Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BORÐTENNIS / ISLANDSMOTIÐ
KNATTSPYRNA
ÍÞRÓTTIR
Eyjamenn
sigruðu á
Kýpur
ÍBV sigraði á alþjóðlegu móti í
knattspyrnu sem lauk á Kýpur á
laugardaginn. Eyjamenn unnu
sænska liðið Sirius í úrslitaleik
mótsins 3:1. Skagamenn höfnuðu
í þriðja sæti eftir 1:0 sigur á
Flora frá Tallinn. Mörk Eyja-
manna í úrslitaleiknum gerðu
Ingi Sigurðsson, Bjarnólfur Lár-
usson og Tryggvi Guðmundsson.
Á myndinni er Hlynur Stefáns-
son, fyrirliði ÍBV, með sigurlaun-
in. Við hlið hans er fulltrúi skipu-
lagsnefndar mótsins, sem afhenti
honum bikarinn.
Morgunblaðið/Ásdís
LILIA Rós Jóhannesdóttir náði íslandsmeistaratitlinum af Evu Jósteins-
dóttur! einliðaleik kvenna eftir spennandi viðureign.
iviurgunuictuiu/ otcnipui \juuujai tsaun
Þriðji sigur
Guðmundar
brons
Brynja Þorsteinsdóttir frá Akur-
eyri varð í þriðja sæti í stór-
svigi á norska unglingameistaramót-
inu sem fram fór í Grong í Noregi
um síðustu helgi. Brynja fékk tímann
2.09,34 mín. og
hlaut 51,42
punkta. Sigur-
vegari í stórsvig-
inu var Ingrid
Björdal frá Nor-
egi á 2.05,68
mín.
Brynja hafn-
aði síðan í 5.
sæti í sviginu
daginn eftir. Brynja
Hún fór braut-
irnar á 1.25,50 mín. samanlagt og
hlaut 45,12 punkta (FlS-stig). Bente
Giljarhus frá Noregi sigraði á 1.23,59
mín. Brynja bætti punktastöðu sína
í báðum greinunum.
Jóhann Haukur Hafstein úr Ár-
manni keppti einnig á mótinu. Hann
hafnaði í 29. sæti í stórsvigi en keyrði
út úr í sviginu.
Theódóra Mathiesen úr KR bætti
punktastöðu sína um helgina. Hún
keppti í tveimur svigmótum í
Dombás. Hún hafnaði í 3. sæti í fyrra
sviginu og hlaut 43,43 punkta og í
seinna sviginu varð hún í 4. sæti og
hlaut 47,16 punkta.
Haukur Arnórsson úr Armanni
keppti í stórsvigi í Solda á Ífalíu um
helgina og varð í 17. sæti og bætti
stöðu sína, hlaut 34 punkta. Sigur-
vegari í stórsviginu var Thomas
Bergamelli frá Italíu.
HANDKNATTLEIKUR
Stjömustúlkur í úrslK
„BETRA liðið vann þennan hörkuleik en gaman hefði verið ef þessi
tvö lið hefðu mæst f úrslitum. Það var fyrst og fremst góð vörn
og markvarsla í síðari hálfleik ásamt öguðum sóknarleik sem tryggði
okkur þennan sigur,“ sagði Ólafur Lárusson, þjálfari Stjörnunnar
eftir að lið hans hafði sigrað ÍBV 22:17 í öðrum leik liðanna íVest-
mannaeyjum í gærkvöldi og tryggt sér um leið sæti í úrslitum.
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifar frá
Eyjum
IBV stúlkumar höfðu betur lengst
af fyrri hálfleik og voru tveimur
mörkum yfír í hálfleik, 10:8. Heima-
stúlkur skoruðu
fyrsta markið í síðari
hálfleik en þá tóku
Stjömustúlkur sig til
og jöfnuðu leikinn og
eftir það gáfu þær engin grið. Sigldu
fram úr og héldu öruggri forystu allt
til leiksloka. Það var einkum góð vöm
og frábær leikur Sóleyjar Halldórs-
dóttur í markinu sem skóp sigurinn.
Þórunn Jörgensen varði vel í marki
ÍBV í fyrri hálfleik og Malin Lake
átti einnig prýðisleik, en botninn
datt algjörlega úr leik heimastúlkna
í síðari hálfleik. Herdís Sigurbergs-
dóttir var best í liði Stjörnunnar sem
annað árið í röð sigraði ÍBV í undan-
úrslitum.
Guðný lék lausum hala
m
Ífyrri leik liðanna sem fór fram í
Garðabæ á laugardaginn höfðu
Garðbæingar nauman sigur, 22:21.
Stjörnustúlkur byrj-
uðu betur en gestim-
ir komust yfir eftir
22 mínútur. I síðari
hálfleik náðu Stjörn-
ustúlkur að spila eins og þeim hent-
ar, juku forskotið jafnt og þétt á
meðan Vestmannaeyingar fóru illa
með færi sín en náðu samt að jafna
þegar fimm mínútur voru eftir. Þá
skomðu Stjörnustúlkur tvö mörk í röð
Stefán
Stefánsson
skrifar
en Malin Lake minnkaði muninn í
eitt mark þegar mínúta var eftir.
Hinu megin misstu Garðbæingar bolt-
ann og Guðný var síðan rekin útaf.
Malin skoraði en markið ekki gilt því
dómarar dæmdu skref og slök send-
ing þeirra beint útaf þegar 10 sekúnd-
ur voru eftir, slökktu endanlega vonir
þeirra um framlengingu.
Guðný Gunnsteinsdóttir, línumað-
urinn snjalli, fékk að leika lausum
hala lengi vel og gerði 9 mörk. Það
munaði líká mikið um að Fanney
Rúnarsdóttir varði frábærlega í byrj-
un og hafði þegar yfir lauk varið 16
skot, þar af 2 vítaskot. Þær tvær
ásamt Ragnheiði Stephensen voru
bestar Stjörnustúlkna en Malin og
Andrea í liði ÍBV.
Góð vöm færði Haukum sigur
■ m
Oflug vörn Haukastúlkna á upp-
hafsmínútum í leik þeirra gegn
Fram í Safamýrinni á sunnudaginn,
þegar liðin léku
fyrsta leik sinn í und-
anúrslitum, lagði
grunn að 17:13 sigri
þeirra og segir
markatalan nokkuð um sóknir og
varnir í leiknum.
Haukastúlkur lokuðu leiðinni að
marki sínu fyrstu tuttugu mínúturn-
ar svo að sóknarlotur Framstúlkna
voru endasleppar og annað mark
þeirra kom á nítjándu mínútu. Á
meðan skoruðu Hafnfirðingar sjö
mörk. Staðan í leikhléi var 5:8. Hauk-
ar héldu í horfinu fram í miðjan síð-
ari hálfleik og náðu þá helmings
markamun, 8:16. Þátóku Framstúlk-
ur við sér með fimm mörkum í röð
en tíminn var of naumur fyrir þær.
„Við byrjuðum hræðilega og það
var erfitt að ná þessum mun upp,“
sagði Hafdís Guðjónsdóttir, „en við
mætum dýrvitlausar í næsta leik og
gefum allt í hann því við erum alls
ekki tilbúnar til að fara í sumarfrí.“
Haukastúlkur spiluðu bestu vörn
í kvennaleik sem undirritaður hefur
séð í vetur og uppskáru sigur. „Við
vinnum ef við gerum eins og fyrir
okkur er lagt en höfum verið að
missa niður leiki. Við unnum á liðs-
heildinni og vörninni, en stuðningur
Haukafólks á áhorfendapöllunum var
líka mikilvægur," sagði Hulda
Bjarnadóttir, sem var ásamt Auði
Hermannsdóttur og Judit Eztergal,
best af Hafnfirðingum.
Lilja Rós sigraði Evu í spennandi úrslitaleik
LÍTIÐ var um óvænt úrslit á íslands-
mótinu í borðtennis, sem fram fór
um helgina. Guðmundur E. Steph-
ensen, Víkingi, sigraði í öllum sínum
flokkum. Eina breytingin frá síðasta
íslandsmóti var að Víkingarnir Lilja
Rós Jóhannesdóttir og Eva Jósteins-
dóttir skiptu um sæti eftir að Lilja
Rós vann Evu í æsispennandi úrslita-
leik þar sem þurfti 5 loturtil að knýja
fram úrslit.
Guðrhundur og Eva unnu nokkuð ör-
ugglega í tvenndarleiknum á föstu-
daginn. I meistaraflokki karla léku til
úrslita Guðmundur og
Stefán Kjartan Briem, KR, sem
Stefánsson er við nám í Danmörku og
skrifar leikur með liði þar. Kjartan
sló út Ingólf Ingólfsson,
Víkingi, í undanúrslitunum í spennandi 5
lotu leik. Guðmundur vann fyrstu lotu
gegn Kjartani 21:16 en Kjartan jafnaði
með 20:22 sigri í næstu. Guðmundur sigr-
aði næst 21:12 en aftur náði Kjartan að
jafna 21:18 þannig að leika varð odda-
lotu. Þar hafði Guðmundur tögl og hagld-
ir og sigraði örugglega, 21:11.
Stöllurnar Eva og Lilja Rós hafa lengi
barist á toppnum en Eva yfirleitt haft
betur. Lilja Rós hefur hins vegar æft vel
í vetur og er punktahæst af kvenfólkinu.
Hún vann fyrstu lotu 21:19 og næstu
21:18 en Eva lagði ekki árar í bát, vann
næstu tvær lotur 21:18 og 21:9. í odda-
Iotu sigraði Lilja Rós, 21:17, á Iokasprett-
inum. „Ég átti alveg eins von á að sigra
í einliðaleiknum en hélt að sú von væri
úti þegar hún jafnaði," sagði Lilja Rós,
örþreytt eftir sigurleikinn gegn Evu. „Ég
held að ég hafi unnið á meiri þolinmæði
ef eitthvað er. Mér gengur best ef ég fæ
að spila eins og mér hentar best og fer
ekki út í einhveija vitleysu," bætti Lilja
Rós við.
Guðmundur og Ingólfur áttu ekki í
vandræðum með félaga sína úr Víkingi,
Markús Árnason og Sigurð Jónsson, í tví-
liðaleik en þar kom skemmtilega á óvart
endurkoma Hilmars Konráðssonar og
Bjarna Bjarnasonar, sem settu Kjartan
Briem og Kristján Viðar Haraldsson út í
kuldann í undanúrslitum. í tvíliðaleik
kvenna sigruðu Lilja Rós og Eva auðveld-
lega_ Ingibjörgu S. Árnadóttur úr Víkingi
og Ástu Urbancic úr Erninum.
Framkvæmdin ekki í lagi í Garðabæ
Stefán
Stefánsson
skrifar
STIGATAFLANI Garðabænum
var biluð er fyrri leikur Stjörnunn-
ar og ÍBV í undanúrslitum 1. deild-
ar kvenna fór fram á laugardag-
inn. Hvorki var hægt að sjá hvern-
ig staðan var í leiknum hverju
sinni né né hvað leiktimanum leið.
Þulur sagði alltaf frá hvaða leik-
menn Stjörnunnar skoruðu og
hvernig staðan var í leiknum -
þegar Stjarnan var yfir, annars
ekki. Þegar ÍBV skoraði sagði
þulurinn stundum frá því, en ekki
alltaf. Gleðihljómsveitin Stalla-Hú
frá Vestamannaeyjum mætti á
leikinn en forráðamenn Stjörn-
unnar bönnuðu henni að spila,
sögðu það óskrifaðar húsreglur
að hvort lið mætti vera með eina
trommu á leikjum í Ásgarði. Á
leik Stjörnunnar og UMFA í úr-
slitakeppni karla á dögunum voru
stuðningmenn Stjörnunnar hins
vegar með þrjár trommur.
Eyjamenniruir gáfu sig hins
vegar ekki og hófu leik með hljóð-
færum sínum, bassa- og snerilt-
rommu, túbu, horni ogtrompetti,
en létu síðan undan eftir fortölur
Sljömumanna. Leikmenn Stjörn-
unnar fengu einnig að hafa áhrif
á hvort Stalla-Hú léki því þeir
voru spurðir hvort þeim þætti það
í lagi og voru nokkrir alfarið á
móti því.
FIMLEIKAR
Góður árangur
Rúnars í Noregi
RÚNAR Alexandersson, fim-
leikamaður úr Gerplu, náði
mjög góðum árangri á sterku
móti í Noregi um helgina. í fjöl-
þrautinni lenti hann í fimmta
sæti og gerði sér síðan lítið
fyrir og sigraði i keppni á
tveimur áhöldum, bogahesti og
átvíslá. Rúnar fékk 9,7 fyrir
æfingar sínar á bogahestinum,
en það er hans sterkasta grein,
og er það mjög góður árangur.
Sérstaklega er árangur Rúnars
eftirtektarverður þegar haft er
í huga að á mótinu keppti með-
al annarra Kínveiji sem var í
efstu sætum á kínverska meist-
aramótinu. Á tvíslánni fékk
Rúnar 9,3 fyrir æfingar sínar
og er það einnig mjög góður
árangur.
í fjölþrautiimi stóð Rúnar sig
einnig vel en gerði smávægileg
mistök i gólfæfingunum og i
hríngjunum, mistök sem kost-
uðu hann verðlaunasæti. Það
var Norðmaðurinn Flemming
Solberg sem sigraði í fjölþraut-
inni en eins og staðan er núna
lítur út fyrir að hann verði eini
keppandinn frá Norðurlöndum
sem tekur þátt í fimleikakeppni
Ólympíuleikanna í sumar, þótt
ekki sé öll nótt úti enn um að
Rúnar komist á leikana.
SNOKER
Öruggur
sigur Is-
lendinga
ÍSLENSKA landsliðið í snóker
sigraði nokkuð örugglega í sínum
riðli í undankeppni Heimsbik-
arkeppninnar, en leikið var í Belg-
íu um helgina. Með sigrinum
tryggði landsliðið sér rétt til að
taka þátt í Iokakeppninni sem verð-
ur í Tævan í haust, en þar leika
tuttugu bestu þjóðirnar til úrslita.
Islendingar voru í riðli með Dön-
um, Pólveijum og Svíum og gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu alla mót-
herja sína. Pólverjar voru lagðir
að velli 9:0, Svíar lágu 6:3 og loks
voru Danir lagðir að velli 8:1. Lið
íslands skipuðu þeir Kristján
Helgason, Jóhannes B. Jóhannes-
son og Edward Matthíasson.
SKÍÐI
Brynja
nældi í
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 B 5
ÍÞRÓTTIR
JUDO
Vernharð Þorleifsson þriðji í Róm og er kominn með annan fótinn til Atlanta
Er i sjounda himni
Mórgunblaðið/RAX
VERNHARÐ varð í þriðja sæti á 'sterku móti í Róm og er
kominn með annan fótinn á Ólympíuleikana.
VERNHARÐ Þorleifsson, júdó-
kappi f rá Akureyri, varð í þriðja
sæti á einu af hinum svoköll-
uðu A-mótum, sem fram fór í
Róm á Ítalíu, um helgina.
Árangur Vernharðs færir hann
enn nær markmiði sínu, að
komast á Ólympíuleikana í Atl-
anta í sumar, en hann er nú í
sjöunda sæti á Evrópulistanum
en níu efstu á þeim lista kom-
ast á Ólympiuleikana. „Ég er i
sjöunda himni yfir árangri mín-
um. Það er frábært að ná
bronsverðlaunum tvö A-mót í
röð. Það má mikið breytast ef
ég á ekki að komast á Óiympíu-
leikana. Ætli ég sé ekki kominn
þangað með annan fótinn og
þrjár tær til viðbótar," sagði
Vernharð, sem er 22 ára.
Vernharð byijaði á því að leggja
Spánverjann Alcibar, fékk
fimm stig (Yuko) fyrir að kasta
honum í gólfið. Jikulauri frá Georg-
íu var næstur í röðinni og Vernharð
náði armlás í þeirri viðureign og
fékk Ippon. í þriðju viðureigninni
fékk Vernharð Yuko fyrir að kasta
Pantic frá Júgóslavíu og dugði það
til sigurs. „Þetta var rosalega erfið
glíma því hann gaf mér þungt höf-
uðhögg og við það efldist ég til
muna og náði að sigra.“
Þjóðverjinn Knorrek, sem sigraði
í þyngdarflokknum, vann Vernharð
í undanúrslitum þar sem hann fékk
þijú refsistig. „Ég var nálægt því
að sigra Knorrek, sem er efstur á
Evrópulistanum, enda glíman mjög
BLAK
jöfn og spennandi." í glímunni um
þriðja sætið lagði Vernharð síðan
Borisenko frá Úkraínu á Ippon.
„Það sýnir styrk að vinna úrslita-
glímur eins og þessa. Áður fyrr
tapaði ég yfirleitt úrslitaglímum.
Þegar ég stóð á verðlaunapallinum
og horfði á hina júdómennina á
pallinum hugsaði ég með mér, að
fyrir nokkrum árum hefði ég ekki
getað látið mig dreyma um að
standa í þessum sporum. Þetta eru
svo stór nöfn í júdóinu. Þessi tvö
síðustu mót gefa mér mikið sjálfs-
traust og ég veit að á góðum degi
ætti ég að geta staðið á efsta þrep-
inu,“ sagði Vernharð.
Bjarni Friðriksson tók einnig
þátt í mótinu í Róm og lenti í 7.
sæti. Hann tapaði fyrstu viðureign-
inni gegn Soares frá Portúgal,
Yuko, en lagði síðan Hassine frá
Túnis á Ippon og mætti næst Kov-
avs fráUngverjalandi, en hann sigr-
aði á Ólympíuleiknunum í Barcel-
ona. Bjarni sýndi mikla baráttu og
var þetta ein af bestu viðureignum
hans, meistarinn gafst upp þegar
Bjarni náði armlás á hann. Ippon.
Úkraínumaðurinn Borisenko vann
Bjarna síðan á Ippon.
Eiríkur Kristinsson keppti einnig
á mótinu en tapaði í fýrstu umferð
fyrir Úkraínumanni.
Nú er aðeins eitt A-mót eftir
fram að Evrópumeistaramótinu
sem verður í byijun maí. Bjarni
Friðriksson fer til Hollands á síð-
asta A-mótið og verður það síðasta
tækifæri hans til að komast á Evr-
ópumótið því þangað fer aðeins
einn íslendingur í þessum þyngdar-
flokki og þar hefur Vernharð bet-
ur. Bjarni þarf að ná fyrsta eða
öðru sæti í Hollandi til að fara upp
fyrir Vernharð á styrkleikalistan-
um. Vernharð sagðist ekki ætla á
mótið í Hollandi. „Ég ætla að hvíla
aðeins því þetta er búið að vera
mikið álag að undanförnu. Við
erum búnir að keppa á sjö mótum
erlendis frá því í byijun febrúar,
nánast um hverja helgi. Nú ætla
ég að búa mig undir Evrópumót-
ið,“ sagði Vernharð.
Þróttur stendur vel að vígi
ÞRÓTTUR skellti Stjörnunni í
þriðja leik liðanna um íslands-
meistaratitilinn íkarlaflokki og
hefur 2:1 yfir. Þróttur getur
tryggt sér titilinn annað kvöld
er liðin mætast fjórða sinni.
^að leit ekki út fyrir að Reykja-
víkurliðið myndi fara með sig-
ur af hólmi í viðureigninni á sunnu-
daginn. Stjarnan vann fyrstu hrin-
una 15:10 og hafði undirtökin, 7:2,
framan af annarri hrinu. Þá gaf
móttakan sig hvað eftir annað hjá
Garðbæingum og sóknirnar voru
því bitlausar þrátt fyrir að búlg-
arski galdramaðurinn Hristo Sto-
ianov, uppspilari Stjörnunnar,
reyndi sitt besta til að vinna úr hlut-
unum. Fram að þeim tíma höfðu
leikmenn Þróttar átt í verulegum
erfiðleikum með Stjörnuna þrátt
fyrir að Gottskálk Gizurarson, einn
af fastamönnum liðsins, væri fjarri
góðu gamni, þar sem hann er farinn
utan vegna vinnu og leikur ekki
meira með liðinu í úrslitakeppninni.
Stjarnan fékk ekki nema eitt stig
þar sem eftir var af annarri hrinu
og Þróttarinn Ólafur Heimir Guð-
mundsson fór að skila skellunum í
gólfið eftir að hafa verið dapur
framan af leiknum. Þróttur vann
15:8. Þróttur drottnaði yfír Stjörn-
unni það sem eftir var. Vann þriðju
hrinuna 15:11 og þá síðustu 15:4.
Emil Gunnarsson fékk það erfiða
hlutverk í Stjörnuliðinu að sjá um
móttökuna mestallan leikinn og
fórst það vel úr hendi en hann og
Hristo voru bestu menn liðsins. Ól-
afur Heimir náði sér vel á strik í
Þróttaraliðinu þegar líða tók á leik-
inn og Áki Thoroddsen var afger-
andi á miðjunni og illviðráðanlegur.
Þrórtarstúlkur jöfnuðu
Það voru grimmar Þróttarastúlk-
ur sem mættu til annars úrslitaleiks-
ins gegn HK í Neskaupstað á sunnu-
daginn, minnugar þess að þær töp-
uðu í fimm hrinu leik á föstudags-
kvöldið eftir að hafa verið yfir 12:9
í oddahrinunni. Stemmningin í Nes-
kaupstað var með ólíkindum en um
15% íbúanna mættu og hvöttu sitt
lið ákaflega til sigurs. Fyrsta hrinan
gekk líka vel hjá heimaliðinu sem
vann 15:8. HK stúlkur hristu af sér
slenið í annarri hrinu og höfðu 11:7
yfir þegar sóknin fór í gang hjá
Þróttarstúlkum svo um rnunaði og
hávörnin hjá HK réð ekki við neitt.
Þróttarstúlkur náðu að hrista HK
liðið af sér á lokakaflanum og sigra
16:14. Þriðja hrinan var í járnum,
jafnt var á flestum tölum en hun-
grið var meira hjá Þróttarstúlkum
sem kórónuðu frábæra frammistöðu
með því að klára þriðju hrinuna
15:11.
Þróttarstúlkur léku flestar hveij-
ar mjög vel en Miglena Apostolova
þó sýnu best. Elín Guðmundsdóttir
var skæð í sókninni hjá HK en hún
og Elva Rut Helgadóttir léku best
fyrir HK í leiknum.
Morgunblaðið/Bjami
ÞRÓTTARINN Ólafur Heimir Guðmundsson skelllr hér í hávörn Stjörnunnar en þar eru fyrir
nafnarnir Eíríkur B. Þorsteinsson og Eiríkur R. Eiríksson.