Morgunblaðið - 08.05.1996, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hæstiréttur í Noregi dæmir í máli tveggja íslenzkra togara
Dómur um ólöglegar veið-
ar við Svalbarða staðfestur
HÆSTIRÉTTUR Noregs kvað í
gærmorgun upp dóm í máli togar-
anna Björgólfs og Óttars Birting,
sem staðnir voru að meintum ólög-
legum veiðum á fiskvemdarsvæðinu
við Svalbarða haustið 1994. Hæsti-
réttur staðfesti dóm héraðsdóms
Norður-Tromsfylkis, sem dæmdi
skipstjóra skipanna í sekt og útgerð-
ir skipanna til greiðslu sektar og
upptöku afla og veiðarfæra. Skip-
stjóramir voru sýknaðir af því að
hafa ekki fært veiðidagbók með lög-
mætum hætti en fundnir sekir um
öll önnur ákæruatriði.
í málflutningi fyrir Hæstarétti
lögðu verjendur útgerðanna, Út-
gerðarfélags Dalvíkinga og Skrið-
jökuls á Höfn í Homafírði, áherzlu
á að íslenzk skip hefðu rétt til veiða
á Svalbarðasvæðinu á grundvelli
jafnræðisreglu Svalbarðasáttmál-
ans. Jafnframt færðu þeir rök fyrir
því að reglugerð um veiðar á Sval-
barðasvæðinu ætti sér ekki stoð í
norskum lögum. Loks héldu vetjend-
ur því fram að togararnir hefðu
ekki verið inni á Svalbarðasvæðinu,
þar sem rangir grunnlínupunktar
væru notaðir við að teikna mörk
svæðisins.
Hæstiréttur vísaði öllum þessum
rökum á bug. Hvað varðar jafnræð-
isreglu Svalbarðasáttmálans telur
dómurinn að hún hafi ekki í för
með sér að ekki megi skammta
aðgang að auðlindum þar. Sá að-
gangur sé skammtaður í samræmi
við veiðireynslu aðildarríkjá Sval-
barðasáttmálans á svæðinu og ís-
land búi ekki yfir slíkri reynslu.
Ekki sé því um mismunun á grund-
velli þjóðernis að ræða. Ef öll ríki
gætu gerzt aðilar að Svalbarðasátt-
málanum og krafizt þorskkvóta,
yrði sá kvóti svo lítill að þau væru
í raun útilokuð frá veiðum á Sval-
barðasvæðinu. Hæstiréttur var
skipaður fimm -dómurum og voru
þeir allir sammála um niðurstöðuna.
Látið verði reyna á málið fyrir
Alþj óðadómstólnum
Valdimar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Dal-
víkinga, segir vonbrigði að ekki
hafi verið tekið tillit til raka um
óvissu um grunnlínupunkta, sem
lögmenn útgerðanna hafí fært
fram. Hann segist telja að kominn
sé tími til að íslenzk stjórnvöld láti
reyna á framkvæmd Norðmanna á
Svalbarðasáttmálanum fyrir Al-
þjóðadómstólnum í Haag.
Forsetakosningarnar
Atkvæða-
greiðsla utan
kjörfundar
hafin
SÍÐASTLIÐINN mánudag hófst
hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um allt land utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla vegna kjörs forseta
íslands, sem fram á að fara laugar-
daginn 29. júní næstkomandi, en
einnig er hægt að greiða atkvæði
erlendis í sendiráðum íslands og
hjá ræðismönnum.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfund-
ar fer fram samkvæmt lögum nr.
80/1987 um kosningar til Alþingis
með síðari breytingum. Með breyt-
ingu á kosningalögunum 1987 var
tími til utankjörfundaratkvæða-
greiðslu lengdur úr 4 vikum í 8
vikur fyrir kjördag, og var þetta
gert að ósk framkvæmdastjóra
stjórnmálaflokkanna til að greiða
fyrir kosningum.
Að sögn Jóns Thors, skrifstofu-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu, geta
þeir sem greiða atkvæði utan kjör-
fundar greitt atkvæði aftur, t.d. ef
nýr frambjóðandi, sem viðkomandi
vill greiða atkvæði sitt, kemur fram
eftir utankjörfundaratkvæða-
greiðsluna. Sagði Jón að þegar unn-
ið væri úr utankjörfundaratkvæðum
væri kannað hvort viðkomandi hefði
kosið oftar en einu sinni og reynd-
ist svo vera þá gilti nýjasta atkvæð-
ið.
■i....: ./■/
Morgunblaðið/Júlíus
Högg á hjálmlaust höfuðið
TÍU ára drengur meiddist á höfði þegar hann varð
fyrir rútu á Amarbakka upp úr hádegi í gær. Að
sögn lögreglu var drengurinn á reiðhjóli og vár að
fara yfir götuna á gangbraut þegar rútan kom aðvíf-
andi og ók á hann. Rútubílstjórinn gætti ekki að sér
sem skyldi, því gangbrautin var kirfilega merkt.
Drengurinn hafði heldur ekki gætt fyllstu varúðar,
því hann var hjálmlaus og slasaðist hann á höfði
þegar hann skall í götuna. Að sögn lögreglu voru
áverkarnir þó ekki taldir alvarlegir, en slysið er
kannski dæmigert fyrir hjólreiðaslysin, sem fer ört
fjöigandi þegar sólin hækkar á lofti. Þeim mun nauð-
synlegra er að allir krakkar noti hjálm, sem passar
vel á höfuðið, svo hann veiti sem mesta vernd.
20 mán. fangelsi fyrir að fá fólk
til að skrifa upp á lán með svikum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt 51 árs gamlan mann í 20
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
fyrir fjársvik. Maðurinn er sakfelldur
fyrir að hafa með kerfisbundnum
hætti fengið 12 einstaklinga, aðal-
lega konur, til að taka á sig sam-
tals 16 milljóna króna skuldbinding-
ar, með því að fá fólkið til að skrifa
upp á 29 skuldabréf og víxla á árun-
um 1991 til 1994.
Ein kvennanna hafði átt við alvar-
leg geðræn vandamál að stríða og
önnur var til læknismeðferðar á lok-
aðri geðdeild þegar hún veðsetti
fasteign sína Landsbankanum til
tryggingar 1,5 milljóna króna veð-
skuldabréfaláni sem maðurinn fékk
hjá bankanum.
í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að maðurinn hafi
í fyrstu sagt ábyrgðarmönnunum að
hann þyrfti aðstoð þeirra til þess að
greiða skuldir en þegar á leið að
hann þyrfti að bjarga sér frá gjald-
þroti annars hryndi allt. Hafi hann
gefið vitnunum þá hugmynd að
vandinn væri ekki meiri en fjárhæð
viðkomandi láns sem hann var að
leita eftir að þau tækju eða ábyrgð-
ust fyrir hann.
Ábyrgðarmenn vissu
ekki um heildarskuld
„Ákærði missti dóttur sína á svip-
legan hátt og varð það til þess að
afla honum samúðar vitnanna. Þá
gerði hann mikið úr því við sum vitn-
anna að hann hefði greitt útför dótt-
ur sinnar og leitaði endurtekið að-
stoðar vegna þess,“ segir í dóminum
sem taldi þegar, framburður vitn-
anna og atvik málsins væru virt í
heild, sannað að maðurinn hefði
vakið með fólkinu hugmyndir um
að hann gæti borgað lánin enda
þótt honum hafi hlotið að vera ljóst
að honum væri það ofviða.
Það hafi hins vegar ekki verið
fyrr en eftir að rannsókn málsins
hófst að ábyrgðarmönnunum varð
ljóst hve margir höfðu undirgengist
fjárskuldbindingar fyrir manninn, og
umfang skuldbindinganna. „Það er
álit dómsins að leggja beri framburð
vitnanna til grundvallar um stað-
reyndir þessa máls,“ segir í nið-
urstöðum héraðsdómaranna AUans
V. Magnússonar, Hjördísar Hákon-
ardóttur og Hjartar 0. Aðalsteins-
sonar.
Ófyrirleitni
„Þykir sannað að ákærði hafi með
kerfisbundnum blekkingum og svik-
samlegurn hætti fengið tiltekna ein-
staklinga til þess að taka á sig fjár-
skuldbindingar eins og lýst er í
ákæru og með því stefnt fjárhagsleg-
um hagsmunum þeirra í hættu í öll-
um þeim tilvikum sem greinir í
ákæruskjali.“
Þetta var níundi refsidómurinn
sem maðurinn hlýtur fyrir fjársvik.
Við ákvörðun refsingar leit dómur-
inn til þess að hann náði til sín
umtalsverðum fjárhæðum og stefndi
fjárhag fjölda manna í hættu. „Þá
þykir atferli ákærða og viðhorf til
brotaþola bera vott um ófyrirleitni
og eindreginn brotavilja auk þess
að ákærði virtist kæra sig kollóttan
um afleiðingar verka sinna,“ segir í
dóminum.
Auk 20 mánaða fangelsisvistar
var manninum gert að greiða sak-
sóknarlaun, málsvarnarlaun til
Brynjars Níelssonar hdl., og um
1.480 þúsund krónur í skaðabætur
til þeirra fjögurra ábyrgðarmanna
sem lýstu kröfum á hendur honum
í málinu.
Anton
Ingvason
dæmdur í
30 daga
fangelsi
HÆSTIRÉTTUR í Noregi hefur
staðfest niðurstöðu héraðsdóms-
ins í Tromsö vegna Antons
Ingvasonar, stýrimanns á Há-
gangi II. frá því í nóvember
árið 1994. Anton er dæmdur í
30 daga óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir að hafa skotið úr hagla-
byssu að norskum strandgæslu-
mönnum á Svalbarðasvæðinu
þann 5. ágúst 1994. Fimm daga
gæsluvarðhald í Noregi dregst
frá dóminum. Hæstiréttur felldi
úr gildi héraðsdóm yfir Eiríki
Sigurðssyni, skipstjóra, og út-
gerð Hágangs II. Héraðsdómur
sýknaði tvímenningana af ákær-
um um brot á fiskveiðilöggjöf-
inni með því að hafa ekki sinnt
fyrirmælum strandgæslunnar
um að stöðva ferð skipsins og
hleypa strandgæslumönnum um
borð eftir að skotið hafði verið
af haglabyssunni.
Frumvarp um
réttindi og- skyldur
ríkisstarfsmanna
Langar um-
ræður og
harðar deilur
ÖNNUR umræða um frumvarp-
ið um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins hófst um miðjan
dag á Alþingi í gær. Stjómar-
andstæðingar fluttu langar ræð-
ur og gagnrýndu frumvarpið og
einstök ákvæði þess harðlega.
Seint í gærkvöldi voru enn á
annan tug þingmanna á mæ-
lendaskrá og var ekki búist við
að tækist að ljúka umræðunni í
nótt.
Jafnréttisráðgjafi
Hildur ráðin
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
með þremur atkvæðum að ráða
Hildi Jónsdóttur jafnréttisráð-
gjafa Reykjavíkurborgar
Hestur spark-
aðiíbarn
HESTUR sparkaði í höfuð fimm
ára gamals bams í Árbæjar-
hverfi í gærkvöldi. Hesturinn
gekk laus í íbúðahverfinu.
Bamið var með sár á auga-
brún og enni og var flutt á slysa-
deild. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu var ekki vitað hvort
bamið hefði höfuðkúpubrotnað.
MORGUNBLAÐINU í dag
fylgir fjögurra siðna auglýs-
ingablað frá BYKO.