Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 1
1996
■ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Reuter
Fögnuður í Tórínó
MICHELE Padovano stekkur upp á
bakið á Gianluca Vialli, þegar þeir
fagna fyrra marki Juventus gegn
Nantes, 2:0, sem Vialli skoraði í undan-
úrslitum Evrópukeppni meistaraliða.
Allt um leikinn / B4
Boris fær ekki
að fara til Japan
BORIS Abkashev, sem hefur aðstoðað Þorbjörn
Jensson landsliðsþjálfara síðan hann tók við
landsliðinu, verður ekki með í för íslenska lands-
liðsins til Japans. Boris fékk ekki vegabréfsárit-
un til Japan þar sem hann er Rússi, nokkuð
furðulegt þar sem Heimsmeistarakeppnin verður
haldin í Japan 1998 og þar má búast við að
Rússar verði með lið.
Dansað og
sungið á götum
í Aþenu
ÞAÐ var ekki fyrr búið að flauta af leik Ajax
og Panathinaikos í Amsterdam, 0:1, en þúsundir
Grikkja þustu út á götur í Aþenu, höfuðborg
Grikklands, til að fagna. Fólk dansaði og söng
og flugeldum var skotið á loft - ljóst var að
löng gleðinótt var framundan þar. Fólk veifaði
fána liðsins, bifreiðastjórar lágu á flautum. Borg-
arstjórnin í Aþenu fyrirskipaði að kveikt yrði á
öllum götuljósum. „Við bárum rnikla virðingu
fyrir Ajax og sögu liðsins fyrir leikinn, sú virð-
ing var ekki til staðar þegar leikurinn hófst,“
sagði Argentínumaðurinn Juan Ramon Rocha,
þjálfari gríska liðsins, í viðtali frá Amsterdam.
„Við höfum tekið stefnuna á úrslitaleikinn I
Róm. Það er of snemmt að fara að fagna Rómar-
ferð, því að þó að við eigum heimaleikinn eftir,
er alltaf erfitt að leggja Ajax að velli. Burt sé
frá því, þá var þetta frábært kvöld fyrir gríska
knattspyrnu," sagði Rocha. Þetta var fyrsta tap
Ajax í Evrópukeppni síðan í mars 1994, liðið
hafði leikið nítján leiki í röð án taps.
■ Leikurinn / B4
Maze meðspil-
ari Guðmundar?
UNGLINGALANDSLIÐ íslands og Danmerkur
reyna með sér í TBR-húsinu í dag klukkan 13.
íslenska liðið er skipað þeim Guðmundi Stephen-
sen, Ingólfi Ingólfssyni og Markúsi Árnasyni.
Danska liðið er mjög sterkt og varð meðal ann-
ars í öðru sæti á Evrópumótinu á síðasta ári.
Meðal leikmanna er Michael Maze, en hann er
líklegur samhetji Guðmundar í tviliðaleik á EM
í sumar, en væntanlega verður gegnið frá þvi
máli nú um helgina meðan danska liðið dvelur
hér.
Spennuleikur
„ÞETTA var sannkallaður spennuleikur þar sem
lítill tími gafst til að slappa af,“ sagði Roy Evans
knattspyrnusljóri Liverpool eftir að lið hans sigr-
aði Newcastle 3:2 í gærkvöldi. „Ef ég á að vera
sanngjam þá er svonalagað eins og að vera í
sjálfsmorðsveit - knattspyrnusljóri myndi
hrökkva uppaf innan hálfs árs ef allir leikir
væm svona,“ bætti hann við.
Þorbjöm Atli aftur með tvö mörk
Unglingalandsliðið komið í undanúrslit á Italíu
Islenska unglingalandsliðið, skip-
að leikmönnum 18 ára og yngri,
er komið í undanúrslit á 16 liða
móti á Ítalíu. Strákarnir sigruðu
Norðmenn 3:0 í gær og tryggðu sér
þar með sigur í riðlinum þrátt fyrir
1:2 tap fyrir Sviss í fyrsta leiknum.
Norðmenn unnu nefnilega Sviss 3:1
og ísland og Sviss urðu því efst
með 6 stig hvor þjóð en Svisslend-
ingar höfðu markatöluna 5:5 en
íslendingar 8:3. Þorbjörn Atli
Sveinsson úr Fram gerði tvö marka
íslands í gær og Jóhann B. Guð-
mundsson frá Keflavík eitt. Þor-
björn Atli hefur því gert fimm mörk
í þremur leikjum og er með marka-
hæstu mönnum.
„Ég veit ekki hvort hann verður
markahæstur, en hann er það þessa
stundina. Einn Spánveiji gerði
þrennu í gær,“ sagði Helgi Þor-
valdsson fararstjóri í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Helgi
sagði að það kæmi í ljós í dag hveij-
um strákarnir mættu í undanúr-
slitaleiknum á laugardaginn. „Belg-
ía og Ungveijaland mætast á morg-
un [í dag] og þau eru með 4 stig
og Rúmenía tvö. Okkur sýnist að
þetta sé skársti kosturinn því í hin-
um riðlunum sigra ítalir og annað-
hvort Spánn eða Slóvakía.
Strákarnir hafa leikið mjög vel.
Vörnin hefur verið mjög skipulögð
og síðan er byggt að snöggum sókn-
um sem hafa gengið vel. Valur
Fannar Gíslason lék ekki með í
dag, hann var í banni og sá um að
taka leikinn upp. Sigurinn er því
enn sætari fyrir okkur,“ sagði
Helgi. Hann sagði að allir 18 leik-
mennirnir hefðu fengið að reyna sig
í ferðinni.
Mótið fer fram í Cervia, sem er
skammt frá Rimini á ítaliu. Leikir
um sæti verða á mánudaginn og
þar sem íslenska liðið er komið í
undanúrslit er ljóst að það leikur á
laugardaginn og síðan aftur á
mánudaginn, hvort heldur það verð-
ur um fyrsta sætið eða það þriðja.
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson.
KNATTSPYRIMA: LIVERPOOL VANN NEWCASTLE OG SPENNAN MAGNAST ENN / B2