Morgunblaðið - 08.05.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 15
Horfur á auknu framboði á hlutabréfum í ár
Rúmir 6 milljarðar
í hlutafjárútboðum
Hlutafjárútbo ð 1996
; Félag Nafnverð Áætlað söluverð Áætluð tímasetning
Boraev milliónir króna 60 75 Lokið
| Þormóður rammi 100 375 Lokið
Plastprent 30 100 Lokið
íslenski fjársjóðurinn 50 70 Yfirstandandi
I Islenski hlutabréfasj. 100 165 Yfirstandandi
| Sláturfélag Suðurlands 65 98 Yfirstandandi f
Olíufélagið 11 70 Vor
Þróunarfélag íslands 43 50 Vor
| Haraldur Böðvarsson 150 450 Vor
Vinnslustöðin 400 500 Vor
íslenskar sjávarafurðir 100 300 Vor
Kaupfélag Skagfirðinga 200 200 Haust i
Flugleiðir 250 700 Haust
Ehf. Alþýðubankans 300 400 Haust
Marel 25 200 Haust
Ámes 130 150 Haust I
Samvinnuferðir/Landsýn 72 140 Haust
Tæknival 20 60 Haust ^
Síldarvinnslan 48 270 Haust ^
Grandi 150 500 Haust | í|
SRMiöl 120 300 Haust ■§
Skagstrendingur 50 250 Haust 5 Í
SIF 122 350 Haust £
ÚA 150 570 Haust E
; Samtals milljónir króna 6.343 11
HORFUR eru á því að hlutafjárút-
boð verði ríflega tvöfalt hærri að
söluvjrði í ár heldur en á síðasta
ári. Árið 1995 námu hlutafjárút-
boð fyrirtækja og hlutabréfasjóða
um 2,9 milljörðum að söluvirði, en
samkvæmt úttekt Landsbréfa eru
horfur á því að hlutafjárútboð í
ár verði tæplega 6,4 milljarðar að
söluvirði. I nýjasta fréttabréfi
Landsbréfa er því spáð að þetta
aukna framboð muni auka talsvert
á jafnvægi á hlutabréfamarkaði,
en verð muni þó hækka áfram.
Bent er á að eftirspurn hafi
verið mikil eftir hlutabréfum að
undanförnu, m.a. vegna þess að
hlutabréfasjóðir hafi verið að
koma því fé sem þeir tóku inn um
síðustu áramót i ávöxtun. Reikna
megi með því að um helmingur
þeirra 1.500 milljóna sem þá komu
inn renni í hlutabréfakaup.
5-7 milljarða þarf til að
fullnægja eftirspurn
Landsbréf reikna með því að
eftirspurn eftir hlutabréfum muni
áfram vera mjög mikil eða á bilinu
5-7 milljarðar á þessu ári. Þar er
bent á, auk hlutabréfasjóða, aukna
eftirspurn einstaklinga, fagfjár-
festa og lífeyrissjóða. Við þessar
aðstæður sé því eðlilegt að fyrir-
tæki fari að hugsa sér til hreyf-
ings í hlutafjárútboðum. í með-
fylgjandi töflu má sjá lista yfir þau
fyrirtæki sem reiknað er með að
muni auka hlutafé sitt á þessu ári.
Landsbréf benda einnig á að
stórir hlutabréfapakkar kunni að
koma inn á markaðinn síðar á
þessu ári. Þar er m.a. bent á hluta-
bréf Akureyrarbæjar í ÚA, sem
eru um 2 milljarðar að söluvirði,
og hlut ríkis og Reykjavíkurborgar
í Jarðborunum, sem gert er ráð
fyrir að verði seldur á árinu. Auk
þess kunni fleiri fyrirtæki að fara
út í hlutafjárútboð síðar á árinu.
Landsbréf reikna þó með því að
eftirspurn verði áfram meiri en
framboð og hlutabréfaverð fari því
enn hækkandi fram eftir ári.
Óvissa um lögmæti frumvarps um vörugjald
Svar Eftirlitsstofn-
unar EFTA óljóst
VILHJÁLMUR Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis segir ekki liggja ljóst fyrir
hvort að núverandi frumvarp um
breytingar á vörugjaldi fullnægi þeim
kröfum sem ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, hafi gert á sínum tíma. Hins
vegar sé ljóst að afgreiða verði þetta
mál á Alþingi í vor, enda liggi kæra
fyrir EFTA-dómstólnum vegna máls-
ins. Vilhjálmur segist því reikna með
því að nefndin muni afgreiða það frá
sér í þessari viku eða byrjun þeirrar
næstu.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu sl. laugardag, telur Félag ís-
lenskra stórkaupmanna, sem kærði
núgildandi kerfi til ESA á sínum
tíma, að þær breytingar sem frum-
varpið feli í sér dugi ekki til að
mæta kröfum ESA, og í sumum til-
fellum sé jafnvel gengið lengra í
mismunun milli innlendra og er-
lendra framleiðenda.
Ekki hægt að bíða úrskurðar
í prófmáli
Þá hafa Samtök iðnaðarins og
VSÍ einnig lýst yfir óánægju sinni
með frumvarpið, en þó fyrst og
fremst þá liði sem snúa að fjármögn-
un ríkissjóðs á því tekjutapi sem
hann verður fyrir vegna þess.
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi ESA fyrirspurn um málið en
svar stofnunarinnar var, að sögn
Vilhjálms, hvorki fugl né fiskur.
Hins vegar hafi nefndin fengið sent
afrit af beiðni um forúrskurð Evr-
ópudómstólsins í svipuðu máli, sem
ítalskur dómstóll hefur til meðferðar
vegna vörugjaldskerfisins þar í
landi, en það kerfi sé mjög áþekkt
hinu íslenska.
„ítalski dómstóllinn kemst að
þeirri niðurstöðu að vörugjaldskerf-
ið sem slíkt brjóti ekki í bága við
reglur Evrópusambandsins, en leitar
eftir forúrskurði um tvö atriði. I
fyrsta lagi er þar um að ræða mis-
munandi fjárhæð gjaldsins eftir því
hvort varan er erlend eða innlend
og í öðru lagi er óskað eftir úr-
skurði um lögmæti mismunandi inn-
heimtuaðferða."
Vilhjálmur segir að síðara atriðið
sé nokkuð sambærilegt því ákvæði
frumvarpsins að leggja vörugjaldið
á á sölustigi hjá innlendum framleið-
endum, en á innflutningsstigi hjá
innflytjendum. Hann segist telja að
í því kerfi felist nokkur mismunun,
en hins vegar sé ljóst að nefndin
muni ekki getað beðið úrskurðar
Evrópudómstólsins í þessu máli.
Það mál gefi henni hins vegar
hugmynd um hver álitamálin séu
og hvað beri að varast í þessu máli
ef menn vilji vera alveg öryggir um
lögmæti frumvarpsins. „Áð mínu
mati er þessi mismunun byggð á
nokkuð hæpnum forsendum, en það
næst ekki samstaða um aðrar leið-
ir,“ segir Vilhjálmur.
Gjaldeyrisstaða Seðla-
bankans styrkist
GJALDEYRISSTAÐA Seðla-
bankans styrktist um 6,6 millj-
arða króna nettó í apríl. Gjald-
eyrisforði bankans jókst um
rúma 5,2 milljarða króna en er-
lendar skuldir hans lækkuðu um
liðlega 1,3 milljarða. Þessi mikla
aukning á gjaldeyrisforðanum
skýrist að stórum hluta af er-
lendri lántöku ríkissjóðs í apríl,
að því er fram kemur í frétt frá
bankanum.
Andvirði lánsins var að hluta
til varið til endurgreiðslu ann-
arra lána í apríl og afgangnum
verður varið til hins sama í maí-
mánuði. Að frátöldu þessu láni
hefur gjaldeyrisstaða bankans
styrkst um 1,8 milljarða króna í
apríl og samtals um 9,2 milljarða
króna frá því í ársbyijun, en
gjaldeyrisstaða bankans var þá
óvenju slök. Þá hafa net ,ó kröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkis-
stofnanir lækkað um 7 milljarða
í apríl og samtals um röska 12
milljarða frá áramótum. Grunnfé
bankans hefur lækkað um 1,2
milljarða frá ársbyrjun og er það
svipað og á síðasta ári.
Hvað mundir þú gera
ef þú ynnir lOO milljónir
á miðvikudaginn?
r
Til mikils að vinna!
(slensk
Getspá
XVÖFALDUR
pottur
t Víkingalottómu!
£3
Alla miðvikudaga fyrirkl. 16.00.