Morgunblaðið - 31.03.1996, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR
MNýjasta mynd nýsjá-
lenska leikstjórans Jaiie
Campion fer fljótlega í
dreifingu. Campion, sem
síðast gerði Píanó, hef-
ur gert mynd sem bygg-
ist á hinni þekktu sögu
Henrys James,
„Portrait of a Lady“.
Fara Nicole Kidman og
John Malkovich með
aðalhlutverkin.
MSöng- og leikkonan
Barbra Steisand hefur
ekki ieikið í bíómynd síð-
an hún stýrði sjálfri sér
í „The Prince of Ti-
des“ á móti Nick Nolte.
Nýjasta myndin hennar
heitir „The Mirror Has
Two Faces“ og í henni
leikur Barbra á móti
Jeff Bridges.
■ Velski stórleikarinn
Anthony Hopkins er
stórkostlegur sem Nix-
on í samnefndri kvik-
mynd og mjög eftirsótt-
ur í hvaða hiutverk sem
er. Hann hefur nú leikið
í myndinni „Surviving
Picasso“ og leikstýrir
sjálfum sér í myndinni
„August“.
MBráðlega verður nýj-
asta mynd gamanleikar-
ans Jims Carreys tilbú-
in til sýninga. Hún heit-
ir „Cable Guy“ en í
henni leikur Carrey einn
af þessum ómissandi
sjónvarpsviðgerðar-
mönnum. Leikstjóri er
Ben Stiller en mótleik-
arar háðfuglsins eru
Matthew Broderick og
Leslie Mann.
Hvað tekurnú við?
KvikmyndaJist
Kieslowskis
ÁHRIFA pólska leikstjórans Krzysztof Kieslowskis, sem
íátinn er langt um aldur fram, gætir víða þótt kvik-
myndaferill hans hafi í raun ekki verið langur. Við sjáum
þau t.d. í Dauðamanni nálgast eftir Tim Robbins, sem
Háskólabíó sýnir. Kieslowski hafði gert nákvæmlega
sömu úttektina á dauðarefsingum í myndinni Stutt
mynd um dráp árið 1988 og með sömu aðferðinni;
skelfilegur morðverknaðurinn er settur í samhengi við
opinbera aftöku og áhorfandinn er skilinn eftir með
þá spurningu hvort einhver réttlætanlegur munur sé á
því tvennu. Báðar myndirnar draga upp hliðstæðu á
milli kaldrifjaðs morðs og aftöku hins opinbera réttar-
kerfis en þar sem Robbins gefur kóst á lágmarks tilfinn-
ingasemi er Kieslowski gersamlega kaldhamraður í lýs-
ingu sinni og næstum ijarlægur efninu. Samt finnum
við á endanum sárlega til með morðingjanum.
MEISTARI fallinn frá; Kieslowski.
Stóri munurinn er auð-
vitað sá að Hollywood-
iðnaðurinn stendur að
baki Robbinsmyndarinnar
með allri auglýsinga-
mennskunni og stjörnu-
dýrkun-
inni sem
fylgir. Ki-
eslowski
spratt
upp úr
hinni
hógværu
evrópsku
kvik-
myndalist. Stutt mynd um
dráp var fyrsta myndin
sem vakti athygli á Ki-
eslowski hér á landi og
um heim allan en hún var
sýnd á Kvikmyndahátíð
Listahátíðar árið 1989 og
var ágætur inngangur að
þessum sérstæða kvik-
myndagerðarmanni. Hún
var hluti af miklu stærra
verki, „Decalogue", stór-
virki sem Kieslowski vann
fyrir pólska sjónvarpið og
byggðist á boðorðunum
tíu. Myndirnar voru tíu
talsins og klukkutíma
langar en myndir fimm
og sex gerði hann að bíó-
myndum í fullri lengd,
Stuttri mynd um dráp og
Stuttri mynd um ást.
Þessar tvær komu honum
á landakort kvikmynda-
heimsins. Sú fyrrnefnda
hreppti dómnefndaiverð-
launin í Cannes og fyrstu
Felixverðlaunin sem besta
myndin.
Kieslowski var kominn
á skrið. Eins og myndir
hans báru með sér hafði
hann byijað í heimildar-
myndagerð. Fyrstu leiknu
bíómyndina sendi hann
frá sér árið 1979, „Amat-
or“, og tveimur árum
seinna gerði hann
„Przypadek“ eða „Blind
Chance" eins og hún hét
á ensku. Hún var bönnuð
í fimm ár. Eftir að hafa
vakið heimsathygli á kvik-
myndahátíðum með
„Decalogue" myndunum
sínum tóku við þær mynd-
ir sem eiga eftir að halda
nafni hans á lofti um
ókomna tíð sem eins
merkasta kvikmynda-
gerðarmanns samtímans.
Undanfari þeirra var Tvö-
falt líf Veroníku, fyrsta
fransk/pólska myndin
hans, en síðan kom trílóg-
ían Blár, Hvítur, Rauður,
sem hann nefndi eftir lit-
unum í franska fánanum
og stóðu fyrir frelsi, jafn-
rétti og bræðralag, kjör-
orð frönsku byltingarinn-
ar. Hann sagði þær síð-
ustu myndirnar sem hann
ætlaði að gera og því mið-
ur reyndist það rétt.
Myndirnar þtjár gerðu
Kieslowski að einum
fremsta kvikmyndahöf-
undi Evrópu. Menn leituðu
aftur til Bergmans og
Antonionis eftir hliðstæð-
um og sögðu hann hafa
blásið nýju lífi í hina
gömlu listrænu evrópsku
kvikmyndahefð. Blár var
full af sorg í frásögn af
konu sem missir allt í líf-
inu og telur sig ekki leng-
ur þurfa að tengjast ver-
öldinni á neinn hátt. Hvít-
ur sagði kímilega frá ný-
kapítalistum í heimalandi
leikstjórans, Póllandi, og
Rauður var um mannleg
samskipti nútímans í
formi skilaboða á sím-
svara og tvær einmana
sálir sem fundu hlýju hvor
í annarri. Trílógía Ki-
eslowskis voru réttu
myndirnar á réttum stað
á réttum tíma þegar ónýt-
ið veður uppi og sönn
kvikmyndaiist á mjög
undir högg að sækja. í því
ljósi var framlag hans ein-
stakt.
eftir Amald
Indriðoson
MISSKILNINGSFARSI; úr þýsku gamanmyndinni
sem slegið hefur í gegn í heimalandi sínu.
Þýsk gamanmynd
um kyntröll
KÓLERUFARALDUR; Martinez og Binoche
í mynd Rappeneau.
Ný mynd f rá
Rappeneau
ÝSKAR bíómyndir eru
ekki beint þekktar fyrir
gamansemi en ný þýsk gam-
anmynd hefur slegið öll að-
sóknarmet í Þýskalandi.
Heiti hennar á íslensku gæti
sem best verið Maðurinn sem
allir þrá og er hún gerð af
Sonke Wortman. Leikararnir
eru lítt kunnir hér á landi;
Til Schweiger, Katja Rieman
og Joachim Krol.
Myndinni er lýst sem
samblandi af farsa og sam-
félagsskoðun þar sem fjall-
myndarlegur en heldur vit-
grannur barþjónn er í mið-
punkti. Hann er sá sem titill-
inn á við en bæði konur og
karlar girnast hann mjög.
Axel heitir hann og verður
heimilislaus þegar kærastan
hendir honum út. Axel tekur
að búa með góðhjörtuðum
homma en vinir hommans
líta hann allir hýru auga.
Hver misskilningurinn tekur
við af öðrum og ekki batnar
það þegar kærastan, sem
orðin er ólétt, heilsar upp á
vininn.
Þetta er húmor sem fellur
Þjóðverjum í geð og Bretar
kunna einnig að meta hann
en myndin fékk fjórar stjörn-
ur í nýlegu hefti af „Empire".
í BÍÓ
KVIKM YND AHÚ SIN
hafa boðið sannkallaða
kvikmyndaveislu undan-
farnar vikur og það sem
hefur einkennt hana
kannski öðru freniur er
frábær leikur.
Samleikur Sean Penn
og Susan Sarandon í
Dauðamanni nánast nístir
inn að beini, hún sem ltkn-
andi nunna, hann sem
forhertur glæpamaður.
Anthony Hopkins nær
Nixon líklega eins vel og
hægt er í samnefndri
kvikniynd; það er erfitt
að ímynda sér aðra gera
belur en Hopkins þessa
dagana. Richard Dreyfuss
heldur Ópus herra Hol-
land á floti með tempruð-
um leik og í Bréfberanum
er ljúflegur samleikur á
milli Massimo Troisi og
Philippe Noriet í hlutverk-
um skáidsins Pablo
Nei-uda og tregafulis
aðdáanda hans. Þá er
ónefndur samleikur Nic-
holas Cage og Elisabeth
Shue í Á förum frá Veg-
as. Fágætt er að drykkju-
sjúklingur og mella nái
slíkum heljartökum á
áhorfendum.
SEX ár eru liðin frá því
franski leikstjórinn Jean-
Paul Rappeneau sendi frá sér
einhveija bestu mynd Frakka
hin síðari ár, Cyrar.o De Ber-
gerac, með Gérard Depardieu
í aðalhlutverki. Rappeneau
hefur enn snúið sér að klass-
ískum bókmenntum og gert
kvikmynd úr sögu Jean Giono,
Reiðmanninum á þakinu, 19.
aldar ástarsögu er gerist í
skelfilegum kólerufaraidri.
Með aðalhlutverkin fara
Juliette Binoche („Damage")
og Oliver Martinez en sagan
segir af Angelo, ungum, ít-
ölskum hugsjónarmanni og
herforingja á flótta undan
austurrískum hermönnum.
Hann finnur hæli í Provence
en þar geisar kólera, algert
stjórnleysi ríkir og múgæsing
ræður ferðum. Þar hittir hann
yfirstéttakonuna Pauline og
þau verða ástfangin.
Líkt og í Cyrano þykir Rap-
peneau takast einstaklega vel
að endurskapa tímabilið sem
sagan gerist á með leikmynd-
um, tökustöðum og búningum
og gera sögunni góð skil.
9.000
höfðu séð
Spilavítið
ALLS höfðu um níu þús-
und manns séð Spilavít-
ið eftir Martin Scorsese
í Háskólabíói eftir síð-
ustu helgi.
Þá höfðu 4.000 séð
Ópus herra Hollands og
4.000 Dauðamann nálg-
ast.
Næstu myndir Há-
skólabíós eru Heim í frí-
ið með Holly Hunter og
Brotin ör eða „Broken
Arrow“ með John Tra-
volta en myndin verður
einnig í Regnboganum.
Einnig sýnir Háskólabíó
á næstunni myndina
Neðanjarðar eftir Emjr
Kusturica og frönsku
myndina Hatrið eða „La
Haine“, sem vakið hefur
mikla athygli í heima-
landi sínu. Vampýra !
Brooklyn með Eddi
Murphy verður sýnd
fljótlega og 12 apar
og„The Birdcage“ með
Robin Wiliiams.
20. april frumsýnir
Háskólabíó svo rúss-
nesku óskarsverðlauna-
myndina „Burnt by the
Sun“ eftir Nikita Mikha-
ilkov. Verður ieikstjór-
inn viðstaddur frumsýn-
inguna og mun verða
haldin kvikmyndahátíð
með eldri myndum leik-
stjórans af því tilefni.