Morgunblaðið - 29.03.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
3R*r0mtlftifrU>
1996
FÓSTUDAGUR 29. MARZ
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
Morgunbladið/Þórhallur Jónsson
Kolbeinn
framkvæmda-
stjóri hjá ÍBR
Hættir sem formaður Körfu-
knattleikssambandsins ívor
KOLBEINN Pálsson, formaður Körfuknattleiks-
sambands íslands, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri íþróttabandalags Reykjavíkur.
Hann tekur formlega við starfínu 1. júní í sumar
af Sigurgeir Guðmannssyni. í framhaldi afnýja
starfínu hefur Kolbeinn tilkynnt stjóm KKÍ að
hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs á ársþing-
inu í vor, en hann hefur verið formaður KKÍ í
áttaár.
„Það samrýmist ekki að vera bæði formaður
sérsambands og framkvæmdastjóri ÍBR og því tók
ég þessa ákvörðun, að hætta hjá KKÍ. Ég er mjög
ánægður með að hafa fengið þetta nýja starf og
var valinn úr hópi 35 umsækjenda. Eg þekki orð-
ið vel til lýá ÍBR enda hef ég verið starfsmaður
þess í níu ár. Ég tel mig hafa góða og víðtæka
þekkingu á íþróttamálum, sem kemur til með að
nýtast mér í starfi framkvæmdasljóra ÍBR,“ sagði
Kolbeinn við Morgunblaðið.
Kolbeinn á einnig sæti í framkvæmdastjórn
Ólympíunefndar íslands. Hann sagði ekki nauð-
synlegt að hætta störfum í Ólympíunefndinni að
svo stöddu, því þar væri hann fulltrúi Körfuknatt-
leikssambandsins fram að áramótum. „Það verður
kosning næst um áramótin og þá kemur Körfu-
knattleikssambandið til með að tilnefna mann í
Ólympíunefndina," sagði Kolbeinn.
Framarar sigruðu í
fyrsta grasleiknum
FYRSTI knattspyrnuleikur ársins á grasi fór fram
í Garði í gærkvðldi en þar mættust Víðir og Fram
í deildabikarkeppninni. Fram sigraði með þremur
mörkum gegn einu. Mörk Fram skoruðu Hólm-
steinn Jónasson, tvö, og Þorvaldur Asgeirsson
Elíassonar þjálfara, eitt. Steinar Ingimundarson
klóraði i bakkann fyrir heimamenn í stöðunni
3:0. Þess má til gamans geta að fyrsti grasleikur-
inn í fyrra var leikinn á Akranesi 4. maí.
Drammen í úrslit
Borgakeppninnar
NORSKA liðið Drammen sem sló Aftureldingu út
í Borgakeppni Evrópu í handknattleik komst í
gærkvöldi í úrslit keppninnar. Drammen lagði
sænska félagið Skövde í seinni leik liðanna í
Drammen með 20 mörkum gegn 12. Skövde sigr-
aði fyrri leikinn 23:17. Drammen vann því saman-
lagt 37:36. Fyrri hálfleikur i Ieiknum i gærkvöldi
var jafn og Drammen var marki yfir í hálfleik
7:6 en í síðari hálfíeik hrundi sóknarleikur Skövde
algjörlega.
Jón Kristjánsson þjálfari Vals ánægður en varkár eftir sigur á KA á Akureyri
„Stríðid eldd búið“
Sigfúsfór
á kostum
SIGFÚS Sigurðsson, línumaður-
inn ungi og efnilegi í Val, lék
mjög vel gegn KA á Akureyri
í gær. Á myndinni er Sigfús í
þann mund að gera eitt sjö
marka sinna í leiknum en hann
skoraði fimm sinn um af línunni
og tvisvar eftir hraðaupphlaup.
Örvæntingarsvipurinn á Alfreð
Gíslasyni, leikmanni og þjálfara
KA, er lýsandi fyrir leikinn - lið
hans, sem hefur þegar fagnað
bikar- og deildarmeistaratitli í
vetur, hafði ekkert í Valsmenn
að segja og verður aldeilis að
taka sig saman í andlitinu ef
það ætlar að sigra að Hlíðar-
enda á morgun.
Valsmenn voru að vonum kátir
í búningsklefanum eftir glæst-
an sigur á KA á Akureyri, 31:26,
í fyrsta úrslitaleik
Stefán Þór liðanna um íslands-
Sæmundsson meistaratitilinn í
skrifar frá handknattleik í gær-
kvöldi, og þjálfarinn
Jón Kristjánsson upplitsdjarfur.
Hann sagði þetta vissulega gott
vegarnesti fyrir leikinn á Hlíðar-
enda á laugardaginn.
„Við vissum að við þyrftum að
vinna í það minnsta einn leik á
Akureyri og það tókst í fyrstu til-
raun. Stríðið er samt ekki búið þótt
þessi orrusta hafi unnist. Sóknin
gekk mjög vel hjá okkur núna og
vörnin alveg þokkalega. Markvarsl-
an skilaði líka miklu í seinni hálf-
leik. Við klipptum á hornamennina
þeirra en það var aðeins einn þáttur
af mörgum í þessu samspili. Ég
held að dagsformið hjá okkur hafi
einfaldlega verið mun betra en hjá
KA,“ sagði Jón Kristjánsson.
„Þurfum að spila miklu betur'*
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, var
niðurlútur eins og félagar hans í
búningsklefa heimamanna. „Vals-
arar spiluðu mun betur en við í dag,
svo einfalt er það. Þeir unnu verð-
skuldaðan sigur. Við þurfum að spila
miklu betur á Hlíðarenda ef við eig-
urn að geta jafnað metin þar. Það
var ekkert sem kom okkur á óvart,
við áttum að ráða við leikaðferð
þeirra en þetta var slæmur dagur,“
sagði Alfreð sem lék mikið með og
var að vanda sterkur í vörninni.
„Upphafið að endinum"
Annar sterkur jaxl er Sigfús Sig-
urðsson, línumaður Vals. Hann var
öflugur í vörn og skoraði að auki
sjö mörk. Stórleikur hjá piltinum.
Sigfús, nú hefur þú oft komist
lítið áfram gegn Alfreð en þér tókst
að sleppa úr stálgreipum hans núna,
eða hvað?
„Já, hann hefur haft betur í síð-
ustu þrem leikjum en ég hafði bet-
ur núna. Annars var þetta sigur
liðsheildarinnar. Andinn er mjög
góður í liðinu og þetta var aðeins
upphafið að endinum," sagði Sigfús
Sigurðsson.
■ Sæikerakvöld / C2
KÖRFUKNATTLEIKUR: ÖRUGGUR SIGUR KEFLVÍKINGA í GRINDAVÍK / C4