Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 1
FLÓRÍDA Heimili uppfinningamanns í FORT Myers á suðvesturströnd Flórída er starfrækt myndarlegt safn í minningu uppfinn- ingamannsins Tómasar Alva Edison. Hann kom fyrst til Fort Myers 38 ára, hreifst af staðnum og reisti sér hús þar sem dvaldi á veturna nær sleitulaust til dauðadags. ■ Sviknir flugvéla- varahlutir ógna öryggi farþega TALIÐ er að í flugvélum um allan heim sé að finna varahluti sem uppfylla ekki lágmarks gæðakröf- ur. Oft eru þeir fengnir frá aðil- um, sem þegar hafa fengið dóm fyrir að dreifa slíkum hlutum. ■ 3 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 BLAÐC Lægsta verð ó bílaleigubílum hvert sem ferðinni er heitið Hrlngdu f okkur og fáðu sendan sumarbœkllnglnn s: 588 35 35 Samningur Útivistar og Skaftárhrepps um samstarf á sviði ferðaþjónustu Umferð ferðafólks verður auðvelduð TIL stendur að merkja nýjar gönguleiðir og nýta og endurbæta gangnamannaskála í Skaft- árhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu með það markmiði að auðvelda og skipuleggja umferð ferðafólks um hreppinn, tryggja öryggi þess og vernda náttúru landsins og hlífa við óþarfa átroðningi. Þá er ætlunin að fá heimafólk, sem er manna fróðast um staðhætti, til leiðsagnar í skipulögðum ferðum um svæðið. í þessum tilgangi hafa Skaftárhreppur og Útivist undirritað þriggja ára samning um víð- tækt samstarf á sviði ferðaþjónustu í hreppnum. Þá hafa verið skipulagðar nítján ferðir á vegum Útivistar um Skaftárhrepps í vor og sumar og verður fyrsta ferðin í anda samningsins farin nú um páskana. Enginn þekkir landið betur en helmafólk Að sögn Áma Jóhannssonar hjá Útivist er, þema samningsins fyrst og fremst að virkja heimamenn til enn frekari ferðaþjónustu en nú er. Heimamenn njóti gÓðs af sérþekkingu Úti- vistar sem meðal annars snýr að öiyggismálum og skipulagningu ferða og fái tækifæri til að tileinka sér hana til atvinnusköpunar í hreppn- um. Útivistarfólk fái á móti að njóta sérþekking- ar heimafólk á landssvæðinu, enda þekki engir landið betur en það. í Skaftárhreppi eru fjölmargar náttúruperlur svo sem Eldgjá, Lakagígar og Núpsstaðaskógur auk fjölda annarra merkra staða allt, frá fjalli til fjöru. Til stendur að merkja nýjar gönguleið- ir um hreppinn og kynna þær ferðmönnum jafnt innlendum sem erlendum. Þá er ætlunin að smíða göngubrú yfir Skaftá og tengja þannig saman Eldgjá sem er vestan við hana og Laka- gígasvæðið að austan. Þar með tengjast Ejalla- baksleið nyrðri og Lakasvæðið en á sumrin eru daglegar rútuferðir á báðum þessum leiðum. Hlutl af uppbygglngu hreppsins á sviði ferðamála Að sögn Jóhönnu B. Magnúsdóttur, ferða- málafulltrúa Skaftárhrepps, er verið að endur- skoða stefnu hreppsins í ferðamálum og sé samningurinn mjög í anda þessarar nýju stefnu. „Markmiðið er að nýta svæðið á skynsamlegan hátt og opna það enn frekar fyrir ferðamönnum, bæði göngu- og hestafólki, én nú er og stefnan er að Skaftárhreppur verði umhverfísvænn áfangastaður ferðamanna," segir Jóhanna. ■ Morgunblaðið/Þorkell FOSS á Síðu er meðal fjölda náttúruperla í Skaftár- hreppi. Ætlunin er að merkja gönguleiðir í hreppn- um, 'nýta og endurbæta gangnamannaskála og fá heimamenn til að fylgja ferðafólki um landið. SUMAR í LECH ►LECH í Austurríki er fyrst og fremst þekktur skíðastaður. Þó er ýmislegt um að vera þar á sumrin og margir skíðakennarar starfa þá sem leiðsögumenn. 14.-20. júlí verður t.d. haldið upp á 700 ára afmæli þorpsins með sýningum og uppákomum. GENGID Á FJÖLL ►FEGURÐIN í Ölpunum hefur þau listræn áhrif á marga og 20.-27. júlí verður boðið upp á teiknikennslu i Lech. Kennslan kostar um 32.000 kr. með gist- ingu í sjö nætur og morgunmat í tveggja stjörnu hóteli og 53.000 með hálfu fæði í fjögurra stjörnu hóteli. Nánari uppl. fást hjá Reisebiiro Lech am Arlberg, A- 6764 Lech, simi: (43/5583)2161-0, bréfsími: (43/5583)3155. GOLFFERD ►GQLFDEILD Úrvals-Útsýnar býður 4ra daga golfferð til Skot- lands um páskana, 4.-8. april. Ferðin kostar 49.800 kr. í tvíbýli og er flug, ferðir til og frá flug- velli, fjögurra nátta gisting, morgunmatur, kvöldmatur og 27 holur á dag innifalið auk allra skatta. Þóka þarf fyrir 20. mars. ©SJDQCBQaGQ Tryggðu þér sæti til Cancun í sumar á þcnnan yndislega áfangastað þar sem þú finnur fegurstu strenidur í heimi, tærasta sjóinn og glæsilegan aðbúnað. Cancun er tískustaðurinn í ár, hér er endalaust úrval veitingastaða og skemmti- staða og kynnisferðirnar eru ógleymanlegar s.s. skoðunarferðin til pýramídans í Chichen Itza eða spennandi ferð til Kúbu. meðan enn er laust. kr. 65.800,- M.v. hjón með barn, Pnsada Laguna, 24. júní, 2 vikur. »68.250,- M.v. 2 í herbergi, Posada Laguna, 24. júní, 2 vikur. Frábærarundirteklir 10. júni 12 sæti laus 24. júní laus sæti 8. júlí 5 sæti laus 22. júlí 9 sæti laus 5. ágúst laus sæti 19. ágúst uppsclt 2. sept. uppsclt 16. sept. laus sæti HEIMSFERÐIR Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.