Morgunblaðið - 30.04.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
PteripttiMWbÍb
■ ÞRIDJUDAGUR 30. APRÍL
BLAÐ
Sigurður lík-
legastur
sem þjálfari
Keflvíkinga
KEFLVÍKINGAR eru að leita
sér að þjálfara fyrir meistara-
flokk karla í úrvalsdeildinni
næsta vetur. Jón Kr. Gíslason
ætlar ekki að vera áfram með
liðið og eru Keflvíkingar að
leita að erlendum þjálfara.
Takist ekki að finna neinn
slíkan eru mestar líkur á að
Sigurður Ingimimdarson, fyr-
irliði liðsins, taki við, en hann
hefur skilað frábæru starfi
með kvennaliðið undanfarin
ár. Sigurður hefur í hyggju
að hætta sem leikmaður,
hvort sem hann verður þjálf-
ari liðsins eða ekki. Annar
íslenskur leikmaður hefur
einnig sóst eftir því að fá að
taka við þjálfarastarfinu.
Keflvikingar munu verða
með svipað lið næsta vetur
og þeir voru með í vetur.
Davið Grissom hefur ekki
ákveðið hvort hann heldur
áfram eða ekki en Keflvíking-
ar vonast til að hann leiki með
félaginu næsta vetur. Albert
Óskarsson mun líklega eiga
erfitt með að leika næsta vet-
ur þar sem hann hyggur á
flugnám og það fer að mestu
fram á kvöldin.
JUDO
Morgunblaðið/Ásdís
VERNHARÐ Þorleifsson úr KA með gullpeningana, sem hann vann í Drammen.
Vernharð Þorleifsson tvöfaldur Norðurlandameistari í Drammen
Gefur mér aukið sjátfs-
traust fyrir Evrópumótið
BÓNUSTÖLUR
Heildarvinningsupphæð:
45.431.780
941.780
UPPLYSINGAR
• EINN heppinn þátttakandi hreppti
óskiptan fimmfaldan fyrsta vinning í
lottó 5/38 síðasta laugardag. Hann hlaut
í vinning rúmar 18 milljónir króna og var
vinningsmiðinn seldur í Hotanesti,
Melabraut 7, Hafnarfirði.
Vernharð Þorleifsson úr KA varð
um helgina tvöfaldur Norður-
landameistari í júdó í Drammen í
Noregi. Hann sigraði í -95 kg flokki
og eins í opnum flokki. Hann tapaði
ekki glímu allt mótið og vann alla
andstæðinga sína á Ippon. Þetta er
í annað sinn sem Vernharð nær því
að verða tvöfaldur Norðurlanda-
meistari, en það gerði hann fyrst
fyrir tveimur árum er mótið fór fram
í Færeyjum. „Þetta var miklu sterk-
ara mót en í Færeyjum og því er
ég mun ánægðari með árangurinn
núna. Ég er í mjög góðri æfingu og
er bjartsýnn á góðan árangur á
Evrópumótinu í næsta mánuði,"
sagði Vernharð.
Vernharð sagði að allt hafi geng-
ið upp hjá sér og sigurinn í báðum
flpkkunum hafi verið sannfærandi.
„Ég vann alla andstæðinga mína á
Ippon, annaðhvort kastaði þeim eða
náði armlás. Það er ekki þar með
sagt að ég hafi ekki þurft að hafa
fyrir þessu. Ég varð að taka vel á
þessu. Ég er í sjöunda himni og
þessi árangur gefur mér aukið
sjálfstraust fyrir Evrópumótið. Nú
mun ég einbeita mér að undirbún-
ingi fyrir það og þar ætla ég endan-
lega að tryggja mér ólympíusætið,"
sagði hann. Evrópumótið hefst 16.
maí.
Auk Vernharðs kepptu þrír aðrir
íslendingar á mótinu. Eiríkur Ingi
Kristinsson úr Armanni keppti í -71
kg flokki og tapaði glímu um brons-
ið á úrskurði dómara og hafnaði því
í 5. sæti. Sævar Sigursteinsson úr
KA hafnaði í 7. sæti í sama flokki.
Bjarni Skúlason frá Selfossi keppti í
-78 kg flokki og tapaði í fyrstu um-
ferð og fékk ekki uppreisnarglímu.
Kolbeinn Gíslason, formaður
Júdósambandsins, var ánægður með
frammistöðu Vernharðs. „Það má
segja að hann hafi tekið alla and-
stæðinga sína í nefið. Hann er í
gríðarlega góðri æfingu um þessar
mundir. Ef við eigum að gera okkur
einhveijar vonir um að Islendingur
komist á verðlaunapall á Olympíu-
leikunum í Atlanta þá held ég að
Vernharð sé líklegastur til þess. Ég
hef aldrei séð hann glíma eins vel —
einbeittur í öllum glímum sínum,“
sagði formaðurinn.
Svíar voru sigursælastir á mótinu
og unnu fern gullverðlaun, íslend-
ingar komu næstir með tvenn, Dan-
ir og Norðmenn ein en Finnar náðu
ekki Norðurlandameistaratitli að
þessu sinni.
KÖRFUKNATTLEIKUR: TEITUR ÖRLYGSSON VAR BESTUR / B3
1. vinningur er áuetlaður 44 milljónir kr.
Vertu viðbúin(n) vinningi