Morgunblaðið - 20.03.1996, Side 1
64 SIÐUR B/C/D
67. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjórnin í Peking sakar Bandaríkin um vopnaskak
Kínaher æfir áfram
Peking, Washington, Taipei. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Kína gagnrýndu í
gær Bandaríkjamenn harkalega fyrir
„ósvífið vopnaskak" við Tævan en
héldu áfram umfangsmiklum her-
æfingum sem eiga að hræða Tævana
frá því að lýsa yfir sjálfstæði. Kín-
verjar skutu á tvær óbyggðar eyjar
á Tævansundi í gærmorgun og var
sagt að verið væri að æfa landgöngu.
„Kína lýsir yfir óánægju sinni með
að Bandaríkin skuli með svo grófum
hætti skipta sér af innanlandsmálum
Kína og gera sig sek um vopna-
skak,“ sagði Shen Guofang, talsmað-
ur utanrikisháðunejdisins í Peking í
gær. í gærkvöldi var greint frá því
að þeir Warren Christopher, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og hinn
kinverski starfsbróður hans, Qian
Qichen, munu hittast á fundi í Haag
í Hollandi 21. apríl til að ræða Tæv-
andeiluna.
Varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, William Perry, sagði í gær að
Kínverjar skyldu hafa það hugfast
að Bandaríkjafloti væri sá öflugasti
á Kyrrahafi og varaði þá við að grípa
til hernaðaraðgerða gegn Tævan.
Reynsluleysi veldur ugg
Richard Rubin, ijármálaráðherra
Bandaríkjanna, ræddi við bandaríska
kaupsýslumenn í Hong Kong í gær
og sagði ríkisstjórn Bills Clintons
forseta mæla með því að Kína fengi
áfram svonefnd bestukjör í viðskipt-
um við Bandaríkin. Á hinn bóginn
gæti orðið erfitt að fá þingið til að
samþykkja þá ákvörðun.
Japanskir hermálasérfræðingar
óttast að .stolt og reynsluleysi Kín-
veija í heræfingum á sjó geti í sam-
einingu valdið slysum og átökum
jafnvel þótt markmið stjórnvalda í
Peking sé aðeins að ógna.
Stjórn kommúnista telur Tævan
vera hérað í Kína en forsetakosning-
ar verða á eyjunni á laugardag og
lýkur æfingunum ekki fyrr en á
mánudag. Forseti Tævans, Lee
Teng-hui, er sækist eftir endurkjöri,
segist ekki stefna að fullu sjálfstæði
en vill auka veg eyríkisins á alþjóða-
vettvangi.
Reuter
BLAÐASALI fyrir utan dómshúsið þar sem úrskurðað var í skilnaðarmáli Mandeia-hjónanna.
Reuter.
Bordeaux sigraði
BORDEAUX sigraði AC Milan
með þremur mörkum gegn engu
í síðari umferð í áttaliða úrslitum
UEFA-keppninnar í gærkvöldi.
Mílanóliðið hafði sigrað með
tveimur mörkum gegn engu á
heimavelli og Bordeaux heldur því
áfram í undanúrslit. Talið var víst
fyrir leikinn að franska liðið, sem
er í tjórtánda sæti í frönsku fyrstu
deiidinni, ætti enga möguleika
gegn Itölunum enda hefur AC
Milan ekki tapað með þriggja
marka mun frá árinu 1978. Á
myndinni takast á þeir Cristophe
Dugarry, til hægri, sem skoraði
tvö mörk fyrir Bordeaux, og
■ AC Milan/C4
Einvígið verð-
ur í Bagdad
Moskvu. Reuter.
KIRSAN Iljúmzhinov, forseti Al-
þjóðaskáksambandsins (FIDE), sagði
í gær að ekki yrði hvikað frá því að
halda heimsmeistaraeinvígi þeirra
Anatolís Karpovs og Gata Kamskys
í Bagdad í írak. Myndi einvígið heij-
ast þann 1. júní líkt og áður hefði
verið ákveðið.
Forseti FIDE var spurður hvað
myndi gerast ef Kamsky, sem er
bandarískur ríkisborgari, fengi ekki
leyfi bandarískra stjórnvalda til að
tefla í írak. Sagðist hann ásamt Kam-
sky hafa beðið bandaríska utanríkis-
ráðuneytið um leyfi og væri ekki enn
útséð um afgreiðslu þeirrar beiðni.
Staðfesti hann þó að aðrar stað-
setningar kæmu til greina fyrir ein-
vígið ef til þess kæmi. „Það gæti
verið haldið í ísrael eða Bandaríkj-
unum,“ sagði Iljúmzhinov. Hann
sagðist jafnframt reiðubúinn til þess
að reyna að sannfæra Sameinuðu
þjóðirnar um mikiivægi þess að
heimsmeistaraeinvígið verði haldið í
arabaríki.
Mandela
fær skilnað
Jóhannesarborg. Reuter.
DÓMARI í Jóhannesarborg veitti
í gær Nelson Mandela, forseta
Suður-Afríku, skilnað frá eigin-
konu sinni, Winnie, eftir tveggja
daga vitnaleiðslur þar sem forset-
inn varð að skýra frá hjónabands-
vandamálum sínum í vitnastúk-
unni.
Mandela hafði meðal annars
haldið því fram að eiginkona hans
hefði haidið framhjá honum með
lögfræðingi Afríska þjóðarráðsins
og hún neitaði því ekki.
Dómarinn tilkynnti úrskurð
sinn nokkrum mínútum eftir að
Winnie rak lögfræðing sinn, Isma-
il Semenya, og krafðist þess að
réttarhöldunum yrði frestað þar
til hún réði annan vetjanda. Dóm-
arinn hafnaði kröfunni og sagði
að Winnie gæti annaðhvort borið
vitni sjálf eða leitt fram vitni.
Winnie gerði hvorugt.
í dag verður fjailað um þá kröfu
Winnie að hún fái helming eigna
forsetans. Mandela sakar Winnie
um að hafa eytt um efni fram í
fatnað, snyrtivörur og skemmtan-
ir og safnað skuldum vegna taum-
iausrar eyðslusemi.
■ Villekki valdaálitshnekki/16
Samþykkt rússnesku dúmunnar um endurreisn Sovétríkjanna vekur u gg
Krafist skyndifundar hjá
Samveldi sjálfstæðra ríkja
Moskvu. Kíev. Reuter.
EDUARD Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, krafð-
ist í gær skyndifundar hjá Samveldi sjálfstæðra
ríkja vegna samþykktar dúmunnar, neðri deildar
rússneska þingsins, um endurreisn Sovétríkjanna.
Nokkrir þingmenn í efri deild rússneska þingsins
hafa lagt til, að forsetakosningunum í Rússlandi
verði frestað af sömu sökum og Leoníd Kútsjma,
forseti Ukraínu, sagði, að samþykktin yrði til þess,
að Austur-Evrópuríki legðu enn meiri áherslu á
það en áður að fá aðild að Atlantshafsbandalag-
inu, NATO. Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, gagnrýndi samþykkt dúm-
unnar harðlega í gær.
Belovezh-samþykktin lýst ógild
Rússneskar fréttastofur höfðu eftir Shev-
ardnadze að loknum viðræðum hans við Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, í Moskvu í gær, að
bregðast yrði strax við þeirri stöðu, sem upp
væri komin með samþykkt dúmunnar, og efna til
fundar hjá Samveldi sjálfstæðra ríkja.
Meirihluti kommúnista og bandamanna þeirra
í dúmunni samþykkti sl. föstudag að lýsa dauða
og ómerka svokallaða Belovezh-samþykkt frá í
desember 1991 en með henni voru Sovétríkin leyst
upp og Samveldi sjálfstæðra ríkja stofnað í stað-
inn. Að því eiga aðild öll sovétlýðveldin fyrrver-
andi nema Eystrasaltsríkin þijú.
Hefur samþykkt dúmunnar vakið verulegan ugg
í nágrannaríkjum Rússlands og Jeltsín hefur harð-
lega fordæmt hana þótt kommúnistar fullyrði, að
þeir muni ekki endurreisa Sovétríkin með valdi
fái þeir til þess tækifæri.
„Samþykktin er grafalvarlegt mál og draga
verður dúmuna til ábyrgðar á henni,“ sagði Jeltsín
í gær að loknum fundinum með Shevardnadze en
Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, kallaði
ummæli Jeltsíns móðursýki. Sagði hann þau til
marks um, að Jeltsín væri veikur foringi, sterkir
leiðtogar fengju ekki móðursýkiskast, allra síst á
sjónvarpsskjánum.
Konstantín Títov, héraðsstjóri í Samara, sagði
í sambandsráðinu, efri deild rússneska þingsins,
í gær, að ráðið yrði að taka af öll tvímæli í þessu
efni — annaðhvort tæki dúman samþykktina aftur
eða forsetakosningunum yrði frestað. Júrí Lúzlik-
ov, borgarstjóri í Moskvu, kallaði samþykkt dú-
munnar „pólitískt skemmdarverk, sem skæki sjálf-
ar undirstöður rússneska ríkisins".
Næg ástæða fyrir
NATO-aðild
Warren Christopher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, átti í gær viðræður við Leoníd Kútsjma,
forseta Ukraínu, og sagði á fréttamannafundi í
Kíev, að ekki yrði þolað, að sovétlýðveldin fyrrver-
andi yrðu svipt sjálfstæði sínu á nýjan leik. Sagði
hann samþykkt dúmunnar vera einstaklega
ábyrgðarlausa.
Kútsjma sagði, að samþykkt dúmunnar um
endurreisn Sovétríkjanna væri ein og sér næg
ástæða fyrir Austur-Evrópuríkin til að krefjast
aðildar að NATO og það án tafar. Hann ítrekaði
hins vegar, að Úkraínumenn myndu ekki æskja
NATO-aðildar og kvað það best fyrir aila, Rússa,
vestræn ríki og Úkraínumenn sjálfa.