Morgunblaðið - 07.05.1996, Síða 8
KÖRFUKNATTLEIKUR
Meistaramir burstaðir
Chicago Bulls lenti hins vegarítalsverð-
um vandræðum með New York Knicks
SEATTLE SuperSonics rót-
burstaði meistara Houston
Rockets í fyrsta leiknum í átta
liða úrslitum NBA körfuknatt-
leiksins í Bandaríkjunum. Se-
attle hefur löngum verið talið
með gott lið og verið spáð góðu
gengi, en dottið út í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar þar
til í ár. Nú virðist fátt geta
stöðvað liðið í vesturdeildinni,
leiki það eins og það hefur
gert í úrslitakeppninni. Atlanta
komst í átta liða úrslitin með
góðum sigri á útivelli gegn Indi-
ana, Utah tóks loks að sýna
sitt rétta andlit gegn Portland
í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar og Chicago sigraði
Knicks í fyrsta leiknum í átta
liða úrslitunum.
Indiana Pacers tjaldaði öllu sem til
var þegar liðið tók á móti Atlanta
, Hawks í fímmta leik liðanna í fyrstu
umferðinni á sunnudaginn. Stór-
skyttan Reggie Miller var kallaður
til en hann hefur verið frá í einar
þtjár vikur eftir að augnbotninn
brákaðist. En það dugði ekki til.
Atlanta hafði betur og mætir.Or-
lando í næstu unnferð. „Það er frá-
bært að tryggja sig áfram með sigri
á útivelli,“ sagði Mookie Blaylock,
sem var hetja Atlanta, gerði 23 stig,
þar af fímm þriggja stiga körfur.
Sigurinn var sérlega sætur fyrir Atl-
anta því tvö síðustu árin hefur liðið
verið slegið út af Indiana.
Atlanta var yfír lengst af síðari
hálfleik en Indiana aldrei langt undan
og Miller fékk tækifæri á síðustu
sekúndunni til að tryggja liði sínu
sigur, en færið var slæmt og hann
hitti ekki. „Ég er ekki ofurmenni.
Ég gerði það sem ég gat og það
dugði næstum því,“ sagði Miller sem
gerði 29 stig í leiknum.
Utah Jazz komst einnig áfram
eftir fímm leiki, lagði Portland á
útivelli 102:64 og mætir Spurs í
næstu umferð. Karl Malone gerði 25
stig fyrir Jazz og tók 10 fráköst og
John Stockton var með 21 stig og
11 stoðsendingar. Skotnýting Port-
land var 32,9% og leikmenn tóku
aðeins 33 fráköst á meðan leikmenn
Jazz tóku 54.
Jordan með 44 stlg
Flestir sem fylgjast með NBA
deildinni telja nær öruggt að Chicago
Bulls verði meistari í ár og á sunnu-
daginn sigraði liðið í fyrstu viður-
eigninni við New York Knicks 91:84
í annarri umferð úrslitakeppninnar.
Chicago byijaði mjög vel og allt virt-
ist stefna í stórsigur liðsins, en gest-
imir voru á öðru máli og náðu að
jafna í þriðja leikhluta, en lengra
komust þeir ekki. Michael Jordan
gerði 44 stig fyrir Bulls og er þetta
í 29. sinn sem kappinn gerir meira
en 40 stig í leik í úrslitakeppninni.
„Við vorum heppnir að sigra. Við
lékum góða vörn og náðum að gera
fleiri körfur en þeir í lokin,“ sagði
Jordan sem lagðist á sjúkrabekkinn
þegar hann fékk að hvíla enda hefur
hann verið slæmur í baki. Patrick
Ewing fór fyrir liði Knicks með 21
stig og 16 fráköst, en hann hitti
ekki vel, aðeins úr 9 skotum af 23.
Seattle á siglingu
Seattle sá til þess að meistarar
Houston Rockets urðu að þola
stærsta tap sitt í úrslitakeppninni,
lagði meistarana 108:75. Gary Payt-
on gerði 28 stig fyrir heimamenn og
Shawn Kemp 17 auk þess sem hann
tók 12 fráköst en alls tóku leikmenn
Seattle 52 fráköst í leiknum en Hous-
ton aðeins 36. Hakeem Olajuwon
gerði aðeins sex stig fyrir Houston
og tók tvö fráköst og hefur kappinn
aldrei gert eins fá stig í leik í úrslita-
keppninni, raunar skaut hann ekki
nema nlu sinnum I leiknum og segir
það allt sem segja þarf um vöm
Seattle. Alltaf þegar Olajuwon fékk
boltann vom að minnsta kosti tveir
vamarmenn Seattle mættir og
Reuter
MICHAEL Jordan gerðl 44 stlg fyrlr Chicago Bulls þegar llð-
Ið slgraðl Hubert Davls og félaga hjá Knlcks, þrátt fyrir að
þurfa að halda aftur af sér vegna meiðsla f bakf.
Olajuwon komst hvergi. Leikurinn
var í jafnvægi í fyrri hálfleik og
munurinn aðeins 5 stig en þá kom
góður kafli heimamanna sem gerðu
23 stig gegn 4 stigum gestanna og
þar með var ljóst hvort liðið sigraði.
Robert Horry gerði 18 stig fyrir
Houston, en leikmönnum liðsins
tókst aðeins að gera 31 stig í síðari
hálfleik og skotnýting þeirra var
32,5%.
Rudy Tomjanovich, þjálfari meist-
aranna, var hinn rólegasti eftir tap-
ið. „Við urðum dálítið óþolinmóðir í
þriðja leikhluta. Það var eins og ein-
hver stífla gæfi sig, þeir rúlluðu yfir
okkur í hraðaupphlaupum og við réð-
um ekki við neitt. Vörn þeirra var
mjög sterk og greinilegt að þeir vildu
alls ekki að Hakeem fengi boltann.
Engin vörn er samt fullkomin og við
verðum að finna svar fyrir næsta
leik,“ sagði Tomjanovich.
„Þetta var góður sigur en við get-
um samt ekki leyft okkur að fagna
of lengi. Þetta voru bara opnunar-
leikimir í langri skák,“ sagði George
Karl þjálfari Sonics.
ÍSHOKKÍ
Tékkar meistarar
Tékkar urðu á sunnudaginn
heimsmeistarar í íshokkí í
fyrsta sinn, en þeir unnu Kanada-
menn 4:2 í úrslitaleik. Kanada komst
í 1:0 eftir fímm mínútna leik en
Robert Lang jafnaði skömmu síðar
og bætti síðan öðru marki sínu við,
og því sjötta sem hann gerði í mót-
inu. Lang leikur með LA Lakers í
NHL deildinni I Bandaríkjunum og
gerði sex mörk í vetur fyrir liðið.
Kanadamenn náðu síðan að jafna og
þar við sat alveg þar til rétt í lokinn.
Martin Prochazka skoraði þegar
19 sekúndur voru eftir en Pavel Pat-
era átti allan heiðurinn að markinu,
lagði það upp með því að bruna upp
hægri kantinn og gaf á Prochazka.
Síðasta mark leiksins gerði síðan Jiri
Kucera í autt mark Kanadamanna
þegar sex sekúndur voru eftir.
Þetta var í fyrsta sinn eftir að
Tékkóslóvakíu var skipt, sem Tékkar
taka þátt I heimsmeistaramótinu eft-
ir og því fyrsti heimsmeistaratitill
Tékklands. Tékkóslóvakía varð síð-
ast heimsmeistari árið 1985 og þá
voru það einnig Kanadamenn sem
voru lagðir að velli í úrslitum.
Bandaríkjamenn
loks á pall
Þrátt fyrir að sterkasta íshokkí-
deild I heimi sé NHL-deildin í Banda-
ríkjunum hefur bandarsíska landslið-
inu ekki tekist að komast á verð-
launapall á heimsmeistaramótinu
síðan 1962 eða í 24 ár, en þeir brutu
ísinn í ár. Bandaríska liðið sigraði
það rússenska 4:3 eftir framlengingu
í leik um þriðja sætið. Útlitið var
samt ekki bjart framan af því Rúss-
ar gerðu fyrstu tvö mörk leiksins
áður en fímm mínútur voru liðnar.
Bandaríkjamenn virkuðu óöruggir
og Rússar hreinlega yfirspiluðu þá
framan af. Bandaríska liðið náði
undirtökunum í öðrum leikhluta en
það voru samt Rússar sem juku for-
ystu sína I 3:0 áður en Bandaríkja-
menn náðu að skora. Rétt eins og í
leik Rússa og Kanada, þar sem Rúss-
ar komust í 2:0, virtust þeir missa
tökin á leiknum þegar þeir voru
komnir með örugga forystu og það
nýttu Bandaríkjamenn sér, skoruðu
tvívegis fyrir lok annars leikhluta og
jöfnuðu síðan í upphafí þess þriðja.
Raunir Bandaríkjamanna voru
ekki á enda. í framlengingunni gekk
ekkert að skora og þegar 4,36 mínút-
ur voru eftir misstu Bandaríkjamenn
mann útaf, en tókst að skora aðeins
12 sekúndum síðar og það dugði til
að fá bronsverðlaunin.
Reuter
Heimsmeistarar
ROBERT Relchel, fyrlrliði
tékkneska landslíðslns, var
ánægður eftlr leiklnn.
Rodman
einstakur
DENNIS Rodman, sem nú
leikur með Chicago Bulls,
varð fyrstur manna í sögu
NBA körfuknattleiksins til að
vera frákastakóngur með
þremur liðum, Detroit, San
Antonio Spurs og i ár með
Chicago.
Barkley
óhress
CHARLES Barkley er ekki
ánægður þjá Phoenix Suns.
Kappinn var nyög óhress með
að tapa í fyrstu umferð úr-
slitakeppninar fyrir Spurs og
sagði eftir það að hann væri
staðráðinn i að leika að minsta
kosti eitt ár enn í deildinni,
en það væri ekki víst að það
yrði með Phoenix. Barkley á
eitt ár eftir af samningi sínum
við Suns en segist vita að allt
snúist um peninga og við-
skipti i deildinni og þvi geti
vel verið að hann geti fengið
sig lausan, þar sem Suns gæti
þá fengið eitthvert fé til að
kaupa aðra leikmenn.
Lítill áhugi
í Atlanta
MENN eru ekki ánægðir með
gang mála hjá Atianta Hawks,
félaginu sem Ted Timier
fjölmiðlakóngur á. Höllinn þar
sem Haukarnir leika heima-
leiki sina tekur 18.000 manns
i sæti en í tveimur heimaleikj-
um liðsins við Indiana í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar,
tókst ekki að selja 6.000 miða
þannig að áhorfendur voru
„aðeins“ mn 12.000 á hvorum
leik. Mönnum ber ekki saman
um ástæðu svo dræmrar að-
sóknar en sumir segja að þar
sem húsið sé í miðbænum þori
hvitir menn ekki að mæta þvi
þeldökkir eru í miklum meiri-
hluta í miðborg Atlanta.
Wilkens
á förum?
LENNY Wilkens, þjálfari Atl-
anta Hawks, vill að félagið
kaupi betri leikmenn, fyrr sé
ekki hægt að búast við því að
einhver áhugi myndist í borg-
inni fyrir körfuboltaliðinu.
Sagan segir að ef ekki verði
keyptir nýir leikmenn fyrir
næsta keppnistímabil megi al-
veg eins búast við því að hann
hætti. Líklegt er talið að New
York Knicks vijji fá þennan
sigursæla þjálfara.
Aldrei
færri stig
LEIKMENN Portland Trail
Blazers náðu þeim vafasama
heiðri að gera aðeins 64 stig
í fimmta leik liðsins í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar,
gegn Utah Jazz. Alredi hefur
lið gert svo fá stig í leik í
úrslitakeppni NBA. Fyrra
metið átti lið New York
Knicks er liðið lék gegn Pac-
ers í Indiana þann 28. mai
1994, en þá gerði Knicks að-
eins 68 stig. Portland gerði
aðeins 24 stig í fyrri hálfleikn-
um og er það einnig met.
SVIÞJ. / ENGL.: 221 111 12X X12X ITALIA: 211 1 X X 111 XX21