Morgunblaðið - 27.04.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 27.04.1996, Síða 1
1996 marguniilflfrifr ■ LAUGARDAGUR 27. APRÍL SUND Smáþjóðaleikar Sundið verð- ur í Laugar- dalslauginni STJÓRN Smáþjóðaleika Evrópu samþykkti á fundi sínum í Reykja- vík í gær að sundkeppni Smáþjóða- leikanna hér á landi á næsta ári fari fram í Laugardalslaug. „Við lögðum til á fundinum að keppt yrði í Laugardalslaug, sem er full- komlega lögleg fimmtíu metra keppnislaug með átta brautum," sagði Ari Bergmann Einarsson, rit- ari Ólympíunefndar íslands, á fundi með fréttamönnum i gær. „Satt best að segja kom það okkur á óvart hveru ákveðnir félagar okkar í stjórninni voru. Þeir vildu ekkert annað,“ bætti Ari við. „Niðurstaðan er sú að suðlægar þjóðir hafa ekki stærri áhyggjur en svo að þær tóku ekki til greina vamagla okkar ef til kæmi. Það þarf að gera smábreytingar og þær nægja,“ sagði Júlíus Hafstein for- maður Ólympínefndar Íslands. „Við bentum þeim á að við getum verið óheppnir með veður en þeir segja að sama gildi um frjálsíþrótttir og þær verða í nokkur hundruð metra fjarlægð. Þeir vildu ekki fara í tutt- ugu o g fimm metra laugar með fjór- um eða sex brautum. Þessi niður- staða er óhreyfanleg fyrir okkur, þetta er afgreiðsla stjórnarinnar og yfir þessu ræður ekki Ólympíunefnd Islands ein. Við erum bara einn átta aðila. Við getum ekki breytt þessu enda höfum ekki heimild til þess.“ Breytingar þær sem þarf að gera eru að sögn Ara, að loka þarf aðgengi í grunnu laugina og hækka vatnsyfirborðið til að fá yfirfall. Einnig þarf að koma upp skjóli gegn sunnan- og suðvestan- áttum. Jason fer til Leuters- hausen Gerði 15 mörk í æfinga- leik gegn landsliði Króatíu JASON Ólafsson hefur ákveðið að taka tilboði frá þýska félaginu Leutershausen og gerir ráð fyrir að skrifa undir samning þess efnis um helgina. Hann gerði samning við ítalska félagið Brixen í fyrra til tveggja ára með þeim fyrir- vara að uppsögn væri möguleg eftir ár og nýtti Jason sér það ákvæði. „Þótt Leutershausen sé í 2. deild er um að ræða gamalgróið félag en liðið hafnaði í 2. sæti 1. deildar fyrir þremur árum og hefur sett stefn- una á að fara upp,“ sagði Jason við Morgunblað- ið í gær. „Liðið varð í 2. sæti suðurdeildar á nýliðnu tímabili en félagið er fjársterkt og hefur meðal annai’s gert samning við póiska skyttu, bróður Bogdan Wenta, og stendur í samningavið- ræðum við Valeri Gobin sem hefur leikið á Italíu í tvö ár. Þvi er um að ræða spennandi dæmi auk þess sem ég get stundað háskólanám í Heidel- berg með spilamennskunni og á meiri möguleika á að leika með iandsliðinu." Jason kynnti sér aðstæður hjá þýska félaginu fyrir skömmu og æfði með liðinu en í kjölfarið gerði það honum tilboð. Hann sagði að þar sem Þjóðveijarnir vildu helst gera samning til tveggja ára þyrfti hann að ræða við Aftureld- ingu því þegar hann hefði farið þaðan hefði verið um það rætt að hann kæmi aftur eftir tvö ár. Króatíska landsiiðið er í æfingabúðum á Ítalíu o g lék við Brixen sl. miðvikudagskvöld. Króatar unnu 31:27 en Jason skyggði á mótherjana, gerði 15 mörk, 10 úr 10 tilraunum í fyrri hálfleik og 5 úr 8 tiiraunum eftir hlé. „Ef við vinnum ekki kærumál erum við úr leik í ítölsku úrslitakeppn- inni og þótt bikarkeppnin sé eftir var þetta skemmtilegur endir á vetrinum," sagði Jason. „Mér gekk mjög vel en Króatía var nánast með sitt sterkasta lið — allir nema tveir sem iéku í HM á íslandi spiluðu.“ Söguleg stund í Tallinn ÆFINGALANDSLEIKUR Eistlands og íslands í Tallinn í knattspyrnu síðasta vetrardag vakti athygli fjölmiðla víða í Evrópu. Sjónvarpsmenn frá Belgíu og Hollandi fylgdust vel með gangi mála á vellinum, Samtök stað- reyndafræðinga í knattspyrnu voru í viðbragðsstöðu og fleiri biðu spenntir eftir hvort feðgar spiluðu í landsliði í sama leiknum en það hefur ekki gerst í sögu knatt- spyrnunnar. Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári, sonur hans, voru í 16 manna hópi íslands og þó þeir hafi ekki leikið saman skráðu þeir nöfn sín á spjöld knatt- spyrnusögunnar, en hér til hliðar sést þegar þeir höfðu hlutverkaskipti - Eiður Smári kom inn á sem varamað- ur fyrir föður sinn. ■ Strákurinn hæfur/D2 IVIiðar opnunarleikinn IX/lioar á 23 Wembley Manchester juni 8. júní Sviss - England 8 liða úrslit Hópferð 15. - 20. júní «1 Hópferðir á undanúrslit 15. júní Skotland - England 25. - 28. júní 18. júní Holland - England 1 Manchester og a Wembley 26 19. júní Ítalía - Þýskaland Miðarnir á Evrópukeppnina Aprwjxe&i■&*#&**■ Jjzmr í fást hjá okkur! n . . x . *(. r \ r SamvmnuleríirLaiiilsi/ii uni Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010 Hótel Sögu viö Hagatorg • S. 562 2277 HalnaHjörðunS. 565 1155 ^ Keflavík: S. 421 3400 Akranes: S. 431 3386 Akureyri: S. 462 7200 Vestmannaeyjar: S. 481 1271 Einnig umboðsmenn um land allt OAtíASj* FLUCLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.