Morgunblaðið - 11.04.1996, Síða 1
IÐWAÐUR
íslenskt franskt á far-
aldsfæti/4
Svíar í sókn á bygg-
ingamarkaönum / 6
DANMÖRK
TORCIÐ
Vaxandi samkeppni
í flugi/8
3N*Y8unl>hiMfc
VIDSKIFn MVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
BLAÐ
Jafnrétti
Eimskipafélag íslands auglýsti ný-
lega eftir kerfisfræðingi í notenda-
þjónustu. Var sérstaklega tekið
fram að fyrirtækið legði áherslu á
að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöð-
um og þar með stuðla að því að
jafna stöðu kynjanna á vinnumark-
aði. í Voginni, fréttabréfi Jafnrétt-
isráðs, er lýst yfir sérstakri ánægju
með þetta framtak og sagt að
óskandi væri að fleiri fyrirtæki
fylgdu í kjölfarið.
Ríkisbréf
I útboði Lánasýslu ríkisins á rík-
isbréfum í gær bárust 10 tilboð,
alls að fjárhæð 680 milljónir
króna, í óverðtryggð bréf til 3ja
ára en engum þeirra var tekið.
Hins vegar var tekið 6 tilboðum
að fjárhæð 110 milljónir króna í
fimm ára ríkisbréf og var meðal-
ávöxtun tekinna tilboða 9,47%.
Þetta er 0,46% lækkun frá síðasta
útboði á ríkisbréfum.
Samnet
Samnetssýningu Pósts og síma,
Fjarskipti til framtiðar, sem stend-
ur yfir að Scandic Hótel Loftleið-
um, lýkur í dag. Bjölmörg fyrir-
tæki á fjarskiptamarkaði kynna
vörur sínar og þjónustu á sýning-
unni. Sýningin verður opin frá kl
10-17 og er aðgangur ókeypis.
SÖLUGENGI DOLLARS
ISLENSKUR
HLUTABRÉFA-
MARKAÐUR 1989-96
Frummarkaður
Velta í milljörðum kr.
Almenn útboð fyrirtækja
Eftirmarkaður
Velta í milljörðum kr. „a. |
kr.
Opni tilboðsmarkaðurinn
Verðbréfaþing Islands
'89 '90 ’91 '92 '93 '94 '95
'89 ’90 '91 '92 '93 ’94 ’95
Hlutabréf skráð á Verðbréfaþingi íslands
Markaðsverðmæti
í milljörðum kr.
’90 '91 '92 '93 '94 ’95 ’96
Skráð hlutafélög
Fjöldi
27 27
2 2
MM
'90 ’91 ’92 '93 '94 '95 '96
ha
, p
, v .
’90 ’91 '92 '93 '94 ’95 '96
110
0
-10
-20
Skörp vaxta-
lækkun á verð-
bréfamarkaði
SEÐLABANKINN lækkaði í gær
ávöxtum af ríkisvíxlum sem bankinn
á viðskipti með á Verðbréfaþingi um
0,75%. Hliðstæð lækkun varð einnig
á ávöxtun í tilboðum bankans á þá
tvo flokka ríkisbréfa sem eru á gjald-
daga á þessu ári og bankinn er við-
skiptavaki fyrir. Þessi lækkun hafði
víðtæk áhrif á verðbréfamarkaði í gær
og voru viðskipti með líflegra móti.
Bankamir munu þó halda að sér
höndum enn um sinn.
Að sögn Birgis ísleifs Gunnarsson-
ar, Seðlabankastjóra, er hér um óvenju
skarpa lækkun að ræða hjá bankanum
sem á rætur sínar að rekja til þróunar
á gjaldeyris- og peningamörkuðum að
undanfömu og birtist m.a. i bættri
gjaideyrisstöðu bankans og lækkun á
markaðsverðbréfaeign hans.
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans
nettó styrktist um 3,6 milljarða króna
í mars og hefur hún þá styrkst um
7,5 milljarða frá áramótum. Birgir
segir þetta mikla gjaldeyrisinnstreymi
annars vegar stafa af mikilli gjald-
eyrisöflun útflutningsgreina en einnig
hafi erlendar lántökurfyrirtækja
greinilega aukist. Hann segir að
bankinn hafí beðið færis á vaxtalækk-
un í ljósi þess hve vaxtamunur milli
íslands og nágrannalandanna hafi
verið orðinn mikill. Munurinn sé þó
enn talsverður þar sem skammtíma-
vextir hafí einnig verið á niðurleið
erlendis.
Engar lækkanir hjá bönkunum
Viðskiptabankarnir munu ekki
lækka vexti sína í dag. Valur Vals-
son, bankastjóri Islandsbanka, segir
að þar muni menn bíða átekta og sjá
hvaða áhrif þessi vaxtalækkun Seðla-
banka hafi á aðra skammtímavexti
áður en ákvörðun verði tekin. Brynj-
ólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri
hjá Landsbankanum, tekur í sama
streng og segir að þessi mál verði
skoðuð vandlega þar næstu daga.
Vextir banka og sparisjóða hafa
verið nær óbreyttir frá því að ísiands-
banki og Landsbankinn lækkuðu
vexti sína í febrúar sl. Útlánsvextir
eru nú lægstir hjá íslandsbanka, en
kjörvextir bankans á almennum víx-
illánum eru 8,7% og 8,6% á almenn-
um skuldabréfalánum, 0,75% lægri
heldur en kjörvextir á sömu lánum
hjá Búnaðarbanka. Sparisjóðirnir eru
lítillega fyrir neðan Búnaðarbankann
en vextir Landsbankans eru 0,3%
hærri en hjá íslandsbanka.
Langtímavextir lækka einnig
Langtímavextir tóku dýfu niður á
við í gær í kjölfar vaxtalækkunar
Seðlabankans. Raunar ber viðmæ-
lendum blaðsins á verðbréfamarkaði
saman um að ýmis teikn hafi verið
á lofti um vaxtalækkun á langtíma-
verðbréfum fyrir lækkun bankans.
M.a. er bent á hversu greiðlega út-
boð húsnæðisbréfa gekk, en þar seld-
ust bréf að andvirði 1.650 milljónir
króna á aðeins 4 dögum.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði
umtalsvert í gær og var undir lokun
5,6% hjá Skandia, eftir að hafa verið
5,72% við opnun í gærmorgun. Vext-
ir 20 ára spariskírteina á eftirmark-
aði lækkuðu einnig, fóru úr 5,63% í
5,54%. Heildarviðskipti dagsins voru
um 895 milljónir króna. Viðmælendur
blaðsins sögðu að vænta mætti nokk-
urra hræringa á næstu dögum og enn
væri svigrúm fyrir frekari lækkanir.
g
Til fyrirtœkja ojj rekstraraðila:
Haakvœm Idn
til 25 ára
1 „ LANDSBREFHF.
- /V//„fthSi,
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
I
• Vextir 6,75% til 8,25%
• Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána
• Lægri fjármagnskostnaður
• Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána
• Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga
• Betri veltufjárstaða
Lán eru veitt gegn fasteignaveði ó höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í öllum útibúum Landsbanka íslands.
SUÐURLANOSBRAUT 2
108 REYKJAVIK, SIMi 588 9200, BREFASIMI