Morgunblaðið - 21.04.1996, Page 1
Danmörk
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga
Vikugjald:
OpelCorsa, dkr. 1.795
Opel Astra, dkr. 1.995
Opel Astra st„ dkr. 2.195
Opel Vectra, dkr. 2.495
Tveggja víkna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st„ dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
Innif. ótakm. akstur og tryggingar.
Fáið nánari verðtilboð.
international Car Rental ApS.
Uppl. á íslandi sími 456-3745.
AFSIOPPUN A ALGARVE 2
Stefnumót
2002
ÁRLEG ráðstefna ferðamála-
nefndar Reykjavíkurborgar
verður haldin á Kjarvalsstöð-
um, miðvikudaginn 24. apríl
nk. kl. 15. Yfirskriftin verður
ímynd Reykjavíkur - hver er
hún? Hver á hún að vera?
Ráðstefnan er haldin í tengsl-
um við vinnu um mótun
stefnu ferðaþjónustu í
Reykjavík.
SUNNUDAGUR 21. APRÍL1996 BLAÐC
Lægsta verð á
bílaleigubílum
hvert sem
ferðinni er
heitið
Hringdu f okkur og fáðu sendan
sumarbœklingfnn s: 588 35 35
Ónotuðu skrifstofuhúsnæði breytt fyrir haustið
Átján hótel-
íbúðir við
Höfðabakka
Morgunblaðið/
í ÞESSARI byggingu að Höfðabakka 1 er fyrirhugað
að reisa 18 hótelíbúðir.
ÍBÚÐARHÓTEL með 18 íbúðum
verður reist að Höfðabakka 1 fyrir
haustið. Húsið er 3ja hæða, en á
efri hæðunum tveimur hefur skrif-
stofuhúsnæði staðið ónotað í 7 ár.
„Þetta er hugmynd sem ég hef
gengið með í maganum í mörg ár,“
segir Hörður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Byggingafélagsins
Burstar hf„ sem stendur fyrir fram-
kvæmdunum. „Ég hef einu sinni
áður reynt að koma þessari hug-
mynd á framfæri. Byggingafélagið
Dögun hf. sem ég átti hlut í, keypti
Hörpulóðina á Skúlagötunni árið
1988 undir svona íbúðarhótel. Það
varð of viðamikið mál, við réðum
ekki við það og ekkert varð af fram-
kvæmdum."
Hörður segir að húsnæðið hafi
verið keypt sem ónotað skrifstofu-
húsnæði og leyfi fengist hjá bygg-
ingarnefnd Reykjavíkurborgar til
að innrétta þarna 18 hótelíbúðir.
„Þetta verða alveg fullkomnar íbúð-
ir. en þær verða sérskráðar sem
hótelíbúðir hjá byggingafulltrúa.
Þvi fylgir að það má ekki búa í
þeim allt árið, ekki skrá þarna lög-
heimili sitt og það er skylda íbúðar-
eigenda að eiga hlut í húsvarðaríbúð
sem verður nitjánda íbúðin. Þar
verður búið allan ársins hring.“
Að sögn Harðar verða íbúðirnar
á annarri og þriðju hæð hússins sem
er þriggjá hæða. „Það er æðislegt
útsýni þarna yfír sundin," segir
Hörður, „og starfsemin á fyrstu
hæðinni hentar iíka vel fyrir svona
íbúðarhótel. Þarna er krá, pizza-
staður, hamborgarastaður, ísbúð og
hárgreiðslustofa. “
íbúðirnar verða í séreign
íbúðirnar 18 verða í séreign.
Hörður segist sjá væntanlega kaup-
endur meðal verkalýðsfélaga og
starfsmannafélaga á landsbyggð-
inni, ferðaskrifstofa ýmiss konar,
íslendinga sem búsettir eru erlendis
og fleiri. Til dæmis séu íbúðirnar
sniðug fjárfesting fýrir fólk að
leigja út. „Ég hef kannað viðbrögð-
in víða og þau lofa góðu. Annars
verða íbúðirnar í sölu hjá Fasteigna-
sölunni Ásbyrgi, segir Hörður.
Húsvörður mun starfa á íbúðar-
hótelinu sem verktaki og sjá um
þau verk sem þar þarf að vinna.
Meðal annars munu eigendur íbúða
geta sent honum upplýsingar um
gestakomur þannig að hann geti
undirbúið viðkomandi íbúð.
íbúðirnar verða flestar stúdíó-
íbúðir með lítilli eldhúsinnréttingu
og baðherbergi með þvottavél.
Minnstu íbúðimar eru 38 fm og
kosta 4 milljónir króna. Þær stærstu
eru hins vegar 2ja til 3ja herbergja,
55 fm og kosta 5,5 milljónir. ■
HELGIIBARCELONA
►í haust munu Flugleiðir í
fyrsta skipti bjóða farþegum
upp á helgarpakkaferðir til
Barceiona. Farið verður á föstu-
degi og komið til baka á mánu-
degi. Verðið verður mismunandi
eftir því hvort dvalið er á
þriggja, fjögurra eða fimm
stjörnu hóteli.
► Barcelona er mikil menn-
ingarborg, ýmis þekkt söfn er
þar að finna, hægt að skoða forn-
ar byggingar og löngum hefur
matargerð Katalóníumanna þótt
spennandi. Gnægð er af verslun-
um í Barcelona og mikið úrval
kventískufatnaðar. Meðalhita-
stig í Barcelona er 22°C í
september en 18°C í október.
HÓPFERD Á EAGLES
► Samvinnuferðir-Landssýn
efna til hópferðar á tónleika
hlj óms veitar innar Eagles í Ham-
borg 19. júlí nk. Farið verður
frá Keflavík síðdegis fimmtu-
daginn 18. júlí. Gist á Holiday
Inn Crowne Plaza. Tónleikarnir
verða á föstudagskvöldi og síðan
er flogið heim síðdegis á laugar-
dag 20. júlí. Verð er 44.735 stg.
Innifalið er flug, gisting með
morgunmat, miði á tónleika og
íslensk fararstjórn. ■