Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 B 19
ATVIN N tMAUGL YSINGAR
Rannsóknarstofnun
fískiðnaðarins.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er
sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir
sjávarútvegsráðuneytið. Hlutverk
stofnunarinnar er að stuðla að
framförum í fiskiðnaði með
rannsóknum á hráefni og afurðum úr
sjávarfangi.
Starfsmenn eru um 60, þar af 35 með
háskólapróf. Stofnunin er í
nýuppgerðu húsnæði og er aðstaða og
búnaður með ágætum.
I tengslum við breytingar á
stjórnskipulagi Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins óskar stofnunin eftir að
ráða í eftirfarandi störf:
Aðstoðarforstjóri
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi
þáttum:
-útfærslu og framkvæmd á stefnu RF.
-faglegum markmiðum starfssviða í
samræmi við langtímastefnu.
-daglegum rekstri, áætlanagerð og
eftirliti með fæim.
-starfsmannahaldi.
Aðstoðarforstjóri er formaður
verkefnaráðs og framkvæmdastjórnar
og situr í fagráði.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði,
örverufræði, matvælafræði, verkfræði
og/eða viðskiptafræði eða önnur
sambærileg menntun ásamt staðgóðri
þekkingu á sjávarútvegi. Starfsreynsla
og góð tungumálakunnátta er
nauðsynleg. Aðstoðarforstjóri þarf að
vera framsækinn og hugmyndaríkur,
hafa góða stjórnunarhæfileika og vera
lipur í samskiptum.
Þjónustustjóri.
Þjónustustjóri er forstöðumaður
þjónustusviðs, en þar fara fram
þjónustumælingar sem unnar eru á
vegum stofnunarinnar. Starfsemi
útibúa í Vestmannaeyjum, á Isafirði,
Akureyri og Neskaupstað heyrir einnig
undir sviðið.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi
þáttum:
-daglegum rekstri sviðsins, þ.m.t.
áætlanagerð og starfsmannamálum
sviðsins
-öflun verkefna og samskiptum við
viðskiptavini
-þróun nýrra mælinga og annarri
reglubundinni þjónustu.
Forstöðumaður þjónustusviðs situr í
fagráði, verkefnaráði og
fr amkvæmdastj órn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði,
örverufræði, matvælafræði, verkfræði
eða önnur sambærileg menntun.
Starfsreynsla og góð
tungumálakunnátta er æskileg.
Forstöðumaður þjónustusviðs þarf að
vera framsækinn og hugmyndaríkur,
hafa góða stjórnunarhæfileika, *
þjónustulund og vera lipur í
samskiptum.
Rannsóknarstjóri
Rannsóknarstjóri er forstöðumaður
verkefnasviðis, en þar fer fram fagleg
þróunarvinna og rannsóknir
stofnunarinnar, aðrar en útseldar
þjónustumælingar. Verkefni eru unnin
i hópum og bera hóparnir ábyrgð á
einstökum verkefnum.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á eftirfarandi
þáttum:
-faglegum leiðbeiningum um framgang
verkefna sem unnin eru í
verkefnahópum
-öflun verkefna með verkefnastjórum
-daglegum rekstri sviðsins, þ.m.t.
áætlanagerð og starfsmannamálum.
Forstöðumaður verkefnasviðs situr í
fagráði, verkefnaráði og
framkvæmdastjórn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði efnafræði,
örverufræði, matvælafræði, verkfræði
eða önnur sambærileg menntun.
Starfsreynsla og góð
tungumálakunnátta er æskileg.
Forstöðumaður verkefnasviðs þarf að
vera framsækinn og hugmyndaríkur,
hafa góða stjórnunarhæfileika og
mikinn faglegan metnað.
Upplýsingastjóri.
Upplýsingastjóri er forstöðumaður
upplýsingasviðis, en þar fer fram útgáfa
kynningar- og kennsluefnis og
skipulagning og umsjón með
námskeiðum og ráðstefnum á vegum
stofnunarinnar. Kennsla og samstarf
við menntastofnanir heyra einnig
undir upplýsingasvið.
Starfssvið:
Starfið felur í sér ábyrgð á og umsjón
með eftirfarandi þáttum:
-útgáfu kynningar- og kennsluefnis
-upplýsingakerfum og viðhaldi
upplýsinga
-kennslu og samstarfi við
menntastofnanir.
Forstöðumaður upplýsingasviðs situr í
fagráði, verkefnaráði og
fr amkvæmdastj órn.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun. Starfsreynsla og góð
tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Forstöðumaður upplýsingasviðs þarf
að hafa góða skipulagshæfileika og vera
hugmyndaríkur.
Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Nánari upplýsingar um ofangreind
störf veitir Einar Kristinn Jónsson og
María G. Sigurðardóttir hjá Markviss
ehf., Kringlunni 6, Reykjavík s.
5887474, milli kl. 9.00 og 10.00
daglega.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skulu berast til
sjávarútvegsráðuneytisins fyrir kl.
16.00 föstudaginn 12. apríl 1996.
*
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Verkfræðingar
- tæknifræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar að ráða
rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstækni-
fræðing til starfa í áætlanadeild.
Áætlanadeild sér m.a. um hönnun á lág-
spennu- og millispennukerfum, dreifistöðv-
um og götulýsingu.
Leitað er að starfsmanni með menntun á
sterkstraumssviði og áhuga á ofangreindum
veitukerfishlutum.
Upplýsingar um starfið veitir starfsmanna-
stjóri og deildarstjóri áætlanadeildar
í síma 560 4600.
Umsóknarfrestur er til 20. mars.
Áður sendar umsóknir skulu endurnýjaðar.
Ráðgjöf og efnahagsspár ehf.
Síðumúla 14,108 Reykjavík
Óskum að ráða hagfræðing eða
viðskiptafræðing.
Starfsmaðurinn þarf að hafa framhaldsmenntun
frá erlendum háskóla oa vera vel að sér í
alþjóðafjármálum og stærðfræði en vera við því
buinn að aanga í gegnum talsverða starfs-
þjálfun. Skííyrði er að starfsmaðurinn tali reip-
rennandi ensku en góð almenn tungumála-
kunnátta er æskileg. Hann/hún þarf að eiga
auðvelt með að tjá sia bæði í riti og ræðu. Goð
tölvukunnátta er æskileg sem og reynsla af
hagrannsóknum.
Verksvið starfsmannsins verður m.a. ráðgjöf
um áhættustjórnun, fjármálaráðgjöf og ntun
fréttabréfs og upplýsinga á tölvukerfi Reuters.
Skriflegar umsóknir sendist á ofangreint
heimilisfang fyrir 1. apríl nk.
Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. var stofnað árið 1993 og
sérhæfir sia í óháðri fjarmálaráögjöf og ráögefandi upplýs-
ingaþjónusfu um efnanagsmál og fjármálamarkaði. Anersla
er lógð á ráðgjöf um áhættustjornun einkum varðandi
markaðsáhættu. Fyrirtækið er fulltrúi fyrir fjármálaþjónustu
REUTERS á Islandi og gefur út fréttabréfio Gjaldeyrismál.
Hekla hf.
Störf í varahiutaverslunum Heklu hf.
Óskum eftir að ráða starfsmenn í varahluta-
verslanir okkar, þ.e. bílavarahlutadeild og
véladeild.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu
og þekkingu á bílum og vinnuvélum og/eða
í afgreiðslu varahluta og tölvuvinnu.
Áhersla er lögð á ríka þjónustulund og lipurð
í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um störfin veita verslun-
arstjórar viðkomandi deilda.
Umsóknareyðublöð fást hjá símavörðum alla
daga frá kl. 9-18.
Umsóknum skal skila á sama stað í síðasta
lagi 22. mars nk.
HEKLA