Morgunblaðið - 12.04.1996, Síða 1
Frábær tilf inning
HANDKNATTLEIKUR: AUÐVELT HJÁ STJÖRNUSTÚLKUM í FYRSTA LEIKNUM / C4
Norman
með for-
ystu og
setti met
GREG Norman frá Ástralíu
lék best allra á fyrsta degi
Masters mótsins sem hófst I
Augusta í Georgíu í gær.
Hann lék á 63 höggum, níu
höggum undir pari, sem er
lægsta skor í sögu mótsins
og jafnaði um leið vallarmet
Nick Price.
Norman, sem er efstur á
heimslistanum, fór níu hoiur
á fugli. Hann er eini kylfing-
urinn sem náð hefur að leika
á 63 höggum á stórmóti, en
áður hafði hann leikið það er
hann sigraði á Opna breska
meistaramótinu á Tumberry
1986.16 aðrir kylfingar hafa
leikið á 63 höggum á stór-
móti. Hann hefur tveggja
högga forskot eftir fyrstu
umferðina á hinn 25 ára Phil
Mickelson, sem Iék á 65 högg-
um. Bob Tway og Scott Hoch
eru jafnir í þriðja sæti á 67
höggum, einu höggi betur en
Lee Janzen, sem vann opna
bandaríska meistaramótið
1993. Fimm kylfingar eru á
69 höggum og þar á meðal
er Bretinn Nick Faldo.
Meistarinn frá í fyrra, Ben
Crenshaw, hefur aldrei byrj-
að eins illa í Masters, en hann
lék á 77 höggum.
PSV á von
PSV Eindhoven vann De
Graafschap Doetinchem 2:1 í
hollensku deildinni i gær-
kvöldi og er með 71 stig í
öðru sæti, tveimur stigum
minna en Ajax sem á leik til
góða. Belgíski landsliðsmað-
urinn Luc Nilis og hollenski
landsliðsmaðurinn Rene Ey-
kelkamp, sem venjulega eru
miðheijar PSV, léku ekki
með vegna meiðsla en í stað-
inn voru Boudewyn Zenden
sem er 19 ára og Eiður sem
er 17 ára í fremstu röð. Wim
Jonk gerði fyrra mark PS V
úr vítaspyrnu er stundar-
fjórðungur var liðinn af
leiknum en Viscaal jafnaði
úr aukaspyrnu skömmu eftir
hlé. Vink innsiglaði síðan sig-
urinn með skalla tveimur
mínútum fyrir leikslok.
etta er fyrsti íslandsmeistara-
titillinn minn í meistara-
flokki á ferlinum og tilfinningin
er alveg frábær - ég hef ekki átt-
að mig á þessari staðreynd enn-
þá,“ ságði brosmildur fyrirliði
Grindavíkur, Guðmundur Braga-
son, rétt eftir að flautað hafði
verið til leiksloka í Keflavík í
gærkvöldi. Þar varð Grindavíkurl-
iðið íslandsmeistari í körfuknatt-
leik í fyrsta skipti eftir sigur á
heimamönnum, 96:73, en þetta
var þriðja árið í röð sem Grindvík-
ingar leika til úrslita.
„Ég átti ekki von á því að það
yrði jafn auðvelt að sigra og raun
varð á, en við komum vel stemmd-
ir til leiks og vorum staðráðnir í
að tapa ekki tvisvar í röð fyrir
þeim. Mér finnst það táknrænt að
fagna titlinum á útivelli því við
höfum ekki tapað leik á útivelli í
allri úrslitakeppninni."
Var enginn skrekkur kominn í
þig á kafla í síðari hálfleik þegar
Keflvíkingar voru nærri búnir að
jafnal
„Nei, ég var ekkert farinn að
óttast. Leikur okkur hikstaði að-
eins eftir að þeir bytjuðu að leika
svæðisvörn, en ég var aldrei í vafa.
Þetta er frábært."
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrirliðinn
fagnar
GUÐMUNDUR Bragason hefur
lengi verlA í eldlínunni með
Grindavíkurllðinu í körfuknatt-
leik, sem lefkmaður og þjálfari
um tíma, og slgur liðsins á ís-
landsmótinu i gær var því lang-
þráður. Hann smellir hér kossl
á bikarinn glæsilega sem ís-
landsmeistararnlr varðvelta -
langþráðum kossi. Til vlnstri
sést í Marel Guðlaugsson vara-
fyrirliða.
1996
FÖSTUDAGUR 12.APRÍL
BLAÐ
Happadagur
Friðriks Inga
ELLEFTI apríl virðist vera happadagur Friðriks
Inga Rúnarssonar, þjálfara Grindavíkurliðsins sem
varð íslandsmeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti
í gær - a.m.k. þegar hann ber upp á fimmtudag.
Fyrir nákvæmlega fimm árum, fimmtudaginn
ellefta apríl 1991, stjórnaði Friðrik Ingi liði Njarð-
víkur til Islandsmeistaratignar, þá aðeins 23 ára
að aldri og á fyrsta ári sínu sem þjálfari meistara-
flokks. Hann hafði tekið við þjálfun liðsins, og lagði
um ieið keppnisskóna á hilluna, eftir að Rondey
Robinson - sem hafði verið ráðinn þjálfari um haust-
ið - hætti því og einbeitti sér að hlutverki leikmanns.
• Þegar Friðrik fagnaði sigri með Njarðvíkurliðinu
fyrir fimm árum var það einnig gegn Kefivíkingum.
Síðasti leikurinn, sem var sá fimmti, fór 84:75 í
Njarðvík og lærisveinar Friðriks Inga sigruðu 3:2
í úrslitarimmunni.
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KORFUKNATTLEIKUR
Grindvíkingar Islandsmeistarar í körfuknattleik í tyrsta skipti