Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 1
______IÐWAÐUR
Kaflaskipti í rekstri
Plastprents/4
FERDAIVIÁL
Netið markaðs-
svæði framtíðar /5
VÖRUCIALDID
Ófæra leiðin hin
eina færa? /6
Jtforotmfilafrtð
VIÐSKQTI MVINNULlF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDA G UR 4. APRÍL 1996 BLAÐ
SAMEINING
Hugmyndir eru uppi um að sam-
eina sparisjóðina á norðanverðum
Vestfjörðum í einn stóran spari-
sjóð, að því er Óskar Eliasson,
stjórnarformaður Sparisjóðs
Súðavíkur staðfestir í samtali við
blaðið Bæjarins bestu. Sparisjóð-
irnir sem þarna um ræðir eru sjóð-
irnir á Þingeyri, Flateyri, Bolung-
arvík og Súðavík.
BRUNÁS
Innréttingafyrirtækið Brúnás á
Egilsstöðum hefur gengið frá
nauðasamningi við kröfuhafa
sína. Fyrirtækinu var í október
veitt heimild að leita nauðasamn-
ings og samningsfrumvarp hlaut
síðan samþykki á fundi kröfuhafa
í desember. Frestur til að áfrýja
þeim úrskurði er nú runninn út
án málskots og nauðasamningur-
inn þannig kominn á.
ESB
Verðbólga inna Evrópusambands-
ins féll í febrúar niður í 2,7% mið-
að við heilt ár og hefur ekki verið
lægri siðan 1987. Luxemborg
stendur sig best allra ESB ríkja
með aðeins 1% verðbólgu í febrúar
en Grikkland er með hæstu verð-
bólguna með 8,1%. Á íslandi var
samsvarandi hækkun 2,1%.
SÖLUGENGIDOLLARS
EFNAHAGSBATINN
SÍÐUSTU ÁR í TÖLUM
HREINN HAGNAÐUR
ATVINNUREKSTRAR
Hlutfall af heildarveltu
5%r
1992 1993 1994 1995
VERÐ HLUTABREFA
1993-1995
Ársfjórð.gögn, 1990=100
185-1 —7
fi ■
/
r /
// ' /
135 \
125 115 Xd -V/ r
XI
105
95 1993 1994 1995
HAGNAÐUR BANKA
OG SPARISJÓÐA
Milljónir króna
ARÐSEMI EIGIN FJÁR
LÁNASTOFNANA
Hlutfall
1.500
1.000
500
0
-500
-1.000
-1.500
-2.000
-2.500
-3.000
HAGVÖXTUR
Á ÍSLANDI 1991-1995
4%
3%
2%
1%
0
-1%
-2%
-3%
-4%
Forráðamenn Sæplasts hf. vilja kanna
samstarfsmöguleika við Borgarplast hf.
Yrði stærsta fyr-
irtæki sinnar teg-
undar í heiminum
FORRÁÐAMENN Sæplasts hf. á
Dalvík vilja kanna ýtarlega sam-
starfsmöguleika og jafnvel samruna
við Borgarplast hf. á Seltjarnarnar-
nesi. Þeir telja að þannig mætti skapa
öflugt alþjóðlegt fyrirtæki á sviði
hverfisteypuíramleiðslu, sem yrði hið
stærsta í heimi í framleiðslu plast-
kera fyrir sjávarútveg. Sameiningin
myndi einnig stórefla hverfísteypu-
iðnaðinn og styrkja markaðsstöðu
hans erlendis.
Sæplast og Borgarplast eru
stærstu fyrirtækin hér á landi á sviði
hverfisteypu. Þau leggja megin
áherslu á framleiðslu fískikera úr
plasti fyrir sjávarútveginn.
Gæti náð yfirgnæfandi
markaðshlutdeild
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts, segir að
hann hafí viðrað hugmyndir um náið
samstarf eða jafnvel sameiningu við
forráðamenn Borgarplasts. „Astæð-
an er sú að bæði 'fyrirtækin hafa
verið leiðandi í framleiðslu og sölu á
fiskikerum víða um heim. Þetta for-
skot má þakka öflugum heimamark-
aði og líklega ráða þessi tvö íslensku
fyrirtæki yfir rúmum helmingi af
markaði fyrir þessa gerð fískikera í
heiminum. Þrátt fyrir þessa sérstöðu
á alþjóðamörkuðum er samkeppnin
hörð og okkar helsti samkeppnisað-
ili, Dinoplast í Noregi, rekur verk-
smiðjur og söluskrifstofur, bæði í
Noregi og Kanada. Samkeppni milli
Sæplasts og Borgarplasts er mjög
hörð og í mörgum tilvikum er verið
að berjast um sömu viðskiptavinina.
Ég hef ekki legið á þeirri skoðun
minni að ef fyrirtækin tvö sameinuðu
krafta sína gæti risið eitt öflugt fyrir-
tæki með yfírgnæfandi markaðshlut-
deild. Það er mun skynsamlegra en
núverandi ástand, sem hefur í för
með sér að menn eru að naga skóinn
hvor af öðrum.“
Kristján segir að málið hafí verið
viðrað við forráðamenn Borgarplasts
en ekki hlotið neinar undirtektir
hingað til. „Við hörmum það því að
með sameiningu yrði nýja fyrirtækið
hið stærsta i heimi í framleiðslu
hverfisteyptra fiskikera. Þessi mark-
áður fer óðum stækkandi, ekki síst
vegna hertra gæðareglna. Stórir
markaðir bíða okkar og þörfin fyrir
kröftugt markaðsstarf hefur aldrei
verið meiri. Markaðssetning er dýr
og því hlýtur að vera vænlegra til
árangurs að sameina kraftana. Velta
Sæplasts á síðasta ári var 380 millj-
ónir en velta Borgarplasts 270-280
milljónir samkvæmt þeirra tölum.
Samkvæmt því veltir þessi iðnaður
tæpum sjö hundruð milljónum ár-
lega.“ segir Kristján."
Ekki á dagskrá
Ekki náðist í Guðna Þórðarson,
framkvæmdastjóra og stærsta hlut-
hafa Borgarplasts, þar sem hann er
staddur erlendis í fríi. Þorsteinn Oli
Sigurðsson, markaðs- og sölustjóri
fyrirtækisins, kannaðist við að hug-
myndir um samstarf eða samruna
fyrirtækjanna tveggja hefðu skotið
upp kollinum. Hann sagði að þær
væru þó ekki á dagskrá enda ýtti
ekkert á slíkt.
að hug$a um að jjávesia
Glitnir sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja.
Með Kjörleiðum Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir
til fjárfestingar í atvinnutækjum.
Hafðu samband og fáðu upplýsingar um flýtifyrningar,
skattfrestun og hvernig þú losnar við að binda
rekstrarfé í tækjakosti.
Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir
Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað
um ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn
og spjallaðu við ráðgjafa okkar.
Glitnirhí
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
OTTÓ - GRAFÍSK HÓNNUN