Morgunblaðið - 19.04.1996, Síða 1
64 SIÐUR B/C
89. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• ísraelar vændir um flöldamorð í Suður-Líbanon • Hizbollah
skaut flugskeytum 300 metrum frá flóttamannabúðunum
• SÞ segja viðvörun ísraela hafa borist eftir árásina
Reuter
FRIÐARGÆSLULIÐAR bera brott jarðneskar leifar líbansks
flóttamanns eftir að ísraelar gerðu sprengjuárás á varðstöð
Sameinuðu þjóðanna skammt frá þorpinu Qana í Líbanon.
NÍU manns, þ. á m. sex börn, fórust þegar þriggja hæða hús
hrundi í loftárás ísraela á bæinn Nabatiyet al-Fawqa. Á mynd-
inni sést maður syrgja ættingja sína, sem létu lífið í árásinni.
100 flóttamenn falla
í árás á varðstöð SÞ
ísraelar harma mannfallið og kveðast
reiðubúnir til að ræða vopnahlé
NÆR eitt hundrað manns, aðallega
líbanskir flóttamenn úr röðum
óbreyttra borgara, fórust í gær er
ísraelar gerðu sprengjuárás á Hiz-
bollah-skæruliða í suðurhluta Líban-
ons. Fólkið hafði leitað skjóls í bæki-
stöð friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna í bænum Qana. Níu manns,
þ. á m. sex börn^fórust fyrr um
daginn í loftárás Israela á bæinn
Nabatiyet al-Fawqa. Hamas, samtök
palestínskra heittrúarmanna, sem
stóðu fyrir mannskæðum sprengju-
tilræðum í Israel í febrúar og mars,
hótuðu í gær að hefna þess grimmi-
lega ef árásum á Hizbollah-skæru-
liða í Líbanon yrði haldið áfram.
Shimon Peres, forsætisráðherra
ísraels, sagðist í gærkvöldi reiðubú-
inn að fara að tilmælum Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta og semja
strax um vopnahlé ef Hizbollah-
menn gerðu slíkt hið sama. Hizbollah
svaraði að skilyrði fyrir vopnahléi
væri að sáttmáli frá 1993 um að
hvorugur aðili gerði almenna borg-
ara að skotskífu tæki gildi á ný.
Peres sagðist á blaðamannfundi í
Tel Aviv harma mannfallið í röðum
óbreyttra borgara en taldi Hizbollah-
skæruliða bera alla ábyrgð á harm-
leiknum. Sýrlendingar og Líbanar
myndu kalla hörmungar yfir Líban-
on ef þeir tryggðu ekki að skærulið-
ar hyrfu frá bækistöðvum sínum sem
þeir nota til að skjóta katjúsha-eld-
flaugum á nyrstu byggðir í Israel.
Fórnarlömbin í Qana munu flest
hafa verið konur og börn í tveim
bráðabirgðaskýlum í stöð gæslulið-
anna. Annað skýlið brann til grunna.
Gólfin í skýlunum voru að sögn sjón-
arvotta þakin líkum, tættum líkams-
hlutum og særðu fólki. Sjúkrabílar
voru þegar sendir af stað en ísraelsk-
ar flugvélar héldu áfram að varpa
sprengjum á Qana og bækistöðina
sem er í útjaðri bæjarins.
„Hvar ertu, Guð?“
Skelfing og örvænting ríkti meðal
ættingja fórnarlambanna. „Hvar
ertu, Guð?“ hrópaði örvæntingarfull
kona og steytti hnefann gegn himni
í ringulreiðinní á sjúkrahúsi í borg-
inni Týrus er verið var að flytja
þangað látna og særða frá Qana.
Hvarvetna grét fólk hástöfum af
sorg og bræði er lík barnanna voru
borin inn, tvö eða þrjú saman í poka.
Blóðtaumar voru um gangana, önn-
um kafnir læknar og hjúkrunarfólk
kepptist við að liðsinna særðum.
Björgunarmaður bar lík af barni og
lyfti ábreiðu af höfði þess fyrir sjón-
varpsmenn: „Takið mynd af honum.
Leyfið Peres að sjá hvað hann gerði“.
I árásinni á Nabatiyet al-Fawqa
í gærmorgun fórust móðir og sex
börn hennar, það yngsta nýfædd
dóttir. Eiginmaðurinn hafði látið
flytja þau í hús sem hann taldi ör-
uggara en sitt eigið. Sjálfur var
maðurinn í pílagrímsferð til Mekka.
Hizbollah-skæruliðar vísuðu á bug
að þeir hefðu skotið eldflaugum frá
stað í aðeins um 300 metra fjarlægð
frá búðum friðargæsluliða SÞ. Tals-
maður SÞ hafði eftir yfirmanni gæsl-
uliðsins í Líbanon að flaugum hefði
verið skotið 15 mínútum áður en
ísraelar létu sprengjum rigna yfir
stöðina. Talsmaðurinn hafði eftir
sérfræðingum SÞ að um væri að
ræða „dæmigerða bardagaaðferð
skæruliða, að skýla sér bak við
óbreytta borgara".
Amnon Shahak hershöfðingi, yfir-
maður herafla ísraels, fullyrti í gær
að fulltrúar SÞ hefðu verið varaðir
við því að árás yrði gerð en ísraelar
hefðu ekki vitað að óbreyttir borgar-
ar, alls nær 500 manns, væru í
bækistöðinni. Líklega hefði ekki
unnist tími til að koma öllu fólkinu
í öruggt skjól.
Reuter hafði eftir ónafngreindum
embættismanni Sameinuðu þjóð-
anna í New York í gærkvöldi að
viðvörun ísraelshers hefði ekki bor-
ist í tæka tíð. í skýrslu frá yfir-
manni sveita SÞ í Líbanon segði að
árásin liefði verið gerð klukkan
14.13, en viðvörunin hefði borist
klukkan 14.16 að staðartíma.
Ferðamenn myrtir í Kaíró
Sautján grískir ferðamenn voru
skotnir til bana í Kaíró í Egypta-
landi í gær. Að sögn Jóhönnu Krist-
jónsdóttur, fréttaritara Morgun-
blaðsins á staðnum, ríkir skelfing í
borginni og hefur komið til greina
að setja útgöngubann. Talið er að
múslimskir bókstafstrúarmenn hafi
framið verknaðinn og þeir hafí hald-
ið að þar færu ísraelskir ferðamenn.
■ Sýrlendingar í lykilaðstöðu/17
■ Sautján grískir/18
* *
Arás Isra-
ela víða
fordæmd
New York, Amman, Jerúsalem. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, lýsti „hryllingi sínum“ og
fordæmdi árás Israela á
óbreytta borgara í Líbanon í
gær þar sem um 100 flóttamenn
létu lífið.
Hussein Jórdaníukonungur
sagði árásina „glæpsamlega" og
krafðist þess að þegar yrði
bundinn endi á árásir Israela á
„bræðraþjóðina í Líbanon".
Yfirvöld í Beirút kröfðust al-
þjóðlegra aðgerða til að stöðva
árásir Israela þegar í stað. For-
sætisráðherra Jórdaníu kallaði
sendiherra ísraels á sinn fund
til að afhenda honum mótmæli.
í orðsendingu til líbanskra
stjórnvalda var ennfremur sagt
að ísraelar yrðu að draga her
sinn frá spildunni sem þeir her-
silja syðst í Líbanon.
Clinton hvetur
til vopnahlés
„Ég hvet alla deiluaðila til að
semja þegar í stað um vopna-
hlé,“ sagði Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti í gær í Pétursborg
en hann er á leið á leiðtogafund
í Moskvu. Sagðist hann ætla að
senda Warren Christopher utan-
ríkisráðherra til að reyna að
miðla málum. Bandaríkjamenn
reyna nú af alefli og í samstarfi
við Frakka að stilla til friðar.
Ráðamenn Breta og Frakka
lýstu hryggð sinni og áhyggjum
vegna mannfallsins en létu hjá
líða að fordæma ísraela.
Er fólk á götum úti í ísrael
var spurt álits sögðu margir
hræðilegt að saklaust fólk úr
röðum óbreyttra borgara í
Líbanon skyldi hafa fallið.
Kannanir fyrir árásina sýndu
að 86% aðspurðra studdu að-
gerðirnar og flestir virtust enn
vera sama sinnis þrátt fyrir at-
burðina í gær.
ÍSRAELAR RAÐAST
A FLOTTAMENN
Líbanskur embættismaður sagði að
um 100 manns, aðallega flóttafólk,
hefðu farist í gær og 109 særst er
ísraelar gerðu sprengjuárás á búðir
friðargæsluliða SÞ í Qana í
suðurhluta landsins. Fyrr um daginn
gerðu ísraelar loftárás á hús í
bænum Nabatiyet al-Fawqa og féllu
þar níu manns.
/
MIÐJARÐAR-
HAF
© Sídon 10 km
/líbanon
Öryggis-
Nabatiyet svæði
israela
Týrus ,®
SjjfestöðSÞÍ ;
^Qana
‘»V>--SSS
/® Naharia
SRAEL
REUTERS