Morgunblaðið - 28.04.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.04.1996, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C/D lorjfjirnWflíiiií* STOFNAÐ 1913 96. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stríðsglæpa- menn í finnsk fangelsi? FINNAR hafa tilkynnt Sameinuðu þjóð- unum að þeir séu reiðubúnir að láta stríðsglæpamenn frá Bosníu afplána refsingu sína í finnskum fangeisum. Finnar eru meðal fárra þjóða sem svar- að hafa fyrirspurn SÞ um þetta efni játandi. Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar eru meðal þeirra, sem hafa neit- að að taka á móti dæmdum stríðsglæpa- mönnum frá gömlu Júgóslavíu. Finnar vilja þó ekki taka við pólitískum leiðtog- um þar sem ekki eru sérstakar öryggis- deildir í finnskum fangelsum. Kveðast finnsk fangelsisyfirvöld ekki geta öryggi stríðsgiæpamanna sem dæmdir hafa verið fyrir gróf mannrétt- indabrot og efast einnig um að hægt verði að tryggja öryggi óbreyttra stríðs- glæpamanna. Vilja þau ekki hugsa þá hugsun til enda hvernig finnskir fangar tækju því að meðal þeirra væru menn sem myrt hafa fólk í útrýmingarbúðum. Dýrt að sjóða kaffivatnið DÝRT verður að sjóða vatn í geimnum og dugar ekki venjulegur hraðsuðuket- ill. Hefur bandaríska geimferðastofnun- in NASA ákveðið að verja einni milljón dollara til að þróa aðferðir til að sjóða vatn utan gufuhvolfsins. Við suðu stíga loftbólur upp af botni ketils og leiða hita til kalda vatnsins ofar svo á endan- um verður allt vatnið á iði. Það á sér hins vegar ekki stað í geimnum. Þar myndast einungis ein stór loftbóla og heldur hún kyrru fyrir, límist við botn- inn svo hætta er á að hann þorni og springi. Vísindamenn við Johns Hopk- ins-háskólann í Baltimore munu á næstu fjórum árum reyna að finna lausn á vandanum. Talið er að nota megi hljóð- bylgjur til að hreyfa við loftbólu við suðu í lofttæmi, en líklega verður einnig að mynda rafsvið í sjálfu suðuvatninu. Ofkeyrður af yfirvinnu BLAÐ var brotið í bresku réttarfari í fyrradag er John Walker, deildarstjóra félagsmálastofnunar Norðymbralands- sýslu í Norðaustur-Englandi, voru dæmdar 175.000 punda bætur, jafnvirði 18 milljóna króna, fyrir að vera ofnotað- ur í vinnu. Var héraðsstjórnin dæmd ábyrg fyrir því að hann hlaut tauga- áfall öðru sinni vegna yfirvinnu og starfsálags árið 1987. Fékk hann taugaáfall 1986 og var fjóra mánuði frá vegna veikindanna en ekkert var gert til að draga úr starfsálagi er hann sneri aftur. Reuter LANGAR biðraðir mynduðust strax er kjörstaðir opnuðu vegna þingkosninga í Indlandi í gær. Myndin var tekin í fátækra- hverfi í Nýju Delhí. Kosningarnar fara fram á sex dögum og aðeins opið á hluta kjörstaða í einu svo öryggissveitir geti hindrað kosningasvindl og tryggt að þær fari friðsamlega fram. 590 milljónir Indverja kjósa nýtt löggjafarþing á sex dögum Búast ekki við betri hag með nýrri stj órn Nýju Delhí, Reuter. INDVERJAR flykktust á kjörstaði í tugmillj- ónatali í gær en þá hófust þingkosningar, sem fram fara á sex dögum til þess að örygg- issveitir og starfsmenn kjörstaða geti hindr- að kosningasvindl og tryggt að kosningarnar fari friðsamlega fram. Samkvæmt skoðana- könnunum blasir fylgishrun við Kongress- flokknum en því er spáð að Janataflokkurinn fái flest þingsæti. Kannanir benda einnig til að Indveijar búist ekki við því að hagur þeirra vænkist með nýrri stjórn. Aðeins er kosið í hluta kjörstaða í einu en kosið var í 150 kjördæmum í gær í 14 ríkjum og sambandssvæðum þar sem 160 milljónir manna eru á kjörskrá. Alls eru atkvæðisbærir menn í Indlandi 590 milljónir og kosið er um 545 þingsæti. Jafnframt er kosið til fimm ríkisþinga. Kosningabaráttan hefur farið tiltölulega friðsamlega fram og því til sönnunar er nefnt, að færri en 20 hafa beðið bana í kosn- ingabaráttunni nú miðað við um 300 manns í síðustu kosningum, árið 1991, þ. á m. Rajiv Gandhi fyrrverandi forsætisráðherra. Kosningabaráttan hefur þótt daufleg og er ástæðan sögð sú, að reglum um fjármögn- un hennar og fyrirkomulag hefur verið fylgt hart eftir af yfii-völdum. P.V. Narasimha Rao forsætisráðherra og leiðtogi Kongress-flokksins hefur höfðað til stöðugleika og nauðsynjar þess að ljúka efnahagslegum umbótum, sem orðið hafa til þess að laða að erlendar fjárfestingar í miklu mæli. Hneykslismál hafa einkennt stjórnartíð Raos og hafa margir ráðherra hans yfirgef- ið stjórnina að undanförnu. Því er spáð að Kongress-flokkurinn verði fyrir talsverðu fylgistapi. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur flokkurinn minna fylgis en nokkru sinni eftir stríð en hann hefur verið við völd í Indlandi allar götur frá 1947, að undan- skildu fjögurra ára tímabili. Helsti andstæð- ingur hans er Atal Bihari Vajpyee fyrrver- andi utanríkisráðherra og leiðtogi Janata- flokksins. Talning atkvæða í indversku þingkosn- ingunum hefst 8. maí en þá verður einung- is eftir að kjósa um sex þingsæti. Búist er við að úrslit verði fyrst almennilega ljós 11. KUAKYN Í HÆTTU Hef ríka hreyfi- þörf 20 VJÐSHPHAIVINNIIIÍF Á SUNNUDEGI mmmmi !«( 24 MALNING FRA HÖRPU í 60 ÁR FUGLARNIR ÚR FJÖRUNNI B

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.