Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 2
2 D SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLNOTABÍLL frá Mercedes Benz er í nokkuð hefðbundnum stíl en vel búinn.
FRÁ Mercedes Benz mátti einnig sjá iangbaksútgáfur í E og C-línunum
ALÞJOÐLEGA BILASYNINGIN I GENF
V-línan er
velbúinn f jöl-
notnbíll frú
Mercedes Benz
sendibíll. Hann er 4,65 m langur,
15,7 cm styttri en E-línu langbak-
urinn sem einnig var sýndur í
Genf en hann er 7,1 cm breiðari.
Hjólhafið er 3 metrar. í útliti má
segja að V-línan sé nokkuð lík
öðrum fjölnotabílum en þó hefur
þar hver sinn svip og er til dæmis
framendinn nokkuð sömu ættar
og Sprinter sendibíllinn frá Merce-
des Benz sem kynntur var á síð-
asta ári. Rúður eru stórar og stað-
hæfa má að hann er rúmgóður og
þægilegur í umgengni, svona í það
minnsta þegar sniglast er um hann
á sýningarbás. Rennihurð er á
annarri hlið bílsins.
Þrjár útgáfur
V-línan verður boðin í þremur
útgáfum og hefur grunngerðin
allgóðan staðalbúnað. Má þar
nefna vökvastýri, rafdrifnar rúður
að framan, íjarstýrðar samlæs-
NÝJA V-línan, fjölnotabíllinn frá
Mercedes Benz, er fýrsti bíllinn
sem verksmiðjumar bjóða með
framdrifi. Þetta er sjö manna bill,
fáanlegur með 2,3 lítra og 143
hestafla bensínvél eða 2,3 1 og
98 hestafla dísilvél. Sala hefst
almenn í Evrópu með haustinu
og ef marka má áhugann sem
menn sýndu bílnum þama í básn-
um ætti framleiðandinn að geta
búist við góðum viðtökum mark-
aðarins - í það minnsta ef verðið
verður þolanlegt.
Fjölbreytni var höfuðmarkmið
hönnuða og tæknimanna Mercedes
Benz þegar V-línan var í undirbún-
ingi. Þessi sjö manna bíll þar sem
allir sitja í þægilegum stólum hef-
ur einnig 581 1 farangursrými og
sýndu talsmenn verksmiðjanna
þama í básnum hvemig átta ferða-
töskur komast þar fyrir. V-línu
bíllinn er samt hvorki smárúta né
Morgunblaðið/jt
KOMA má þessum átta töskum í farangursrýmið
en það er 581 lítri að stærð.
ingar, tvo líknarbelgi, hemlalæsi-
vörn og rafstillanlega hliðar-
spegla. I hinum gerðunum tveim-
ur er síðan enn bætt við bæði
ýmsu fyrir augað og búnaði, til
dæmis regnhlíf í sérstökum
standi, ísskáp og leikjum fyrir
börnin eða aðra sem gerast óþolin-
móðir á langleiðum. Bæði bensín-
og dísilvélarnar eru 2,3 lítrar og
fjögurra strokka og hefur þessi
143 hestafla bensínvél þegar verið
notuð með góðum árangri í E-lín-
unni. Um mitt næsta ár verður
einnig fáanleg 2,8 lítra bensínvél
sem á ættir að rekja til Volkswag-
en verksmiðjanna. Þá er V-línan
fáanleg bæði með 5 gíra hand-
skiptingu eða fjögurra þrepa sjálf-
skiptingu með þremur stillingar-
möguleikum. Meðaleyðsla bensín-
vélarinnar er 11,4 1 en dísilvélin
er talin eyða 8,8 lítrum. Hámarks-
hraðinn er 168 og 155 km og veg-
ur bensínbíllinn 1.930 kg og dísil-
bíllinn 1.945 kg. í lokin má nefna
að V-iínan er eini bíllinn frá Merce-
des Benz sem byggður er utan
Þýskalands, í verksmiðjum fyrir-
tækisins á Spáni. Með V-línunni
bætast verksmiðjurnar í hóp þeirra
bílaframleiðenda sem bjóða nú fjöl-
notabíla sem á síðustu 5-6 árum
hafa selst í mjög auknum mæli í
Evrópu. Voru á sl. ári seldir um
235 þúsund slíkir bílar og er gert
ráð fyrir að sala þeirra nemi um
450 þúsund bílum um aldamót.
Hlutfall þeirra á Þýskalandsmark-
aði er aðeins 1,7%, 0,8% á Ítalíu
og 4,4% í Sviss. í Bandaríkjunum
hefur hlutfall þðirra verið 14% í
meira en áratug. •
FIFTIE heitir þessi skondni tveggja manna sportbíll frá Renault.
FIFTIE heitir nýi hugmyndabíll-
inn frá Renault sem sýndur var i
Frankfurt og halda verksmiðjurn-
ar upp á fimmtíu ára afmæli C V
4 bílsins sem hinir eldri ættu að
þekkja. Fiftie er tveggja manna
sportbill með litlu farangurshólfi
og er eiginlega nokkuð fyndinn
útlits.
Renault Fiftie er sérstakur bíll,
ávalur, bogadreginn og með
skemmtileg brot og línur. Eigin-
legir stuðarar eru ekki fyrir
hendi, Iuktirnar eru litlar týrur,
hringlaga að framan en með óskil-
Afmælisbíll
frá Renault
greindu lagi að aftan og virðast
fremur vera eitthvert skraut en
eru raunverulegar luktir þegar
betur er að gáð. Fiftie tekur sjálf-
an sig ekki alvarlega sögðu full-
trúar framleiðenda á básnum en
bíllinn er kynntur til skemmti-
brúks og minnti umfjöllun manna
örlítið á hvernig Twingo hefur
stundum verið kynntur. Fiftie er
blæjubíll.
Vélin er 1149 rúmsentimetrar,
fjögurra strokka, átta ventla og
60 hestöfl. Meðaleyðslan er talin
vera rúmir 6 lítrar í blönduðum
akstri. Tilgangur Renault með
Fiftie er að sýna sköpunargáfuna
og frumleikann og hvernig hugs-
anlega megi færa þetta tvennt
nær hefðbundinni bílaframleiðslu.
Ekki létu menn uppi neinar áætl-
anir um hugsanlega fjöldafram-
leiðslu. ■
Umboðsmaður álfa
til Vegagerðarinnar?
í GREIN í Framkvæmdafréttum,
sem Vegagerðin gefur út, er vitnað
til greinar sem birtist í 6. tölublað
Vísbendingar, vikurits um viðskipti i
og efnahagsmál. Þar er fullyrt að
Vegagerðin sólundi fé skattborg-
ara vegna hjátrúar og hindur-
vitna. I Vísbendingu segir m.a.:
„Hins vegar fer gamanið að
káma þegar hjátrú þessi er far-^
in að stjórn aðgerðum opin-
berra stofnana. Vegagerð rík-
isins segist taka sérstakt til-
lit til álfa og huldufólks við
vegarlagningu og tekur
fremur á sig dýra króka en
að spilla álfabyggðum".
Síðar í greininni segir: „Tröll
þykja of barnaleg nú á dögum
til þess að frásagnir af þeim skelfi ‘|m|
menn. Að minnsta kosti taldi
Landsvirkjun óhætt að virkja að
Búrfelli þrátt fyrir skessuna sem þar
var forðum. Það var eins gott að
Vegagerðin sá ekki um þær fram-
kvæmdir".
í svari Vegagerðarinnar kemur
m.a. fram að því sé ekki að neita
að einstöku sinnum sé trúin á hið
yfirskilvitlega ástæðan fyrir athuga-
semdum heimafólks og sé hlustað á
þær raddir eins og aðrar. Því sé held-
ur ekki að neita að sögur af álfum
og álagablettum hafi vakið athygli
fjölmiðla heima og erlendis.
„Starfsmenn Vegagerðarinnar
hafa svarað spurningum um þessi
efni og ekki farið undan í flæm-
ingi. Hins vegar hefur Vegagerð-
in ekki hvatt til þessarar um-
ræðu né haft frumkvæði að
henni enda gæti slíkt vakið
upp nýja „vætti“. Fjölm-
iðlaumfjöllunin hefur hins veg-
ar ekki verið á neikvæðum
nótum, þessu hefur verið lýst
sem sérkennilega skemmtilegu
einkenni þjóðarinnar og þannig
% jafnvel stuðlað að landkynningu.
Það gæti þannig jafnvel verið pening-
anna virði að halda þessu lifandi.
Það væri kannski snjallt að Vega-
gerðin réði til sín sérstakan umboðs-
mann álfa og er það sjálfsagt ekki
verri hugmynd en margar aðrar.“