Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JMfóglUtllIllfetík c 1996 FIMMTUDAGUR 18. APRIL BLAÐ Tveir ungir leik- menn hjá Fram undir smásjánni TVEIR af unglingalandsliðsmönnum Fram í knattspyrnu, sem stóðu sig svo vel með unglinga- liðinu á Italíu á dögunum, eru undir smásjánni lyá erlendum liðum. Þjálfari hjá Anderlecht í Belgíu ræddi við Þorbjörn Atla Sveinsson á ítaliu og kann- aði hug hans og Arsenal vill fá Val Fannar Gislason á ný til æfinga — hann æfði með liðinu um tima i vetur ásamt bróður sínum, Stef- áni. Valur Fannar er fyrir- liði unglingaliðsins, sem fagnaði sigri á sextán liða móti á Ítalíu og Þorbjörn Átli var marka- kóngur mótsins, skoraði fimm mörk. Fram hefur ekkert heyrt Anderlecht eða Arsenal. Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson LANDSLIÐSMENNIRNiR Arnór Guðjohnsen, Bjarki Gunnlaugsson, Arnar Grétarsson, Eyjólfur Sverrlsson, Ólafur Adolfsson, Sigurður Jónsson og Ólafur Þórðarson. Leikið gegn Kýpur og Möltu FJÓRIR landsleikir í knatt- spyrnu verða leiknir hér á landi í sumar og þrír á er- lendri grund. Fyrsti leikurinn í Reylqavik verður HM-leikur- inn gegn Makedóníu 1. júní, síðan kemur landslið Kýpur í heimsókn og leikur 5. júní. Landslið Möltu leikur hér 14. ágúst og þá kemur hið sterka lið Rúmeníu og leikur á Laug- ardalsvellinum i undankeppni HM 9. október. Leikurinn gegn Eistlend- ingum í Tallinn verður fyrsti leikurinn á útivelli, síðan verð- ur leikið í Litháen í und- ankeppni HM 5. október og þá HM-leikur gegn írum í Dublin í nóvember. ísland hefur ekki áður leik- ið landsleik gegn Makedóníu, Litháen og Rúmeníu. Feðgarnir Arnórog EiðurSmári Guðjohnsen með í landsliðshópnum semfertil Eistlands „Einkennileg tilfinning - að vera með syninum ílandsliðshópnum," segir ArnórGuðjohnsen BROTIÐ var blað í knattspyrnusögu í heiminum í gær, þegar Logi Ólafsson, landsiiðsþjálfari, valdi feðgana Arhór og Eið Smára Guðjohnsen í landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Eistlandi, sem fer fram íTallinn á miðvikudaginn kemur. Þeir eru fyrstu feðgarnir í heiminum sem hafa verið valdir saman í landsliðshóp. Eiður Smári er 17 ára — fæddur 15. september 1978, Arnór verður 35 ára 30. júlí i' sumar. egar Amór lék sinn fyrsta lands- leik í Bern 1979 — þá 17 ára og 296 daga, var Eiður Smári rétt sex mánaða gamall. SigmundurÓ. „Hvað segir þú, var Steinarsson sonurinn valinn,“ skrifar sagði Arnór þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær. „Það er hálfskrítið — já, einkennileg tilfinn- ing að ég sé með syni mínum í landsl- iðshópnum. Já, mjög skemmtilegt,“ sagði Amór, sem þurfti smátíma til að átta sig á hlutunum. Þeir feðgar hittast á mánudaginn í Kaupmanna- höfn, þar sem landsliðshópurinn kemur saman og heldur til Eist- lands. „Ég hef alltaf vonað að sá dagur myndi renna upp að við lékjum saman - það hefur lengi verið draumurinn að við myndum klæðast landsliðsbúningi Islands í sama leikn- um. Þetta hófst allt 1986 í Belgíu, þegar Eiður Smári vakti athygli með unglingaliði. Þá sagði ég í sjónvarps- viðtali að það væri gaman ef við feðg- arnir fengjum tækifæri til að leika saman. Nú fyrst geri ég mér grein fyrir að sá tími nálgast óðfluga. Við erum komnir saman í leikmannahóp- inn, þannig að það er stutt í að draumurinn rætist,“ sagði Arnór, sem er mjög hrifinn af örum framför- um hjá syni sínum, sem hefur leikið með byijunarliði PSV Eindhoven í Hollandi að undanförnu — skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið, sama dag og Arnór var að skora mark fyrir ísland í leik gegn Möltu á Möltu á í landsliðshópinn, en Eindhoven fór dögunum. Þá var Eiður Smári valinn fram á að halda honum. „Eiður Smári hefur náð lengra en ég bjóst við — framfarir hans hafa orðið miklar á rúmu ári, hann er hættur að vera efnilegur, heldur góður. Það var gæfu- spor fyrir hann að fá tæki- færi til að æfa og leika með Eindhoven, þar sem unglinga- starf er til fyrirmyndar," sagði Arnór og bætti við: „Það er eins gott að halda sér í góðri æfíngu, þannig að ég geti leikið tvo til þrjá leiki með stráknum áður en ég legg landsliðsskóna á hill- una.“ Eiður Smári á heima í hópnum Þegar Logi Ólafsson var spurður um, hvort að hann teldi að Eiður Smári væri til- búinn til að leika m_eð landsl- iðinu, sagði hann. „Ég er ekki að velja Eið Smára í landsliðs- Landsliðshópurinn Markvex-ðir Birkir Kristinsson, Brann..........41 Kristján Finnbogason, KR........... 7 Vamaraienn: Guðni Bergsson, Bolton.............66 Rúnar Kristinsson, Örgryte.........51 Sigursteinn Gíslason, IA...........17 Ólafur Adolafsson, ÍA..............12 Lárus Orri Sigurðsson, Stoke....... 2 Miðjumenn: Ólafur Þórðarson, íA...............64 Sigurður Jónsson, Örebro...........41 Arnar Grétarsson, Breiðabliki......30 Eyjólfur Sverrisson,_Herthu Berlín.29 Hlynur Stefánsson, ÍBV.............22 Sóknarmenn: Amór Guðjohnsen, Örebro............64 Bjarki Gunnlaugsson, Mannheim......16 Þórður Guðjónsson, Bochum.......... 5 Eiður Smári Guðjohnsen, Eindhoven... 0 hópinn til að láta draum pabba hans rætast — ég vel hann í landsliðshóp- inn þar sem ég tel hann eiga heima í hópnum. Hann hefur verið að leika vel með Eindhoven - einu besta fé- lagsliði Evrópu - að undanförnu." „Ég hefði vel getað valið stærri hóp fyrir leikinn gegn Eistlandi - margir góðir leikmenn eru fyrir utan hann, eins og Amar Gunnlaugsson, sem er meiddur, Þorsteinn Guðjóns- son, Helgi Sigurðsson, Halldór Ing- ólfsson, Rútur Snorrason, Helgi Kol- viðsson, Ágúst Gylfason og Guð- mundur Benediktsson, sem voru með í æfíngaferðinni til Möltu á dögun- um.“ „Ferðin til Eistlands verður nýtt til að undirbúa okkur sem best fyrir leikinn gegn Makedóníu í undan- keppni heimsmeistarakeppninnar, þýðingarmikinn leik sem verður á Laugardalsvellinum 1. júní. Ég mun prófa ýmislegt nýtt og þá er gott að kynnast andrúmsloftinu í Eystrasalt- slöndunum, þar sem við leikum þar gegn Litháen í haust í heimsmeist- arakeppninni," sagð! Logi. MAGNÚS VER SIGRAÐIÁ STERKU AFLRAUNAMÓTI í ÁSTRAUU / C8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.