Morgunblaðið - 17.04.1996, Page 1
KNATTSPYRNA
Keuter
Framarar fá
góðan liðsstyrk
NÝLIÐAR Fram í 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik hafa fengið góðan iiðsstyrk. Víkingarn-
ir Reynir Þ. Reynisson, markvörður, og Guðmund-
ur Pálsson, leikstjórnandi, hafa gengið til liðs við
Fram og einnig vinstrihandarskyttan Daði Haf-
þórsson, fyrrum leikmaður Fram, sem hefur leik-
ið með ÍR tvö sl. keppnistímabil. Þá eru miklar
líkur á að Páll Beck, fyrrum leikmaður með KR
sem lék í Danmörku í vetur, gangi til liðs við Fram.
Guðmundur Guðmundsson hefur verið endur-
ráðinn þjálfari Framliðsins og þá mun Rússinn
Oleg Titov, sterkur varnar- og línumaður, leika
áfram með liðinu, ásamt öðrum leikmönnum sem
tryggðu Fram sigur í 2. deild í vetur.
Geir hefði betur
verið í Japan
GEIR Sveinsson, leikmaður Montpellier og lands-
liðsfyrirliði í handknattleik, meiddist í síðasta
leik liðsins í frönsku 1. deildinni um helgina er
það tapaði 24:29 fyrir Frakklandsmeisturunum í
Marseilles. Geir meiddist eftir aðeins þriggja
mínútna leik og var ekki meira með. Læknar telja
að Geir verði frá æfingum í tvær til þrjár vikur.
Það var vegna þessa leiks sem forráðamenn
Montpellier neituðu að gefa Geir frí til að leika
með landsliðinu i Japan. „Ég hefði sennilega bet-
ur verið í Japan,“ sagði Geir við Morgunblaðið
að leik leiknum. Montpellier hefur verið í 3. sæti
frönsku deildarinnar frá áramótum en fór við
tapið niður í 4. sæti og missir því af sæti í Evrópu-
keppni næsta vetur.
Man. Utd. í rauðu
á Wembley
AÐEINS einum degi eftir að Manchester United
ákvað að nota gráa varabúning sinn ekki framar,
komu góð tíðindi — liðið vann hlutkesti, þannig
að leikmenn þess leika í rauðum peysum og hvít-
um buxum á Wembley 11. maí, þegar liðið mætir
Liverpool í bikarúrslitaleiknum. Hlutkesti var
kastað, þar sem búningur Liverpool er einnig
rauður. Þess má geta að Man. Utd. vann einnig
hlutkesti þegar liðið vann Liverpool í bikarúrslita-
leik 1977,2:1. Liverpool lék þá í hvítum peysum
og svörtum buxum. Þegar liðin léku til úrslita í
deildarbikarkeppninni á Wembley 1983, vann Liv-
erpool hlutkesti og lék í alrauðum búningum,
Man. Utd. í hvítum peysum og svðrtum buxum.
Liverpool vann þá 2:1.
Draumurinn er að
leika á Wembley
- og tryggja Stoke úrvalsdeildarsæti, segir Lárus Orri Sigurðsson
LÁRUS ORRI Sigurðsson hefur staðið sig mjög vel með Stoke að
undanförnu og átt stóran þátt í að liðið á góða möguleika á að
tryggja sér rétt til að leika í úrvalsdeildinni næsta keppnistímabil.
„Það er nú í okkar höndum, hvort við séum nægilega sterkir til
að reka smiðshöggið á að draumurinn rætist — að tryggja okkur
rétt til að leika í fjögurra liða úrslitum, komast í úrslitaleikinn á
Wembley, fagna þar sigri og tryggja Stoke rétt til að leika í úrvals-
deildinni næsta keppnistímabil,*' sagði Lárus Orri, sem fékk frá-
bæra dóma eftir sigurleik Stoke gegn Portsmouth, 2:1.
Klinsmann
náði ekki
marka-
metinu
JURGEN Klinsmann, miðherji
Bayern Miinchen, náði ekki að
bæta markametið í UEFA-
keppninni í Barcelona í gær-
kvöldi — hann fagnaði aftur á
móti sigri, 2:1, og fær góða
möguleika á að bæta markamet-
ið í tveimur úrslitaleikjum gegn
Bordeaux frá Frakklandi.
Franska liðið lagði Slavía Prag
að velli 1:0. Klinsmann hefur
skorað fjórtán mörk í UEFA-
keppninni, eða eins mörg og
Jose Altafini, AC Milan
(1962-63) ogJohnWark,
Ipswich (1980-81).
A myndinni fyrir ofan sækir
Klinsmann að marki Barcelona
á Nou Camp, þar sem 110 þús.
áhorfendur voru samankomnir.
Sergi Barjuan er til varnar.
■ Bæjarar ... / D4
Lárus Orri lék aðalhlutverkið í
vörninni í fjarveru hinna reyndu
leikmanna Vince Overson og Ian
Cranson, sem eru meiddir. Tvö efstu
liðin í 1. deild fara beint í úrvals-
deildina — Sunderland og Derby eru
í efstu sætunum, næstu fjögur liðin
leika um eitt sæti. Liðið í þriðja
sæti mætir liðinu í sjötta sæti og
liðið í fjórða sæti liðinu í fimmta
sæti — heima og heiman í undanúr-
slitum. Sigurvegararnir komast á
Wembley, þar sem leikið verður um
sæti í úrvalsdeildinni.
„Það hefur verið mikil spenna og
hörð keppni að komast í úrslita-
keppnina. Það gekk illa hjá okkur í
mars, það kom þó ekki að sök því
að gengi annarra liða á toppnum var
ekkert betra. Að undanförnu hefur
heppnin verið með okkur — Mike
Sheron, fyrrum leikmaður Manc-
hester City og Norwich, skoraði sig-
urmark okkar gegn Portsmouth eft-
ir að venjulegur leiktími var úti,
hann skoraði einnig sigurmark okk-
ar gegn Luton á dögunum á elleftu
stundu, 2:1. Sheron hefur skorað í
sjö síðustu leikjum okkar og verið
liðinu dýrmætur,“ sagði Lárus Orri.
Stoke leikur heima gegn Charlton
í kvöld og er leikurinn afar þýðingar-
mikill þar sem Lundúnarliðið er í
fjórða sæti, sætinu fyrir ofan Stoke
með tveimur stigum meira. „Við
vorum óheppnir gegn Charlton í
London í mars, vorum yfir eitt núll
þegar fimm mínútur voru til leiks-
íoka, en máttum þola tap 2:1,“ sagði
Lárus Orri, sem leikur sinn 48. leik
með Stoke í vetur gegn Charlton í
kvöld. „Ég hef verið að leika fleiri
leiki með Stoke í vetur en ég gerði
með Þór á fjórum til fimrn keppnis-
tímabilum heima á Islandi.“ Stoke
mætir' Sunderland síðan á laugar-
daginn.
- Er Lárus Orri ekki orðinn þreytt-
ur eftir langt og strangt keppnis-
tímabil?
„Ég hef ekki haft tíma til að hugsa
um þreytu - maður er byrjaður að
sjá fyrir endann á þessu. Draumur-
inn er að leika á Wembley og tryggja
Stoke rétt til að leika í úrvalsdeild-
inni.“
■ Staðan / D2
HANDKNATTLEIKUR: ÁKVEÐNIR HAUKAR SETTU STJÖRNURNAR ÚT AF LAGINU / D4