Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 1

Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 1
IÐWAÐUR íslenskt franskt á far- aldsfæti/4 Svíar í sókn á bygg- ingamarkaönum / 6 DANMÖRK TORCIÐ Vaxandi samkeppni í flugi/8 3N*Y8unl>hiMfc VIDSKIFn MVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 BLAÐ Jafnrétti Eimskipafélag íslands auglýsti ný- lega eftir kerfisfræðingi í notenda- þjónustu. Var sérstaklega tekið fram að fyrirtækið legði áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöð- um og þar með stuðla að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumark- aði. í Voginni, fréttabréfi Jafnrétt- isráðs, er lýst yfir sérstakri ánægju með þetta framtak og sagt að óskandi væri að fleiri fyrirtæki fylgdu í kjölfarið. Ríkisbréf I útboði Lánasýslu ríkisins á rík- isbréfum í gær bárust 10 tilboð, alls að fjárhæð 680 milljónir króna, í óverðtryggð bréf til 3ja ára en engum þeirra var tekið. Hins vegar var tekið 6 tilboðum að fjárhæð 110 milljónir króna í fimm ára ríkisbréf og var meðal- ávöxtun tekinna tilboða 9,47%. Þetta er 0,46% lækkun frá síðasta útboði á ríkisbréfum. Samnet Samnetssýningu Pósts og síma, Fjarskipti til framtiðar, sem stend- ur yfir að Scandic Hótel Loftleið- um, lýkur í dag. Bjölmörg fyrir- tæki á fjarskiptamarkaði kynna vörur sínar og þjónustu á sýning- unni. Sýningin verður opin frá kl 10-17 og er aðgangur ókeypis. SÖLUGENGI DOLLARS ISLENSKUR HLUTABRÉFA- MARKAÐUR 1989-96 Frummarkaður Velta í milljörðum kr. Almenn útboð fyrirtækja Eftirmarkaður Velta í milljörðum kr. „a. | kr. Opni tilboðsmarkaðurinn Verðbréfaþing Islands '89 '90 ’91 '92 '93 '94 '95 '89 ’90 '91 '92 '93 ’94 ’95 Hlutabréf skráð á Verðbréfaþingi íslands Markaðsverðmæti í milljörðum kr. ’90 '91 '92 '93 '94 ’95 ’96 Skráð hlutafélög Fjöldi 27 27 2 2 MM '90 ’91 ’92 '93 '94 '95 '96 ha , p , v . ’90 ’91 '92 '93 '94 ’95 '96 110 0 -10 -20 Skörp vaxta- lækkun á verð- bréfamarkaði SEÐLABANKINN lækkaði í gær ávöxtum af ríkisvíxlum sem bankinn á viðskipti með á Verðbréfaþingi um 0,75%. Hliðstæð lækkun varð einnig á ávöxtun í tilboðum bankans á þá tvo flokka ríkisbréfa sem eru á gjald- daga á þessu ári og bankinn er við- skiptavaki fyrir. Þessi lækkun hafði víðtæk áhrif á verðbréfamarkaði í gær og voru viðskipti með líflegra móti. Bankamir munu þó halda að sér höndum enn um sinn. Að sögn Birgis ísleifs Gunnarsson- ar, Seðlabankastjóra, er hér um óvenju skarpa lækkun að ræða hjá bankanum sem á rætur sínar að rekja til þróunar á gjaldeyris- og peningamörkuðum að undanfömu og birtist m.a. i bættri gjaideyrisstöðu bankans og lækkun á markaðsverðbréfaeign hans. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó styrktist um 3,6 milljarða króna í mars og hefur hún þá styrkst um 7,5 milljarða frá áramótum. Birgir segir þetta mikla gjaldeyrisinnstreymi annars vegar stafa af mikilli gjald- eyrisöflun útflutningsgreina en einnig hafi erlendar lántökurfyrirtækja greinilega aukist. Hann segir að bankinn hafí beðið færis á vaxtalækk- un í ljósi þess hve vaxtamunur milli íslands og nágrannalandanna hafi verið orðinn mikill. Munurinn sé þó enn talsverður þar sem skammtíma- vextir hafí einnig verið á niðurleið erlendis. Engar lækkanir hjá bönkunum Viðskiptabankarnir munu ekki lækka vexti sína í dag. Valur Vals- son, bankastjóri Islandsbanka, segir að þar muni menn bíða átekta og sjá hvaða áhrif þessi vaxtalækkun Seðla- banka hafi á aðra skammtímavexti áður en ákvörðun verði tekin. Brynj- ólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri hjá Landsbankanum, tekur í sama streng og segir að þessi mál verði skoðuð vandlega þar næstu daga. Vextir banka og sparisjóða hafa verið nær óbreyttir frá því að ísiands- banki og Landsbankinn lækkuðu vexti sína í febrúar sl. Útlánsvextir eru nú lægstir hjá íslandsbanka, en kjörvextir bankans á almennum víx- illánum eru 8,7% og 8,6% á almenn- um skuldabréfalánum, 0,75% lægri heldur en kjörvextir á sömu lánum hjá Búnaðarbanka. Sparisjóðirnir eru lítillega fyrir neðan Búnaðarbankann en vextir Landsbankans eru 0,3% hærri en hjá íslandsbanka. Langtímavextir lækka einnig Langtímavextir tóku dýfu niður á við í gær í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabankans. Raunar ber viðmæ- lendum blaðsins á verðbréfamarkaði saman um að ýmis teikn hafi verið á lofti um vaxtalækkun á langtíma- verðbréfum fyrir lækkun bankans. M.a. er bent á hversu greiðlega út- boð húsnæðisbréfa gekk, en þar seld- ust bréf að andvirði 1.650 milljónir króna á aðeins 4 dögum. Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði umtalsvert í gær og var undir lokun 5,6% hjá Skandia, eftir að hafa verið 5,72% við opnun í gærmorgun. Vext- ir 20 ára spariskírteina á eftirmark- aði lækkuðu einnig, fóru úr 5,63% í 5,54%. Heildarviðskipti dagsins voru um 895 milljónir króna. Viðmælendur blaðsins sögðu að vænta mætti nokk- urra hræringa á næstu dögum og enn væri svigrúm fyrir frekari lækkanir. g Til fyrirtœkja ojj rekstraraðila: Haakvœm Idn til 25 ára 1 „ LANDSBREFHF. - /V//„fthSi, Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. I • Vextir 6,75% til 8,25% • Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána • Lægri fjármagnskostnaður • Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána • Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga • Betri veltufjárstaða Lán eru veitt gegn fasteignaveði ó höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar. Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í öllum útibúum Landsbanka íslands. SUÐURLANOSBRAUT 2 108 REYKJAVIK, SIMi 588 9200, BREFASIMI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.