Morgunblaðið - 07.05.1996, Síða 5
4 B ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 B 5
KNATTSPYRIMA
KNATTSPYRNA
Þriðji meistaratitill Man. United áfjórum árum
Gáfúmsl aldrei
upp þó baráttan
virtist vonlaus
MANCHESTER United varð enskur meistari íknattspyrnu íþriðja
skipti á fjórum árum og tíunda sinn alls á sunnudag, eftir ein-
hverja eftirminnilegustu og mest spennandi baráttu í sögu ensku
knattspyrnunnar. Newcastle, sem hafði afgerandi forystu á tíma-
bili í vetur, gaf mikið eftir síðustu vikurnar á sama tfma og leik-
menn United tvíefldust - og þegar upp var staðið telja flestir
sigur Manchester-liðsins mjög svo sanngjarnan. „Þegar við vor-
um 12 stigum á eftir Newcastle [í janúarj, héldum við í raun og
veru að þetta væri búið en vissum þó að Newcastle myndi gefa
eftir. Við héldum þvi' bara okkar striki; gáfumst aldrei upp þó
baráttan virtist vonlaus á tímabili," sagði Roy Keane, sem út-
nefndur var maður leiksins er United sigraði Middlesbrough 3:0
á útivelli á sunnudag. „Við ætluðum okkur að sigra i' þessum
leik því með því vissum við að titillinn væri okkar, óháð þvi' hvað
gerðist í hinum leiknum." Newcastle gerði aðeins jafntefli, 1:1,
heima gegn Tottenham og munurinn á efstu liðunum var því fjög-
ur stig þegar upp var staðið.
„Arangurinn
í vetur stór-
kostlegur"
ALEX Ferguson hefur byggt
upp stórveldi á ný á Old Traf-
ford. Árin áður en hann kom
til félagsins voru tiltölulega
mögur en hann hefur nú stýrt
liðinu til fimm meistaratitla á
sex árum. Sá sjötti gæti bæst
í safnið um næstu helgi —
þegar United mætir Liverpool
í bikarúrslitaleiknum á
Wembley.
Ferguson var alsæll að
leikslokum í Middlesbrough.
„Það er alltaf erfiðast að
vinna titilinn í fyrsta skipti
en árangurinn í vetur er stór-
kostlegur vegna ýmissa erfið-
leika. Við hófum keppnistíma-
bilið án Ryan Giggs, Andy
Cole, Eric Cantona og Steve
Bruce, sem voru meiddir, auk
þess sem þrír leikmenn voru
seldir í sumar,“ sagði hann,
en þessir þrír voru ekki minni
spámenn en Paul Ince, Mark
Hughes og Andrej Kanchelsk-
is.
„Við lentum í vandræðum
vegna meiðsla leikmanna í
desember og eftir að hafa
tapað fyrir Tottenham á ný-
ársdag vorum við í þeirri
stöðu að ein mistök til viðbót-
ar hefðu gert möguleika okk-
ar á titlinum að engu.“
í þeim 16 deildarleikjum
sem leikmenn United áttu eft-
ir þegar þarna var komið
sögu töpuðu þeir aðeins einu
sinni en Newcastle missti
flugið eftir að hafa verið með
12 stiga forystu 20. janúar.
„Það er alltaf frábært að
sigra í deildinni. Það tók sinn
tíma að þessu sinni en leik-
mennimir voru stórkostleg-
ir,“ sagði Ferguson. „Þegar
við vorum 12 stigum á eftir
[Newcastlej gerðum við okk-
ur grein fyrir því að við yrð-
um að fara að vinna leiki. Þá
fór vömin að leika vel á ný
og við fórum að sigra. Sigur-
inn í Newcastle í mars var
nyög mikilvægur,“ sagði
hann.
egar Ryan Giggs gerði þriðja
og síðasta mark United gegn
Micclesbrough á sunnudag voru níu
mínútur til leiksloka og þá fannst
stuðningsmönnum liðsins tími kom-
inn til að lýsa yfir sigri. Drógu úr
pússi sínu stóran borða sem á stóð
MEISTARAR og hann var látinn
ganga í stuðningsmannahópnum.
Meistarabaráttan var spennandi
en í raun hefðu áhangendur meist-
aranna þó getað dregið borðann
fram talsvert fyrr. Sunnudagsins
var beðið með eftirvæntingu; New-
castle þurfti að sigra og United
helst að tapa til að fyrrnefnda liðið
gæti orðið meistari, en ekki var lið-
in nema rúmlega ein mínúta af leik
þegar sýnt var hvert stefndi.
Lukkudísirnar voru greinilega með
United því Neil Cox, leikmaður
Middlesbrough, fékk dauðafæri
strax í byrjun eftir frábæran undir-
búning Brasilíumannsins Juninho,
en skallaði naumlega framhjá. Þrátt
fyrir ágæta spretti náði liðið aldrei
að ógna marki meistaranna eins og
þarna í upphafi og sigur United var
mjög öruggur.
Varnarmaðurinn David May lék
í stað fyrirliðans Steve Bruce sem
er meiddur, og gerði fyrsta mark
leiksins með skalla eftir hornspyrnu
Ryan Giggs á 13. mín. Þetta var
fyrsta mark May í vetur og kom
sannarlega á réttum tíma.
Kaldhæðni örlaganna
Það þótti síðan kaldhæðni örlag-
anna að Andy Cole skyidi gera
annað mark United, en hann var
mesti markaskorari Newcastle áður
en United keypti hann i fyrra. Cole
hefur ekki þótt leika sérlega vel upp
á síðkastið og byijaði á varamanna-
bekknum gegn Boro, en hann hafði
ekki verið inn á nema í nokkrar
sekúndur er hann skoraði. Hann
kom inn á fyrir Paul Scholes og
kom United í 2:0 með glæsilegu
skoti aftur fyrir sig af stuttu færi
- skoraði í bláhornið er hann snerti
knöttinn í fyrsta skipti!
Giggs gerði svo þriðja markið
sem fyrr segir; fékk knöttinn langt
úti á velli, lék í átt að marki, lét
svo vaða af 20 metra færi með
vinstra fæti og knötturinn söng í
netinu.
United mætir Liverpool í úrslita-
leik ensku bikarkeppninnar á
Wembley næsta laugardag og með
sigri þar verður liðið það fyrsta til
að ná tvennunni eftirsóttu í tví-
gang, en lærisveinar Alex Fergu-
sons urðu bæði deildar- og bikar-
meistarar fyrir tveimur árum.
Fyrirliðinn Steve Bruce, sem ekki
lék vegna -meiðsla sem fyrr segir,
tók við Englandsbikarnum eftir sig-
urinn á Boro. Bryan Robson, knatt-
spyrnustjóri Boro sem lék með
Man. Utd. í 13 ár, fagnaði fyrrver-
andi félögum sínum í tilefni sigurs-
ins og stuðningsmenn heimaliðsins
fögnuðu gestunum einnig - virtust
ánægðir með að nágrannar þeirra
í Newcastle náðu ekki í Englands-
bikarinn.
Til að verða meistari þurfti
Newcastle að sigra Tottenham á
heimavelli en liðið varð að sætta
sig við jafntefli. Forráðamenn deild-
arkeppninnar voru með bikar á
báðum stöðum, í Newcastle og
Middlesbrough, en vildu ekki skýra
frá því hvor væri eftirlíking og hver
hinn eini sanni. En þegar upp er
staðið er eftir frábært keppnistíma-
bil eins og boðið hefur verið upp á
í Englandi í vetur er hins vegar
aldrei nema einn sannur meistari,
og í þetta skipti er það Manchester
United. Sigur liðsins dró þó ekki
máttinn úr stuðningsmönnum
Newcastle á sunnudagskvöldið.
Áhangendur United fögnuðu kröft-
uglega alla leið heim en á sama
tífna var mikil gleðihátíð í miðborg
Newcastle - þótt liðið yrði ekki
meistari eru stuðningsmenn liðsins
ánægðir með hve liðið er orðið gott.
Tottenham komst yfir gegn
Newcastle á St. James’ Park er
Jason Dozzell skoraði á 54. mín.
en Les Ferdinand jafnaði á 71. mín.
Man.Cityféll
Fögnuður hinna rauðu í Manc-
hester var mikill á sunnudag en
þeir bláklæddu, leikmenn og stuðn-
ingsmenn Manchester City, voru í
öðrum sporum eftir leiki síðustu
umferðarinnar.
Eftir 2:2 jafntefli gegn Liverpool
á Maine Road féll liðið í 1. deild;
var með jafn mörg stig og Co-
ventry og Southampton en lakara
markahlutfall. Liverpool komstyfir
er Steve Lomas skoraði sjálfsmark
eftir aðeins sex mínútur og Ian
Rush kom gestunum í 2:0 með
glæsilegu skoti. Þetta var 229.
mark Rush fyrir Liverpool og það
síðasta í deiidinni, en hann fer nú
frá félaginu eftir 15 ára dvöl.
Uwe Rösler minnkaði muninn
fyrir City úr vítaspyrnu á 71. mín.
og Kit Symons jafnaði á 78. mín.
en það dugði ekki til.
Sheffield Wednesday, Coventry
og Southampton voru öll í mikilli
fallhættu fyrir síðasta leikdag en
það bjargaði þeim að City náði
aðeins jafntefli. Wednesday fékk
40 stig, en Coventry og Southamp-
ton bæði 38.
Farsæll þjálfari
Reuter
ALEX Ferguson hefur verið afar farsæll síðan hann tók við stjórninni á Old Trafford. Margir
vildu hann í burtu fyrstu árin, stjórnin stóð við bakið á honum og árangurinn lét ekki á sér
standa. Hér er Ferguson (t.h.) og aðstoðarmaður hans Bryan Kidd, fyrrum leikmaður og Evrópu-
meistari með Manchester United 1968, með Englandsmeistarabikarinn.
Reuter
ERIC Cantona hefur átt stóran þátt í velgengni Manchester United.
Berjumst við þá aftur næsta vetur
„VIÐ erum enn að reyna að byggja
upp jafn gott lið og þeir hafa á að
skipa. Við óskum Manchester United
og stuðningsmönnum liðsins til ham-
ingju,“ sagði Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri Newcastle, eftir að úr-
slitin lágu Ijós fyrir á sunnudag.
„Við munum berjast við þá aftur
næsta keppnistímabil. Við munum
leika eins næsta vetur og við höfum
gert; skorum mikið af mörkum og
mörk verða skoruð. gegn okkur,“
sagði hann en sumir gagnrýndu
Keegan vegna þess hve mikia
áherslu hann lagði á sóknarleik í
vetur, oft á kostnað varnarinnar.
„Allir tala um hrun okkur en það
var mikið afrek hjá Manchester
United að ná okkur,“ sagði Keegan.
Sum ensku sunnudagsblaðanna birtu
frétt þess efnis að Keegan væri á
förum frá Newcastle en hann sagði
þær úr lausu lofti gripnar. „Þetta
er algjört rugl,“ sagði Keegan.
Peter Beardsley, hinn gamal-
reyndi leikmaður Newcastle, sagði
leikmemi Man. Utd. eiga heiður skil-
ið fyrir frammistöðuna. „Þeir sigr-
uðu á sannfærandi hátt og sennilega
mjög verðskuldað,“ sagði hann.
Chiesa verður
stiama í EM
ENRICO Chiesa, miðherji Sampdoria, skoraði tvö mörk gegn AC
Milan, sem varð að sætta sig við þriðja ósigurinn á ítaliu í vetur,
0:3. Chiesa, sem fer líklega til Parma eftir keppnistímabilið fyrir
rúman milljarð ísl. krónu, skoraði eftir aðeins 60 sek. og bætti
öðru marki við á 35. mín. og var það glæsilegt — Sebastiano
Rossi, markvörður, réð ekki við skot hans af 20 m færi, knötturinn
hafnaði efst upp í markhorninu. Roberto Mancini skoraði þriðja
markið.
Fabio Capello, þjálfari AC Milan,
sagði eftir leikinn að Chiesa
yrði einn af ungu leikmönnunum
sem koma til með að skjótast upp á
stjörnuhiminninn í EM í Englandi í
sumar. „Chiesa hefur yfir miklum
hæfileikum að ráða. Við eigum ekki
betri miðheija.“
Chiesa, sem hefur ekki leikið
landsleik, hefur skorað 22 mörk. Það
verður erfitt fyrir Arrigo Sacchi,
landsliðsdþjálfara Ítalíu, að ganga
fram hjá honum þegar hann velur
EM-hópinn sinn. Sacchi sá hann
skora bæði mörk Samdoría gegn
Inter á dögunum 2:0, sagði þá: „Chi-
esa lék fullkominn leik.“ Svíinn Sven
Eriksson, þjálfari Sampdoría, segir
að það sé enginn miðheiji betri á
Ítalíu um þessar mundir og Chiesa.
„Hann er leikmaður í hæsta gæðar-
flokki." Þessi mikli markaskorari
er mjög íjölhæfur, getur bæði leikið
á vinstri og hæri vængnum, er jafn-
vígur á báðar fætur. Menn telja það
sterkt fyrir Sacchi að hana hann í
liði sínu í EM. Chiesa hefur verið
líkt við Paolo Rossi og „Toto“
Schillaci. Rossi lék aðeins tvo lands-
leiki fyrir HM 1978 í Argentínu, þar
sem hann kom, sá og sigraði.
Schillaci hafði aðeins leikið einn
landsleik fyrir HM á Ítalíu 1990,
endaði sem markakóngur.
Chiesa vill sem minnst ræða um
sig og framtíð sína í landsliðspeysu
Ítalíu. „Ég er leikmaður sem hef
ekki enn leikið landsleik, ég er ekki
að fara fram á neitt.“
Þegar hann var spurður hvort að
hann væri að fara frá Sampdoría,
sagði hann: „Það eru meiri líkur á
því en að ég verði áfram með Samd-
oría.“ Það eru einnig meiri líkur á
því að hann leiki í EM í Englandi,
heldur en hann horfi á leiki í Evrópu-
keppninni í sjónvarpi á heimili sinu
á Italíu.
Reuter
CORENTIN Martins, fyrirliði
Auxerre, með bikarlnn.
Auxerre
fagnaði
í París
Franz-heppnin
með Bayem
„VIÐ vitum hvað Kostadinov
getur þegar hann kemst á rétt
ról. Hann sýndi okkur það svo
sannarlega,1' sagði Franz Beck-
enbauer, stjórnarformaður Bay-
ern Múnchen, sem gegnir einnig
starfi þjálfara eftir að Otto Re-
hhagel var látinn taka poka sinn,
ánægður eftir sigurleik gegn
Köln 3:2. Talað var um „Franz-
heppni" því að Búlgarinn Emil
Kostadinov hefur átt í erfiðleik-
um í vetur og ekki leikið síðustu
fimmtán leiki Bayern. Becken-
baue.r ákvað að taka Jean-Pierre
Papin út og gefa Kostadinov
tækifæri, sem hann svo sannar-
lega nýtti — skoraði tvö mörk.
Júrgen Klinsmann skoraði þriðja
markið og Lothar Mattháus náði
einnig að skora - sendi knöttinn í
eigið mark, 1:1. Klinsmann skoraði
2:1 og Kostadinov þriðja markið á
62. mín., hafði skorað fyrra mark
sitt eftir aðeins fimm mín. Kölnarar
náðu að svara fyrir sig undir lokin,
er þeir léku einum færri - Karsten
Baumann var rekinn af leikvelli.
Toni Polster skoraði markið úr víta-
spyrnu á 79. mín. Bayern er með
jafn mörg stig og Borussia Dort-
mund, markatala meistaranna er
miklu betri en Bayern, sem leikur
gegn Werder Bremen á útivelli í
kvöld, Dortmund mætir Bayer Le-
verkusen heima. Matthias Sammer
leikur ekki með Dortmund, þar sem
hann tekur út eins leiks bann vegna
tíu guira spjalda. Stöðu hans sem
aftasti varnarmaður tekur Brasilíu-
maðurinn Julio Cesar. Dortmund
leikur úti gegn 1860 Múnchen á
laugardaginn og síðasti leikurinn
verður gegn Freiburg heima viku
síðar. Bayern á eftir tvo útileiki - í
Bremen og gegn Schalke á laugar-
daginn, síðasti Ieikurinn verður gegn
Dússeldorf í Múnchen.
Það er fátt sem getur komið í veg
fyrir fall tveggja af þeim flórum lið-
um sem hafa verið í 1. deildarkeppn-
inni frá upphafi, Frankfurt og Kais-
erslautern. Hin liðin sem hafa verið
í deildinni frá upphafi eru Köln og
Hamburger SV.
Meistararnir frá 1991, Kaisers-
lautern, sýndu ekki mikið sem gladdi
augað ! Freiburg, 0:0. Frankfurt
mátti þola skell heima, 0:3, fyrir
Schalke. Bæði Kaiserslautern og
Frankfurt eru fimm stigum á eftir
St. Pauli, sem er í næsta sæti fyrir
ofan þau.
Dragoslav Stepanovic, þjálfari
Frankfurt, segir að ekkert nema
kraftaverk geti bjargað liði sínu frá
falli. „Það er mjög leitt fyrir hina
góðu stuðningsmenn okkar, sem hafa
staðið svo vel við bakið á okkur_ á
erfiðum stundum að undanförnu. Ég
mun vera áfram þó svo við föllum."
Stuttgart mátti þola tap fyrir
Dússeldorf heima, 2:3, og hefur liðið
ekki fagnað sigri í níu síðustu leikjum
sínum.
Coventry sem oft hefur verið
nálægt falli en aldrei farið niður
síðan félagið kom upp í 1. deild,
eins og efsta deildin hét I þá daga,
árið 1967, gerði markalaust jafn-
tefli heima gegn Leeds á sunnudag
og Southampton gerði einnig
markalaust jafntefli - á heimavelli
gegn Wimbledon. Wednesday lauk
hins vegar keppni með 1:1 jafn-
tefli á útivelli gegn West Ham.
Arsenal sigraði Guðna Bergs-
son og félaga í Bolton - sem þeg-
ar voru fallnir í 1. deild - með
mörkum David Platts og Dennis
Bergkamps á síðustu átta mínút-
unum. Sigurinn gerði það að verk-
um að Arsenal leikur í Evrópu-
keppni félagsliða, UEFA-keppn-
inni, næsta vetur. Everton vann
Aston Villa, Blackburn sigraði
Chelsea og Tottenham fékk aðeins
eitt stig í Newcastle og félögin
fengu öll 61 stig. Þau börðust um
Evrópusæti en fyrst Arsenal sigr-
aði varð sá draumur þeirra að
engu.
„Ekki þörf fyrir
mig lengur"
„ÉG SÉ ekki annað en framtíðin sé björt
lyá Liverpool, með þá Robbie Fowler
og Stan Collymore í fremstu viglínii. Ef
annar skorar ekki í leik, þá gerir hinn
það. Robbie er markaskorari af guðs
náð, Stan er stórkostlegur inn í víta-
teignum. Þeir eru stórkostlegir saman,
þaimig að það er ekki þörf fyrir mig
lengur,“ segir markaskorarínn mikli Ian
Rush, sem hefur skorað 346 mörk i 658
leikjum fyir Liverpool — skoraði síðast
gegn Man. Cityá sunnudag. Hann mun
kveðja á Wembley, þegar Liverpool leik-
ur bikarúrslitaleikinn gegn Manchester
United á iaugardaginn. Rush hefur enn
ekki tekið ákvörðun til hvaða liðs hann
fer, en mörg hafa sýnt áhuga að fá hann
til sín.
Atletico Madrid nálgast
meistaratitilinn á Spáni
Atletico Madrid færðist næst
sínum fyrsta meistaratitli á
Spáni í nítján ár, þegar leikmenn
liðsins gerðu góða ferð til Compo-
stela, 1:3. Liðið er nú með fimm
stiga forskot á Barcelona, sem varð
að sætta sig við jafntefli heima
gegn Sevilla, 1:1, og fjögurra á
Valencia, sem er komið í annað
sætið. Þijár umferðir eru eftir á
Spáni.
Atletico, sem varð bikarmeistari
á Spáni á dögunum, fékk óskabyij-
un þegar leikstjórnandinn Jose-Luis
Caminero náði að bijóta ísinn eftir
aðeins átta mín. — rangstöðugildra
leikmanna Composteia brást, Cam-
inero komst einn á auðan sjó og
vippaði knettinum yfir Francisco
Falagan, markvörð. Heimamenn
iéku með tíu leikmenn eftir að
Francisco Villena var rekinn af lei-
kvelli undir lok fyrri hálfleiksins.
Argentyínumaðurinn Diego Sime-
one bætti öðru marki við eftir leik-
hlé, Caminero skoraði þiðja markið
tíu mín. fyrir leikslok, síðasta orðið
áttu heimamenn er Bent Christen-
sen skoraði. Þetta var þrettándi sig-
ur Atletico á útivelli.
Brasilíumaðurinn Viola skoraði
einn eitt markið fyrir Valencia, sem
vann Sporting Gijon í lélegum leik,
1:0.
Króatíumaðurinn Davor- Suker,
sem hafði skorað í öllum leikjum
sinum á Nou Camp-leikvellinum í
Barcelona, náði ekki að að fylgja
því eftir. Hann lagði aftur á móti
upp mark Sevilla og átti síðan skot
sem hafnaði á stöng. Jose Maria
Bakero jafnaði fyrir heimamenn,
1:1.
Real Madrid heldur í vonina að
fá UEFA-sæti með sigri á La Cor-
una, 1:0. Mark liðsins var sjálfs-
mark Brasilíumannsins Donato,
sem skoraði með skalla.
Leikmenn Auxerre átti í miklu
basli með 3. deildarliðið Nimes
í bikarúrslitaleiknum í Frakklandi,
sem fór fram á Parc des Princes í
París á laugardagskvöld. Omar
Belbey kom Nimes yfir með glæsi-
legu marki á 26. mín., eina skot
liðsins að marki Auxerre í fyrri
hálfleik. Franski landsliðsmaðurinn
Laurent Blanc jafnaði í upphafi
seinni hálfleiks — skallaði knöttinn
fram hjá Philippe Sence, mark-
verði, sem var frábær — maður
leiksins. Hann réð ekki við skalla
frá Lilian Laslandes tveimur mín.
fyrir leikslok, varði aftur á móti
vítaspyrnu frá Blanc stuttu síðar.
Nimes, sem er í fallbaráttu í 3.
deild — hefur aðeins unnið sjö deild-
arleiki í vetur — tekur þátt í Evrópu-
keppni bikarhafa, ef Auxerre nær
að tryggja sér Frakklandsmeistara-
titilinn. Leikmenn Nimes eru ungir
að árum, flestir yngri en 23 ára.
Aðeins tveir leikmenn liðsins hafa
leikið í 1. deild, Sence og Christian
Perez.
i