósepsson í samvinnu við Húseiganda- félagið. Þar er fjallað um Qöleign- arhúsalögin, hugtakið hús, valdsvið húsfélaga, gervi- hnattasjónvarp, sameign, sér- eign og húsfundi, svo að nokk- uð sé nefnt. Að sögn Sigurðar Helga Guðjónssonar hrl., formanns Húseigendafélagsins, hefur verið nokkur losarabragu'r á fundahaldi húsfélaga og það oft haft afdrifaríkar afleiðing- ar. Nú er Húseigendafélagið að ljúka við fundargerðabók, sem verður sérsniðin að þörf- um húsfélaga. Bókin mun því hafa að geyma leiðbeiningar um allt, sem lýtur að fundum húsfélaga. Húseigendafélagið hafði frumkvæði að fjöleignarliúsa- lögunum, sem gengu í gildi í ársbyijun 1995. Voru lögin ekki hvað sízt byggð á reynslu félagsins. Nú hefur Húseigendafélag- ið hafið baráttu fyrir setningu laga, annars vegar um fast- eignaviðskipti og hinsvegar um grennd og nábýli. / 16 ► Fjölgun í hús- bréfaumsóknum um notaðar íbúðir BREYTINGAR á fjölda umsókna um húsbréfalán eru mikil vísbending um það, sem er að gerast á fasteigna- markaðnum hverju sinni. I febrúar sl. varð mikil fjölgun á húsbréfaum- sóknum vegna notaðra íbúða miðað við sama mánuð í fyrra, sem er ótví- rætt merki um meiri umsvif á mark- aðnum á þessu ári. Tölverð aukning varð einnig í um- sóknum vegna nýbygginga einstakl- inga og byggingaraðila. Þróunin í ár er því talsvert á annan veg en í fyrra, en það ár varð töluverð fækkun á húsbréfaumsóknum miðað við árið þar á undan í öllum lánaflokkum. Samþykkt skuldabréfaskipti voru líka mun fleiri í febrúar sl. en í fyrra, bæði að því er varðar notað húsnæði og nýbyggingar byggingaraðila og einstaklinga. Meðallán byggingar- aðila á íbúð fara hins vegar lækkandi, sem bendir til þess, að byggingarað- ilarnir byggja nú hagkvæmari íbúð- ir en áður. Meðallán vegna notaðs húsnæðis fara einnig lækkandi, en þar er þess að gæta, að þeim húsum og íbúðum fer stöðugt íjölgandi, sem fasteigna- veðbréf hvíla þegar á og nýir kaup- endur yfirtaka. Umsóknir um húsbréfalán til end- urbóta á íbúðarhúsnæði hafa hins vegar verið litlu fleiri í ár en fyrstu tvo mánuðina í fyrra. Raunar eru slíkar umsóknir að jafnaði flestar yfir sumarmánuðina, sem er ótvíræð vísbending um, að margir hyggja jafnvel ekki að endurbótum og við- haldsviðgerðum fyrr en komið er fram á vor. Hafa ber þó í huga, að nú bjóða lánastofnanir upp á allt að fimmtán ára lán til endurbóta, sem gæti dregið úr ásókn í þennan lánaflokk hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Umsóknir um skuldabréfaskipti F A S T Scndu inn umsókn eda fáöu nánarí upp/ýsingar hjáráðgjöjum Skandia Skandia I G N A L A N SK AN Skandia býður þér sveigjanleg lánskjör ef þú þarft aö skuldbreyta eða stœkka við þig Fyrir hverja eru Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar, Skandia? auðseljanlegar eignir, en vilja lán Fásteignalán Skandia em fyrir alla til annarra fjárfestinga. á stór-Reykjavíkursvæöinu sem em að kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár. nægilega hátt lán i húsbréfakerfmu. Hagstæð vaxtakjör. Þá sem vilja breyta óhagstæðum Minni greiðslubyrði. éldri eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn. Dœmi um mánaðatiegar ajborgamr af1.000.000 kr. Fasteignuláni Skandia* \í\\tir("/.) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 7,5 8,0 11.600 9.000 7.100 11.900 9.300 7.400 12.100 9.500 7.700 Miöað cr við jufngrciöslulán. *Auk vcröbóta FJÁRFESTIMC3ARFÉLAGIB SKANDIA HF.. LAUGAVEGI 170. 105 REYKJAVlK, SllVII 56 1S 700. FAX 55 2B 177

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.