Morgunblaðið - 08.05.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 19
Njósnaði Wallen-
berg fyrir Banda-
ríkj amenn?
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA tímaritið US
News & World Report heldur því
fram í nýjasta hefti sínu að Sví-
inn Raoul Wallenberg, sem bjarg-
aði þúsundum ungverskra gyð-
inga frá útrýmingar-
búðum nasista í
heimsstyijöldinni síð-
ari, hafi njósnað fyrir
bandarísku leyni-
þjónustuna.
I timaritinu segir
að greinin um Wall-
enberg sé byggð á
hálfs árs rannsóknar-
blaðamennsku í Rúss-
landi, Svíþjóð, Ung-
verjalandi og Banda-
ríkjunum, svo og á
skjölum leyniþjón-
ustunnar CIA, sem
aðgangur var nýlega
leyfður að. Segir í
tímaritinu að þrátt fyrir að skjöl
CIA veiti ekki fullnægjandi upp-
lýsingar um tengsl Wallenbergs
við leyniþjónustuna leiki enginn
vafi á því að hann hafi verið
henni afar mikilvægur.
Sneru baki við
Wallenberg
US News & World Report held-
ur því fram að sovésk yfirvöld
hafi vitað af tengslum Wallen-
bergs við leyniþjónustuna og
hafi því tekið hann höndum i
Búdapest í janúar 1945. Rússar
halda því fram að Wallenberg
hafi látið lífið í sovésku fangelsi
árið 1947 en fjölskylda hans og
vestrænir embættismenn efast
um áreiðanleika þeirra yfirlýs-
inga þar sem fullyrt hefur verið
að hann hafi sést á lífi mun síð-
ar. Eru örlög Wallenbergs enn
þann dag í dag mönnum hulin
ráðgáta.
Mútaði með
bandarísku fé
í US News & World Report
segir að bandarísk yfirvöld hafi
snúið baki við Wallenberg er
hann var handtekinn og að þau
hafi ekkert aðhafst til að fá hann
lausan úr fangelsi. Niðurstaðan
hljóti því að vera sú að hann
hafi verið svikinn.
í tímaritsgreininni segir að
OSS (Office of Strategic Servic-
es), sem var fyrirrennari CIA,
hafi rætt við Wallenberg í Stokk-
hólmi í júní 1944 en hann var
þá starfsmaður
sænsks útflutnings-
fyrirtækis. Hann
hafi verið fenginn til
að njósna fyrir
Bandaríkjamenn og
verið sendur til
Búdapest undir þvi
yfirskini að hann
væri starfsmaður
sænsku utanríkis-
þjónustunnar.
Wallenberg hafi
mútað hernámsliði
nasista með fé sem
bandaríska flótta-
mannaráðið útveg-
aði, til að koma gyð-
ingunum úr landi. Skjöl sem
leynd hefur nú verið aflétt af,
sýna fram á tengsl flóttamanna-
ráðsins við bandaríska njósna-
starfsemi.
Ekki formlega á launaskrá
Fullyrt er að Wallenberg hafi
safnað meiri upplýsingum fyrir
OSS í Ungverjalandi en nauðsyn-
legar voru vegna undankomu
gyðinganna, m.a. um starfsemi
ungversku andspyrnuhreyfing-
arinnar og um þýska og rúss-
neska herinn. Hins vegar er haft
eftir fyrrverandi starfsmanni
leyniþjónustunnar að Wallen-
berg hafi aldrei verið formlega
á launaskrá OSS.
Tímaritið segir að ekki sé enn
vitað hvort Wallenberg hafi boð-
ist til þess að starfa meira fyrir
leyniþjónustuna en til að koma
gyðingunum úr landi. Þá sé ekki
fullljóst hvers vegna sovésk yfir-
völd héldu honum föngnum. Er
sett fram sú tilgáta að Sovét-
menn hafi ætlað sér að framselja
hann til Vesturlanda. Hins vegar
hafi Svíar ekki viljað viðurkenna
að sendifulltrúi þeirra hafi njósn-
að fyrir Bandaríkjamenn og þeir
ekki viljað gangast við Wallen-
berg og því hafi ekki komið til
þess að skipt yrði á honum og
rússneskum njósnara.
Morgunblaðið/Sverrir
GESTIR á ráðstefnu Evrópusambandsins um nýsköpun.
fremst aðgengi að fjármagni og
erfiðleikar við að koma á tæknilegu
og viðskiptalegu samstarfi. Þetta
þekkist vel hér á landi og virðist
af grænbókinni að dæma vera sam-
merkt með evrópskum fyrirtækj-
um,“ sagði ráðherrann.
Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís-
lands, ræddi umhverfi nýsköpunar
á íslandi og sagði afkomu sjávarút-
vegs lengi hafa ráðið hagstjórn.
Aðferðir við hagstjórn hefðu verið
frumstæðar, sveiflur miklar og
verðbólga viðvarandi. Nýsköpun
hefði oftast falist í fjárfestingu í
tækjum og húsum, s.s. togurum,
frystihúsum og virkjunum.
Viðhorf væru að breytast og
mætti rekja það til þess að auðlind-
ir sjávar og gróðurlendis væru full-
nýttar. Hann sagði virðisaukningu
spretta af mannauði, færni og þekk-
ingu, en ekki handafli, auðlindum
og steinsteypu. Virðisaukning yrði
einnig til í þjónustu- og menningar-
iðnaði ekki síður en vörufram-
leiðslu.
Fulltrúi framkvæmdastjórnar-
innar á fundinum var Constant
Gitzinger er starfar hjá vísindadeild
Evrópusambandsins í Lúxemborg.
Forsætisráðherra
í Eistlandi
TIIT Váhi, forsætisráðherra Eist-
lands, og Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra íslands, ræddust við í
Tallinn á mánudag og héldu í gær
sameiginlegan blaðamannafund.
Snerust viðræður þeirra um sam-
Umhverfisrannsóknastofnunin
(EIA), sem hefur bækistöðvar í
London og Washington, sagði í
skýrslu að hvalir og höfrungar
dræpust í sýnu meira mæli nú en
áður vegna mengunar, þynningar
ósonlagsins og loftsiagsbreytinga.
„Þessar hættur eru jafn válegar
og sprengiskutullinn," sagði Allan
Thornton, formaður Umhverfis-
rannsóknastofnunarinnar, á blaða-
mannafundi.
Taki til allra hvala
Breskir þingmenn úr öllum flokk-
um lýstu yfir stuðningi við þessa
áskorun um að framlengja hval-
veiðibannið, sem Alþjóðahvalveiði-
skipti ríkjanna og samstarf á
Eystrasaltinu.
Davíð er nú í þriggja daga heim-
sókn til Eistlands, sem lýkur í dag.
Myndin af Váhi og Davíð var tekin
að loknum fundi þeirra í gær.
ráðið setti árið 1986. Þeir vilja einn-
ig að bannið nái til allra tegunda
hvala og höfrunga. Nú taki það
aðeins til 12 tegunda af 80.
í umræddri skýrslu segir að
1.500 höfrungar hafi drepist í Mið-
jarðarhafinu af völdum veiru, sem
rakin var til mikils magns mengun-
arefna, lítillar fæðu og hás hitastigs
sjávarins.
750 höfrungar í Mexikóflóa og
Vestur-Atlantshafi hafi drepist
vegna veirusýkingar og mengunar,
sem rakin var til óvenjulegs veður-
fars.
Þessi mál verða rædd á fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins í Aberdeen
á Skotlandi 24. til 28. júlí.
Priebke
fyrir rétt
ERICH Priebke, fyrrverandi SS-
foringi, kemur í dag fyrir rétt í
Róm, sakaður um stríðsglæpi í
heimsstyrjöldinni síðari. Priebke,
sem er 82 ára, er ákærður fyrir
aðild að morðum á yfir 300 ít-
ölskum körlum og drengjum í
hellum fyrir utan Róm árið 1944.
Hann flýði til Suður-Ameríku í
stríðslok en var framseldur til
Ítalíu í nóvember sl.
Víg’i skæru-
liða fallið
TALSMENN rússneska hersins
sögðust í gær hafa náð þorpinu
Goiskoje í suðurhluta
Tsjetsjníju á sitt vald en það
hefur verið eitt helsta vígi
tsjetsjenskra uppreisnar-
manna. Hafa Rússar og
Tsjetsjenar barist um þorpið í
rúman mánuð og að sögn
Rússa lét meirihluti skærulið-
anna sem vörðust þar lífið, en
einhveijir hafi þó flúið til fjalla.
Þingmaður
dæmdur fyrir
spillingu
FRANSKUR þingmaður og
eiginkona hans voru í gær
fundin sek um spillingu og
dæmd til 15 mánaða skilorðs-
bundinnar fangelsisvistar
hvort. Patrick Balkany var
borgarstjóri í Levallois og Isa-
belle, kona hans, átti sæti í
héraðsráðinu. Voru þau fundin
sek um að hafa nýtt sér starfs-
krafta þriggja borgarstarfs-
manna í eigin þágu.
Handtökur í
Srebrenica
SERBNESK yfirvöld hafa tekið
höndum þijá múslima sem
skutu upp kollinum í Srebrenica
fyrir skömmu, eftir að hafa
verið í felum frá því í fyrrasum-
ar, í 10 mánuði. Mennirnir eru
allir á þrítugsaldri og földu sig
í skóglendi nærri borginni í
vetur. Þorðu þeir ekki að koma
fram fyrr en þeir töldu sig hafa
vissu fyrir því að stríðinu í
Bosníu væri lokið.
Vilja hálfrar ald-
ar hvalveiðibann
London. Reuter.
UMHVERFISVERNDARSINNAR hvöttu í gær til þess að hvalveiðar
yrðu bannaðar næstu 50 árin á meðan rannsóknir yrðu gerðar á þeim
hættum, sem steðja að hvalastofnum vegna mengunar og loftslagsbreyt-
inga.
KYNNINGARMIÐSTÖÐ
EVRÓPURANNSÓKNA
Atvinnufulltrúi
Akraness
Futidur um styrki til
evrópsks samstarfs á
Akranesi
Fundurinn verður haldinn í sal stéttarfélaganna,
Kirkjubraut 40, fimmtudaginn 9. maí, kl. 15:00.
Dagskrá:
• Möguleikarnir sem íslenskum fyrirtækjum standa til boða í Evrópu-
samvinnu.
• Aðstoð sem Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna veitir fyrirtækjum.
Umsóknarferlið.
•Aðstoð við að kom á viðskiptasamstarfi lítilla og miðlungsstórra
fyrirtækja í Evrópu.
• Evrópustyrkir á sviði iðnaðar- og efnistækni, sérstaklega fyrir lítil og
miðlungsstór fyrirtæki.
• Reynsla af umsóknum vegna samstarfsverkefna á sviði matvæla.
Fundarstjóri verður Brynja Þorbjörnsdóttir atvinnufulltrúi Akraness.