Morgunblaðið - 08.05.1996, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
\
FRÉTTIR
Utandagskrárumræða um kaup
ríkisins á íslenska menntanetinu
Almennur stuðn-
ingur þingmanna
Logaði út um
risglugga
ALÞINGISMENN lýstu í utandag-
skrárumræðu í gær almennt yfir
stuðningi við kaup menntamálaráðu-
neytisins á hluta af búnaði íslenska
menntanetsins ehf.
Nokkur gagnrýni kom fram á að
fjárlaganefnd skyldi ekki höfð með
í ráðum. Jón Kristjánsson, formaður
nefndarinnar, sagðist telja rétt að
hafa samráð við fjárlaganefnd um
mál af þessu tagi á frumstigi. Hins
vegar væri umrætt mál ekkert eins-
dæmi og sagðist Jón út af fyrir sig
telja ráðstöfun menntamálaráðherra
skynsamlega.
Sighvatur Björgvinsson Alþýðu-
flokki óskaði eftir umræðunni og
spurði Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra m.a. um hvað hefði verið
innifalið í kaupum ríkisins á íslenska
menntanetinu. Einnig hvort ekki
hefði verið hægt að kanna hvort
önnur fyrirtæki á þessum markaði
gætu veitt sambærilega þjónustu.
Þá benti Sighvatur á að Alþingi hefði
ekki veitt fjárheimildir til kaupanna
og fjárlaganefnd hefði ekki vitað af
kaupunum fyrr en með bréfi til for-
manns fjárlaganefndar, sem dagsett
var þremur dögum eftir að kaupin
áttu sér stað.
Samið við Kennaraháskóla
Björn sagði að fyrirtækið hefði
ekki allt verið keypt, heldur væri að
ræða kaup á alnetsmiðstöðvum fyrir
Kennaraháskóla íslands og Verk-
menntaskólann á Akureyri svo þessir
skólar geti veitt kennslufræðilega
þjónustu á alnetinu í samræmi við
stefnu ráðuneytisins. Til stæði að
semja við KHI að taka starfsemina
að sér. Ráðuneytið hefði heimildir til
tölvukaupa og þær gætu nýst við
þessi kaup. Þá hefði fjárlaganefnd
verið sent erindi vegna málsins.
Brautryðj endastarf
Margir þingmenn úr öllum flokk-
um tóku til máls og studdu þá
ákvörðun menntamálaráðherra að
tryggja áframhaldandi starfsemi
menntanetsins og afhenda Kennara-
háskólanum það til umsjónar. Nú
væri um 90% skóla á íslandi tengt
alnetinu gegnum menntanetið og það
væri mun hærra hlutfall en í ná-
grannalöndunum.
Sighvatur sagði að ekki mætti
missa sjónar á aðalatriði málsins, að
íslenska menntanetið væri hlutafélag
sem hefði stefnt í gjaldþrot. Það
hefði menntamálaráðherra leyst með
því að veita fyrirtækinu sérstaka
þjónustu og kaupa verðmæti af fé-
laginu fyrir 21 milljón króna.
Þá væri spurning hvað ráðherrann
hefði keypt. Fyrir lægi að búnaður,
sem keyptur var, væri 9-9,5 milljóna
króna virði, þannig að verið væri að
kaupa eitthvað annað fyrir 10-11
milljónir, svo sem nafn, viðskiptavild,
hugbúnað, sambönd, kennslustofn
og viðskiptasambönd við skóla, eins
og segði í kaupsamningi.
Björn Bjarnason sagðist þeirrar
skoðunar að 21 milljón væru ekki
miklir peningar fyrir þá hagsmuni
sem voru í húfi. Um 300 manns
stunduðu fjarnám gegnum netið. Ef
umrædd starfsemi Islenska mennta-
netsins hefði lagst niður, hefði ríkis-
sjóður lent í mun meiri útgjöldum
við að tryggja þjónustu við þessa
nemendur og skólakerfið sem tengist
netinu gegnum fyrirtækið.
ELDUR kom upp í risi Báru-
götu 19 um kl. 2.30 í fyrri-
nótt. Þegar slökkvilið kom að
húsinu, sem er kjallari, tvær
hæðir og ris, logaði út um
glugga á risinu. I fyrstu var
talið að maður væri lokaður
þar inni og brutust reykkafar-
ar inn til Ieitar. Herbergi í ris-
inu reyndust hins vegar mann-
laus. Eldurinn var fljótslökkt-
ur, en allnokkrar reyk- og
vatnsskemmdir urðu á húsinu.
Það er í eigu ríkisins, en Geð-
vernd hefur haft þar aðstöðu
og búa nokkrir einstaklingar
þar á vegum félagsins. Að
sögn slökkviliðsins lék grunur
á að kveikt hefði verið í her-
bergi í risi, en rannsókn á elds-
upptökum er í höndum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Skoðanakönnun BB
—
Funklistinn
stóreykur
fylgi sitt
ísafirði. Morgunblaðið.
FUNKLISTINN, listi framhalds-
skólanema á ísafirði, fær tvo menn | I
kjörna í bæjarstjórn hins nýja sam- j
einaða sveitarfélags á norðanverðum i
Vestfjörðum, ef niðurstaða kosning- j
anna, sem fram fara á laugardag, I
verður í líkingu við skoðanakönnun j
blaðsins Bæjarins besta á ísafirði, i
sem gerð var á föstudag og birtist j
í blaðinu í dag.
10% af kjörskrá spurð
og 80% svöruðu
Líkt og í fyrri könnun blaðsins,
sem gerð var fyrir tveimur vikum,
var hringt í 316 manns, sem svarar
til rúmlega 10% af kjörskrá miðað
við 1. desember sl. Mun betri svörun
var í könnuninni á föstudag en í fyrri
könnun biaðsins, eða 80% á móti
64%. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra
sem tóku afstöðu í könnuninni fær
Alþýðuflokkurinn 7,60% atkvæða og
engan mann kjörinn, Framsóknar-
flokkurinn fær 8,80% atkvæða og
einn mann kjörinn, Sjálfstæðisflokk-
urinn 46,40% og sex menn kjörna,
Funklistinn 17,60% og tvo menn
kjörna og F-listi, Óháðra, Kvenna-
lista og Alþýðubandalags, 19,60%
og tvo menn kjörna.
Flestir vilja
Isafjarðarbæ
Samhliða kosningunum á laugar-
dag fer fram skoðanakönnun á með-
al kjósenda um nafn á hið nýja sam-
einaða sveitarfélag. í könnun blaðs-
ins, þar sem 86% aðspurðra tóku
afstöðu, völdu 52,944% nafnið ísa-
fjarðarbær.
Næstflest atkvæði fékk^ Eyrar-
byggð, 24,63% atkvæða, þá ísafjarð-
arbyggð, 11,39%.
Morgunblaðið/Júlíus
Meirihluti félagsmálanefndar Alþingis leggur til breytingar á frumvarpi um stéttarfélög og vinnudeilur
Forseti ASÍ segir breyt-
ingar á frumvarpinu
engu máli skipta
Meirihluti félagsmálanefndar Alþingis kynnti í fyrradag forystu
verkalýðshreyfingarinnar tillögur um breytingar á stjórnar-
frumvarpi til laga um breytingu á lögum frá 1938 um stéttarfélög
og vinnudeilur. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands
---3»------------ ~ ~--------------
Islands, segir breytingartillögumar vera minniháttar og aldrei
verði fallist á lyktir málsins með þessum hætti,
MEÐ breytingum meirihluta fé-
lagsmálanefndar á frumvarpinu er
m.a. felld úr frumvarpinu 1. grein
þess um stofnun vinnustaðafélaga
hjá fyrirtækjum með að lágmarki
250 starfsmenn og um að félags-
svæði stéttarfélags megi aldrei
vera minna en eitt sveitarfélag.
Lagastofnun Háskóla íslands hefur
bent á það í áliti um hvort lagafum-
varpið bryti í bága við stjórnarskrá
og þjóðréttarsamninga að álitamál
sé hvort bann við því að félags-
svæði stéttarfélags sé minna en
eitt sveitarfélag samrýmist alþjóða-
sáttmálum um félagafrelsi eins og
þeir hafi verið túlkaðir, og ekki sé
öruggt að áskilnaður um 250
manna lágmarksfjölda til að stofna
vinnustaðafélag standist.
í stað þessarar greinar frum-
varpsins er í tillögum meirihluta
félagsmálanefndar tekin inn máls-
grein í 2. grein frumvarpsins þar
sem segir að standi fleiri stéttarfé-
lög að gerð kjarasamnings, vinnu-
staðasamnings, vegna félags-
manna á sama vinnustað, skuli
hann borinn sameiginlega undir
atkvæði allra félagsmanna sem
hann taki til og ráði meirihluti nið-
urstöðu.
Lágmarksþátttaka í at-
kvæðagreiðslum samræmd
Önnur aðalbreyting á frumvarp-
inu er sú að í því hefur verið sam-
ræmt hver lágmarks-
þátttaka í atkvæða-
greiðslum þurfi að vera
og er nú í öllum tilfellum
miðað við fjórðung at-
kvæðisbærra félags-
manna. Þannig var í
frumvarpinu gert ráð fyrir að kja-
rasamningur gilti nema hann væri
felldur við leynilega atkvæða-
greiðslu með meirihluta greiddra
atkvæða og minnst fimmtungi at-
kvæða samkvæmt atkvæða- eða
félagaskrá, en nú er miðað við
fjórðungs þátttöku af atkvæða- eða
félagaskrá. Varðandi ákvörðun um
heimild til vinnustöðvunar stétt-
arfélags var í frumvarpinu kveðið
á um þátttöku a.m.k. fimmtungs
atkvæðisbærra félagsmanna, og
þegar vinnustöðvun er einungis
ætlað að taka til ákveðins hóps
félagsmanna á tilgreind-
um vinnustað var gert
ráð fyrir að helmingur
atkvæðisbærra manna
þyrfti að taka þátt í at-
kvæðagreiðslu og meiri-
hluti að styðja tillögu um
vinnustöðvun.
Jafnframt er sú breyting gerð
að samninganefnd eða til þess
bærum fyrirsvarsmönnum samn-
ingsaðila verður heimilt að fresta
boðaðri vinnustöðvun í 28 sólar-
hringa án samþykkis gagnaðila í
stað 14 sólarhringa eins og kveðið
var á um í frumvarpinu, og til-
kynna beri frestunina með minnst
þriggja sólarhringa fyrirvara í stað
eins sólarhrings fyrirvara eins og
sagði í frumvarpinu.
Ákvæði um sameiginlega
miðlunartillögu tekið út
í frumvarpinu var í kafla um
sáttastörf í vinnudeilum kveðið á
um að sáttasemjara væri heimilt
að leggja miðlunartillögu sameigin-
lega undir félög jafnvel án þess að
þau ættu í kjaradeilu, og sameigin-
iegt atkvæðamagn réði úrslitum
um samþykkt tillögunnar eða synj-
un. Þetta telur Lagastofnun HI
fara í bága við samþykktir Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar og
ákvæði frumvarpsins um samþykkt
miðlunartillögu geti ekki talist
samrýmast rétti manna til frjálsra
samninga samkvæmt alþjóðasátt-
málum. Samkvæmt tillögum meiri-
hluta félagsmálanefndar hefur
þetta nú verið tekið út úr frumvarp-
inu og ákvæðijaganna frá 1938
látið standa, að öðru leyti en því að
í frumvarpinu er haldið þeim skil-
yrðum sem sáttasemjari
þarf að uppfylla til að
geta lagt fram miðlun-
artillögu.
Þá leggur meirihluti
nefndarinnar til að ef tvö
eða fleiri félög eða fé-
lagasambönd eigi saman í deilu
geti sáttasemjari borið fram eina
miðlunartillögu er jafnvel taki til
allra deiluaðila og skuli atkvæða-
greiðsla um hana fara fram í sam-
einingu hjá þeim félögum eða sam-
böndum sem tillagan nær til, og
sameiginlegt atkvæðamagn ráða
úrslitum um samþykkt eða synjan.
Tillögurnar breyta engum
grundvallaratriðum
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að á fundi með félagsmálanefnd í
fyrrakvöld hefði_ formönnum lands-
sambanda ASÍ og formönnum
stærstu aðildarfélaganna verið
kynntar breytingartillögur meiri-
hluta nefndarinnar, en einstakar
breytingartillögur hefðu ekki verið
ræddar þar sem ASÍ teldi þær ekki
skipta máli þegar litið væri til
málsins í heild.
„Línan var ein að þessar breyt-
ingartillögur meirihlutá nefndar-
innar breyttu engum grundvallar-
atriðum. Aðalmálið væri eitt og hið
sama; að við vildum komast að að
ræða málið við gagnaðila okkar og
við féllumst aldrei á lyktir málsins j
með þessum hætti eins og nefndin
er að leggja til,“ sagði Benedikt.
„Þarna virðast menn vera fyrirfram
ákveðnir í því að hlaupa á vegginn
og sjá hvað gerist svo. Meirihluti j
nefndarinnar virðist hafa fyrirmæli
um það.“
Benedikt sagðist ekki vera viss
um að nein sérstök viðbrögð yrðu
við þessum breytingartillögum
meirihluta félagsmálanefndar en
málið yrði þó skoðað bet-
ur ef frumvarpið kæmi á
þennan hátt frá félags-
málanefnd. „Menn hafa
sagt eins og m.a. kemur
fram í samþykkt sam-
bandsstjórnarfundar
Verkamannasambandsins í gær
[mánudag], að þetta verði auðvitað
stórmál til trafala þegar kemur að
því að samningar losni næst,“ sagði
Benedikt.
Þátttöku
fjórðungs
félagsmanna
krafist
Hlaupa á
vegginn
og sjá hvað
gerist