Morgunblaðið - 20.03.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.03.1996, Blaðsíða 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LÍTILL, sætur grís, sem vill ekki fara þessa hefð- bundnu leið grísa og svína - í sláturhús, verslanir, maga neytenda - leggur heiminn að fótum (klaufum) sér um þessar mundir. Þið vitið örugglega hvaða grís er verið að tala um - Babe eða Badda eins og hann er kallaður í íslensku þýðing- Litaleikur Sam-bíóanna og Myndasagna Moggans tniði gildir unni. Þið getið séð hann með eigin augum í bíó um þessar mundir þar sem þið getið valið hvort þið hlustið á ástkæra, ylhýra málið okkar, íslensk- una, eða heyrt ensku talaða og þá skiljið þið náttúrlega miklu minna. Sam-bíóin og Myndasögur Moggans bjóða ykkur til leiks vegna sýninga Babe. Það sem þið gerið, er að lita svarthvítu myndina eins og ykkur finnst flottast. Setjið hana í umslag sem þið merkið á eft- irfarandi hátt og sendið til: Myndasögur Moggans BABE Kringlunni 1 103 Reykjavík Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 27. mars. Verðlaunin eru ekki til að kvarta yfir: 100 bíómiðar á Babe. 10 mjúkir og yndis- legir Babe dúkku- grísir. 15 miðar í Húsdýra- garðinn (hver fyrir 5). 30 Babe bolir. Úrslit verða birt í Mynda- sögum Moggans miðvikudag- inn 3. apríl næstkomandi. Gangi ykkur vel og hafið gaman af. Morgunblaðið/Ásdís NAFN:............................................................... HEIMILI:............................................................ PÓSTFANG:...........................................................

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.