Morgunblaðið - 10.04.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 10.04.1996, Síða 1
B L A Ð LANDSMANNA 1996 MIÐVIKUDAGUR 10.APRIL BLAÐ B HANDKNATTLEIKUR Markvörður S-Kóreu til liðs við FH-inga Lii Suk-hyung, landsliðsmark- vörður Suður-Kóreu í hand- knattleik, gekk í gærkvöldi frá rammasamningi til tveggja ára við FH. Lii, sem vakti mikla athygli í Heimsmeistarakeppninni á íslandi í fyrra, var kjörinn handknattleiks- maður ársins í heimalandi sínu fyrir skömmu en hann er nú með landslið- inu í alþjóða keppninni í Japan þar sem íslenska landsliðið er einnig. Gert er ráð fyrir að hann komi til íslands í júlí en vegna spennunnar milli Norður- og Suður-Kóreu gæti hann orðið fyrr á ferðinni. „Þetta er mikill hvalreki fyrir okk- ur og íslenskan handknattleik," sagði Gunnar Beinteinsson, nýráðinn þjálfari FH, við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „íslenskir handknattleik- sunnendur vita hvað Lii getur og þetta er jafnvel meira fyrir okkur en það var fyrir KA að fá Duran- ona. Lii kemur sem ferskur vindur BADMINTON og við bindum miklar vonir við að markmennirnir hjá okkur læri mikið af honum." Jón Auðunn Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, sagði að samningurinn yrði endurskoðaður eftir ár en fengi Lii ekki tilboð er- lendis frá sem hann vildi taka væri gert ráð fyrir að hann yrði 'hjá FH í tvö ár. „Við vonum bara að hann verði ekki kallaður í herinn vegna spennunnar milli Norður- og Suður- Kóreu,“ sagði hann. Lii er talinn vera einn af bestu markvörðum heims. Hann kynntist stúlku af suður-kóreskum ættum fæddri á íslandi meðan á HM stóð í fyrra og hafa þau verið í sambandi síðan. Faðir stúlkunnar, Óskar Kim, sem rekur veitingastaðinn Café Kim í Hótel Reykjavík við Rauðarárstíg, er mikill aðdáandi FH og að sögn Jóns Auðuns var það fyrir hans til- stilli að gengið var frá málunum. Úrtökumótum fyrir Atlanta lokið Enginn íslenskur keppandi á ÓL Elsa í 7. sæti á varamannalista íeinliðaleik AÐ öllum líkindum verður ekk- ert af þátttöku islenskra bad- mintonmanna í Ólympíuleikun- um í Atlanta í sumar því úrtöku- mótum fyrir leikana lauk um síðustu mánaðamót og sam- kvæmt upplýsingum al- þjóðabadmintonsambandsins hafa íslenskir keppendur ekki unnið þátttökurétt. Elsa Niel- sen er þó í 7. sæti á vara- mannalista í einliðaleik kvenna. Elsa hafnaði í 73. sæti á styrk- leikalista IBF í einliðaleik kvenna en 33 keppendur keppa í Atlanta. Þar sem fjöldi frá hverri þjóð er takmarkaður er Elsa í raun í 40. sæti gagnvart leikunum. Til þess að komast þangað þurfa þjóð- ir að afþakka keppnisrétt sinna keppenda eða þeir að heltast úr lestinni af öðrum ástæðum. Þó telj- ast möguleikar hennar á þátttöku litlir þar sem sex keppendur eru framar á varamannalistanum. Broddi Kristjánsson og Árni Hall- grímsson náðu ekki þeim árangri sem þeir stefndu að í tvíliðaleik. Höfnuðu þeir í 44. sæti en 19 pör keppa á Atlantaleikunum. Komust þeir heldur ekki inn á varamanna- lista sem 10 pör skipa. Þá urðu Elsa Nielsen og Vigdís Ásgeirsdóttir í 47. sæti í tvíliðaleik kvenna. Loks hafnaði Broddi Krist- jánsson í 170. sæti á styrkleikalist- anum í einliðaleik karla. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Lll Suk-hyung, landsliðsmarkvörður Suður-Kóreu í hand- knattleik, leikur með FH næsta tímabil. Sigurður í viðræð- um við Hauka SIGURÐUR Gunnarsson, sem þjálfaði Bodö í Noregi sl. vetur, er nú að skoða tilboð um að gerast þjálfari I. deildarliðs Hauka i Hafnarfirði næsta vetur. Hanu var einnig í viðræðum við Sfjörn- una í Garðabæ en upp úr þeim slitnaði um helgina. Sigurður sagði í samtali við Morgunblaðið að meiri líkur væru á því að hann kæmi heim til að þjálfa en flytja sig til i Noregi. Hann var með tilboð frá þremur norskum liðum; Krist iansand, Elverun og Kragerö og hefur þegar gefið tvö þeirra upp á bát- inn; Kristiansand og Kragerö. Sigurður sagði að þessi mál myndu skýrast á allra uæstu dögum. KÖRFUKIMATTLEIKUR: KEFLVÍKIIMGAR LIFA ENN í VONINNI / B2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.