Morgunblaðið - 08.05.1996, Qupperneq 47
MORGiJNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ1996 47
I
>
)
í
1
>
I
>
)
POWDER
Einangraður frá æsku í dimmum kjallara
fjölskyldunnar kemst POWDER í snertingu
við íbúa bæjarins sem átta sig engan veg-
inn á yfirnáttúrulegum gáfum hans og
getu. Sló i gegn í USA. Sean Patrick Flanery
leikur Powder. Mary Steenburgen (Melvin
and Howard, Philadelphia), Lance
Henriksen (Aliens. Jagged Edge) og Jeff
Goldblum (Jurassic Park, The Fly) í
veigamiklum hlutverkum.
Thx
Byggt á þekktri skáldsögu
Frances Hodgson Burnett.
Ung stúlka, sem alin er upp
á Indlandi, flytur til New
York borgar og finnur sínar
eigin leiðir til að takast á við
söknuð heimaslóða. Fallegt
ævintýri þar sem töfrar og
tilfinningar ráða rikjum.
USl iTN C E
Myndin er frumsýnd á íslandi og í Bandaríkjun-
um á sama tíma. Sharon Stone (Casino, Basic
Instinct) leikur Cindy Liggett sem bíður dauða-
dóms. Ungur lögfræðingur sér að öll kurl eru
ekki komin til grafar. Átakanleg og vel gerð
mynd. Leikstjóri: Bruce Beresford (Silent Fall,
Driving Miss Dasy). Önnur hlutverk Rob
Morrow (Qui2 Show), Randy Quaid (The Paper)
og Peter Gallagher (Sex, Lies and Videotape).
HERRA
GLATAÐUR!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í THX. B.i. 16 ára. ]
Utlending'a-
hljómsveit HÍ
STOFNUÐ hefur verið Útlendingahljómsveit Háskóla ís-
lands. Hljómsveitarstjóri er Lothar Smirnov, nemi í íslensku
og vélaverkfræði við háskólann. Markmið hljómsveitarinnar
er tvíþætt. Annars vegar að hafa gaman af spilamennsk-
unni og hins vegar að spila góða tónlist.
Hljómsveitin hélt fyrstu tónleikana fyrir skemmstu og
þar mættu um 50 manns til að hlýða á lög á borð við „It’s
Only a Papermoon“, „Garota da Ipanema“ og Á Sprengi-
sandi. Að_sögn hljómsveitarmeðlima voru áhorfendur mjög
ánægðir. I hljómsveitinni eru: Deidre Gibbons frá Bandaríkj^.
unum (söngur, mandólín), Eva Cecilia Möne frá Svíþjóð
(söngur, nyckelharpa), Sofía Christína Tingsell frá Svíþjóð
(söngur, píanó), Yoshinoli Kaisaki frá Japan (bassi), Paul
Lambert frá Kanada (píanó) og Lothar Smirnov frá Þýska-
landi (saxófónn).
\ LFABAK
FRUMSÝNING: POWDER
Sýnd kl. 6.50, 9 og 11.10 í THX. Sýnd kl. 5 og 7 i THX. |
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
ÍTHX
SIGOUkNEY weaver
HOLLY HUNTER
ENNÞA FULLI
l’ac) it i'kliiTl arai ai) vir.i -viii
n.rli% MmkJ/á
★ ★★y2MS»,
JACK LEMMON WALTER MATTÍiAU
ANN MARGRET SOPHIA LOREN
Rás 2
Vaski gris
Baddi
Sýnd kl. 5. Isl. tal.
★★★
Dagsljós
COPYCAT
Sýnd kl.
9 og 11.10.
B. .
16 ara.
HMMlUIHIilRIMUrc
Sýnd kl. 5,7,9 og 11 í THX DIGITAL
Sýndkl. 5og7. Isl.tal.
Synd kl. 9 og 11 i
THX. Enskt tal.
HALLDÓRA Eldjárn, Þórarinn Eldjárn og Kol-
brún Halldórsdóttir spjölluðu saman í leikhléi.
TOM Söderman sendiherra Finnlands og
eiginkona hans, Kaija Söderman, ásamt höfund-
inum, Bengt Ahlfors.
I
I
3
:
1
I
:
4
Hamingjuránið framið
SONG- og gamanleikurinn Ham-
ingjuránið var frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu á laugardagskvöldið.
Höfundur verksins, Bengt
Ahlfors, var viðstaddur sýninguna
og að henni lokinni var hann hyllt-
ur af áhorfendum. Einnig var
hann heiðraður af Stefáni Bald-
urssyni þjóðleikhússtjóra og leik-
urum sýningarinnar. Matarveisla
var haldin í forsal leikliússins eft-
ir sýninguna. Þar buðu leikarar
upp á matföng og finnski sendi-
herrann veitti ljúfa drykki.
„ Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GISLI Gestsson, Edda Þórarinsdóttir, Kristín Jónsdóttir og
Þórhildur Þorleifsdóttir rýndu í leikskrána.
Glötuð g’amanmál
KVTKMYNPIR
Saga bíö
HERRA GLATAÐUR
(„Mr. Wrong") ★
Leiksljóri Nick Castle. Handrits-
höfundar Berry Ehrin, Chris Mat-
heson, Craig Munson. Kvikmynda-
tiikustjóri John Schwrzman. Tón-
list Craig Safan. Aðalleikendur.
Ellen DeGeneres, Bill Pullman,
Dean Stockwell, Robert Goulet,
John Livingstone, Joan Plowright.
Bandarísk. Touchstone 1996.
MARTHA Alston er orðin þrjátíu
og eitthvað og þar sem hún lætur
sér leiðast í giftingu systur sinn-
ar, sér hún sitt piparmeyjarhlut-
verk blasa við um ókomin ár. En,
sem fyrir kraftaverk, birtist
draumaprinsinn í líki kaupmang-
arans Whitmans Crawford (Bill
Pullman). Fríður og föngulegur,
vellauðugur og skáldmæltur.
Maitha getur ekki beðið um
meira. Blinduð af skyndilegu of-
dekri örlaganna tekur hún ekki
eftir því að bak við álitlegt yfir-
bragð Crawfords býr kolruglaður
furðufugl.
Það er ekki nóg að fara vel af
stað, úthaldið verður að vera í
lagi en það er ekki fyrir hendi hjá
þremenningunum sem skrifaðir
eru fyrir handritinu. Til að byrja
með virðist Herra glataður ætla
að þróast í kolsvarta kómedíu,
óþægilega að vísu eins og efnið
gefur til kynna, en óvenjulega,
forvitnilega. Því miður rennur
hnyttnin fljótlega út í eyðimörkina
á landamærum Bandaríkjanna og
Mexíkó, og ber ekki sitt barr eft-
ir það. Raunar má teljast furðu-
legt að myndin fékkst nokkru
sinni framleidd, og það af Disney-
veldinu, sem er ekki þekkt af
mistökum. En öllum verður á í
messunni. Þeirra á meðal Ellen
Degeners, bráðskemmtilegri leik-
konu sem nýtur mikillar hylli sem
Ellen í samnefndum sjónvarps-
þáttum. DeGeneres er því kominn
í ógnarlanga halarófu sjónvarps-
leikara sem ná ekki að flytja vin-
sældirnar yfír á hvíta tjaldið. De-
Generes gerir fátt rangt hér, líkt
og Bill Pullman. Hann er einkar
viðkunnanlegur leikari sem orðinn
er fastur í hlutverkum manna sem
gjarnan er stungið undan eða nið-
urlægðir á einhvern annan hátt.
Mál að linni sagði einhver Holly-
wood-framleiðandinn og útbýtti
honum hlutverk sjálfs Bandaríkja-
forseta í ÍD4, þar sem hann er
sagður standa sig rneð prýði.
Hann á því vonandi ekki eftir að
endurnýja kynnin af slíkum mis-
tökum sem þessum, ég óska De-
Generis þess sama. Þau og við
eigum betra skilið.
Sæbjörn Valdimarsson