Morgunblaðið - 08.05.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Héraðsnefnd lögð niður
HÉRAÐSNEFND ísafjarðarsýslu
verður lögð niður í lok maí næst-
komandi í framhaldi sameiningar
sveitarfélaga _ í Vestur-ísafjarðar-
sýslu og ísafjarðarkaupstaðar.
Verður öllum sjóðum nefndarinnar
lokað 12. maí næstkomandi.
í frétt frá Héraðsnefnd segir að
vegna sameiningarinnar, sem sam-
þykkt var í desember s.l. sé ljóst
að starfsemi nefndarinnar muni
leggjast af í núverandi mynd.
Nefndin hafi verið samstarfsvett-
vangur sveitarfélaganna í Norður
og Vestur- ísafjarðarsýslu frá ár-
inu 1989 en árið 1991 gerðust
Bolungarvík og ísafjörður aðilar
að Héraðsnefndinni.
Ekki grundvöllur
Það er álit Héraðsráðs að ekki
sé lengur grundvöllur fyrir starfi
nefndarinnar og því beri að leggja
hana niður. Tillögur ráðsins þar
um voru sendar til sveitarfélag-
anna í lok janúar s.l. og hafa flest
þeirra samþykkt hana eða ekki
gert athugasemd.
Staðfest hefur verið vinnutilhög-
un við verklok nefndarinnar og
verða reikningsskil fyrir árið 1995
send út til sveitarstjórnanna og
tekin til endanlegrar afgreiðslu á
vorfundi Héraðsnefndar. Unnið
verður að þVí að innheimta gjald-
fallin framlög sveitarsjóðanna til
hinna ýmsu verkefna sem Héraðs-
nefnd hefur haft umsjón með eða
staðið fyrir. Unnið verður að því
að flokka og raða saman öllum
gögnum Héraðsnefndar til varð-
veislu. Öllum sjóðum nefndarinnar
verður lokað 12. maí og endanleg
reikningsskil unnin, endurskoðuð
og lögð fyrir vorfund. Vorfundur
verður haldinn 25. maí, þar sem
endanleg verklok Héraðsnefndar
Ísaíjaraðrsýslu verða staðfest.
Stefáns-
styrkur til
námsmanns
ÁRELÍ A Eydís Guðmundsdóttir
hlaut Stefánsstyrkinn, sem af-
hentur var 1. maí og tók við
honum úr hendi Guðmundar
Gunnarssonar, formanns Menn-
ingar- og fræðslusambands al-
þýðu. Styrkurinn er veittur í
minningu Stefáns Ögmundsson-
ar prentara, sem lét mikið til sín
taka á vettvangi Hins íslenska
prentarafélags, auk þess sem
hann var fyrsti formaður MFA.
Að Stefánsstyrk standa Félag
bókagerðarmanna og Menning-
ar- og fræðslusamband alþýðu.
Hann var nú veittur í sjöunda
sinn og í fyrsta skipti til náms-
manns. Árelía Eydís vinnur nú
að rannsóknum og doktorsverk-
efni við háskólann í Essex í Bret-
landi, en viðfangsefni hennar er
samband verkalýðshreyfingar,
vinnuveitenda og ríkisvaldsins á
undanförnum 10 árum og þær
breytingar sem orðið hafa á þeim
tíma. Styrkurinn í ár nam 230
þúsund krónum.
-----» ♦ ♦-----
Ók út af til að
forðast hnull-
ungaregn
ÖKUMAÐUR fólksbíls neyddist til
að aka út af Suðurlandsvegi, til að
forðast gijóthrun af palli malar-
flutningabíls. Engin yfirbreiðsla var
á pallinum, eins og reglur gera þó
ráð fyrir, en slík yfirsjón er algeng
við malarflutninga, að sögn lögregl-
unnar.
Maðurinn var að aka á Suður-
landsvegi, rétt fyrir ofan Hólmsá
og gegnt Gunnarshólma, þegar
óhappið varð. Á móti honum kom
malarflutningabíll, sem þurfti að
hemla skyndilega vegna kyrrstæðr-
ar bifreiðar á veginum. Þegar flutn-
ingabíllinn hægði skyndilega á sér
fór farmurinn, möl og gijóthnull-
ungar, af stað og kastaðist bæði
fram af bílnum og út af hliðum
hans.
Ökumaður fólksbílsins sá að
hann stefndi inn í hnullungaregnið
og sveigði út af veginum. Það varð
honum til happs að slétt var þar
sem hann fór út af og slapp bíllinn
óskemmdur og maðurinn ómeiddur,
en honum var þó illa brugðið.
Yfirbreiðslur vantar
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn, segir að
flutningabílstjórum sé skylt að
breiða yfir malarhlöss, en því miður
komi oft fyrir að þeir sinni ekki
þeirri skyldu sinni. Mörg dæmi séu
um skemmdir á bílum, sem mæta
malarflutningabílum þar sem farm-
urinn kastist út af á alla kanta, eða
strókurinn stendur aftur af.
Full ástæða sé því til að brýna
menn enn til að fara að reglum í
þessu efni.
VW P0L0
5 gíra handskipting eða sjálfskiptur,
framhjóladrif, 1,0 eða 1,41 bensfnhreyfill,
45 eða 60 hö.
Verð frá kr. 965.000 m/vsk.
775,100 án vsk.
L-n
r"
mmm ■■'***.
VWGOLF
Aflstýri, 5 glra handskipting eða
sjálfskiptur, framhjóladrif, 1,41
bensínhreyfill, 60 hö.
Verð frá kr. 1.197.000 m/vsk.
961.446 án vsk.
Efvið
getum
ekki
hjálpað
VW TRANSPORTER
tvæt Ifingriir, 3ja manna
Aflstýri, 5 gíra handskipting eða
sjálfskipting, framhjóladrif,
2,01 bensínhreyfill, 84 hö. eða
2,41 dísilhreyfill, 78 hö.
Verð frá kr. 1.695.000 m/vsk.
1.361.445 án vsk.
VW CARAVELLA
10 manna
Fólksflutningabifreið, aflstýri, 5 gíra
handskipting eða
sjálfskipting, framhjóladrif,
2,01 bensínhreyfill, 84 hö. eða
2,41 dísilhreyfill, 78 hö.
Verð frá kr.
2.420.000 m/ vsk.
Juiltj/] iJBfijj jlíljlBjljll
Aflstýri, 5 gíra handskipting eða
sjálfskipting, framhjóladrif,
2,01 bensínhreyfill, 84 hö. eða
2,41 dísilhreyfill, 78 hö.
Verð frá kr. 2.159.000 m/vsk.
1.734.136 án vsk.
þer
þágetur
HEKLA
það
énginn!
Allar gerðir Transporter fást fjorhjoladrif nar.
Verð á fjórhjóladrifi frá kr. 235.000.- m/vsk.
yw'/jbUiuHUií/áil
UliJIÍJÍJIi U JJlllJJIJll iiúj l
Aflstýri, 5 gíra handskipting eða
sjálfskipting, framhjóladrif,
2,01 bensínhreyfill, 84 hö. eða
2,4 I dísilhreyfill, 78 hö.
Verð frá kr. 1.970.000 m/vsk
1.582.329 án vsk.
Volkswagen
Oruggur á olla vegu!
R Ú N A