Morgunblaðið - 30.03.1996, Síða 3
2 D LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 D 3
IÞROTTIR
IÞROTTIR
Þrír
Nígeríu-
menn
féliu á
lyfjaprófi
ÞRÍR af bestu spretthlaupur-
um Nígeríu féllu á lyfjaprófi
og hafa verið dæmd I þriggja
mánaða keppnisbann. Þetta
eru Mary Onyali ogtvíbur-
arnir Osmond og Davidson
Ezinwa.
íþróttamennirnir segjast
hafa fengið lyf vegna kvefs
hjá lækni og á umbúðum lyfs-
ins hafi ekki komið fram að
það innihéldi ephedrine. Ony-
ali er Afrikumethafi í 100 og
200 metra hlaupi og komst í
úrslit á HM í Gautaborg í
fyrra. Hún var tekinn í lyfja-
próf 4. febrúar í Stuttgart og
þá kom í Ijós að hún hafði
neytt ólöglegs lyfs og tíu dög-
um síðar féUu tvíburarnir á
prófi í Moskvu, eftir að Osm-
ond hafði sigrað í 60 metra
hlaupi og Davidson orðið
þriðji. Hlauparamir æfa í
Bandaríkjunum og voru allir
teknir í lyfjapróf í Frakklandi
18. febrúar og þá kom ekkert
óeðlilegt í Ijós.
KNATTSPYRNA i FIMLEIKAR / NM 1 KÖRFUKNATTLEIKUR
Lee lætur Kin-
kladze ekki
segist frekar munu segja af sér
Eg myndi frekar segja af mér
en selja Georgiou Kinkladze,"
sagði Francis Lee stjórnarformað-
ur og aðaleigandi Manchester
City. „Með kaupunum á Kinkladze
tryggðum við okkur besta erlenda
knattspyrnumanninn sem gengið
hefur til liðs við enskt félag síðan
Ossie Ardiles kom til Tottenham
árið 1978. Hann hefur allt til að
bera að verða besti knattspyrnu-
maður Bretlandseyja og leikmaður
sem við munum kjósa besta knatt-
- spyrnumann Evrópu,“ bætti
stjórnarformaðurinn við.
Georgíumaðurinn Georgiou
Kinkladze hefur sannað sig í vetur
og skorað falleg mörk. Nú er svo
komið að félög á Ítalíu, Spáni og
í Japan hafa reynt að bera í hann
víurnar. Japanskt félag hefur boð-
ið honum 30.000 pund (3 milljónir
króna) á viku í laun vilji hann
ganga til liðs við það. Johan Cru-
yff þjálfari Barcelona hefur lýst
yfir að hann sé reiðubúinn að
greiða 7 milljónir punda (um 700
milljónir króna) fyrir kappann. En
allt kemur fyrir ekki. Það er ekki
bara að Lee hafi ekki áhuga á að
selja hann heldur vill Georgíumað-
SKIÐAGANGA
Æfingaáætlun
í FYRSTU grein minni um skíða-
göngu minntist ég á almennings-
gönguna „Lava-loppet“ sem
ákveðið hafði verið að halda á
Nesjavöllum í apríl. Því miður,
fyrir þá sem höfðu
Ólafur hugsað sér að
Björnsson ganga þá göngu,
skrifar hefur nú þurft að
aflýsa henni vegna
snjóleysis. Enn á eftir að halda
almenningsgöngur víða um land
fram í maí, þannig að við höldum
áfram með æfingarnar.
Vikuáætlun (13):
1. dagur: Þessa viku eru æfíng-
arnar aðeins hraðari en venjulega.
Við byijum þó að ganga rólega í
u.þ.b. 20 mínútur. Síðan finnið þið
ykkur sléttu (100 m) þar sem þið
gangið eða ýtið ykkur eins hratt
og þið getið þessa 100 metra.
Hvílið ykkur síðan nokkuð lengi
með því að ganga rólega. Endur-
takið þetta 4-6 sinnum.
Æfingatími: 30-75 mínútur.
2. dagur: Frekar róleg æfing
en gjarnan með kröftugum ýting-
um með vissu millibili til þess að
styrkja hendur.
Æfingatími: 45-90 minutur.
3. dagur: Hitið rólega upp í 20
mínútur. Síðan takið þið tvo
10-15 mínútna spretti. Þetta er
gert til þess að venja ykkur við
að ganga aðeins hraðar yfir lengri
tíma. Gangið samt ekki það hratt
að þið stífnið í vöðvunum. Á milli
sprettanna gangið þið rólega í
u.þ.b. 10 mínútur.
Æfingatími: 45-75 mínútur.
Höfundur er iþróttakennari og
skíðaþjálfari.
N ORÐURLANDAMOT
í FIMLEIKUM
verður haldið í
Laugardalshöll
helgina
30.-31. mars.
Keppnin hefst
kl. 13.00
báða dagana.
MEÐAL ÞATTTAKENDA VERÐA ALLIR
BESTU FIMLEIKAMENN
NORÐURLANDA
Mót sem enginn fimleikaunnandi má láta fram hjá sér fara.
Aðgangseyrir kr. 300 fyrir fullorðna, frítt fyrir böm.
urinn ekki yfirgefa Maine Road.
„Mér líkar vistin vel í Manchester
og knattspyrnan í Englandi fellur
mér í geð. Þá eru stuðningsmenn
félagsins frábærir. Þess vegna hef
ég ekki í hyggju að fara héðan,“
segir kappinn. Þess má geta að
Manchester City og Bolton leika
í sjónvarpsleik dagsins i dag á
RÚV og verður spennandi að fylg-
ast með hvernig Guðna Bergssyni
og félögum tekst til í baráttunni
við Kinkladze og samheija en
bæði lið þurfa á sigri að halda.
Bolton er í næstneðsta sæti með
26 stig en City er tveimur sætum
ofar með 30 stig.
í þessum leik gæti annar Georg-
íumaður sett mark sitt á leikinn,
það er Mikhail Kavelashvlia, sem
nýlega gekk til liðs við Lee og
félaga á Maine Road og leikur í
fyrsta skipti með Manchesterliðinu
í dag. „Kavelashvlia er betri leik-
maður en ég,“ segir Kinkladze.
Hann er talinn markaskorari af
guðsnáð og vonast stuðningsmenn
City til þess að hann finni sig fyr-
ir framan landa sinn og saman
geti þeir bjargað liðinu frá falli í
1. deild.
ínénn
FOLK
■ ASTRAÐUR Sigurðsson varð á
dögunum fjórði Islendingurinn sem
lýkur námi í golfkennslu. Fyrir hér
heima eru Arnar Már Ólafsson og
Sigurður Pétursson og í Þýska-
landi er Jón Halldór Garðarsson
golfkennari. Auk þessara manna eru
tveir aðrir fullnuma golfkennarar
starfandi hér, þeir Phil Hunter hjá
GS og David Barnwell á Akureyri.
■ ÁSTRÁÐUR, sem er aðeins 22
ára og því yngsti kennarinn hér á
landi, hefur verið ráðinn golfkennari
hjá Oddfellowum og verður að vinna
þar í sumar og einnig mun hann
vera með golfkennslu í Mosfellsbæn-
um. Hann hefur fullan hug á að fara
til útlanda í haust og reyna fyrir sér
sem golfkennari erlendis. Þess má
geta að Jón Karlsson er að hefja
nám í Svíþjóð, við sama skóla og
Arnar Már, Sigurður og Ástráður
voru í.
■ SIGURÐUR Sigurðsson kylfing-
ur frá Keflavík og fyrrum íslands-
meistari í golfi hefur ákveðið að
reyna fyrir sér við kennslu. Hann
hefur verið ráðinn hjá nafna sínum
Péturssyni, hjá GR í sumar. Hann
hefur hug á að læra til kennara ef
honum líkar starfið.
■ GEIR Sveinsson og félagar hans
hjá Montpellier töpuðu í vikunni
fyrir nýkrýndum Frakklandsmeistur-
um Marseille í 8-liða úrslitum
frönsku bikarkeppninnar í hand-
knattleik, 18:22, í Montpellier. Geir
skoraði þijú mörk.
■ MARK Foster, sundmaður frá
Bretlandi, náði í vikunni bestum
tíma ársins í 50 metra flugsundi, í
50 metra laug, á móti í Cardiff.
Hann synti á 24,07 sekúndum og
bætti tíma Svíans Jans Karlssons
frá því í júlí 1994 um 0,20 sekúndur.
■ JERRY Stackhouse, leikmaður
með Philadelphia 76ers í banda-
rísku NBA-deildinni í körfuknattleik,
var sektaður um 495 þús. ísl. kr. og
settur í tveggja leikja bann fyrir að
ráðast að Jeff Hornacek hjá Utah
Jazz. Báðir leikmennimir voru reknir
útaf í leiknum og fengu 66 þús. kr.
í sekt.
ÞAÐ verður eflaust hart barist í öllum greinum er besta fimleikafólkk Norðurlandanna kemur saman
til keppni í Laugardalshöll í dag og á morgun. íslendingar tefla fram sínu fimasta liði og verður fróðlegt
að fylgjast með árangri þess.
AIR besta fimleikafólk
Norðurlandanna í Höllinni
Búist við spennandi keppni milli Rúnars og norska ólympíufarans
NORÐURLANDAMÓTIÐ i áhalda-
fimleikum fer fram í Laugardals-
höll um helgina. Allt besta fim-
leikafólk Norðurlandanna mætirtil
keppni, þar á meðal norski ólymp-
íufarinn Flemming Solberg. Það
verður forvitnilegt og spennandi
að fylgjast með Rúnari Alexand-
erssyni etja kappi við Solberg.
Idag verður keppt í fjölþraut karla
og kvenna og er keppnin bæði í liða-
og einstaklingskeppni. Fimm keppendur
eru í hveiju liði, fjórir keppa og þrír
bestu telja. Á morgun verður keppni á
einstökum áhöldum og .keppa þá sex
bestu einstaklingarnir frá fyrri keppnis-
degi. Mótið hefst báða dagana kl. 13.00.
I norska karlaliðinu eru þrír sem tóku
þátt í síðasta heimsmeistaramóti sem
fram fór í Japan í október á síðasta
ári. Flemming Solberg er sá éini þeirra
sem tryggði sér þátttökurétt á Ólympíu-
leikunum í Atlanta. Á heimsmeistara-
mótinu fékk hann 106,050 stig saman-
lagt fyrir skyldu- og fijálsar æfingar,
eða 53,02 að meðaltali. Það má búast
við spennandi keppni í karlaflokki og
er talið að þrír muni helst veita Solberg
keppni. Það er okkar maður, Rúnar
Alexandersson og svo Svíinn Magnus
Rosengren og Finninn Jari Mönkkönen,
en þeir voru báðir meðal keppanda á
HM í Japan.
í kvennaflokki er danska stúlkan
Charlotte Andreasen sigurstrangleg.
Hún er besta fimleikakona Dana í dag
og komst í úrslit í ljölþraut á HM í
Japan. Hún hlaut 71,948^ í einkunn sem
er 35,97 að meðaltali. íslensku stúlk-
urnar gætu veitt dönsku stúlkunni
keppni. fslandsmeistarinn Nína Björg
Magnúsdóttir hlaut 35,93 í meðalein-
kunn í landskeppni á írlandi fyrir
skömmu og Elva Rut Jónsdóttir hlaut
34,63.
Islenska landsliðið verður þannig
skipað: Lið kvenna:Nína Björg Magn-
úsdóttir, Elva Rut Jónsdóttir, Elín Guð-
mundsdóttir, Jóhanna Sigmundsdóttir
og Sólveig Jónsdóttir. Varamaður er
Þórey Edda Elíasdóttir. Lið karla:
Rúnar Alexandersson, Guðjón Guð-
mundsson, Jóhannes Níels Sigurðsson,
Ómar Örn Ólafsson og Dýri Kristjáns-
son. Varamaður er: Jón Trausti Sæ-
mundsson.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Chicago Bulls vann
enn einn heimaleikinn
CHICAGO Bulls hélt áfram sigur-
göngu sinni á heimavelli ífyrri-
nótt með því að bursta Atlanta
Hawks 111:80. Jordan og félagar
hafa unnið alla 35 heimaleiki sína
í vetur.
Toni Kukoc var stigahæstur í liði
Chicago með 24 og Scottie Pippen
kom næstur með 16 og tók auk þess
11 fráköst og átti átta stoðsendingar.
Jordan gerði 13 stig í 61. sigri Bulls á
tímabilinu. „Við komum í þennan leik
til að sigra en sigurinn var auðveldari
en við áttum von á,“ sagði Kukoc.
Steve Smith var með 18 stig fyrir
Atlanta og Stacey Augmon 12. Mookie
Blaylock lék ekki með vegna meiðsla
og munar um minna. „Án Blaylocks
voru þeir eins og hauslausir kjúklingar
ráfandi um völlinri og vissu ekkert hvað
þeir áttu að gera,“ sagði Jordan um lið
Atianta.
Portland vann Golden State, 94:89,
og var þetta áttundi sigur liðsins í síð-
ustu níu leikjum. Arvydas Sabonis skor-
aði 26 stig og tók 14 fráköst og Clif-
ford Robinson gerði 17 stig. Latrell
Sprewell var með 27 stig fyrir Golden
State og Kevin Wiilis 18.
Antonio McDyess setti niður 18 stig
og tók 8 fráköst fyrir Denver sem sigr-
aði Vancouver Grizzlies á útivelli, 92:88.
Þetta var 20. tapieikur Vancouver í röð
og jafnaði liðið þar með „met“ Phila-
delphiu frá því 1973 sem var jafnað
af Dallas 1993.
Terrell Brandon gerði 17 stig og þar
af sigurkörfuna þegar 2,3 sekúndur
voru eftir fyrir Cleveland sem vann LA
Clippers, 83:81. Bobby Phills var einnig
með 17 stig og Chris Mills var með 14.
Brent Barry gerði 20 stig og Terry
Dehere 15 fyrir Clippers.
Úrslitakeppni háskóladeildarinnarað Ijúka og bandaríska þjóðin erspennt
Kentucky sigurstranglegast
URSLITAKEPPNI bandarískra
háskólaliða í körfuknattleik lýk-
ur um helgina í New Jersey.
Þessi keppni stendur yfir um
þrjár helgar og á meðan er lít-
ill áhugi á NBA-deildinni meðal
íþróttaunnenda vestra. Liðin
sem leika í undanúrslitunum í
dag eru annars vegar lið
Kentucky og Massachusetts
og hins vegar lið Syracuse og
Mississippi State.
Háskóladeildiner þannig upp-
byggð að um 300 lið heija
keppni S 1. deildinni og leika þau í
um 30 riðlum. Hvert lið í háskóla-
deildinni leikur 30-36 leiki á tímabil-
inu. 64 lið komst í úrslitakeppnina,
þar er útsláttarfyrirkomulag og tek-
ur hún aðeins 19 daga. Sigurvegar-
ar hvers riðils komast í úrslita-
keppnina en auk þess er sérstök
valnefnd íþróttasambands háskóla
(NCAA) sem velur 32 lið eftir áætl-
uðum styrkleika þeirra. Á hverju
ári eru deiiur um hvort vel hafi tek-
ist með valið, en í raun komast lang-
flest bestu liðin í keppnina.
Eftir að nefndin hefur ákveðið
hvaða lið komast í úrslitin raðar hún
liðunum í 16 styrkleikaflokka eftir
fjórum svæðum. Þess er gætt að
fjögur bestu liðin, að mati nefndar-
innar, lendi ekki á sama svæði. Það
lið sem talið er best á hveiju svæði
mætir því lakasta og svo framvegis.
Þegar eitt lið er eftir á hveiju
svæði hefst hátíðarhelgin sjáif, en
þá koma liðin fjögur saman og leika
fyrst undanúrslitaleikina og síðan
úrslitaieikinn. Fyrir körfuknatt-
leiksáhugafólk má líkja þessum 19
dögum við stórhátíð þvi alls fara
fram 63 leikir á 19 dögum og fýrstu
dagana eru 8 leikir á dag. ,
Valnefndin lauk störfum þann 10.
mars, fjórum dögum áður en fyrsta
umferðin var leikin. Massachusetts
var valið besta liðið á austursvæð-
inu, Connecticut á suðaustursvæð-
inu, Kentucky á miðvestursvæðinu
og Purdue á vestursvæðinu. Eins
og venjulega hefur úrslitakeppnin
verið mjög skemmtileg og nokkuð
um óvænt úrslit. Massachusetts og
Kentucky sigruðu á sínum svæðum
en á hinum svæðunum gekk val
nefndarinnar ekki eftir. Mississippi
State hefur komið á óvart og lið
skólans lagði meðal annars geysi-
sterk lið Connecticut og Cincinnati
að velli. Lykillinn að velgengninni
er sterkur varnarleikur sem kemur
best fram í því að liðið hefur aðeins
fengið á sig 50 stig að meðaltali í
keppninni. Syracuse hefur einnig
komið á óvart, en liðið hefur ekki
leikið eins sannfærandi og hin liðin
þijú og verið nokkuð heppið. Liðið
var meðal annars 10 stigum undir
í einum leiknum þegar rúmar 2
mínútur voru eftir en náði að knýja
fram framlengingu. Þar sigruðu
þeir með þriggja stiga körfu þegar
fjórar sekúndur voru eftir.
Kentucky er með jafna leikmenn
og liðið reynir mikið þriggja stiga
skot og vörnin er oftast stif pressu-
vöm. Tony Delk er áhugaverður
leikmaður sem vert er að fylgjast
með. Hjá Massachusetts er Marcus
Camby, nýkjörinn besti leikmaður
háskóladeildarinnar, sérlega
skemmtilegur bakvörður. Oftast
leikur liðið maður á mann vörn hálf-
an völlinn og eru leikmenn gríðar-
lega duglegir að hjálpa hver örðum.
í liði Syracuse er John Wailace
sterkur framvörður og snýst leikur
liðsins meira og minna um hann.
Liðið leikur oftast svæðisvörn og
það er áberandi hversu slakir leik-
menn eru í vítaskotum.
Mikið er í húfi fyrir lið að komast
í undanúrslit. Geysilegur áhugi er á
keppninni og skólarnir ljórir fá
mikla auglýsingu, auk þess að raka
inn fé á sölu á fatnaði og minjagrip-
um. Sérfræðingar hjá íþróttasam-
EKKI er síður barátta í háskóladeildinni en í leikjum NBA-lið-
anna. Hér eigast við Katu Davis hjá Georgia skólanum og
Clemson, leikmaður Purdue. Hvorugt lið er í undanúrslitum.
bandi háskóla áætla að hver þessara
háskóla selji varning að verðmæti
þriggja milljóna dala (tæpl. 200
millj. ísl. kr.) á meðan á keppninni
stendur. Sem dæmi um mikilvægi
keppninnar selur Michigan háskóli,
sem vann keppnina 1989, minja-
varning og föt fyrir 250 milljónir
dala (16,5 milljarða ísl. kr.) á ári.
Sem dæmi um áhugann segir
forstöðumaður íþróttahallarinnar í
New Jersey, sem einnig rekur
íþróttaleikvanginn Giants Stadium,
að þótt heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu, lokaúrslit NHL ís-
hokkídeildarinnar, Rolling Stones
tónleikar og messa páfans hafi farið
þar fram á síðustu tveimur árum,
komist áhuginn á þessum atburðum
ekki nálægt áhuganum á úrslita-
keppninni.
Keppt hefur verið til úrslita í
körfuknattleiksmóti háskólanna síð-
an 1939. Þau lið sem oftast hafa
komist í undanúrslit eru UCLA frá
Los Angeles, 14 sinnum, og North
Carolina, 12 sinnum. UCLA hefur
oftast unnið titilinn, alls 11 sinnum,
þar af tíu sinnum á tólf árum frá
1964 til 1975. Liðið vann síðan
tólfta titilinn í fyrra. Kentucky kem-
ur pæst með fimm titla.
Óvæntustu úrslitin í ár komu
strax í fyrstu umferð þegar Prince-
ton sló út meistara UCLA. Princeton
er mun þekktari háskóli fyrir fræði-
mennsku en íþróttir og lið þess var
ekki talið eiga möguleika gegn
meisturunum. Því miður keppa tvö
bestu liðin sem eftir eru saman í
undanúrslitum, en það gerist oft
þegar óvænt úrslit verða í fyrstu
fjórum umferðunum. Tvö af þremur
bestu liðum háskólanna, Kentucky
og Massachusetts, mætast í öðrum
leiknum, en lið Mississippi State og
Syracuse (frá New York-fylki)
mætast í hinum. Tvö síðamefndu
liðin hafa komið mikið á óvart í
keppninni, en Kentucky er hinsveg-
ar almennt talið sigurstranglegast
þessara liða.
Þess má geta að þeir sem hafa
aðgang að Fjölvarpi Stöðvar 2 geta
fylgst með úrslitakeppninni á NBC
Super Channel en þar hefst útsend-
ing kl. 22.30 í kvöld og síðan kl.
2.30 aðfaranótt þriðjudagsins.
Handknattleikur
Laugardagur:
Úrslit karla:
Hlíðarendi: Valur-KA.............17.00
Úrslitakeppni 2. deildar karia:
Framhús: Fram-ÞórAk..............15.00
Smárinn: Breiðablik - HK.........16.30
Sunnudagur:
Úrslitaleikur í meistaraflokki B-liða:
Seljaskóli: Haukar- Selfoss.....kl. 18.45
Fimleikar
Norðurlandamótið í fimleikum verður haldið
i Laugardalshöll um helgina. I dag verður
liða- og einstaklingskeppni og hefst hún
kl. 13.00. Á morgun verður keppni á ein-
stökum áhöldum og hefst keppni kl. 13.00.
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
Úrslitaleikir karla, 2. leikur:
Keflavik: Keflavik - UMFG.......kl. 16
Badminton
Deildarkeppni Badmintonsambandsins
verður í TBR-húsinu um helgina. Keppni
hefst kl. 10 báða dagana. Keppt verður í .
1. og 2. deild. Liðin sem keppa í 1. deild
eru; TBR-a, ÍA, Víkingur, TBA, HSK og
UMSB. I 2. deild keppa; TBR-b, KR, BH
og BS.
Borðtennis
Punktamót Stjörnunnar í borðtennis verður
á morgun, sunnudag, í Hofstaðaskóla í
Garðabæ og hefst mótið kl. 10.
Knattspyrna
Deildarbikarkeppni KSÍ
Laugardagur:
Ásvellir: KA -HK....................13
Kópavogur: ÍBV - Tindastóll.........15
Leiknisvöllur: Breiðablik - KS......15
Kópavogur: Skallagrímur - BÍ........17
Leiknisvöllur: Leiknir - Reynir S...17
Sunnudagur:
Ásvellir: ÍR - Tindastóll...........11
Ásvellir: Ilaukar-KA ...............13
Akranes: ÍA-BÍ......................13
Ásvellir: Víkingur-UMFG.............15
Garðabær: Selfoss - Stjarnan........17
Leiknisvöllur: Leiftur - Léttir.....17
Þolfimi
í tengslum við þolfimiráðstefnu sem haldin
er í líkamsræktarstöðinni Þokkabót um
helgina verður erlendi kennarinn á ráðstefn-
unni, Peter Nielsen, með hóptfma í þolfimi
í KR-heimilinu í dag, laugardag, kl. 17.30
Skíði
• Unglingameistaramót Íslands verður
framhaldið í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag
og lýkur á morgun.
• Reykjavíkurmótið í alpagreinum 9-12 '
ára verður í Hamragili f dag.
Hlaup
Háskólahlaupið verður í dag, laugardag, og
hefst við aðalbyggingu Háskóla Islands kl. *
14.00. Öllum er heimil þátttaka og ekkert '
þátttökugjald. Skráning fer fram milli kl. ;
12 og 14 á sama stað. Tvær vegalengdir'
eru í boði, 3 og 7 km.
Vélsleðamót
íslandsmótið á vélsleðum verður haldið ivj
Bláfjöllum um helgina. í dag verður keppt
í fjallaralli kl. 11.00 og brautakeppni kl.|
14.00. Á morgun hefst keppni kl. 10.00 íf
spyrnu og síðan verður snjókross kl. 14.00. f