Morgunblaðið - 08.05.1996, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN WmMMAUGL YSINGAR
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Laust er til umsóknar fullt starf þýskukenn-
ara, tæplega hálft starf félagsfræðikennara
og kennsla tveggja hópa í líffræði (6-8 stund-
ir á viku), allt til eins skólaárs vegna orlofa.
Umsóknarfrestur er einn mánuður frá birt-
ingu auglýsingarinnar.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans,
hjá deildarstjórum eða aðstoðarskólameist-
ara í síma 562-8077.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu skólans,
Fríkirkjuvegi 9, á umsóknareyðublöðum sem
þar fást.
Skólameistari.
Múlakaffi-Veisluréttir
óska eftir að ráða þrjá harðduglega mat-
reiðslunema og starfsfólk í sal. Vaktavinna.
Upplýsingar aðeins gefriar á staðnum.
Einnig óskast dugleg, samviskusöm og hress
matráðskona í sérverkefni.
MÚLAKAFFI
VEISLURÉTTIR
FLUCLEIDIR
Viðskiptafræðingur
óskast
Á fjármálaviði Flugleiða er starf viðskipta-
fræðings laust til umsóknar.
Starf þetta felst m.a. í því að aðstoða for-
stöðumann fjárreiðudeildar við innlenda og
erlenda fjárstýringu félagsins.
Félagið leitar eftir duglegum, samviskusöm-
um og metnaðarfullum starfsmanni, sem er
tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni.
Viðkomandi þarf að geta sótt námskeið
erlendis.
Umsækjandi þarf að uppfylla
eftirfarandi:
★ Þekkingu og reynslu á íslenskum fjár-
magnsmarkaði.
★ Reynsla í erlendum gjaldeyrisviðskiptum
æskileg.
★ Góð þekking á PC kerfum, svo sem
Excel, er nauðsynleg.
★ Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Skriflegar umsóknir óskast sendar starfs-
mannaþjónustu félagsins, aðalskrifstofu,
Reykjavíkurflugvelli, eigi síðar en 13. maí.
Starfsmannaþjónusta Flugleiða.
Kjötiðnaðarmeistari
HÖFN - ÞRÍHYRNINGUR HF. óskar eftir að
ráða kjötiðnaðarmeistara til starfa.
Helstu verkefni
Starfsmaður mun sjá um og bera ábyrgð á
stjórnun framleiðsluþátta fyrirtækisins, vöru-
þróun, starfsmannahaldi og að stýra fagleg-
um og almennum störfum í framleiðslu.
Kröfur um hæfni
Starfsmaður þarf að vera meistari í kjötiðn,
hafa reynslu í verkstjórn og einnig innsýn
og þekkingu í vöruþróun. Hann þarf að vera
tilbúinn að leggja sig allan fram og að skapa
liðsheild til að ná árangri. Góð laun eru í boði.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Frek-
ari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
KPMG Sinnu ehf. Farið verður með allar
upplýsingar sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verður svarað. Þeim, er telja sig
uppfylla þær kröfur sem að ofan greinir, er
boðið að senda inn umsókn til KPMG Sinnu
ehf. fyrir 15. maí 1996.
0000Sinna ehf.
Rekstrar- og stjómunarráðgjöf
Vegmúla 3, Sími 588-3375.
108 Reykjavík. Myndriti 533-5550.
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar- og starfsmanna-
mála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting.
Vélstjóra
með full réttindi óskast á Akurey RE-3
í sex mánuði.
Nánari upplýsingar gefur Alfreð
í síma 550-1045 eða 892-2810.
Veiðihús
Óskum eftirað ráða hrikalega duglegar, sam-
viskusamar og reglusamar starfsstúlkur í
glæsilegt veiðihús í unaðsreit á Vesturlandi.
Ekki yngri en 25 ára.
Upplýsingargefur Jóhannes í síma 893 6516.
1. stýrimaður
- afleysingaskip-
stjóri
FRIOSUR SA. útgerðarfyrirtæki í Chile, sem
gerir út fjóra ísfisktogara og rekur frystihús
í suðurhluta Chile, óskar eftir að ráða vanan
1. stýrimann og afleysingaskipstjóra á skip
félagsins. Fjórir íslendingar eru starfandi hjá
fyrirtækinu í dag.
Ráðningartími verður sex mánuðir til reynslu.
Nánari upplýsingar gefur útgerðarstjóri
Granda hf. í síma 5501080.
Lausar
kennarastöður
við Reykholtsskóla
Biskupstungnahreppur auglýsir lausar
kennarastöður við Reykholtsskóla í Biskups-
tungum.
Meðal kennslugreina eru: Almenn kennsla
(yngri börn), danska, íþróttir, raungreinar,
handmennt (smíðar) og safnvarsla/leiðsögn
við bókasafn skólans (hlutastaða).
Umsóknarfrestur er til 7. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn
M. Bárðarson, í síma 486 8830 (486 8708 hs.).
Reykholtsskóli er einsetinn grunnskóli með um 90 nemendur í
1.-10. bekk, góöa vinnuaðstöðu og gott bókasafn. Kennaraíbúð-
ir eru í boði. I Biskupstuggum eru tveir þéttbýliskjarnar, Laugar-
ás og Reykholt (fjarlægð u.þ.b. 100 km frá Reykjavík). í Reyk-
holti er sundlaug, félagsheimili, leikskóli og banki. ( Laugarási
er heilsugæslustöð.
Skólanefnd Biskupstungnahrepps.
RAÐ/\ UGL YSINGAR
KENNSLA
Frá Fósturskóla íslands
Innritun í þriggja ára nám leikskólakennara
við Fósturskóla íslands skólaárið 1996-’97
stendur yfir.
Umsóknarfrestur er til 31. maí nk.
Skólastjóri.
nýi tónlistarsk'Jinn
Frá Nýjatónlistarskólanum
Inntökupróf
fyrir skólaárið 1996-’97 í söng- og hljóðfæra-
deildir verða miðvikudaginn 15. maí.
Upplýsingar og tímaskráning í síma 553 9210
milli kl. 14 og 18.
Nýi Tónlistarskólinn.
TÓNUSMRSKOU
KÓPWOGS
Kammertónleikar
blokkflautudeildar skólans verða haldnir
fimmtudaginn 9. maí kl. 18.00.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Skólastjóri.
HÚSNÆÐ! ÓSKAST
3ja-4ra herb. íbúð óskast
Höfum verið beðin um að útvega 3ja-4ra
herbergja íbúð á Reykjavíkursvæðinu til leigu
fyrir starfsmann.
Upplýsingar veitir Kristín Johansen í síma
568 6700 frá kl. 9 til 17 og í síma 553 0985
á kvöldin.
Rolf Johansen & company.
Finnska sendiráðið óskar
eftir að taka á leigu:
1) Einbýlishús í miðbæ Reykjavíkur frá 1.7.
1996. Æskileg stærð: 3-4 svefnherbergi,
stofa, eldhús, 2 baðherbergi ásamt bílskúr.
2) íbúð eða lítið einbýlishús (ca 120 fm) einn-
ig í miðbæ Reykjavíkur frá 1.7. 1996.
Æskileg stærð: 3 svefnherbergi, stofa,
eldhús, 2 baðherbergi og gjarnan bílskúr.
Svar sendist til Finnska sendiráðsins, póst-
hólf 1060, 121 Reykjavík, sími 562 1577.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kjörs
forseta íslands, sem fram fer 29. júní nk.,
er hafin og fer fram hjá sýslumönnum og
hreppstjórum, svo og í sendiráðum og hjá
ræðismönnum íslands erlendis.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
6. maí 1996.