Morgunblaðið - 23.03.1996, Page 1
JMtogmnlifftfeife
• Örkin með óramöguleika/2
• Tungumál deyr/4
• Eg sýg úr þeim orkuna/8
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996
BLAÐ
Englar
alheímsins
gefnir út í
Banda-
ríkjunum
BANDARÍSKA útgáfufyrirtækið
St. Martins Press ætlar að gefa
út verðlaunabók Einars Más Guð-
mundssonar, Engla alheimsins, í
janúar eða febrúar á næsta ári.
Eigandi útgáfunnar, James Fitz-
gerald, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði komist í
kynni við bókina og höfundinn á
bókasýningunni í Frankfurt síð-
asta haust. „Ég sá bókina á hillu
hjá dönskum starfsbróður mínum
og fékk að lesa hana. Mér leist
strax mjög vel á hana og fékk
nokkra vini mína hér í New York
til að lesa hana líka. Allir voru
sammála um ágæti bókarinnar
þannig að ég sló til og festi kaup
á útgáfuréttinum hér í Bandaríkj-
unum.“
James segist hafa hitt Einar
Má í Frankfurt og svo síðar í New
York. „Og það er skemmst frá
því að segja að ferill hans og per-
sóna vöktu strax athygli mína.
Ég býst jafnvel við að ég muni
reyna að gefa út fleiri bækur hans
en sumar þeirra hef ég verið að
lesa og þykir mikið jtil koma. Ég
hef einnig áhuga á að skoða verk
annarra íslenskra höfunda með
útgáfu í huga.“
James segir að notuð verði þýð-
ing Bernards Scudder á Englum
alheimsins sem kom út hjá Shad
Thames fyrir tveimur árum síðan
en væntanlega verði þó gerðar
smávægilegar breytingar á orða-
lagi til að samræma það banda-
rískri málhefð.
Kristján Jóhannsson syngur í II Trovatore í Þýsku óperunni í Berlín
1001
jarðar-
búi
INDÓNESÍSKI listamaður-
inn Dadang Christanto hef-
ur smíðað 1001 styttu úr
trefjaplasti og stillt upp í
fjöruborðinu skammt frá
Djakarta, höfuðborg Indó-
nesíu. Styttunum er ætlað
að minna á umhverfisvand-
ann í menguðu hafinu norð-
ur af Djakarta. Christanto
segir að verkið eigi hins
vegar að höfða til allra því
að mengun sé vandamál um
allan heim. Verkið kallar
Christanto „1001 jarð-
arbúa“.
Gert ráð fyrir
sextíu gagn-
rýnendum
„VIÐ ERUM undir það búin að
allt verði vitlaust eftir frumsýning-
una annað kvöld,“ segir Kristján
Jóhannsson óperusöngvari sem
syngja mun hlutverk Manríkós í
nýstárlegri uppfærslu Þýsku óper-
unnar í Berlín á II Trovatore eftir
Giuseppe Verdi.
„Þetta er vægast sagt óvenjuleg
sýning og boðsgestir létu óánægju
sína þegar í ljós á generalpruf-
unni. Við eigum því von á miklum
darraðardansi. Sennilega eiga
áhorfendur eftir að skiptast í tvö
horn: Fólk sem er nýjungagjarnt
og hrifið af leikhúsi á örugglega
eftir að fá eitthvað fyrir sinn snúð
en hinir sem eru hrifnari af hinu
gamla hefðbunda óperuformi eiga
örugglega eftir að reita hár sitt
og skegg,“ segir Kristján.
Níu sýningar verða á II Trovat-
ore í Berlín og tekur Kristján þátt
í þeim öllum. Þegar er uppselt á
sjö sýningar og gert er ráð fyrir
sextíu tónlistargagnrýnendum á
frumsýninguna. „Þessi sýning
virðist hafa vakið heimsathygli,"
segir Kristján.
I uppfærslu Þýsku óperunnar,
sem Hans Neuenfeld stýrir, er II
Trovatore látin gerast á vorum
dögum, auk þess sem kynferðisleg-
um athöfnum og erótík er gert
hátt undir höfði. „Síðan beitir Neu-
enfeld sér mikið fyrir því að skýra
atburðarásina á leikrænan hátt,
það er það sem honum þykir ekki
skila sér í gegnum tónlistina," seg-
ir Kristján.
Söngvarinn segir að sumum
þyki leikstjórinn ganga of langt í
þessum efnum, einkum með hlið-
sjón af því að fastagestir í Þýsku
óperunni séu öllum hnútum kunn-
ugir þegar meistaraverk óperubók-
menntanna, svo sem II Trovatore,
séu annars vegar. Kristján segir
að sýningin sé dýr enda sé hún
tæknilega séð flókin. Þá séu bún-
ingarnir stórglæsilegir. „Ég held
að ég hafi aldrei klæðst glæsilegri
búningi.“
Að sögn Kristjáns hefur Þjóð-
verjum verið í lófa lagið að brydda
upp á nýjungum í óperunni, það
eigi þó einkum við um smærri
húsin. „Að mínu mati eiga stóru
húsin að halda sig meira við hefð-
ina og sennilega ætti þessi upp-
færsla betur við minna hús eða
einhveija óperuhátíð. Mér þykir
þetta engu að síður ofsalega gam-
an.“
Kristján segir að frábært sé að
vinna með Neuenfeld. Hann hafi
ákveðnar skoðanir og hugmyndir
hans séu fastmótaðar. „Það hentar
mér mjög vel enda er mér afar illa
við að gera hluti ef engin hugsun
býr að baki. Samstarfið hefur því
verið lærdómsríkt."
Kristján hefur starfað með fjöl-
mörgum nýjungagjörnum leik-
stjórum, á borð við Ken Russell
og Jonathan Miller, í gegnum tíð-
KRISTJÁN Jóhannsson í
hlutverki Manríkós í upp-
færslu Metropolitan óper-
unnar á II Trovatore.
ina. „Þeir hafa báðir verið umdeild-
ir en Neuenfeld gengur miklu
lengra.“
En gæti Kristján Jóhannsson
hugsað sér að taka þátt -í fleiri
sýningum af þessum toga? „Ég
hugsa það. Meðan söngvararnir fá
að njóta sín og tónlistin fær að
vera í friði er í sjálfu sér ekkert
því til fyrirstöðu."
i- ijtiiJhnBii ýi > * ÆmmuMKlMllád
Þrenningu frestað
um viku
Tveir
dansarar
slasast
LOKASÝNINGU íslenska
dansflokksins á Þrenningu,
sem átti að vera í gær í Is-
lensku óperunni, var frestað
vegna þess að tveir dansar-
anna slösuðust á æfingu á
fimmtudag. Að sögn Magnús-
ar Árna Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra dansflokksins,
taka ellefu dansarar þátt í
sýningunni og er mikið álag á
þeim þar sem þeir flytja þrjú
verk á sýningunni sem öll gera
miklar kröfur til dansaranna.
„Það varð svo það óhapp á
æfingu á fimmtudag að David
Greenall fór úr olnbogaliði og
Lilia Valieva tognaði í baki.
Við erum að vona að þau geti
jafnað sig áður en langt úm
líður og ætlum að halda þessa
lokasýningu á föstudaginn
kemur.“
Magnús Árni sagði að að-
sóknin að Þrenningu hefði ver-
ið mjög góð. „Þetta er glæsileg
sýning og hefur allstaðar feng-
ið frábæra dóma. Ég held það
sé óhætt að hvetja alla áhuga-
menn um listdans að sjá þessa
sýningu."