Morgunblaðið - 31.03.1996, Blaðsíða 1
Lægsta verð á
bílaleigubílum
hvert sem
ferðinni er
heitið
Hringdu í okkur og fáðu sendan
sumarbækllnginn s: 588 35 35
SUNNUDAGUR 31. MARZ 1996 BLAÐC
Danmörk
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga
Vikugjald:
OpelCorsa, dkr. 1.795
Opel Astra, dkr. 1.995
Opel Astra st., dkr. 2.195
Opel Vectra, dkr. 2.495
Tveggja vikna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st., dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
Innif. ótakm. akstur og tryggingar.
Fáið nánari verdtilboð.
Infernational Car Rental ApS.
Uppl. á íslandi sími 456-3745.
PASKASKIÐI
SKÍÐAFÓLKI stendur til boða um pásk-
ana, ef veður leyfir, að fljúga með þyrlu
uþp á Eyjafjallajökul og renna niður jökui-
inn á skíðum. Hægt er að velja nokkrar leið-
ir niður, allar brattari, lengri og erfiðari en fólk
þekkir frá skíðasvæðum landsmanna. Þátttakend-
ur verða því að vera góðir skíðamenn og vanir
að renna sér utan troðinna brauta. Hægt er að
renna sér á svigskíðum, gönguskíðum, fjalla-
skíðum og snjóbrettum. Flogið er frá
Seljavöllum. Nánari upplýsingar fást w
þjá Bátafólkinu og í Týnda hlekknum
í Reykjavík þar sem er bókað í ferðirnar.
MALLORKA
PLÚSFERÐIR bjóða nú í vor 2
ferðir til Mallorka á tilboðs-
verði. Fyrri, 17.-25. apríl, er á
29.990 kr. miðað við að
tveir gisti saman í
stúdíói. Seinni ferðin,
25. apríl.-20. mai, er á 39.900
kr. Innifalið er flug, gisting á
Hótel Pillari Playa við Playa
Del Palma ströndina, íslensk
fararstjórn og flugvallagjöld.
í FRAKTSKIPUNUM Laxfossi og Brúar-
fossi er pláss fyrir tólf farþega í hvoru.
vor hefjast siglingar á svokallaðri norðurleið með nýju skipi Eimskips.
I fríiö med f raktskipi
FRÁ árinu 1988 hefur Eimskip
boðið upp á farþegaflutninga í
Laxfossi og Brúarfossi. í hvoru
skipi er pláss fyrir tólf farþega.
Að meðaitali kjósa 450-500 far-
þegar á ári þennan ferðamáta.
Leiðin liggur frá Reykjavík til
Immingham í Bretiandi, Hamborg-
ar í Þýskalandi, Rotterdam í Hol-
landi og aftur til Immingham og
Reykjavíkur.
I hringferðinni er yfirleitt stopp-
að í nokkra klukkutíma í hverri
höfn. Ferðin tekur tólf daga og
miðað við tvo í klefa er fargjaldið
67 þúsund krónur á mann. Sé bíll-
inn hafður með í för bætast 36.300
kr. við og fyrir tjaldvagninn kostar
3.500 kr. fyrir hvern metra sem
er umfram 5 metra lengd bílsins.
Vilhelmína Þór í utanlandsdeild
Eimskips segir að innifalið sé fullt
fæði, aðgangur að gufubaði, far-
þegar hafi sérsetustofu og sjón-
varp sé í öllum klefum.
Að sögn Vilhelmínu er lagt frá
Reykjavíkurhöfn vikulega út maí-
mánuð og geta farþegar farið með
skipinu til eins ákvörðunarstaðar
BOÐIÐ er upp ó fullt fæði,
aðgang að guf ubaði, sér-
setustofu, auk þess sem-
sjónvarp er í öllum klefum.
og heim frá öðrum. Vilhelmína
segir að farþegar geti haft alla
sína hentisemi; siglt heim með
næstu ferð eða jafnvel tekið flug
aðra leiðina, en þeir verði að
ákveða fyrirkomulag ferðarinnar
áður, því fargjaldið miðast við sigl-
ingadaga. Sem dæmi segir hún að
hægt sé að sigla til Hamborgar
og heim frá Rotterdam að ákveðn-
um tíma liðnum fyrir 57.100 kr. á
manninn miðað við tvo í klefa.
Nýtt sklp og norðurleið
Farþegasiglingar með Eimskip
taka nokkrum breytingum í vor,
en þá verður lokið smíði nýs skips,
sem leysa mun Laxfoss og Brúar-
foss af hólmi. Um leið og nýja
skipið verður tekið í notkun breyt-
ast siglingaleiðir og hafnar verða
siglingar á svokallaðri norðurleið.
Siglt verður frá Reykjavík hálfs-
mánaðarlega, til Færeyja, Ham-
borgar, Árósa, Kaupmannahafnar,
Helsingsborgar, Gautaborgar og
Fredrikstad, aftur til Færeyja og
þaðan til Reykjavíkur.
Vilhelmína segir að mikið sé
spurt um nýju siglingaleiðina.
Ferðaskrifstofan Urval/Utsýn er
einkaumboðsaðili fyrir farþega-
siglingar með Eimskip. Bókanir
eru ekki hafnar því ekki er vitað
nákvæmlega hvenær nýja skipið
verður tilbúið.
Ragnar Pálsson, starfsmanna-
stjóri Samskipa, segir að farþega-
flutningar hafi ekki tíðkast hjá
fyrirtækinu í tvö ár. Hins vegar
sé starfsmönnum boðið að nýta sér
fjóra klefa í Dísarfelli. „Samskip
er með þýska skipið Úranus á leigu
og hafa eigendur þess boðið upp
á farþegaflutninga gegn nokkuð
háu gjaldi. Siglingaleiðin er Hull,
Rotterdam, Bremerhaven, Aarhus,
Varberg, Moss, Þórshöfn og
Reykjavík. Ég held að einungis
Þjóðverjar, sem vilja prófa eitthvað
nýtt, hafí keypt sér far, enda er
ferðin nánast tólf daga samfelld
sigling."
Jöklar íhuga aö bjóða far
vestur um haf
Birgir Ómar Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Jökla, segir að fólk
tengt fyrirtækinu og starfsmenn
þess hafi verið þeir einu sem mann-
að hafi farþegaklefana í Hofsjökli,
en nú sé í athugun að gera samn-
ing við ferðaskrifstofu og bjóða
almenningi upp á að kaupa sér far
með skipinu, sem siglir til Boston,
Nýja-Englands og Kanada.
Brottför ó föstvdögum áriö um krina!
Gífurleg aukning hefur orðið í ferðum Heimsklúbbsins til Karíbahafsins frá
ársbyrjun, og gildir það bæði um siglingar á glæsilegustu skemmtiskipum heimsins
frá CARNIVAL CRUISE LINE og dvöl á hinni draumfögru eyju DÓMINÍKANA.
Margir velja fyrst siglingu og bæta síðan við dvöl á hinum vinsælu baðströndum
RENAISSANCE CAPELLA BEACH eða PUERTO PLATA VILLAGE, þar sem þú
lifir sældarlífi og allt er innifalið. Með tilkomu lægri
flugfargjalda ogsérsamninga við gististaði er verðið ótrúlega hagstætt
og samanburður sýnir að heildareyðslan er minni en á Kanaríeyjum.
Bæði siglingar og dvöl á Dóininíkana
standa nú til boða allt árið.
3« 74
________Perlur Austurlanda 5. okt. - Töfrar „1001 "nætur 17. október___
Ferðir til Austurlanda eru spennandi valkostur og kosta að jafnaði lítið eða
ekkert meira en tveggja eða þriggja vikna Evrópuferð. Heimsklúbbur Igólfs &
Príma geta gert slíkan ferðadraum að veruleika með einstaklega hagkvæmum
samningum við nokkur bestu flugfélög heimsins og valda gististaði í öllum helstu
borgum Asíu. Hvers vegna ekki að reyna nýtt og tvöfalda verðgildi peninganna?
íslendingar þurfa ekki að leita til Danmerkur
um fyrirgreiðslu í Austurlöndum.
I*ar byggir Heimsklúbbur Ingólfs á langri
reynslu, sambönduin og samningum við
yfir 50 hótel á stórlækkuðu verði.
FERÐASKRIFSTOFAN
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavik, simi 56 20 400, fax 562 6564
Hefur þú séð undur heimsins með Heimsklúbbi Ingólfs? - Tvöfallt verðgildi peninganna