Morgunblaðið - 19.03.1996, Side 1
1996
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ
BLAÐ
SUIMD: SEX ÍSLAIMDSMET FÉLLU í VESTMAIMINIAEYJUM / B4
Vernharð í
þriðja sæti
VERNHARÐ Þorleifsson, júdó-
maður frá Akureyri, varð í þriðja
sæti í 95 kílógramma flokki á
sterku móti í Póllandi um helg-
ina. Með þessum góða árangri
skaust Vernharð upp í 9. sætið í
stigakeppninni fyrir Ólympíuleik-
ana í sumar, er með 194 stig, en
níu efstu ölast sjálfkrafa keppnis-
rétt á Ólympíuleikunum í Atlanta.
Bjarni Friðriksson keppti einnig
á mótinu, vann eina viðureign en
tapaði síðan tveimur og lenti í
níunda sæti. Bjarni er í 13. sæti
á stigalistanum með 104 stig.
Vernharð lagði Guido frá Italíu
í fyrstu umferð. Italinn, sem er í
4. sæti listans, var yfir allt þar til
9 sekúndur voru pftir að Vern-
harð náði Yoka, eða 5 stigum, og
sigraði. Næstur var jafnaldri
Vernaharðs, Malijskas frá Lithá-
en. Efir 55 sekúndur náði Vern-
harð frábæru kasti og sigraði á
Ippon. Viðureignin við Svirid frá
Hvíta-Rússlandi var æsispennandi
og skiptust þeir á um að hafa
forystuna. Varnharð náði að jafna
er 40 sekúndur voru eftir og það
dugði til sigurs með úrskurði allra
þriggja dómaranna.
Vernharð tapaði hins vegar
fyrir heimsmeistaranum Mastula
frá Póllandi í undanúrslitum, en
sá hefur ekki tapað viðureign í
tvö ár. Lokagliman var við Jakl
frá Tékklandi, sem er í 7. sæti á
Iistanum. Vernharð var mjög ör-
uggur og sjálfstraustið var komið.
Tékkinn varð að játa sig sigrað-
ann án þess að ná að skora stig
gegn Vernharð.
Rodman í sex leikja bann
DENNIS Rodman, ieikmaður með
Chicago Bulls, sem missti stjórn á skapi
sínu um helgina, réðist að dómara, var
í gær dæmdur í sex leikja bann og sektað-
ur um 1,3 rniHj. isl. kr. Rodman verður
fjarri góðu gamni þegar Bulls leikur
þrjá leiki á næstu fjóru dögum.
■ Rodmantil / B8
mval
Morgunblaðið/RAX
Tveir í bann
RODNEY Dobart úr Grindavík og Jón Arnar Ingvars-
son úr Haukum, voru í gær dæmdir í eins leiks
bann og verða ekki með þegr lióin mætast í kvöld.
Teitur Órlygsson ætlar að reyna að leika með
Njarðvíkingum þegar þeir taka á móti grönnum
sínum úr Keflavík, en Teitur meiddist illa á ökla á
laugardaglnn. Hér má sjá þá Dobart og Jason Willl-
ford í baráttunnl um knöttinn. Leikirnir / B5.
16.03.1996
21130
Fjöldi
vinninga
vinnings-
upphæð
vinningar
4.133.280
406.170
pMa
101
6.930
4. 3al5
3.049
530
3.1 S2
6.855.350
L< ' , .
VINNINGSTOLUR
MIÐVIKUDAGINN
AÐALTOLUR
BONUSTOLUR
19M34H44
Fjöldi
vinninga
vinnings-
upphæð
Vinmngar
53.849.000
272.666
107.110
4. 4at6
208
1.630
696
200
54.814.126
907
Heildnrvinningsupphacö: Á Islandi:
54.814.126 965.126
KIN
y 12.03.-18.03/96
UPPLÝSINGAR
• Fyrsti vinningur fór óskiptur til heppins lottó-
þátttakanda á laugardaginn og fékk hann í sinn
hlut rúmlega 4,1 mílljón króna. Vinningsmiðinn
var scldur i sóluturninum Svarta svaninum i
Reykjavik.
• Bónusvinningurinn kr. 406.170, var cinnig óskipt-
ur á iaugardaginn og kom hann i hlut heppins
Brciðholtsbúa. Vinningsiniðinn var seldur i sólu-
turninum Hólagorði í Reykjavik.
vertu viðbuin(n) vmmngi
íl mlkiis að yiít’’
1. vinningur er aaetlaður 44 milljónir kr.
HANDKNATTLEIKUR
Svo gæti farið að hálfgerð ís-
lendinganýlenda verði í
Þýskalandi næsta vetur þegar
handknattleiksvertíðin hefst. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
eru miklar líkur á að Viggó Sig-
urðsson taki að sér að þjálfa lið
Wuppertal og í Þýskalandi er talað
um að til liðsins muni líklega koma
einir þrír leikmenn auk Ólafs Stef-
ánssonar sem þegar hefur skrifað
undir samning við félagið.
JUDO
Viggó Sigurðsson vildi ekki tjá
sig um málið í gær er Morgunblað-
ið ræddi við hann, sagðist hafa
skotist í helgarferð til Þýskalands
en vildi ekki segja hvert. Sam-
kvæmt heimildum í Þýskalandi er
búist við að Viggó taki við liðinu
og með honum komi Rússinn
Dmítrí Filippov úr Stjörnunni,
Dagur Sigurðsson úr Val og Guð-
mundur Hrafnkelsson, markvörður
Vals. Nafn Gunnars Beinteinsson-
ar úr FH hefur einnig verið nefnt
í þessu sambandi. Viggó vildi ekk-
ert gefa upp hvort einhveijir færu
með honum til Wuppertal ef hann
tæki við liðinu.
Wuppertal leikur í annarri deild-
inni og er stefnan sett á sæti í
þeirri fyrstu en fyrir komandi
keppnistímabil verða Wuppertal og
Wuppertaler sameinuð og munu
bera nafn fyrra liðsins. Samkvæmt
nýjum reglum um frjálst flæði
vinnuafls, og um leið íþrótta-
manna, innan landamæra Evrópu-
bandalagsins mega þýsk lið vera
með eins marga leikmenn af því
svæði og þau vilja, og á þetta einn-
ig við um Evrópska efnahagssvæð-
ið og þurfa leikmenn frá EES-lönd-
um líklega ekki að sækja um at-
vinnuleyfi í landinu. Auk þess
mega þýsk lið vera með tvo er-
lenda leikmenn, leikmenn sem
koma annars staðar að.
HANDKNATTLEIKUR