Morgunblaðið - 03.04.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 03.04.1996, Síða 1
fHttngtitdHafrito B 1996 MIOVIKUDAGUR 3. APRIL BLAÐ HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristján JULIAN Duranona átti stórleik í gærkvöldi og átti Valsmenn í basli með að hemja skot hans og sendingar. Hér reynir Sigfús Sigurðsson án árangurs að koma í veg fyrir að hann komi knettinum Inn á Leó Örn Þorleifsson á línunni en Ólafur Stefánsson fylgist með tilbúinn að grípa í taumana grípi Leó sendinguna. Héðinn skoðar hjá Fredenbeck „ÞAÐer enn allt á huldu hvað ég geri. Ég ætla að fara út og líta á aðstæður hjá þeim í næstu viku og athuga hvernig mér og konunni minni líst á,“ sagði Héðinn Gilsson, handknatt- leiksmaður úr FH en þýska 2. deildar félagið Fredenbeck hefur áhuga á að fá hann til liðs við sig fyrir næsta keppnistímabil. Félagið er nú um stundir í efsta sæti 2. deildar og því líklegt til að leika í fyrstu deildinni á næsta hausti. Fredenbeck er þorp í N-Þýskalandi rétt við Hamborg. Með félaginu leikur m.a. norski leikmaðurinn Roger Kendalen. „Þeir höfðu fyrst, samband við mig fyrir tveimur mánuðum og ég hef átt í viðræðum við þá án skuldbindinga." Héðinn sagði enn- fremur að hann hefði ráðfært sig við lækni um meiðsli þau sem hafa verið að hrjá hann síðastliðiö ár. „Hann sagði mér bara að hvílast vel nú þegar keppnistímabilinu væri lokið og þá myndi þau jafna sig. Ég hefði aldreí farið út í að tala við Þjóðveijanna nema vera viss um að geta náö mér á strik.“ Sama félag hefur sýnt Róbert Sighvatssyni, línumanni UMFA, áhuga en í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagðist Róbert ekk- ert hafa heyrt annað en spurningu þess efnis hvort hann hefði hugsanlega áhuga. „Mér hef- ur ekkert tilboð borist frá þeim,“ sagði Ró- bert, „svo það er ekkert um þetta mál að segja.“ Kvennalandsliðið til Hollands ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik fer á fimmtudaginn til Hollands og leikur þar í landi tvo landsleiki gegn heimastúlkum. Báðir leikijmir eru liður í riðlakeppni Evrópu- mótsins og eru þeir um leið síðustu Landsleik- ir Islendinga í keppninni. Áður hefur íslenska liðið tapað tvisvar sinnum fyrir Rússum og Svíum. Vegna leikjanna hefur Kristján Hall- dórsson, landsliðsþjálfari, valið hóp 14 kvenna til fararinnar og er hann þannig skipaður: Markverðir eru Fanney Rúnarsdóttir og Hjör- dís Guðmundsdóttir. Aðrir leikmenn eru þær Auður Hermannsdóttir, Berglind Ómarsdótt- ir, Björk Ægisdóttir, Bryiya Steinsen, Guð- munda Kristjánsdóttir, Guðný Gunnsteinsdótt- ir, Halla María Helgadóttir, Herdís Sigur- bergsdóttir, Hulda Bjarnadóttir, Ragnheiður Stephensen, Svava Sigurðardóttir og Þórunn Garðarsdóttir. Fyrri leikur þjóðanna verður í Arnhem á föstudaginn og sá síðari daginn eftir Doetinc- hem. íslenska liðið kemur heim á páskadag. Fjórði leikur Vals og KA í Höllinni LAUGARDALSHÖLLIN verð- ur vettvangur fjórða leiks Vals 9g KA í úrslitarimmunni um íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik annað kvöld. Brynjar Harðarson, formaður hand- knattleiksdeildar Vals, sagði að það hefði verið ákveðið löngu fyrir þennan leik að fjórði leikurinn, ef til hans kæmi, færi fram í Laugardals- höll. „Þessi leikur hlýtur að laða að það marga áhorfendur að hann kallar á stærra hús. Vissu- lega má segja að vígstaða okkar væri betri í Valsheimilinu en Í'msar aðstæður svo og óskir frá BR og fleiri aðilum sannfærðu mig um að rétt væri að spila leikinn í Laugardalshöll," sagði Brynjar. Valgarð og Gunnar Berg fara með til Japans VALGARÐ Thoroddsen, hornamaður úr Val, og Gunnar Berg Vikt- orsson úr Vestmannaeyjum eru nýliðarnir í landsliðshópi Þor- björns Jenssonar sem tekur þátt iæfingamóti í Japan í næstu viku. Liðið heldur utan á páskadag og leikur fyrsta leikinn á þriðjudag gegn Ástralíu og er það fyrsti landsleikur þjóðanna. orbjörn sagði að stefnt væri að því að leika til úrslita á mótinu í Japan. Flogið verður til Amster- dam, síðan til London og þaðan til Osaka í Japan og loks til Kuma- moto, alls um 20 tíma flug. Mótið er hugsað til undirbúnings fyrir heimsmeistarakeppnin sem haldin verður í Japan 1997. Það verða 400 dagar fram að HM þegar úrslita- leikur mótsins verður 14. apríl. Leikið verður í tveimur fjögurra liða riðlum. ísland er í A-riðli og verður fyrsti leikur liðsins gegn Ástralíu 9. apríl, síðan verður leikið gegn Bandaríkjunum daginn eftir og heimamönnum, Japan, 11. apríl. Undanúrslitaleikirnir fara fram 13. apríl og síðan úrslitaleikurinn dag- inn eftir. í B-riðlinum eru: Noreg- ur, Suður-Kórea, Hvíta-Rússland og Kína. Þorbjörn sagði að enn væri ekki alveg komið á hreint hvort Geir Sveinsson fái sig lausan frá Montpellier. „Ég legg mikla áherslu á að fá Geir með til Japans því ég hef ekki svo mikinn tíma með liðinu fyrir undankeppni HM í haust.. Montpellier á einn leik eftir í frönsku deildinni, gegn efsta liðinu Marseille 13. apríl. Þar sem liðið er að beijast um Evrópusæti vilja forráðamenn félagsins að Geir leiki umrædd- an leik. Ég á von á að heyra frá félaginu á morgun [í dag] og þá skýrist hvort við fáum Geir með. Ef ekki þá mun ég velja annan línumann í hans stað,“ sagði þjálfarinn. Landsliðshópurinn Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Val Bjarni Frostason, Haukum Aðrir leikmenn: Valdimar Grímsson, Selfossi Valgarð Thorodsen, Val Björgvin Björgvinsson, KA Davíð Ólafsson, Val Geir Sveinsson, Montpellier Róbert Sighvatsson, Aftureldingu Gunnar Berg Viktorsson, ÍBV Július Jónasson, Suhr Sigurður Bjarnason, Stjörnunni Dagur Sigurðsson, Val Ólafur Stefánsson, Val Patrekur Jóhannesson, KA KÖRFUKNATTLEIKUR: SIGUR GRINDVÍKINGA í BLÁLOKIN / B3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.