Morgunblaðið - 03.04.1996, Page 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
79. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandaríkin
Reiði
vegna
lögreglu-
barsmíða
Los Angeles. Reuter.
SJÓNVARPSU PPT AK A af
tveimur lögregluþjónum í Kali-
forníu að lumbra á tveimur
Mexíkönum með kylfum voru
sýndar hvað eftir annað í sjón-
varpsfréttum í Bandaríkjunum
í gær og hafa vakið ótta um
að annað Rodney King-mál sé
í uppsiglingu. Mexikanskir
innfiytjendur efndu til mót-
mæla vegna þessa máls í Los
Angeles í gær og mannrétt-
indasamtök hafa krafist rann-
sóknar.
Upptökuna gerðu starfs-
menn sjónvarpsstöðvar í Kali-
forníu úr þyrlu þegar lögreglu-
þjónarnir náðu manni og konu
á pallbíl eftir 130 km eltinga-
leik um þjóðbrautir í grennd
við Los Angeles.
Með kylfur á lofti
Sést hvar lögregluþjón slær
manninn til jarðar og lemur
hann sex sinnum með kylfu.
Hinn lögregluþjóninn sést
snúa konuna í jörðina á hárinu
og slá hana í tvígang í bakið.
Eltingaleikurinn hófst á
landamærum Mexíkó og
Bandaríkjanna. Bílstjóri pall-
bílsins neitaði að verða við
fyrirmælum landamæravarða
um að nema staðar og hófst
þá eltingaleikurinn. 19 manns
voru í bílnum auk mannsins
og konunnar, sem urðu fyrir
barðinu á lögregluþjónunum.
Þeir hlupu af vettvangi, en
náðust síðar.
Mál þetta hefur vakið mikla
hneykslan í Bandaríkjunum og
hyggst alríkislögreglan (FBI)
rannsaka það.
Árið 1991 var tekið á mynd-
band þegar Qórir lögregluþjón-
ar gengu í skrokk á svörtum
manni, Rodney King. Þegar
lögregluþjónarnir voru sýkn-
aðir brutust út miklar óeirðir
i Los Angeles. Tveir lögreglu-
þjónanna voru síðar sakfelldir.
„ Reuter
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti og Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, skála í vodka
eftir undirritun samkomulags um samruna ríkjanna á fjölmörgum sviðum og myndun nýs ríkjasam-
bands, Sambands fullvalda lýðvelda.
Stríðsmóður
þverr vegna
farsíma
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR herforingjar hafa
af því miklar áhyggjur, að farsím-
inn sé á góðri leið með að eyði-
leggja baráttuandann í hernum.
Nú eru hermennirnir að hringja
heim til sín í tíma og ótíma og
hafa sjaldan hugann við her-
mennskuna.
„Síðasta herkvaðning sló öll
met. Hver einasti nýliði kom með
farsíma að heiman,“ hafði blaðið
Yedioth Ahronoth eftir einum for-
ingjanna, sem bætti því við, að
farsíminn gerði menn að ömurleg-
um stríðsmönnum.
Israelskir hermenn mega raun-
ar ekki nota farsímann þegar þeir
eru á vakt og var það bannað fyr-
ir rúmu ári þegar í ljós kom, að
hermenn við skyldustörf í Líbanon
pöntuðu sér oft pizzu frá Tel Aviv
og sóttU'hana suður að landamær-
unum.
Rússland og Hvíta-Rússland undirrita samkomulag um ríkjasamband
Samræming í varnar-
og utanríkismálum
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, undirrituðu í gær
samkomulag um samruna ríkjanna
á íjölmörgum sviðum, þar á meðal
samræmingu í varnar- og utanríkis-
málum og myndun nýs ríkjasam-
bands, Sambands fullvalda lýðvelda
(SFL), innan Samveldis sjálfstæðra
ríkja. 20 þúsund marins mótmæltu
samkomulaginu í Minsk, höfuðborg
Hvíta-Rússlands.
„Söguleg stund í samskiptum
Rússlands og Hvíta-Rússlands er
runnin upp,“ sagði Jeltsín fyrir und-
irritun samkomulagsins en athöfn-
inni var sjónvarpað beint í Rússlandi.
Báðir lögðu þeir áherslu á að rík-
in myndu viðhalda sjálfstæði sínu
og fullveldi þrátt fyrir myndun sam-
eiginlegs efnahagssvæðis og sam-
ræmingu stefnu ríkjanna á ýmsum
sviðum.
Lúkasjenkó sagði að ríkin hygðust
fylgja fordæmi Evrópusambandsins
og ganga í takt inn í velsæld næstu
aldar.
Rússneski þjóðernissinninn Sergei
Babúrln sagði að það eina, sem hann
saknaði úr samkomulaginu, væri að
sambandið yrði ekki nógu náið.
Eins og borgaralegt hjónaband
„Öll þessi sambönd og samveldi
eru eins og borgaralegt hjónaband,
sem ekki hefur verið blessað af
guði,“ sagði Babúrín. Samkomulagið
er sjö síður og kveður meðal annars
á um að ríkin myndi eitt efnahags-
svæði í lok næsta árs og undirbún-
ingur verði hafinn að mynteiningu.
Alan Philps, blaðamaður breska
dagblaðsins The Daily Telegraph,
skrifaði í morgun að með þessu sam-
komulagi næði áhrifasvæði Rúss-
lands að landamærum Póllands. Víst
er að þetta er stærsta skrefið, sem
stigið hefur verið í áttina að endur-
reisn Sovétríkjanna. Samkomulagið
er opið öllum fyrrverandi Sovétlýð-
veldum, en þau hafa ekki sýnt
áhuga.
Samkomulagið á eftir að létta
pyngju rússneskra stjórnvalda. Ljóst
er að Lúkasjenkó vill að Rússar
hlaupi undir bagga í ýmsum málum
og aðstoði til dæmis við að hreinsa
eftir kjarnorkuslysið í Tsjernóbýl
fyrir tíu árum. Laun í Hvíta-Rúss-
landi eru aðeins þriðjungur meðal-
launa í Rússlandi.
„Til skamms tíma verður um út-
gjöld að ræða fyrir Rússa," sagði
Sergei Karaganov, aðstoðarmaður
Jeltsíns. „En hinn pólitíski, herfræði-
legi og sálfræðilegi ávinningur verð-
ur hins vegar þeim mun rneiri."
íbúar hins nýja ríkjasambands eru
160 milljónir, 150 milljónir Rússa
og 10 milljónir Hvít-Rússa.
■ Stórt skref/19
Walesa gerist rafvirki á ný
LECH Walesa, fyrsti forseti Pól-
lands eftir hrun kommúnismans,
mætti í gær til starfa sem raf-
virki í skipasmíðastöð í Gdansk,
þar sem hann stofnaði verkalýðs-
samtökin Samstöðu fyrir 16 árum.
Rúmlega 100 fréttamenn fylgd-
ust með því þegar Walesa kom á
nýja vinnustaðinn í opinberri bif-
reið sinni, Mercedes Benz, í fylgd
lífvarðar. Sem rafvirki fær Wa-
lesa 600 zloty í laun á mánuði,
jafnvirði 16.000 króna, og laun
lífvarðarins sem fylgir honum eru
tvöfalt hærri.
Walesa kveðst ætla að láta af
störfum sem rafvirki um leið og
meirihluti kommúnista og banda-
manna þeirra á pólska þinginu
lætur af andstöðu sinni við frum-
varp um eftirlaunagreiðslur til
forsetans fyrrverandi.
Eignir Walesa eru metnar á
tugi milljóna króna og hann getur
reitt sig á miklar fjárhæðir fyrir
fyrirlestra erlendis, m.a. í Banda-
ríkjaferð sem hefst 9. apríl. Ráðn-
ingarsamningur hans kveður á
um að hann geti farið í slíkar
ferðir, enda hcfur hann lofað að
nota þær til að fá erlend fyrir-
tæki til að fjárfesta í skipasmíða-
stöðinni, sem er að sligast undan
miklum skuldum. Walesa fær enn-
fremur einn frídag á viku til að
ferðast um Pólland vegna pólití-
skra starfa sinna.
Flestir starfsmenn skipasmíða-
stöðvarinnar tóku Walesa vel en
nokkrir þeirra sögðu komu hans
bera keim af sýndarmennsku. Á
Rcutcr
myndinni stendur Walesa við ný-
málaðan vinnubekk sem honum
er ætlaður.
Fylgi Jelts-
íns eykst
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
hefur dregið talsvert á Gennadí Zjúg-
anov, frambjóðanda kommúnista í
forsetakosningunum í júní, sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem frétta-
stofan Interfax birti í gær.
Samkvæmt könnuninni nýtur
Jeltsín stuðnings 21% kjósenda, en
fyrir mánuði var fylgi hans 15%. 27%
aðspurðra kváðust styðja Zjúganov,
en í byijun mars var fylgi hans 25%.
Fijálslyndi hagfræðingunnn Gríg-
orí Javlinskí og hershöfðinginn Alex-
ander Lebed voru jafnir með 10%.
Fimmti var þjóðernissinninn Vladim-
ír Zhírinovskí með níu af hundraði.