Morgunblaðið - 08.05.1996, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Listahátíð 1996
Berlínar sinfónían
leikur verk eftir Þor
kel Signrbjörnsson
Fantabrögð í
framlengingu
Á EFNISSKRÁ tónleika Berlínar-
sinfóníunnar á Listahátíð 29. júní í
sumar verður meðal annars verk fyr-
ir einleiksfiautu og strengi eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson tón-
skáld, sem nefnist, Col-
umbina. í samtali við
Morgunblaðið sagði
Þorkell að þetta væri
mikili og óvæntur heiður
að þessi þekkta hljóm-
sveit tæki verk eftir sig
á efnisskrá sína. „Eg
held það sé ekki hægt
að segja annað en að
þetta sé mikill heiður
fyrir mig því þetta er
með glæsiiegustu hljóm-
sveitum og það er stór-
viðburður að fá hana
hingað heim.“
Að sögn Þorkels er
Columbina léttstíg tón-
list í átjándu aidar stfl. „Tilurðarsaga
verksins nær aftur um tuttugu ár.
Ég samdi tónlistina við uppfærslu
Þjóðleikhússins á Kaupmanninum í
Feneyjum eftir Shakespeare árið
1976. Sýningin var sviðssett í Fen-
eyjum átjándu aldar og tónlistin tók
mið af þvi. Hugmyndin að þessu
verki fæddist þar en síðan varð þetta
að sjálfstæðu verki fyrir flautu og
strengi.
Þetta verk er nú til
á diski sem kom út hjá
sænsku útgáfunni BIS
fyrir síðustu jól og það
var þar sem stjómandi
Berlínarhljómsveitar-
innar, Vladimir Ash-
kenazy, heyrði verkið
fyrst. Hann hringdi svo
í mig um daginn og
sagði að hljómsveitina
langaði til að leika eitt-
hvað íslenskt og spurði
hvort það væri ekki
sniðugt að hún léki
þetta verk. Ég hélt nú
að það gæti verið gam-
an. Það var einhver
spurning hvort nægur tími gæfist til
að æfa verkið á svo stuttum tíma
en það hefur nú komið í ljós að svo
er. Það verður mjög spennandi að
heyra verk sitt í flutningi þessarar
hljómsveitar.“
Fórnar-
lamba
minnst
VERKAMENN eru þessa dag-
ana að Ieggja síðustu hönd á
listaverk sem afhjúpað verður
9. maí á Poklonnaja-hæð í
Moskvu. Höggmyndin er eftir
georgíska listamanninn Zurab
Tsereteli og sýnir fórnarlömb
helfarar nasista í heimsstyrj-
öldinni síðari.
JÓNAS Ingimundarson píanóleik-
ari heldur tónleika í Stykkishólmi
þann 9. maí nk. Á efnisskránni eru
verk eftir Mozart, Beethoven, og
Chopin.
Jónas Ingimundarson píanóleikari
hélt 30. apríl styrktartónleika vegna
snjóflóðanna á Flateyri. Tónleikarn-
ir voru haldnir í Mötuneyti Kambs
RÍKEY Ingimundardóttir áformar
að halda nokkur tveggja daga helg-
amámskeið á næstu vikum í með-
ferð olíulita, ef næg þátttaka fæst.
í kynningu segir: „Fyrri daginn,
laugardag, er meiningin að fara
eitthvert út i náttúruna með hóp-
inn, t.d. á Þingvelli eða austur fyrir
Qall í leit að freistandi verkefnum
KVIKMYNPm
Laugarásbíó
BRÁÐABANI
„Sudden Death“ ★ ★ ’/i
Leikstjóm og kvikmyudataka: Peter
Hyams. Handrit: Gene Quintano.
Áðalhlutverk: Jean Claude van
Damme, Powers Boothe, Raymond
J. Barry, Dorian Harewood og
Whitney Wright. Universal. 1995.
BRÁÐABANI með belgíska
buffinu Jean Claude van Damme
er enn einn hryðjuverkatryllirinn
frá Hollywood en þar er varla
gerð lengur spennumynd án þess
að í henni séu morðóðir hryðju-
verkamenn að hætti „Die Hard“.
Bráðabani er einskonar sambland
af henni og „Black Sunday“; hóp-
ur morðhunda ræðst inn á íþrótta-
leikvang þar sem fram fer úrslita-
leikurinn í íshokkí, tekur varafor-
seta landsins í gíslingu og hótar
að sprengja allt í loft upp fáist
ekki einhveijar stórkostlegar pen-
ingagjafir í lausnargjald. Hryðju-
verkamenn dagsins eru ekki geð-
bilaðir hugsjónamenn. Þeir eru
miklu líkari geðbiluðum verðbréfa-
sölum talandi um hlutabréf og
bankainnstæður í sínum straufríu
jakkafötum. Myndin er fín afþrey-
ing, of vitlaus til að hægt sé að
taka hana alvarlega og nógu
spennandi til að láta mann gleyma
á Flateyri. Mikil og góð aðsókn var
að tónleikunum.
Að tónleikum loknum var Jónasi
klappað lof í lófa. Jónas gaf alla
sína vinnu í þágu snjóflóðanna og
var aðalhvatamaðurinn að minning-
artónleikunum sem haldnir voru í
Háskólabíói í október sl.
til að festa á strigann, en seinni
daginn munu nemendur undir hand-
leiðslu listakonunnar ljúka verkefni
sínu á vinnustofu hennar í Súðar-
vogi 36.“
Aðeins sjö nemendur verða í
hvetjum hópi. Innritanir eru að
hefjast.
hvað hún er vitlaus.
Peter Hyams leikstýrir van
Damme hér í annað skiptið og
þeir virðast henta hvor öðrum
ágætlega. Hyams hefur gert bestu
van Damme myndirnar, þessa og
„TimeCop“, og er ötull en að sama
skapi ekki sérlega frumlegur
spennumyndaleikstjóri. Á sama
hátt er van Damme ötull en ekki
sérlega frumlegur spennumynda-
leikari. Fyrirmynd hans er Arnold
Schwarzenegger og hann líður
fyrir stöðugan samanburð. Það er
eitthvað ofurmannlegt við Arnold.
Van Damme er eitthvað svo ofur
mannlegur.
Hann er eini maðurinn á ís-
hokkíleikvellinum sem getur kom-
ið í veg fyrir stórslys og Hyams
dælir í hann hasaratriðum. Sögu-
sviðið er notað til hins ýtrasta.
Leikurinn berst um alla íshokkí-
höllina, undir hana, á leikvöllinn
sjálfan þar sem van Damme lend-
ir í hlutverki markvarðar stutta
stund, og upp á hvolfþakið. Pow-
ers Boothe er samviskuleysið upp-
málað sem foringi hryðjuverka-
mannanna og nýtur þess bersýni-
lega að leika óþokkann með leti-
legt fas og kaldhæðni á vörum.
Það á engum að leiðast á mynd-
inni og þeir sem hafa á annað
borð gaman af van Damme ættu
ekki að missa af henni.
Arnaldur Indriðason
Sumri
fagnað
með söng
Hcllu. Morgunblaðið.
UNDANFARIN ár hafa verið
haldnir tónleikar í Oddakirkju í
tilefni sumarkomu en í ár var
brugðið á það ráð að halda þessa
tónleika í Hellubíói, þar sem
kirkjan er allt of lítil til að taka
á móti miklum fjölda tónleika-
gesta. Nokkrir kórar og dúettar
komu fram, en húsfyllir var á
tónleikunum.
Einkennandi fyrir tónleikana að
þessu sinni var sá mikli fjöldi
söngmanna- og kvenna, sem
koma saman og æfa undir
styrkri stjórn Hajldórs Óskars-
sonar organista. Á tónleikunum
söng m.a. Samkór Oddakirkju,
sem er nýkominn heim úr vel-
heppnaðri söngför til Skotlands,
og Barnakór Oddakirkju, en
honum er skipt í tvo kóra eftir
aldri. Þá söng Karlakór Rangæ-
inga og Kór eldri Þrasta frá
Hafnarfirði og að lokum sungu
karlakórarnir saman svo undir
tók í salnum. Auk þess að
stjórna áðurnefndum kórum
stjórnar Halldór einnig Kvenna-
kór Hafnarfjarðar. Undirleikari
á tónleikunum ásamt Halldóri
var Hörður Bragason.
Aukasýningar
á BarPari
VEGNA mikillar aðsóknar hafa
tvær aukasýningar verið
ákveðnar á BarPari eftir Jim
Cartwright. Sýningin er á
Leynibarnum í Borgarleikhús-
inu.
Uppselt er á næstu sýningu
föstudaginn 10. maí og verða
aukasýningar sunnudagin 12.
og laugardaginn 18. maí kl.
20.30.
Saga Jónsdóttir og Guð-
mundur Ólafsson leika hlut-
verkin fjórtán.
Upplýsingar og pöntun í síma 552 4945
Þorkell
Sigurbjörnsson
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FRA styrktartónleikum Jónasar Ingimundarsonar á Flateyri.
Jónas Ingimundarson
leikur í Stykkishólmi
Flateyri. Morgunblaðið.
Helgarnámskeið
í meðferð olíulita