Morgunblaðið - 20.03.1996, Blaðsíða 3
2 D MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1996 D 3
Á sjóskíðum
ÓLI hagamús og Jónas silungur vinur hans
eru að leika sér í og á vatninu við stóra tréð yst
í skóginum. Eitthvað er teiknarinn, sem gerði
myndina, að stríða okkur því hann hefur gert
aðra alveg eins - nema hvað 5 atriði eru hreytt.
Nú er komið að ykkur að finna feilana fimm.
Skemmtið ykkur eins og Óli og Jónas gera
oftast þegar þeir eru saman.
Bráðhuggulega
ballerína
HILDUR Björg Gunnarsdóttir, 8
ára, Fálkagötu 17, 107 Reykja-
vík, segir í bréfi til Myndasagn-
anna að hún hafi meðal annars
áhuga á ballett. Ballerínan á
myndinni er ef til vill engin önnur
en Hildur Björg sjálf.
Finnst ykkur ballett ekki falleg
listgrein, krakkar? Á íslandi er
starfandi ballettflokkur sem heitir
íslenski dansflokkurinn og er
starfandi við Þjóðleikhúsið. Hann
býður okkur að njóta fegurðar
ballettsins með sér. Það er til-
komumikið að sjá ballettdansar-
ana eins og svífa um loftið, slík
getur mýktin verið. Og oftar en
ekki (= oftast) er dansað við ynd-
islega tónlist.
Brákarbora
KÆRA barnablað! Við erum
hér hressir krakkar í Brákar-
borg. Viltu gjöra svo vel að
birta myndirnar okkar við
tækifæri. Bless, jötnar.
Auðvitað birtum við myndir
frá jötnunum, en því miður
getum við ekki birt þær allar.
Það er mjög mikið af myndum
sem við fáum sendar og ef
ætti að birta þær allar þyrftu
Myndasögur Moggans senni-
lega að vera 12-16 blaðsíður
í hverri viku! Eins og þið vitið
höfum við úr þrisvar til fjórum
sinnum minna plássi að moða.
Listakonurnar úr Brákar-
borg heita Sandra Björg, 5
ára, og María Lovísa, 5 ára.
Grípið kúluna
LÍMIÐ tvo plastbikara saman á botninum
með límbandi. Setjið litla álpappírskúlu í
annan bikarinn og haldið á bikurunum eins
og sýnt er á teikningunni. Kastið kúlunni
upp úr bikarnum og snúið neðri bikarnum
upp í hendingskasti og grípið kúluna á nið-
urleið hennar með þeim bikarnum.
Sá vinnur sem tekst best upp. í þessu
gildir það sama og í öllu öðru sem krefst
æfingar; æfingin skapar meistarann.
Litfagra
mær
ANNA Sigrún Ingimarsdóttir,
Holtsbúð 41, 210 Garðabær,
er teiknarinn sem gerði þessa
fallegu og litaglöðu mynd af
stúlku, kannski er þetta sjálfs-
mynd. Við þökkum fyrir.
5TELPURTAKA OF/VUKIÐ Pl'ASS
STELPUR ERU ALLTAFFVRIR..
FÆRIP YKKUP, SmSTELPOR...
I EYF/P KAKMdAMNl APSETJAST’
MIRIAM \JAR ELPRI 5V$TtR MOSE...
I TÖLFTA KAFLA MÖSEBÖKAR SPVK
HÚN„ WEFUR PKOTTIN'N AÐEINS
TALAÐ ÍGFGNUM M’OSES?"
HI//4P M HÚ j?ETTA AB> pýpA ?
OSTOR OG SKJNKA W HNETUSM7ÖREJI.
i PA6, HERRA..J^IUW ENWMAm
ú
MöSES7
HVERVAR I
MbSES ?
S V v 1
ANNA A FAllEGA PEES-
SIE^KA KJSU S£A1 HÚN
KALLAK ÞOltÝ- DOLLn/eiT
\/EL AD HÚN E<? FALLEG.
DOLL</ HOfeneHUSFAWGiN -
JA /KiyNDSlNA í
&UDUM ,sp&3löm
OG VATMI -HVE R--JO ~
SEM HÆGTER AÐ
sfegla SR3 í..,
ÞASitujz. hOt*
OG D'AISTA
SJALFRI Séf