Morgunblaðið - 29.03.1996, Side 1

Morgunblaðið - 29.03.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 3R*r0mtlftifrU> 1996 FÓSTUDAGUR 29. MARZ BLAÐ HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN Morgunbladið/Þórhallur Jónsson Kolbeinn framkvæmda- stjóri hjá ÍBR Hættir sem formaður Körfu- knattleikssambandsins ívor KOLBEINN Pálsson, formaður Körfuknattleiks- sambands íslands, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri íþróttabandalags Reykjavíkur. Hann tekur formlega við starfínu 1. júní í sumar af Sigurgeir Guðmannssyni. í framhaldi afnýja starfínu hefur Kolbeinn tilkynnt stjóm KKÍ að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs á ársþing- inu í vor, en hann hefur verið formaður KKÍ í áttaár. „Það samrýmist ekki að vera bæði formaður sérsambands og framkvæmdastjóri ÍBR og því tók ég þessa ákvörðun, að hætta hjá KKÍ. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið þetta nýja starf og var valinn úr hópi 35 umsækjenda. Eg þekki orð- ið vel til lýá ÍBR enda hef ég verið starfsmaður þess í níu ár. Ég tel mig hafa góða og víðtæka þekkingu á íþróttamálum, sem kemur til með að nýtast mér í starfi framkvæmdasljóra ÍBR,“ sagði Kolbeinn við Morgunblaðið. Kolbeinn á einnig sæti í framkvæmdastjórn Ólympíunefndar íslands. Hann sagði ekki nauð- synlegt að hætta störfum í Ólympíunefndinni að svo stöddu, því þar væri hann fulltrúi Körfuknatt- leikssambandsins fram að áramótum. „Það verður kosning næst um áramótin og þá kemur Körfu- knattleikssambandið til með að tilnefna mann í Ólympíunefndina," sagði Kolbeinn. Framarar sigruðu í fyrsta grasleiknum FYRSTI knattspyrnuleikur ársins á grasi fór fram í Garði í gærkvðldi en þar mættust Víðir og Fram í deildabikarkeppninni. Fram sigraði með þremur mörkum gegn einu. Mörk Fram skoruðu Hólm- steinn Jónasson, tvö, og Þorvaldur Asgeirsson Elíassonar þjálfara, eitt. Steinar Ingimundarson klóraði i bakkann fyrir heimamenn í stöðunni 3:0. Þess má til gamans geta að fyrsti grasleikur- inn í fyrra var leikinn á Akranesi 4. maí. Drammen í úrslit Borgakeppninnar NORSKA liðið Drammen sem sló Aftureldingu út í Borgakeppni Evrópu í handknattleik komst í gærkvöldi í úrslit keppninnar. Drammen lagði sænska félagið Skövde í seinni leik liðanna í Drammen með 20 mörkum gegn 12. Skövde sigr- aði fyrri leikinn 23:17. Drammen vann því saman- lagt 37:36. Fyrri hálfleikur i Ieiknum i gærkvöldi var jafn og Drammen var marki yfir í hálfleik 7:6 en í síðari hálfíeik hrundi sóknarleikur Skövde algjörlega. Jón Kristjánsson þjálfari Vals ánægður en varkár eftir sigur á KA á Akureyri „Stríðid eldd búið“ Sigfúsfór á kostum SIGFÚS Sigurðsson, línumaður- inn ungi og efnilegi í Val, lék mjög vel gegn KA á Akureyri í gær. Á myndinni er Sigfús í þann mund að gera eitt sjö marka sinna í leiknum en hann skoraði fimm sinn um af línunni og tvisvar eftir hraðaupphlaup. Örvæntingarsvipurinn á Alfreð Gíslasyni, leikmanni og þjálfara KA, er lýsandi fyrir leikinn - lið hans, sem hefur þegar fagnað bikar- og deildarmeistaratitli í vetur, hafði ekkert í Valsmenn að segja og verður aldeilis að taka sig saman í andlitinu ef það ætlar að sigra að Hlíðar- enda á morgun. Valsmenn voru að vonum kátir í búningsklefanum eftir glæst- an sigur á KA á Akureyri, 31:26, í fyrsta úrslitaleik Stefán Þór liðanna um íslands- Sæmundsson meistaratitilinn í skrifar frá handknattleik í gær- kvöldi, og þjálfarinn Jón Kristjánsson upplitsdjarfur. Hann sagði þetta vissulega gott vegarnesti fyrir leikinn á Hlíðar- enda á laugardaginn. „Við vissum að við þyrftum að vinna í það minnsta einn leik á Akureyri og það tókst í fyrstu til- raun. Stríðið er samt ekki búið þótt þessi orrusta hafi unnist. Sóknin gekk mjög vel hjá okkur núna og vörnin alveg þokkalega. Markvarsl- an skilaði líka miklu í seinni hálf- leik. Við klipptum á hornamennina þeirra en það var aðeins einn þáttur af mörgum í þessu samspili. Ég held að dagsformið hjá okkur hafi einfaldlega verið mun betra en hjá KA,“ sagði Jón Kristjánsson. „Þurfum að spila miklu betur'* Alfreð Gíslason, þjálfari KA, var niðurlútur eins og félagar hans í búningsklefa heimamanna. „Vals- arar spiluðu mun betur en við í dag, svo einfalt er það. Þeir unnu verð- skuldaðan sigur. Við þurfum að spila miklu betur á Hlíðarenda ef við eig- urn að geta jafnað metin þar. Það var ekkert sem kom okkur á óvart, við áttum að ráða við leikaðferð þeirra en þetta var slæmur dagur,“ sagði Alfreð sem lék mikið með og var að vanda sterkur í vörninni. „Upphafið að endinum" Annar sterkur jaxl er Sigfús Sig- urðsson, línumaður Vals. Hann var öflugur í vörn og skoraði að auki sjö mörk. Stórleikur hjá piltinum. Sigfús, nú hefur þú oft komist lítið áfram gegn Alfreð en þér tókst að sleppa úr stálgreipum hans núna, eða hvað? „Já, hann hefur haft betur í síð- ustu þrem leikjum en ég hafði bet- ur núna. Annars var þetta sigur liðsheildarinnar. Andinn er mjög góður í liðinu og þetta var aðeins upphafið að endinum," sagði Sigfús Sigurðsson. ■ Sæikerakvöld / C2 KÖRFUKNATTLEIKUR: ÖRUGGUR SIGUR KEFLVÍKINGA í GRINDAVÍK / C4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.