Morgunblaðið - 27.04.1996, Page 1
1996
marguniilflfrifr
■ LAUGARDAGUR 27. APRÍL
SUND
Smáþjóðaleikar
Sundið verð-
ur í Laugar-
dalslauginni
STJÓRN Smáþjóðaleika Evrópu
samþykkti á fundi sínum í Reykja-
vík í gær að sundkeppni Smáþjóða-
leikanna hér á landi á næsta ári
fari fram í Laugardalslaug. „Við
lögðum til á fundinum að keppt
yrði í Laugardalslaug, sem er full-
komlega lögleg fimmtíu metra
keppnislaug með átta brautum,"
sagði Ari Bergmann Einarsson, rit-
ari Ólympíunefndar íslands, á fundi
með fréttamönnum i gær. „Satt
best að segja kom það okkur á
óvart hveru ákveðnir félagar okkar
í stjórninni voru. Þeir vildu ekkert
annað,“ bætti Ari við.
„Niðurstaðan er sú að suðlægar
þjóðir hafa ekki stærri áhyggjur en
svo að þær tóku ekki til greina
vamagla okkar ef til kæmi. Það
þarf að gera smábreytingar og þær
nægja,“ sagði Júlíus Hafstein for-
maður Ólympínefndar Íslands. „Við
bentum þeim á að við getum verið
óheppnir með veður en þeir segja
að sama gildi um frjálsíþrótttir og
þær verða í nokkur hundruð metra
fjarlægð. Þeir vildu ekki fara í tutt-
ugu o g fimm metra laugar með fjór-
um eða sex brautum. Þessi niður-
staða er óhreyfanleg fyrir okkur,
þetta er afgreiðsla stjórnarinnar og
yfir þessu ræður ekki Ólympíunefnd
Islands ein. Við erum bara einn
átta aðila. Við getum ekki breytt
þessu enda höfum ekki heimild til
þess.“
Breytingar þær sem þarf að
gera eru að sögn Ara, að loka
þarf aðgengi í grunnu laugina og
hækka vatnsyfirborðið til að fá
yfirfall. Einnig þarf að koma upp
skjóli gegn sunnan- og suðvestan-
áttum.
Jason fer
til Leuters-
hausen
Gerði 15 mörk í æfinga-
leik gegn landsliði Króatíu
JASON Ólafsson hefur ákveðið að taka tilboði
frá þýska félaginu Leutershausen og gerir ráð
fyrir að skrifa undir samning þess efnis um
helgina. Hann gerði samning við ítalska félagið
Brixen í fyrra til tveggja ára með þeim fyrir-
vara að uppsögn væri möguleg eftir ár og nýtti
Jason sér það ákvæði.
„Þótt Leutershausen sé í 2. deild er um að
ræða gamalgróið félag en liðið hafnaði í 2. sæti
1. deildar fyrir þremur árum og hefur sett stefn-
una á að fara upp,“ sagði Jason við Morgunblað-
ið í gær. „Liðið varð í 2. sæti suðurdeildar á
nýliðnu tímabili en félagið er fjársterkt og hefur
meðal annai’s gert samning við póiska skyttu,
bróður Bogdan Wenta, og stendur í samningavið-
ræðum við Valeri Gobin sem hefur leikið á Italíu
í tvö ár. Þvi er um að ræða spennandi dæmi auk
þess sem ég get stundað háskólanám í Heidel-
berg með spilamennskunni og á meiri möguleika
á að leika með iandsliðinu."
Jason kynnti sér aðstæður hjá þýska félaginu
fyrir skömmu og æfði með liðinu en í kjölfarið
gerði það honum tilboð. Hann sagði að þar sem
Þjóðveijarnir vildu helst gera samning til
tveggja ára þyrfti hann að ræða við Aftureld-
ingu því þegar hann hefði farið þaðan hefði
verið um það rætt að hann kæmi aftur eftir tvö
ár.
Króatíska landsiiðið er í æfingabúðum á Ítalíu
o g lék við Brixen sl. miðvikudagskvöld. Króatar
unnu 31:27 en Jason skyggði á mótherjana, gerði
15 mörk, 10 úr 10 tilraunum í fyrri hálfleik og
5 úr 8 tiiraunum eftir hlé. „Ef við vinnum ekki
kærumál erum við úr leik í ítölsku úrslitakeppn-
inni og þótt bikarkeppnin sé eftir var þetta
skemmtilegur endir á vetrinum," sagði Jason.
„Mér gekk mjög vel en Króatía var nánast með
sitt sterkasta lið — allir nema tveir sem iéku í
HM á íslandi spiluðu.“
Söguleg stund
í Tallinn
ÆFINGALANDSLEIKUR Eistlands og íslands í Tallinn
í knattspyrnu síðasta vetrardag vakti athygli fjölmiðla
víða í Evrópu. Sjónvarpsmenn frá Belgíu og Hollandi
fylgdust vel með gangi mála á vellinum, Samtök stað-
reyndafræðinga í knattspyrnu voru í viðbragðsstöðu og
fleiri biðu spenntir eftir hvort feðgar spiluðu í landsliði
í sama leiknum en það hefur ekki gerst í sögu knatt-
spyrnunnar. Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári, sonur
hans, voru í 16 manna hópi íslands og þó þeir hafi
ekki leikið saman skráðu þeir nöfn sín á spjöld knatt-
spyrnusögunnar, en hér til hliðar sést þegar þeir höfðu
hlutverkaskipti - Eiður Smári kom inn á sem varamað-
ur fyrir föður sinn.
■ Strákurinn hæfur/D2
IVIiðar
opnunarleikinn
IX/lioar
á
23
Wembley
Manchester
juni
8. júní Sviss - England 8 liða úrslit
Hópferð 15. - 20. júní «1 Hópferðir á undanúrslit
15. júní Skotland - England 25. - 28. júní
18. júní Holland - England 1 Manchester og a Wembley 26
19. júní Ítalía - Þýskaland
Miðarnir á Evrópukeppnina Aprwjxe&i■&*#&**■ Jjzmr í
fást hjá okkur! n . . x . *(. r \ r
SamvmnuleríirLaiiilsi/ii
uni
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010
Hótel Sögu viö Hagatorg • S. 562 2277
HalnaHjörðunS. 565 1155
^ Keflavík: S. 421 3400 Akranes: S. 431 3386
Akureyri: S. 462 7200 Vestmannaeyjar: S. 481 1271
Einnig umboðsmenn um land allt
OAtíASj*
FLUCLEIDIR