Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
D
1996
LAUGARDAGUR 20. APRIL
BLAD
■
Morgunblaðið/Arni Sæberg
UEFA afléttir
banninu á
Dynamo Kiev
UEFA, Knattspyinusamband Evrópu, aflétti í
gær þriggja ára banni sem það setti úkraínska
knattspyrnuliðið Dynamo Kiev I í september.
Kiev sigraði Panathinaikos en spænskur dómari
leiksins sagði að forráðamenn félagsins hefðu
reynt að múta sér með loðfeldum og húfum.
Forráðamenn Kiev sögðu hins vegar að dómar-
inn hefði beðið um að sér yrði útvegaður ýmis
varningur og það hefði verið gert en hann hefði
neitað að greiða 30.000 dollara reikning fyrir,
en það var sú upphæð sem loðfeldimir og húf-
urnar kostuðu. UEFA trúði dómaranum og setti
félagið í þriggja ára keppnisbann og tvo for-
ráðamenn þess í ævilangt bann og var danska
liðið Álaborg sett í meistaradeildina í stað Kiev.
Gerhard Aigner, framkvæmdastjóri UEFA,
sagði í gær að með því að aflétta banninu væri
UEF A ekki að viðurkenna að það hafi haft rangt
fyrir sér. Þetta væri gert til að knattspyraan
gæti þróast í Úkraínu, en þar væri erfitt ástand.
Forráðamenn félagsins eru ánægðir og segjast
ætla að komast í næstu Evrópukeppni, en Dyn-
amo Kiev er nú í efsta sæti deildarinnar og á
einnig möguleika á að sigra í bikarkeppninni.
Alexei Semenenko, talsmaður félagsins, sagði
í gær að það væri svo sannarlega ekki á hveij-
um degi sem UEFA breytti ákvörðun sinni.
„Ákvörðun UEFA sýnir að við voram saklaus-
ir,“ sagði hann. Ekkert hefur verið rætt um
hvort félagið ætli að krefjast skaðabóta frá
UEFA en Ijóst er að það varð af miklum tekjum
þegar það var rekið úr meistaradeildinni.
Duranona
var bestur
JULIAN Duranona, kúbverska stórskyttan í liði KA
á Akureyri, var besti leikmaður íslandsmótsins í
handknattleik í vetur að mati íþróttafréttamanna
Morgunblaðsins. Duranona setti mikinn svip á keppni
vetrarins og lék lykilhlutverk í liði KA sem varð
deildar- og bikarmeistari og lék síðan til úrslita við
Val, þar sem Akureyringarnir urðu að sætta sig við
tap og annað sæti Islandsmótsins. Duranona varð
langmarkahæstur bæði í deildarkeppninni og úrslita-
keppni Islandsmótsins. Hann fékk í gær afhentan
bikar frá Morgunblaðinu af áðurnefndu tilefni og
var myndin tekin við það tækifæri. Lokahóf hand-
knattleiksfólks verður haldið í kvöld og þá kemur í
ljós hvort leikmenn deildarinnar eru sammála Morg-
unblaðinu hvað þetta varðar.
IÞROTTAHREYFINGIN
Sambandsstjórnarfundur íþróttasambands íslands lýsti yfir miklum áhyggjum
Fjártiagsstaða félaga í efstu
deild neikvæð um 200 milljónir
Fulltrúar á sambandsstjórnar-
fundi íþróttasambands ís-
lands, sem haldinn var í gær, lýstu
yfir miklum áhyggjum vegna fjár-
hagsstöðu íþróttahreyfingarinnar. í
skýrslu nefndar um málið kom fram
að mörg félög eða deildir í efstu
deild karla í knattspymu, hand-
knattleik og körfuknattleik væru í
raun gjaldþrota og fram kom á
fundinum að staða annarra félaga
og deilda og margra sérsambanda
væri ekki skárri. Samkvæmt skýrsl-
unni var fjárhagsstaða félaga í 1.
deild karla neikvæð um liðlega 200
milljónir króna í árslok 1994 og
engar vísbendingar um að hún hafi
almennt batnað síðan.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
sagði að frá síðasta sambands-
stjórnarfundi, sem haldinn var fyrir
ári, hefði margt gerst í íþróttalífinu
og hæst bæri Heimsmeistarakeppn-
ina í handknattleik, stærsta íþrótta-
viðburð sem íslendingar hafa skipu-
lagt og annast. Vel hefði tekist til
með framkvæmdina en mikið
áhyggjuefni væri að ijármál Hand-
knattleikssambandsins væru í upp-
námi í kjölfar keppninnar og í raun
blasti ekkert annað en gjaldþrot við.
Vegna mikilvægis málsins var
gert hlé á fundarstörfum og fundar-
mönnum skipt í vinnuhópa þar sem
staðan var tekin fyrir og menn
beðnir um að benda á úrbætur.
Niðurstöður hópanna voru
áþekkar. Nefndin, sem tók saman
fyrmefnda skýrslu, tók mið af stöðu
félaga eða deilda í þremur íþrótta-
greinum í árslok 1994 og var al-
mennt taiið að ástandið hefði ekki
breyst til batnaðar. Bent var á að
fjárhagsstaða félaga í neðri deildum
væri jafnvel miklu lakari því þar
væru nær engir tekjumöguleikar
og reksturinn nánast ekkert nema
útgjöld. Staðan virtist samt vera
betri í minni félögum því aðhaldið
virtist vera meira og sumir töldu
að deildir með einstaklingsgreinar
væru betur settar en aðrar þegar á
heildina væri litið.
Spamaður var lykilorð þegar
bent var á úrbætur því almennt var
talið að auknir tekjumöguleikar
væm ekki fyrir hendi. Lögð var
áhersla á að félög tækju sig saman
um að minnka kostnað við leikmenn
og þjálfara því eitt félag mætti sín
lítils i því efni. Rætt var um að
fækka mótum í yngri flokkum og
takmarka ferðakostnað eftir mætti.
Þá var bent á mikilvægi strangs
eftirlits og að nauðsynlegt væri að
gera fjárhagsáætlun og gera ekki
út á vonarpeninga.
Samþykkt var að fela nefndinni
að móta tillögur um úrbætur fyrir
íþróttaþing í haust en það verður
haldið á Akranesi í október eða
nóvember.
■ Gjaldþrot...B2
HANDKNATTLEIKUR: TEKST STJÖRNUNNIAÐ VERJA TTTIUNN? / D4