Morgunblaðið - 04.05.1996, Side 1
fltttrgtntMbifcife
B
1996
LAUGARDAGUR 4. MAI
BLAD
ISHOKKI/HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Keuter
Rúnar djarfari
en Hvell-Geiri
„RÚNAR þræddi sig upp vinstri kantinn með
knöttinn af meiri leikni en saumakonur frá Ma-
deira og var djarfari í leik sinum en sjálfur
HveII-Geiri,“ segir í Gautaborgar-póstinum um
Rúnar Kristinsson, sem átti stórleik með Örgryte
gegn Djurgárden, 3:0. Rúnai’ skoraði síðasta
markið úr vítaspyrnu. Hástemmd lýsingarorð
voru notuð um Rúnai’ og er sagt að hann hafi
borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á vellin-
um. Rúnar var valinn maður leiksins hjá tveimur
blöðum, Gautarborgar-póstinum og Arbetet, einn-
ig sjónvarpsstöðinni TV 4, sem var með viðtal við
Rúnar í gærmorgun. Þá fékk hann fjóra í ein-
kunn af fimm mögulegum þjá tveimur biöðum,
GT og Aftonbladet.
Tveir leikmenn
Ajaxtil AC Milan
TVEIR af lykilmönnum Ajax fara til AC Milan
eftir þetta keppnistímabil. Það eru landsliðsmenn-
irnir Edgar Davids, 23 ára miðvallarspilari, sem
hefuur leikið fimm landsleiki og Michael Reiziger,
23 ára bakvörður, sem hefur leikið sex lands-
leiki. Reiziger mun ekki leika úrslitaleikinn í
Evrópukeppni meistaraliða í Rómaborg, þegar
Ajax mætir Juventus - hann er í leikbanni.
Dortmund með
fimm mörk
LEIKMENN Dortmund bættu heldur betur fyrir
tapið gegn Karlsruhe, 0:5, í sl. viku, með því að
leggja Uerdingen að velli með sömu markatölu I
gærkvöldi í þýsku 1. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu. Jtirgen Kohler gaf tóninn með marki eft-
ir fimm mín., síðan komu mörk frá Jörg Heinrich,
Stefan Reuter, tvö, og Michael Zorc. Dortmund
er með þriggja stiga forskot á Bayern, sem ieikur
í Köln í dag. Andy Möller lék á nýu með Dort-
mund, eftir fimm vikna fjarveru vegna meiðsla.
Kaiserslautern, meistaramir frá 1991, eru í mik-
iUi fallhættu, eftir markalaust jafntefli í Freiburg.
Spenna í
Bratislava
KNATTSPYRNA / SJONVARP
Mikil spenna fyrir síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnará morgun
Stöð 3 sýnir báða topp-
leikina en ekkert á RUV
r
Gróft samningsbrot CSI, segir Ingólfur Hannesson íþróttastjóri RUV
STÖÐ 3 verður með báða leikina ítoppslag síðustu umferðar
ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á morgun í heild í beinni
útsendingu — á sitt hvorri rásinni. Viðureign Middlesbrough og
Manchester United annars vegar og IMewcastle og Tottenham
hins vegar. Sá fyrrnefndi verður á dagskrárrás Stöðvar 3, hinn
á einhverri annarri rás stöðvarinnar og er þetta í fyrsta skipti
sem stöð hérlendis sýnir tvo knattspyrnuleiki í heild beint á
sama tíma. Þar sem allir leikir umferðarinnar fara fram á sunnu-
degi sýnir Ríkissjónvarpið ekki frá þessari síðustu umferð. Stöð
3 hefur einkarétt á ensku sunnudags- og mánudagsleikjunum
hérlendis en Ríkissjónvarpið á laugardagsleikjum.
GEYSILEG spenna og rafmagn-
að andrúmsloft var í gærkvöldi
í íþróttahöllinni í Bratislava í
Slóvakíu þegar Kanadamenn
lögðu Rússa að velli í bráðabana
í vítakeppni 3:2, eftir að jafnt
var eftir venjulegan leiktíma og
framlengingu, 2:2. Kanadamenn
jöfnuðu í leiknum og síðan 1:1
í vítakeppninni, með síðasta
skoti sínu. Þá fór fram bráða-
bani og Sergei Berezin, sem
hafði skorað fyrir Rússa í víta-
keppninni, skoraði, 2:1. Paul
Kariya jafnaði 2:2 með glæsi-
legu skoti — pökkurinn hafnaði
upp í þaknetinu. Markvörður
Kanada, Curtis Joseph, varði
siðan skot Karpovs — sitt þriðja
skot í vítakeppninni — og spenn-
an náði hámarki þegar Yanic
Perreault geystist með pökkinn
að marki Rússa eins og elding,
tók mjaðmasveiflu og lét skotið
ríða af og pökkurinn þaut fram
hjá markverðinum, hafnaði of-
arlega í markinu, við nærstöng.
Kanadamenn fögnuðu geysilega
(sjá mynd fyrir ofan) og leika
til úrslita gegn Tékkum, sem
fyrr um daginn höfðu rústað
Bandaríkjamönnum, skoruðu
tvö mörk fljótlega í leiknum og
lagt grunninn að öruggum sigri,
5:0. Tékkar vonast eftir að vinna
sinn fyrsta heimsmeistaratitil
síðan 1985.
Spennan er í hámarki því úrslitin
í baráttunni um meistaratitilinn
ráðast á morgun — hvort leikmenn
Manchester United eða Newcastle
fagna sigri í deildinni — svo og hvert
þriðja liðið verður sem fellur niður í
1. deild.
„Við erum auðvitað mjög ánægðir
með að geta sýnt báða leikina beint
í heild í stað þess að flakka á milli
þeirra á sömu rásinni. Við finnum
fyrir gríðarlegri spennu og áhuginn
er mikill," sagði Bogi Þór Sigurodds-
son, markaðsstjóri Stöðvar 3, við
Morgunblaðið í gær.
Leikirnir hefjast báðir kl. 15 á
morgun og tilkynnt verður á dag-
skrárrás stöðvarinnar á hvaða rás
hinn leikurinn verður sýndur.
„Það má segja að við höfum verið
heppnir að úrslitin réðust ekki á
fimmtudag [þegar Newcastle lék
gegn Nottingham Forest] þannig að
Newcastle á enn möguleika á sigri
í deildinni. Menn eru spenntir og ég
hef heyrt margar sögur af því að
menn ætli að stilla upp tveimur sjón-
varpstækjum hlið við hlið,“ sagði
Bogi Þór.
„Gróft samningsbrot CSI“
Ríkissjónvarpið hefur sýnt frá
ensku knattspyrnunni í fjölda ára en
getur ekki sýnt frá lokaumferðinni á
morgun sem fyrr segir. Menn þar á
bæ eru ekki ánægðir með þá niður-
stöðu og Ingólfur Hannesson,
íþróttastjóri RÚV, segir um gróft
samning^brot að ræða af hálfu CSI,
sem sér um sölu sýningarréttar frá
leikjum í Englandi.
„Við gerðum samning síðastliðið
haust sem kveður á um rétt til sýn-
inga frá öllum umferðum sem fara
fram á laugardögum, þar á meðal
síðustu umferðinni laugardaginn 4.
maí og greiddum fyrir það,“ sagði
Ingólfur í gær. „Við höfum síðan
fengið margar staðfestingar á þess-
um leikdegi, en síðan gerist það
fyrir skömmu að síðasta umferðin
er færð yfir á sunnudag, vegna
frestaðra íeikja sem fram fóru nú í
vikunni reikna ég með. Við fengum
endanlega staðfest frá tæknideild
CSI nú í vikunni að báðir leikirnir
yrðu sendir út á sunnudag og allt
sé klárt, en við þurfum að velja
okkur leik. Svo fáum við fréttir af
því að Stöð 3 ætli sér að sýna leik-
ina og þá byijar ballið. En ég vil
taka skýrt fram að það er enginn
ágreiningur við Stöð 3 í þessu máli
— stöðin er bara að gæta hagsmuna
sinna, en við teljum aftur á móti
að um sé að ræða gróft samnings-
brot af hálfu CSI. Við erum búnir
að borga fyrir leik í þessari umferð
og þeir eru skuldbundnir að láta
okkur hafa þá leiki sem um er að
ræða,“ sagði Ingólfur. „Þegar svona
frumskógarlögmál er í gildi bitnar
þetta á þeim sem síst skyldi — ís-
lenskum áhugamönnum um ensku
knattspyrnuna sem búa utan út-
sendingarsvæðis Stöðvar 3.“
KNATTSPYRNA: „SÁPUÓPERAN" í BÆJARALANDI / B4