Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 1
1996 ■ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL BLAÐ KNATTSPYRNA Reuter Fögnuður í Tórínó MICHELE Padovano stekkur upp á bakið á Gianluca Vialli, þegar þeir fagna fyrra marki Juventus gegn Nantes, 2:0, sem Vialli skoraði í undan- úrslitum Evrópukeppni meistaraliða. Allt um leikinn / B4 Boris fær ekki að fara til Japan BORIS Abkashev, sem hefur aðstoðað Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfara síðan hann tók við landsliðinu, verður ekki með í för íslenska lands- liðsins til Japans. Boris fékk ekki vegabréfsárit- un til Japan þar sem hann er Rússi, nokkuð furðulegt þar sem Heimsmeistarakeppnin verður haldin í Japan 1998 og þar má búast við að Rússar verði með lið. Dansað og sungið á götum í Aþenu ÞAÐ var ekki fyrr búið að flauta af leik Ajax og Panathinaikos í Amsterdam, 0:1, en þúsundir Grikkja þustu út á götur í Aþenu, höfuðborg Grikklands, til að fagna. Fólk dansaði og söng og flugeldum var skotið á loft - ljóst var að löng gleðinótt var framundan þar. Fólk veifaði fána liðsins, bifreiðastjórar lágu á flautum. Borg- arstjórnin í Aþenu fyrirskipaði að kveikt yrði á öllum götuljósum. „Við bárum rnikla virðingu fyrir Ajax og sögu liðsins fyrir leikinn, sú virð- ing var ekki til staðar þegar leikurinn hófst,“ sagði Argentínumaðurinn Juan Ramon Rocha, þjálfari gríska liðsins, í viðtali frá Amsterdam. „Við höfum tekið stefnuna á úrslitaleikinn I Róm. Það er of snemmt að fara að fagna Rómar- ferð, því að þó að við eigum heimaleikinn eftir, er alltaf erfitt að leggja Ajax að velli. Burt sé frá því, þá var þetta frábært kvöld fyrir gríska knattspyrnu," sagði Rocha. Þetta var fyrsta tap Ajax í Evrópukeppni síðan í mars 1994, liðið hafði leikið nítján leiki í röð án taps. ■ Leikurinn / B4 Maze meðspil- ari Guðmundar? UNGLINGALANDSLIÐ íslands og Danmerkur reyna með sér í TBR-húsinu í dag klukkan 13. íslenska liðið er skipað þeim Guðmundi Stephen- sen, Ingólfi Ingólfssyni og Markúsi Árnasyni. Danska liðið er mjög sterkt og varð meðal ann- ars í öðru sæti á Evrópumótinu á síðasta ári. Meðal leikmanna er Michael Maze, en hann er líklegur samhetji Guðmundar í tviliðaleik á EM í sumar, en væntanlega verður gegnið frá þvi máli nú um helgina meðan danska liðið dvelur hér. Spennuleikur „ÞETTA var sannkallaður spennuleikur þar sem lítill tími gafst til að slappa af,“ sagði Roy Evans knattspyrnusljóri Liverpool eftir að lið hans sigr- aði Newcastle 3:2 í gærkvöldi. „Ef ég á að vera sanngjam þá er svonalagað eins og að vera í sjálfsmorðsveit - knattspyrnusljóri myndi hrökkva uppaf innan hálfs árs ef allir leikir væm svona,“ bætti hann við. Þorbjöm Atli aftur með tvö mörk Unglingalandsliðið komið í undanúrslit á Italíu Islenska unglingalandsliðið, skip- að leikmönnum 18 ára og yngri, er komið í undanúrslit á 16 liða móti á Ítalíu. Strákarnir sigruðu Norðmenn 3:0 í gær og tryggðu sér þar með sigur í riðlinum þrátt fyrir 1:2 tap fyrir Sviss í fyrsta leiknum. Norðmenn unnu nefnilega Sviss 3:1 og ísland og Sviss urðu því efst með 6 stig hvor þjóð en Svisslend- ingar höfðu markatöluna 5:5 en íslendingar 8:3. Þorbjörn Atli Sveinsson úr Fram gerði tvö marka íslands í gær og Jóhann B. Guð- mundsson frá Keflavík eitt. Þor- björn Atli hefur því gert fimm mörk í þremur leikjum og er með marka- hæstu mönnum. „Ég veit ekki hvort hann verður markahæstur, en hann er það þessa stundina. Einn Spánveiji gerði þrennu í gær,“ sagði Helgi Þor- valdsson fararstjóri í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Helgi sagði að það kæmi í ljós í dag hveij- um strákarnir mættu í undanúr- slitaleiknum á laugardaginn. „Belg- ía og Ungveijaland mætast á morg- un [í dag] og þau eru með 4 stig og Rúmenía tvö. Okkur sýnist að þetta sé skársti kosturinn því í hin- um riðlunum sigra ítalir og annað- hvort Spánn eða Slóvakía. Strákarnir hafa leikið mjög vel. Vörnin hefur verið mjög skipulögð og síðan er byggt að snöggum sókn- um sem hafa gengið vel. Valur Fannar Gíslason lék ekki með í dag, hann var í banni og sá um að taka leikinn upp. Sigurinn er því enn sætari fyrir okkur,“ sagði Helgi. Hann sagði að allir 18 leik- mennirnir hefðu fengið að reyna sig í ferðinni. Mótið fer fram í Cervia, sem er skammt frá Rimini á ítaliu. Leikir um sæti verða á mánudaginn og þar sem íslenska liðið er komið í undanúrslit er ljóst að það leikur á laugardaginn og síðan aftur á mánudaginn, hvort heldur það verð- ur um fyrsta sætið eða það þriðja. ÞORBJÖRN Atli Sveinsson. KNATTSPYRIMA: LIVERPOOL VANN NEWCASTLE OG SPENNAN MAGNAST ENN / B2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.