Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 1

Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA D 1996 LAUGARDAGUR 20. APRIL BLAD ■ Morgunblaðið/Arni Sæberg UEFA afléttir banninu á Dynamo Kiev UEFA, Knattspyinusamband Evrópu, aflétti í gær þriggja ára banni sem það setti úkraínska knattspyrnuliðið Dynamo Kiev I í september. Kiev sigraði Panathinaikos en spænskur dómari leiksins sagði að forráðamenn félagsins hefðu reynt að múta sér með loðfeldum og húfum. Forráðamenn Kiev sögðu hins vegar að dómar- inn hefði beðið um að sér yrði útvegaður ýmis varningur og það hefði verið gert en hann hefði neitað að greiða 30.000 dollara reikning fyrir, en það var sú upphæð sem loðfeldimir og húf- urnar kostuðu. UEFA trúði dómaranum og setti félagið í þriggja ára keppnisbann og tvo for- ráðamenn þess í ævilangt bann og var danska liðið Álaborg sett í meistaradeildina í stað Kiev. Gerhard Aigner, framkvæmdastjóri UEFA, sagði í gær að með því að aflétta banninu væri UEF A ekki að viðurkenna að það hafi haft rangt fyrir sér. Þetta væri gert til að knattspyraan gæti þróast í Úkraínu, en þar væri erfitt ástand. Forráðamenn félagsins eru ánægðir og segjast ætla að komast í næstu Evrópukeppni, en Dyn- amo Kiev er nú í efsta sæti deildarinnar og á einnig möguleika á að sigra í bikarkeppninni. Alexei Semenenko, talsmaður félagsins, sagði í gær að það væri svo sannarlega ekki á hveij- um degi sem UEFA breytti ákvörðun sinni. „Ákvörðun UEFA sýnir að við voram saklaus- ir,“ sagði hann. Ekkert hefur verið rætt um hvort félagið ætli að krefjast skaðabóta frá UEFA en Ijóst er að það varð af miklum tekjum þegar það var rekið úr meistaradeildinni. Duranona var bestur JULIAN Duranona, kúbverska stórskyttan í liði KA á Akureyri, var besti leikmaður íslandsmótsins í handknattleik í vetur að mati íþróttafréttamanna Morgunblaðsins. Duranona setti mikinn svip á keppni vetrarins og lék lykilhlutverk í liði KA sem varð deildar- og bikarmeistari og lék síðan til úrslita við Val, þar sem Akureyringarnir urðu að sætta sig við tap og annað sæti Islandsmótsins. Duranona varð langmarkahæstur bæði í deildarkeppninni og úrslita- keppni Islandsmótsins. Hann fékk í gær afhentan bikar frá Morgunblaðinu af áðurnefndu tilefni og var myndin tekin við það tækifæri. Lokahóf hand- knattleiksfólks verður haldið í kvöld og þá kemur í ljós hvort leikmenn deildarinnar eru sammála Morg- unblaðinu hvað þetta varðar. IÞROTTAHREYFINGIN Sambandsstjórnarfundur íþróttasambands íslands lýsti yfir miklum áhyggjum Fjártiagsstaða félaga í efstu deild neikvæð um 200 milljónir Fulltrúar á sambandsstjórnar- fundi íþróttasambands ís- lands, sem haldinn var í gær, lýstu yfir miklum áhyggjum vegna fjár- hagsstöðu íþróttahreyfingarinnar. í skýrslu nefndar um málið kom fram að mörg félög eða deildir í efstu deild karla í knattspymu, hand- knattleik og körfuknattleik væru í raun gjaldþrota og fram kom á fundinum að staða annarra félaga og deilda og margra sérsambanda væri ekki skárri. Samkvæmt skýrsl- unni var fjárhagsstaða félaga í 1. deild karla neikvæð um liðlega 200 milljónir króna í árslok 1994 og engar vísbendingar um að hún hafi almennt batnað síðan. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, sagði að frá síðasta sambands- stjórnarfundi, sem haldinn var fyrir ári, hefði margt gerst í íþróttalífinu og hæst bæri Heimsmeistarakeppn- ina í handknattleik, stærsta íþrótta- viðburð sem íslendingar hafa skipu- lagt og annast. Vel hefði tekist til með framkvæmdina en mikið áhyggjuefni væri að ijármál Hand- knattleikssambandsins væru í upp- námi í kjölfar keppninnar og í raun blasti ekkert annað en gjaldþrot við. Vegna mikilvægis málsins var gert hlé á fundarstörfum og fundar- mönnum skipt í vinnuhópa þar sem staðan var tekin fyrir og menn beðnir um að benda á úrbætur. Niðurstöður hópanna voru áþekkar. Nefndin, sem tók saman fyrmefnda skýrslu, tók mið af stöðu félaga eða deilda í þremur íþrótta- greinum í árslok 1994 og var al- mennt taiið að ástandið hefði ekki breyst til batnaðar. Bent var á að fjárhagsstaða félaga í neðri deildum væri jafnvel miklu lakari því þar væru nær engir tekjumöguleikar og reksturinn nánast ekkert nema útgjöld. Staðan virtist samt vera betri í minni félögum því aðhaldið virtist vera meira og sumir töldu að deildir með einstaklingsgreinar væru betur settar en aðrar þegar á heildina væri litið. Spamaður var lykilorð þegar bent var á úrbætur því almennt var talið að auknir tekjumöguleikar væm ekki fyrir hendi. Lögð var áhersla á að félög tækju sig saman um að minnka kostnað við leikmenn og þjálfara því eitt félag mætti sín lítils i því efni. Rætt var um að fækka mótum í yngri flokkum og takmarka ferðakostnað eftir mætti. Þá var bent á mikilvægi strangs eftirlits og að nauðsynlegt væri að gera fjárhagsáætlun og gera ekki út á vonarpeninga. Samþykkt var að fela nefndinni að móta tillögur um úrbætur fyrir íþróttaþing í haust en það verður haldið á Akranesi í október eða nóvember. ■ Gjaldþrot...B2 HANDKNATTLEIKUR: TEKST STJÖRNUNNIAÐ VERJA TTTIUNN? / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.