Morgunblaðið - 24.04.1996, Side 1
Vil skoða sem flesta
Feðgar
áferð
ARNÓR Guðjohnsen og son-
ur hans Eiður Smári (t.h.)
hittust í Kaupmannahöfn á
mánudaginn, þar sem
landsliðshópurinn kom
saman á leið sinni til Tallinn
í Eistlandi. Arnór kom þá frá
Svíþjóð, þar sem hann leikur
með Örebro og Elður Smárl
frá Hollandl, þar sem hann
leikur með PSV Eindhoven.
Logi Ólafsson tilkynnir byrjunar-
lið sitt á morgunæfingu í dag
og er mikil spenna víða í knatt-
spyrnuheiminum hvort feðgar leika
í fyrsta sinn saman í landsleik. „Ég
skil áhugann fyrir þessu og um
verður að ræða sögulegan viðburð
ef hann gerist en ég get ekkert
sagt um það á þessari stundu,“
sagði Logi aðspurður um málið í
gærkvöldi.
Hann sagðist vera að velta ýms-
um möguleikum fyrir sér með leik-
aðferðina 4-1-4-1 í huga. „Ég hef
áhuga á að finna aðferð sem hentar
jafnt gegn sterkum mótheijum eins
og andstæðingum sem fyrirfram
eru ekki taldir eins góðir og við.
Þýðingarmikið er að fara í hvern
leik með því hugarfari að sigra og
stemmningin verður að vera rétt.
Að undanförnu hef ég fylgst með
leikmönnunum með félagsliðum
sínum og þeir eru yfirleitt í mjög
góðu standi. Það er töluverður
munur á mönnum frá því sem var
á Möltu og er það eðlilegt en þetta
snýst um að liðsheildin verði sterk.“
Ungmennalið þjóðanna gerðu 1:1
jafntefli í gær og sagði Logi að
frammistaða heimamanna væri viss
aðvörun. „Mótherjarnir eru sannir
atvinnumenn sem hafa æft vel eins
og sást á ungmennaliðinu enda vit-
að að lið sem Teitur Þórðarson þjálf-
ari er í góðu líkamlegu ástandi. Við
getum aldrei leyft okkur að van-
meta andstæðinga okkar en aðalat-
riðið er að spilið verði sannfær-
andi. Þessi leikur er líka til að skoða
menn og ef tækifæri gefst vil ég
skóða sem flesta.“
Landsliðið í
Logi Ólafsson
Síðasta
verkefni
okkar
fyrirHM
mr
Islendingar mæta Eistlendingum
í æfíngalandsleik í knattspyrnu
í Tallin í dag. „Við erum að búa
okkur undir erfítt verkefni gegn
Makedóníu og leikurinn miðast við
að þetta er síðasta verkefni okkar
fyrir fyrsta leikinn í riðlakeppni
Heimsmeistarakeppninnar," sagði
Logi Ólafsson, þjálfari íslenska
landsliðsins, við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Logi hóf feril sinn sem landsliðs-
þjálfari á fjögurra þjóða móti á
Möltu í febrúar sl., en þar lá liðið
7:1 fyrir Slóveníu og tapaði 3:0
fyrir Rússlandi en vann Möltu 4:1.
Fyrrnefndur leikur gegn Makedó-
níu verður á Laugardalsvelli 2.
júní og sagði Logi að viðureignin
í dag skipti miklu máli. „Við vitum
að Eistlendingarnir eru í góðri
æfingu enda hafa þeir verið í æf-
ingabúðum í nánast allan vetur,
meðal annars í tvo mánuði á Kýp-
ur. Mér er sagt að þeir hafi til-
hneigingu til að liggja til baka og
bíða og svarið við því er að reyna
að fá þá til að sækja svo við getum
beitt gagnsóknum. Eins kemur til
greina að mæta þeim framar á
vellinum en við verðum að geta
sótt gegn mismunandi leikaðferð-
um.“
Leikurinn verður sýndur í beinni
útsendingu í Eistlandi og hefst kl.
15 að íslenskum tíma. Logi sagði
að mikill hugur væri í heimamönn-
um og ljóst væri að leikmennirnir
kæmu með öðru hugarfari í þennan
leik en þegar jjeir léku með Flora
Tallin á móti IBV og ÍA í æfinga-
keppni á Kýpur á dögunum. „Þetta
verður erfiður leikur og ljóst er að
við verðum að leika sem sterk liðs-
heild og taka varnarleikinn föstum
tökum. Leikmenn geta ekki leyft
sér að hugsa um eigin hag hver í
sínu homi því mikið er í húfi.“
1996
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL
BLAD
DANIR stóðu sig frábærlega á Evrópumótinuí
badminton sem iauk í Danmörku um helgina. í
einliðaleik karla léku til úrslita Paul-Erik Hoyer-
Larsen og Peter Rasmussen, en þeir eru báðir frá
Danmörku. Sá fyrmefndi sigraði 15:5 og 15:11.
Þetta var þriðji Evrópumeistaratitill hans á jafn-
mörgum árum. í tvíliðaleik voru Danir í úrslitum,
Jon Hoist-Christiansen og Thomas Lund sigruðu
landa sína, Michael Sogárd og Henrik Svarrer,
10:15,15:12 og 18:17.
Danska stúlkan Camilla Martin vann Marinu
Yakushevu frá Rússlandi í úrslitum einliðaleik
kvenna 11:0 og 11:3.1 tviliðaleiknum kepptu fjór-
ar danskar stúlkur. Rikke Olsen og Helena
Kirkegárd unnu Lisbet Stuer-Lauridsen og Mar-
lene Thomsen 6:15,15:12 og 15:10.
Dræm þátttaka
í kosningunni
DRÆM þátttaka var í kjöri leikmanna fyrstu deild-
ar karla um besta leikmanninn, en aðeins ájtta lið
af tólf í deildinni skiluðu atkvæðaseðlum. Örn
Magnússon, framkvæmdastjóri HSI, sagði að þetta
væri svipað og undanfarin ár. „Við köllum þetta
ekki dræma þátttöku, hún er svipuð og í fyrra
og því kemur mér þetta ekki á óvart,“ sagði Órn.
Hann sagði að fyrst og fremst væri það kæru-
leysi manna sem ylli þvi að þátttaka væri ekki
meiri.
Hendry og Davis
í erfiðleikum í HM
Morgunblaðið/Gunnar Rúnar Sverrisson
STEPHEN Hendry frá Skotlandi sigraði Jason
Ferguson frá Englandi 10-8 í fyrstu umferð heims-
meistarakeppninnar í snóker sem hófst í Sheffield
í Englandi um helgina. Hendry er talinn sigur-
stranglegastur enda stefnir hann að því að verða
heimsmeistari í sjötta sinn. Hendry virtist þó ekki
líklegur sigurvegari því Ferguson komst í 6-3 en
sá sigrar sem fyrr vinnur tíu ramma. Takist
Hendí-y að sigra í mótinu verður hann sá þriðji
sem sigrað hefur sex sinnum, hinir eru Steve
Davis og Ray Reardon.
Steve Davis, sem hefur orðið sex sinnum heims-
meistari, átti líka í erfiðleikum — var undir gegn
Willie Thome, 5-8, en fagnaði sigri 10-8. „Ég get
kennt sjálfum mér um hvemig fór,“ sagði Thorne.
KNATTSPYRNA
borðtennis á EM
LANDSLIÐ íslands í karla og kvennaflokki í borð-
tennis tekur þátt í Evrópumeistaramóti landsliða
í Slóvakíu dagana 26. apríl til 7. maí. Karlaliðið
er skipað Guðmundi Stephensen, Víkingi, Ingólfi
Ingólfssyni, Víkingi, og Kjartani Briem úr KR. í
kvennaliðinu leika Lilja Rós Jóhannesdóttir, Eva
Jósteinsdóttir og Líney Ámadóttir, allar úr Vík-
ingi. Landsliðsþjálfari er Peter Nilsson.
Karlaliðið mætir landsliði Eistlands, Litháen,
Möltu, ísraels og Sviss en konur Albaníu, Noregi,
Lúxemborg, Lettlandi og Eistlandi.
Leikið verður bæði í einliða- ogtvíliðaleik og
verða Guðmundur og Ingólfur saman hjá körlun-
um og Eva og Li(ja hjá stúlkunum.
Danir bestir á
EM í badminton
HANDKNATTLEIKUR: GUNNAR GUNNARSSON SKOÐAR TILBOD FRÁ NOREGI / D4