Morgunblaðið - 20.03.1996, Síða 1
dr
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Sverrir
Stefán hættir
mjög líklega
STEFÁN Amaldsson hættir nánast öruggiega
störfum sem handknattleiksdómari eftir yfir-
standandi keppnistímabil. Rögnvald Erlingsson,
sem dæmir með Stefáni, lýsti því yfir á dögimum
að hann hefði skilað inn alþjóðlega dómaraskírt-
eininu sínu — eftir að ljóst var að þeir félagarnir
dæma ekki á Ólympíuleikunum — en myndi dæma
eitthvað áfram hér innanlands. Stefán segist einn-
ig ætla að hætta sem alþjóðlegur dómari, það sé
öruggt, og allar líkur séu á að hann leggi flaut-
una þá alveg á hilluna. Hann muni hins vegar
ekki gefa það út endanlega fyrr en eftir að úr-
slitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn lýkur.
Anna sigraði í
hálfmaraþoni
ANNA Jeeves, hlaupakona úr ÍR, sigraði í fjöl-
mennu hálfmaraþonhlaupi sem fram fór í Eng-
landi á sunnudag og bætti árangur sinn um hálfa
mínútu. Var það liður í undirbúningi hennar fyr-
ir þátttöku í Lundúnamaraþoninu eftir röskan
mánuð.
Anna hljóp á 1:20,56 klukkustundum sem er
langbesti tími hennar í hálfmaraþoni. Hlaupið fór
fram í Hillingdon sem er skammt fyrir utan Lund-
úni. Um 1.300 keppendur, karlar og konur, voru
í hlaupinu og varð Anna um hálfri minútu á und-
an næsta keppanda í kvennaflokki.
ÍA og ÍBV sigr-
uðu á Kýpur
ÍSLANDSMEISTARAR f A og ÍBV sigruðu bæði
í leikjum sínum á 8-liða æfingamóti á Kýpur i
gær. Akranes vann Motala frá Svíþjóð 3:0. Mih-
sýlo Bibercic gerði tvö mörk og Haraldur Ingólfs-
son eitt. Eyjamenn léku á móti sænska liðinu
Giivle og unnu 8:7 eftir vitaspyrnukeppni, en
markalaust var eftir venjulegan leiktima.
Önnur úrslit á mótinu í gær voru þau að Sirius
(Sviþjóð) vann Skonto (Eistlandi) 2:0 og skoraði
íslendingurinn Einar Brekkan annað mark Sir-
ius. FC Flora frá Eistlandi, sem Teitur Þórðarson
þjálfar, sigraði Sundsvall (Svíþjóð) 2:1. Kristinn
Jakobsson dæmdi þann leik með miklum ágætum,
sýndi fjórum leikmönnum gult spjald og dæmdi
eina vítaspyrnu. í undanúrslitum mótsins á morg-
un leika ÍA og Sirius og Flora mætir ÍBV.
Fyrsta tap
Vals að
Hlíðarenda
AFTURELDING úr Mosfellsbæ
sigraði íslandsmeistara Vals að
Hlíðarenda, 26:23, í fyrsta leik
liðanna í undanúrslitum ís-
landsmótsins í handknattleik
karla í gærkvöldi. Þetta var
fyrsta tap Valsmanna á heima-
velli sínum síðan úrslitakeppnin
var tekin upp fyrir fjórum
árum. Valur tapaði síðast
heimaleik fyrir rúmlega tveim-
ur árum er KR lagði liðið að
velli í deildarkeppninni. Aftur-
elding og Valur leika aftur í
Mosfellsbæ annað kvöld og það
lið sem fyrr vinnur tvo leiki
kemst í úrslit kcppninnar. Á
myndinni hér fyrir ofan stekk-
ur Bjarki Sigurðsson hátt upp
fyrir vörn Valsmanna og skor-
ar eittaf fimm mörkum sínum
í leiknum.
KA og FH leika í hinum
undanúrslitaleiknum í KA-hús-
inu á Akureyri í kvöld.
■ Leikurinn / C3
FIMLEIKAR
Norbert Bueche framkvæmdastjóri Alþjóðafimleikasambandsins
Lítlar líkurá þátttöku
Rúnars á ÓL í Atlanta
„ÞAÐ er búið að loka á þátttöku í fimleikunum í Atlanta, búið
að úthluta öllum sætum. Við höfum ráðstafað þeim sérstöku
þátttökuheimildum [Wild Cards] sem við höfðum úr að spila fyr-
ir aðra en þá sem unnið höfðu rétt með þátttöku í heimsmeist-
aramótinu. Þeim var ráðstafað til Afríkuríkja," sagði Norbert
Bueche framkvæmdastjóri Alþjóðafimleikasambandsins (FIG) í
samtali við Morgunblaðið í gær er hann var spurður um mögu-
leika á þátttöku Islendinga í fimleikakeppni ÓL í Atlanta í sumar.
Af upplýsingum Bueche má ráða
að litlar líkur væru á þátttöku
Rúnars Alexanderssonar í fimleika-
keppninni á Ólympíuleikunum í Atl-
anta. Skilyrði fyrir þátttöku er að
menn séu með á síðasta heimsmeist-
aramóti fyrir ÓL, en á síðasta HM
var Rúnar ríkisfangslaus. Síðan hef-
ur hann gerst íslenskur ríkisborgari.
„Eins og stendur er þátttaka hans
ekki möguleg. Til þess að undantekn-
ing gæti orðið þar á þarf flókið ferli
að eiga sér stað og allir þættir þess
að ganga upp. Það er í því fólgið að
íslendingar sæki um það með sér-
stökú bréfi til FIG að honum verði
leyft að keppa í Atlanta. Hver einn
og einasti stjórnarmaður alþjóðasam-
bandsins yrði að segja já við því og
þá fyrst gæti ég skrifað Alþjóða-
ólympíunefndinni [IOC] og óskað
eftir þvi að hún veiti okkur aukalegt
Wild Card. Tæki hún jákvæða af-
stöðu þyrfti mál hans þó enn að fara
fyrir sérstaka þrihliða úthlutunar-
nefnd sem á lokaorðið.
Það er ekki sjálfgefið að stjórnar-
menn í FIG samþykki sérstaka und-
anþáguumsókn frá íslandi. Það hafa
nokkur lönd sent inn umsókn af
þessu tagi á síðustu mánuðum og
þeim hefur öllum verið hafnað. Þá
er heldur ekki sjálfgefið að IOC
mælti með slíkri undanþágu þó mál-
ið kæmist í gegn hér hjá okkur. Og
þá er þríhiiðanefndin enn eftir," sagði
Bueche.
Mál sem komast alla leið til þrí-
hliðanefndarinnar geta stöðvast þar.
Hún úthlutar takmörkuðum fjölda
þátttökuheimilda í mörgum keppnis-
greinum í Atlanta en þær eru upp-
urnar í fimleikum svo sem fram kem-
ur hjá Bueche hér að framan. Byijar
hún á að veita keppnisheimildir til
landa sem ekki eiga a.m.k. sex
iþróttamenn sem náð hafa alþjóða-
lágmörkum til þátttöku í leikunum í
Atlanta. Þess vegna er ljóst að við
úthlutun þátttökuheimilda í leikun-
um sæti Island hjá í fyrstu umferð
vegna þess fjöida fijálsíþróttamanna
og sundmanna sem náð hafa alþjóða-
lágmörkum og góðar líkur eru á að
a.m.k. einn júdómaður nái lágmarki
til þátttöku og hugsanlega keppend-
ur í badminton einnig.
KÖRFUKNATTLEIKUR: SIGRAR HJÁ GRINDAVÍK OG NJARÐVÍK / C2, C3
4-