Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 1

Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 1
 u Sérvitur einfari/2 Skáldskapur og blaðamennska/4-5 Ómetanleg gjöf/8 MENNING LISTIR blað(J PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 27. APRIL 1996 Gaf íslenskri list nýja vídd í Listasafni Kópavogs stendur yfír sýning á verkum listakonunnar Barböru Ámason sem var ensk að uppruna en giftist til íslands og bjó hér til dauðadags. Þröstur Helgason litaðist um á sýningunni undir leiðsögn safn- stjórans, Guðbjargar Kristjánsdóttur. minn, HFmm BARBARA Árna- son kom í fyrsta skipti til Islands sum- arið 1936 til að mála. Hún ferðaðist um landið og dvaldi meðal annars i hálfan mánuð í Þjórsárdal og á Þing- völlum. Á síðamefnda staðnum hitti hún ís- lenskan myndlistar- mann sem var að mála í tjaldi, þar var kominn Magnús Á. Árnason sem Barbara var heitbundin viku síð- ar. Þau giftu sig á Eng- landi í byrjun árs 1937 og um vorið fluttu þau til Is- lands þar sem þau bjuggu síðan. Barbara var fædd í Pet- ersfield nálægt Portsmouth í Hampshire á Englandi árið EIN af 50 mynd- skreyting- um Barböru við Passíu- sálmana. 1911. Hún var ein- eggja tvíburi en systir hennar, Ursula, var einnig listhneigð og fékkst við ritstorf. I viðali við Barböru árið 1961 segir hún að dönsk barnfóstra, sem þær systur höfðu á tveggja ára aldri, hafi kveikt áhuga hennar á að teikna og hún hafi ekki hætt því síðan. Sautján ára gaml- ar voru systurnar sendar í listaskólann í Winchester. Þótti það strangur skóli og gafst Ursula upp eftir tvö ár en Barbara þraukaði. Hún sérhæfði sig í grafík sem hún átti eftir að ná undra- verðum tökum á. Þegar hún sótti um inngöngu í lista- SJÁ NÆSTU SÍÐU SÖNGHÓPURINN Móðir jörð ásamt einsöngvurum og hljóm- sveit flytja afrísk-ameríska gosp- el tónlist í Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun sunnudag kl. 20.30, í Breiðholtskirkju mánudaginn 29. apríl kl. 20.30, í Safnaðarheimili Akraneskirkju miðvikudaginn 1. maí kl. 16 og í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 5. maí kl. 16. Sönghópurinn Móðir jörð hef- ur starfað í tæp tvö ár undir nafninu Gospelhópur Söngsmiðj- Móðirjörð unnar og hefur aðallega fengist við að syngja Gospel-tónlist eða svarta rythmatónlist. Sönghópurinn er 20 manna kórhópur og er stjórnandi hóps- ins Esther Helga Guðmundsdótt- ir. Einsöngvarar með kórnum verða; Agnes Erna Stefánsdóttir, Esther Helga Guðmundsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Kristján Helgason, Lára Heiður Sigurbjörnsdóttir, Oktavía Stef- ánsdóttir og Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir. Hljómsveitina skipa Sigrún Gröndal á píanó, Jón Steinþórs- son á bassa og Kormákur Geir- harðsson á trommur. Miðasala er við innganginn og er aðgangseyrir fyrir fullorðna 1.000 krónur og 500 krónur fyr- irbörn. BARBARA lagði grunninn að íslenskri svartlist með tréristum sinum sem hún náði einstaklega góðum tökum á snemma á ferlinum. Bijóstmylkingur, trérista frá 1939. Barbara Árnason í Listasafni Kópavogs Abbado og Baren- boim eigast við um heims væri hún metnaðarlaus og gamaldags. í með- förum hennar hefði níunda sinfónía Beethovens hljómað eins og skuggi af Karajan fyrir 20 árum, en flutningur sinfóníuhljómsveit- ar Chicago í Berlín á fimmtu sinfóníu Tsjækovskís hefði verið „rafmagn- aður“. Þessi viðureign Barenboims og Abbados heldur áfram á næsta ári. Þá kemur Barenbo- im til Berlínar með uppfærslu á Parsif- al eftir Wagner, en Abbado heldur á ný til Salzburg með nýja uppfærslu á Wozzeck eftir Alban Berg í sviðsetningu Peters Steins, sem gat sér frægð í leik- húsinu Schaubúhne, með velska söngv- aranum Bryn Terfel I aðalhlutverki. DANIEL Barenbo- im og samstarfs- menn hans í ríkis- óperunni í Berlín nýttu sér fjarveru Berlínarfílharmón- íunnar um páskana. Á meðan Claudio Abbado hélt með fíl- harmóníuna í árlega för til Salzborgar og setti á svið Otello eftir Giuseppi Verdi með Placido Dom- ingo í aðalhlutverki, lék sinfóníuhljóm- sveit Chicago undir stjórn Barenboims Niflungahringinn í heild sinni í svið- setningu Harrys Kupfers við mikið lof gagnrýnenda. í The Sunday Times sagði að Barenboim væri sennilega fremsti túlkandi verka Richards Wagners á okkar dögum. Þar sagði einnig að þótt Berlínarfíl- harmónían væri ein af bestu hljómsveit- Claudio Abbado Daniel Barenboim Sljórnaði með and- litinu London. Reuter. JAKOV Kreizberg, stjórnandi sinfóníuhljómsveitar Bour- nemouth, neyddist til að stjóma með augabrúnum og andlitshrejrfingum þegar hann missti mátt í vinstri handlegg um síðustu helgi. Hljómsveitin var að flytja Symphonie Fantastique eftir Hector Berlioz í Cambridge á Englandi og hlaut lof fyrir, en á tímabili var hinn rúss- neski stjórnandi í slæmum málum. „Um tíma gat ég alls ekki hreyft vinstri helming líkama míns, ekki einu sinni öxlina,“ sagði Kreizberg í samtali við dagblaðið fhe Times. Hann notaði hægri höndina til að slá taktinn og þykkar, dökkar augabrúnimar og andlitið til að ná fram áhrifum tónlistar- innar. „Verkið er hlaðið ástríðum,“ sagði Kreizberg eftir tónleik- ana og lauk lofsorði á hljóm- sveitina fyrir að koma tónlist- inni til skila þrátt fyrir óvenju- legar stjómunaraðferðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.